Morgunblaðið - 16.09.1998, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Lýst eftir
manni
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir Jóhannesi Baldri Guðmunds-
syni. Jóhannes Baldur er 24ra ára,
184 cm á hæð, grannvaxinn með
aflitað, hvítt, stutt hár og með
eymalokk í vinstra eyra.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
um ferðir Jóhannesar Baldurs sl.
viku eða vita hvar hann er nú eru
beðnir um að hafa samband við lög-
regluna í Reykjavík.
---------------
Barn fyrir bfl
FJÖGURRA ára drengur varð íyrir
bíl við Snarengi í Grafarvogi á
sjötta tímanum í gær þegar hann
hljóp á eftir bolta út á götu. Dreng-
urinn var fluttur á slysadeild. Að
sögn vakthafandi læknis benti ekk-
ert til alvarlegra áverka að lokinni
rannsókn en drengurinn eyddi nótt-
inni á barnadeild þar sem fylgst var
með líðan hans.
Kjararannsöknar-
nefnd um
launahækkanir
Mest hjá
iðnaðar-
mönnum
LAUN iðnaðarmanna hækk-
uðu um 11,4% að meðaltali
milli fjórða ársfjórðungs 1997
og sama ársfjórðungs árið áð-
ur, en laun skrifstofukvenna
hækkuðu um 6,6% á sama
tíma.
Þetta kemur fram í frétt frá
Kjararannsóknamefnd. Sam-
kvæmt könnun nefndarinnar
hækkaði greitt tímakaup
paraðs úrtaks landverkafólks
innan ASÍ um 9,1% að meðal-
tali milli fjórða ársfjórðungs
1996 og 1997. Vísitala neyslu-
verðs hækkaði um 1,8% á
sama tíma þannig að kaup-
máttur greidds tímakaups
jókst um 7,2% á þessu tíma-
bili.
Eins og fyrr sagði hækkaði
tímakaup iðnaðarmanna mest
eða um 11,4% og afgreiðslu-
konur hækkuðu næstmest eða
um 10,7% að meðaltali. Þá
hækkuðu laun verkakarla um
10,2% að meðaltali og af-
greiðslukarla um 9,4%. Laun
skrifstofukarla hækkuðu um
8,2%, verkakvenna um 8% og
skrifstofukvenna um 6,6% að
meðaltali.
Hannes Hlífar kominn
í þriðju umferð
AUKAKEPPNI um síðustu sætin í
þriðju umferð á svæðamóti Norður-
landa var tefld í gær, en mótið er
haldið í Munkebo á Fjóni i Dan-
mörku. Hannes Hlífar Stefánsson
vann báðar atskákimar við Helga
Ólafsson, og er þar með kominn í 3.
umferð.
Aðeins sex keppendur eru nú eft-
ir í mótinu og hefjast úrslitaeinvigin
í dag. Hannes Hlífar teflir við
norska stórmeistarann Rune Djur-
huus, Daninn Peter Heine Nielsen
teflir við Tom Wedberg frá Svíþjóð
og Einar Gausel Noregi við Svíann
Ralf Ákesson.
Sigurvegararnir í þessum þrem-
ur einvígjum vinna sér rétt til þátt-
töku á heimsmeistaramóti alþjóða-
skáksambandsins, sem fram fer í
Las Vegas í Bandaríkjunum í des-
ember.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Hreindýr
í skotfæri
Vaðbrekku, Jökuldal. Morgunblaðið.
ÞAÐ er tilkomumikil sjón þegar
stór hreindýrahjörð rennur fyrir
í skotfæri og gaman að fylgjast
með dýrunum fara bítandi yfir
og heyra baulið í þeim. í þetta
skiptið var skyttan aðeins vopn-
uð myndavél og festi hópinn á
filmu þar sem hann fór bítandi
yfir í Svartöldu við Aðalbólsveg á
Fljótsdalsheiði.
Ríkisútvarpið fundaði með 50 fulltrúum framhaldsskóla
Enn óvíst hver sér um
Gettu betur í vetur
RÍKISÚTVARPIÐ átti í gær fund
með um 50 fulltrúum framhalds-
skóla á landinu um framtíð spum-
ingakeppni framhaldsskólanna,
sem farið hefur fram í Sjónvarpinu
og á Rás 2 undir nafninu Gettu bet-
m- undanfarin 13 ár, og lauk honum
án þess að niðurstaða fengist. Full-
trúar frá Islenska útvarpsfélaginu
kynntu framhaldsskólanemum um
helgina hugmyndir um það hvemig
halda mætti keppnina og er nú óráð-
ið hver mun sjá um hana í vetur.
Bjarni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarps, sagði í
gær að fundurinn hefði hafist
klukkan fimm og lokið einum og
hálfum tíma síðar. Sennilega yrði
ræðst við aftur í dag, en markmið-
ið væri að keppnin yrði „okkur og
þeim til sóma“.
„Við ræddum þetta fram og til
baka,“ sagði Bjami. ,Á fundinn
komu um 50 fulltrúar Félags fram-
haldsskólanema,víða að af landinu,
og jafnframt tengdust fulltrúar frá
Egilsstöðum, Akureyri og Isafirði
inn á fundinn í gegnum síma.“
Hann sagði að samningar við
framhaldsskólana snemst að miklu
leyti um peninga. Spurt væri
hversu mikils fjárstuðnings mætti
vænta frá Sjónvarpinu vegna
keppninnar, en fyrir lægi tilboð frá
íslenska útvarpsfélaginu. Einnig
hefði verið rætt með hvaða hætti
mætti efla þáttinn.
