Morgunblaðið - 16.09.1998, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998 19
ERLENT
Sjónvarpskappræður sænskra stjórnmálaleiðtoga fyrir kosningarnar um helgina
Sigurvegarinn hvorki
Persson né Bildt
Reuters
LEIÐTOGAR tveggja stærstu stjórnmálaflokkanna í Svíþjóð, Göran
Person, forsætisráðherra og leiðtogi jafnaðarmanna, og Carl Bildt, leið-
togi hægrimanna, ræða við fréttamenn að lokinni sjónvarpsútsendingu.
Stokkhólmi. Morgunblaðið.
„BILDT vann“. Fullyrðingin á for-
síðu Expressen í gær á þó ekki við
kosningarnar, heldur kappræður
Göran Perssons forsætisráðheri’a og
leiðtoga jafnaðarmanna og helsta
keppinautar hans, Carl Bildts leið-
toga Hægriflokksins. Bildt talaði um
framtíðina, en dvaldist þó lengi við
að verja stjórnartíma sinn 1991-
1994, sem Persson dró upp dökka
mynd af. Keppinautarnir náðu sér
lítt á flug og ýmsir fjölmiðlar héldu
því fram í gær að sigurvegarnir
hefðu hvorki verið Persson né Bildt,
heldur Gudrun Schyman, leiðtogi
Vinstriflokksins, og Alf Svensson,
leiðtogi Kristilegra demókrata.
Bildt hefur í kosningabaráttunni
talað einna mest um framtíðina, en
framtíðaráform hans eru ekki sér-
lega ljós, utan hvað hann hyggst
beita sér fyrir skattalækkun, at-
vinnusköpun og inngöngu Svía í
Efnahags- og myntbandalag Evr-
ópu, EMU. Framtíðarsýn Hægri-
flokksins skýrðist heldur ekki í
kappræðum stjórnmálaleiðtoganna
tveggja á mánudagskvöldið.
Persson hóf umræðurnar á harðri
ádrepu á stjórn hægrimanna og tor-
tryggði skattalækkunaráform Bildts,
sem væri sama gamla hægristefnan.
Persson hnykkti á að með skatta-
lækkunai'áformunum lækkaði skatt-
ur Bildts um 6.205 sænskar krónur á
mánuði, um 55.000 kr. ísl, og endur-
tók þessa fullyrðingu fjórtán sinnum
í klukkustundailöngum kappræðun-
um. Bildt benti á að hægristjórnin
hefði tekið við þrotabúi, sem síðan
hefði verið komið yfir versta hjall-
ann, þegar stjórn jafnaðannanna tók
við.
Persson var áberandi harðvítugm-,
vitnaði til eigin reynslu sem lágstétt-
arstráks, sem vildi gera allt sem í
sínu valdi stæði til að binda endi á
„sænska stéttaþjóðélagið, sem ég
hata“, eins og hann lýsti yfii' af mikl-
um þunga. Skoðanakannanii- að lokn-
um kappræðunum bentu til að áhorf-
endum hefði þótt Bildt koma betur
fyrir. Aðrir benda á hið gagnstæða
og segja það um leið heldur dapur-
legt að Persson skuli vinna á því að
tala um stéttahatm- og hefnd. Tal af
þessu tagi leiði óneitanlega hugann
að stéttabaráttu síðustu aldrar.
En ýmislegt bendir til að mörgum
kjósendum hafi þótt vanta allt sem
við á að eta í málflutningi leiðtog-
anna tveggja. „Hvar eru draumarnir
og hugmyndafræðin?" spurði Pia
Maria Boethius rithöfundur í um-
ræðum eftir kappræðumar og fleiri
tóku í sama streng. Þessi afstaða
kemur að mati sænskra stjórnmála-
skýrenda Gudrun Schyman og Alf
Svensson til góða, því þau hafa frem-
ur haldið sig við hugmyndafræði en
hagfiæði.
Framtíð, menntun og atvinna
Framtíðin, mennntun og atvinna
eru algengustu orðin á kosninga-
veggspjöldunum sem blasa við þegar
keyrt er frá Arlandaflugvelli til
Stokkhólms. Carl Bildt á peysunni
biðlar til kjósenda undir slagorðinu
„Gerðu það kleift“. Formælendur
Umhverfisflokksins standa uppi í
sveit og lofa að koma Svíum út úr
Evrópusambandinu. Gudrun Schym-
an lofar að vinna daglega að réttlát-
ara þjóðfélagi, því ef „við gerum það
ekki, hver þá?“. Alf Svensson í dökk-
um jakka og ljósum buxum hallar
sér bara brosandi og afslappaður
upp að trjástofni og Lars Lejonborg
leiðtogi þjóðarflokksins lofar mann-
eskjulegri Svíþjóð.