Ríkisútvarpið hefur styrkt kepp-
endur til ferðalaga og tekið þátt í
gistingarkostnaði. Á lokastigum
keppninnar hefur stofnunin einnig
tekið þátt í ferðakostnaði stuðn-
ingsmanna.
Peningahliðin órædd
Bjarni sagði að eftir ætti að ræða
alla útfærslu peningahliðarinnar
nánar.
Ríkisútvarpið hefur nú sótt um
að heiti þáttarins, Gettu betur,
verði skráð. Bjarni sagði að það
væri í raun aukaatriði hver ætti
þáttinn eða hvort einhver ætti
hann: „Aðalatriðið er að ná samn-
ingum, en við skoðum okkar réttar-
stöðu samhliða og við höldum ekki
keppnina nema eiga gott samstarf
við framhaldsskólana.“
Hreggviður Jónsson, forstjóri ís-
lenska útvarpsfélagsins, sagði í gær
að það væri fulltrúa framhaldsskól-
anna að ákveða hvort þættimir
yrðu hjá ÍÚ eða RÚV. Hann vildi
ekki velta fyrir sér eignarrétti á
þættinum, en sagði að það hefði
komið til tals að skrá nafnið á hon-
um, Gettu betur, en fallið hefði ver-
ið frá þvi.
Ekki voru allir ánægðir með
keppnina síðasta vetur og kom
meðal annars fram óánægja með
dómgæslu. Menntaskólinn við
Hamrahlíð gerði athugasemdir við
dómgæslu í úrslitaviðureigninni við
Menntaskólann í Reykjavík og
krafðist þess að MH-ingum yrði
dæmdur sigurinn, en útvarpsráð
hafnaði þeim kröfum.
Haft var eftir Hreggviði Jóns-
syni í íyrradag að aðilar, sem
tengst hefðu spurningakeppninni
síðast, hefðu komið að máli við ís-
lenska útvarpsfélagið og borið við
óánægju með framkvæmd keppn-
innar síðast. I framhaldi af því hefði
kynningarfundurinn á hugmyndum
IÚ verið haldinn á sunnudag.
Andlát
GUNNAR BJARNASON
GUNNAR Bjamason
hrossaræktarráðunautur
og kennari lést á Hjúkr-
unarheimilinu Eir í gær-
kvöldi á 83. aldursári.
Gunnar var þjóðkunnur
fyrir störf sín að hrossa-
rækt og kynningu ís-
lenska hestsins erlendis.
Gunnar Bjamason
var fæddur á Húsavik
13. desember 1915, son-
ur hjónanna Þórdísar
Ásgeirsdóttur og Bjarna
Benediktssonar kaup-
manns. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá MA árið
1933 og varð búfræðing-
ur frá Bændaskólanum á Hvanneyri
árið 1936. Þá tók hann árið 1939
BSc. próf frá Den kongelige Veter-
inær- og Landhohojskole í Kaup-
mannahöfn og var áfram í starfs-
þjálfun við hrossadóma og kynbóta-
skipulag í Danmörku, Noregi, Sví-
þjóð og Finnlandi.
Gunnar var hrossaræktar- og
hestaverslunarráðunautur hjá Bún-
aðarfélagi íslands árin 1940 til 1961,
var skólastjóri Bændaskólans á Hól-
um 1961-62 og kennari við Bænda-
skólann á Hvanneyri 1947-1961 og
1963-1972. Þá var hann alifugla- og
svínaræktarráðunautur hjá Búnað-
arfélaginu árin 1963-1978 og hesta-
útflutningsráðunautur
hjá landbúnaðarráðu-
neytinu og Búnaðarfé-
lagi íslands 1965-87.
Þá sat Gunnar um ára-
bil í flokksráði og skipu-
lagsnefnd Sjálfstæðis-
flokksins. Hann var einn
af stofnendum Lands-
sambands hestamannafé-
laga og stóð fyrir fyrstu
landssýningu kynbóta-
hrossa af reiðhestaættum
hérlendis á Þingvöllum
árið 1950. Einnig skrifaði
hann kennslubækur og
tók saman Ættbók og
sögu íslenska hestsins á
20. öld sem út kom í sjö bindum. Gunn-
ar var heiðursfélagi Landssambands
hestamannafélaga, Félags tamninga-
manna og nokkurra hestamannafélaga
innanlands og utan.
Gunnar Bjarnason var tvíkvænt-
ur. Fyrri kona hans var Svava Hall-
dórsdóttir og eru synir þeirra Hall-
dór og Bjarni. Síðari kona hans var
Guðbjörg Jóna Ragnarsdóttir og eru
börn þeirra Gunnar Ásgeir og
Regína Sólveig.
Gunnar Bjarnason var fréttaritari
Morgunblaðsins um langt skeið og
átti Morgunblaðið við hann langt og
farsælt samstarf sem þakkað er fyrir
nú að leiðarlokum.
í dag
A MIÐVIKUDOGUM
4SÍDUíi
vw
BJOMIM
TIL
UTALEIKS
J f i J_ á
Tók ísland
fram yfir
Svíþjóð
B1
Arnar á
| skotskónum
: með Bolton
B4
Aston
Villa slapp
fyrir horn
B4
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is