Þó stjórnmálaskýrendur reikni
fæstir með stjórnarskiptum er enn
of snemmt fyrir Persson og stjórn
hans að halda upp á kosningasigur á
sunnudaginn. Fjöldi óákveðinna er
enn töluverður, stórir árgangar
ungra kjósenda og hugsanlega lítil
kosningaþátttaka gætu sett striki í
reikninginn.
Kristilegir
demókratar
í uppsveiflu
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
UPPSVEIFLA Kristilega
demókrataflokksins í sænsku
kosningabaráttunni sýnir að kjós-
endur vilja hlusta á annað en efna-
hags- og skattatal. Þeir vilja
heyra af gildum og hugsjónum.
Þessa ályktun draga sænskir
stjórnmálaskýrendur af því að
flokkurinn er nú þriðji stærsti
flokkurinn samkvæmt skoðana-
könnunum, með rúmlega tíu pró-
senta fylgi. Þar með hefur hann
skotið Vinstriflokknum ref fyrir
rass, en sá flokkur hefur dalað
skyndilega. í fljótu bragði gæti
velgengni Kristilega demókrata-
flokksins aukið líkur á hægri-
stjórn, en þar sem fylgisaukningin
virðist koma frá frá öðrum flokk-
um á hægrivængnum er ekki víst
að svo sé.
Alf Svensson, formaður Kristi-
lega demókrataflokksins, ljómar
þessa dagana, því á rúmlega ald-
arfjórðungsferli sem flokksfor-
maður hefur ekki blásið jafnbyr-
lega fyrir flokki hans. Svo virðist
sem kjósendur virðist í málflutn-
ingi hans finna traustvekjandi ör-
yggi. Einnig er bent á að sú mikla
athygli, sem beinist að þeim Gör-
an Persson forsætisráðherra og
Carl Bildt formanni Hægriflokks-
ins, kunni að valda því að kjósend-
ur svipist um eftir öðrum valkosti.
Jafnaðarmenn njóta nú fylgis 37,4
prósenta kjósenda, sem er átta
prósentum undir kosningaúrslit-
unum 1994, meðan Hægriflokkur-
inn hefur 23,8 prósent, rúmu pró-
senti yfir fylginu 1994.
IlciniasíOa: iithuilih.innH'dia.ivdiHM iirou»>lll
auping
I
í dag kl. 11:00 mun fara fram útboð á ríkisvíxlum hjá Lánasýslu ríkisins. í þessu
útboði heldur áfram uppbygging markflokka ríkisvíxla eins og kynnt var aðilum á
fjármagnsmarkaði 12. maí, en að öðru leyti eru skilmálar útboðsins í helstu atriðum
þeir sömu og í síðustu útboðum.
í boði verða eftirfarandi flokkar ríkisvíxla:
Flokkur Gjalddagi Lánstími Núverandi staða* Áædað hámark tekinna tilboða*
RV98-1217 17. desember 1998 3 mánudir 670 1.500
RV 99-0217 17. febrúar 1999 5 mánuðir 3236 500
RV 99-0817 17. ágústiggg II mánuðir 1.000 1.000
Milljónir króna. Uppbygging markflokka ríkisvíxla
Staða ríkisvíxla g.september, 20.124 milljónir króna.
Aætluð hámarksstærð og sala 16. september og I. október 1998.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 4070 • Fax: 562 6068
Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: lanasysla@lanasysla.is
Sölufyrirkomulag:
RQösvíxlamir verða seldir með tilboðsfyrirkomulagi.
Öllum er heimilt að bjóða í ríkisvíxla að því tilskyldu að
lágmarksfjárhæð tilboðsins sé ekki lægri en 20 milljómr.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum, fjárfestinga-
lánasjóðum, verðbréfafyrirtækjum, verðbréiásjóðum,
lífeyrissjóðum og tryggingafélögum er heimilt að gera tilboð
í meðalverð samþykktra tilboða, að lágmarki 500.000 któnur.
Öll tilboð í ríkisvíxla þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins
fyrir kl. 11:00, miðvikudaginn 16. september. Utboðsskihnálar,
önnur tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar
hjá Lánasýslu rikisins, Hverfisgötu 6, í síma 562 4070.