Morgunblaðið - 16.09.1998, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998 21
ERLENT
Alexander Lebed varar við uppreisn innan rússneska hersins
Hermenn afar óánægð-
ir með aðbúnaðinn
Reuters
ALEXANDER Lebed, héradsstjóri í Krasnojarsk, ræðir við föður
Gennadí, í þorpinu Ovsjanka. Lebed er fyrrverandi hershöfðingi og
hefur varað við því að uppreisn í hernum kunni að vera á næsta leiti.
ÁSTANDIÐ í rússneska hernum
veldur nú vaxandi áhyggjum og var-
aði Lebed, fyrrverandi hershöfðingi
og núverandi ríkisstjóri í Kra-
snojarsk í Síberiu, enn við því um
helgina að andrúmsloft meðal her-
manna væri með þeim hætti að æ
meiri hætta væri á uppreisn hers-
ins.
Lebed, sem er talinn líklegur
frambjóðandi í rússnesku forseta-
kosningunum eftir tvö ár, sagði í
samtali við breska blaðið The
Sunday Times að það væri reyndar
heimskulegt að halda að uppreisn
ynni bug á efnahagsvandanum í
Rússlandi en að matarskammtur
hei-manna væri nú í algeru lágmarki
„og eftir 26 ár í hernum er mér vel
kunnugt um það að svangur her-
maður er jafnframt afar reiður her-
maður“.
Lebed sagði íbúa Rússlands alls
ekki reiðubúna fyrir veturinn sem í
vændum væri, enda hefði mikill
hluti kartöfluuppskerunnar reynst
ónýtur og kornuppskera sumarsins
væri einnig í lakara lagi. „Staðan er
sannarlega afar alvarleg,“ sagði
Lebed. „Það er lítið vit í að biðja
fólk, sem fær 350 rúblur [um 2.000
ísl. kr.] í framfærslueyri á mánuði,
um að harka enn af sér. Biðin mun
verða því að aldurtila."
Heimildir innan rússneska hers-
ins herma að búið sé að nýta 80%
þeirra matarbirgða sem geymdar
eru sérstaklega fyi-ir stríðstíma.
Sögusagnir um að hermenn lifi á
hundamat hafa gerst háværar að
undanförnu í rússneskum fjölmiðl-
um og jafnframt hafa hermenn ekki
fengið greidd laun sín um nokkurn
tíma. Stungu fulltrúar varnarmála-
ráðuneytisins rússneska upp á því
nýlega að hermenn veiddu sér físk
til matar og týndu sveppi til að
halda lífi uns ríkisvaldið gæti gi-eitt
þeim laun.
Hafa liðsmenn Dzerzhinskí-deild-
arinnar, sem er úrvalslið hermanna
er tengdir eru innanríkisráðuneyt-
inu rússneska, að undanförnu verið
sendir til að tína kartöflur úr jörðu
á ríkisreknum búgai’ði nærri
Moskvu. Fá þeir fyrir vikið súpu-
skál, bolla af hrísgrjónum, te og
brauðbita í hádegismat. „Jafnvel áð-
ur en þessir efnahagserfíðleikar
skullu á var aðbúnaður okkar slæm-
ur,“ segir liðsforinginn Anatolí
Medvedev í samtali við CNN. „En
núna veit ég ekki hvernig við eigum
að lifa af. Það má í raun líkja okkur
við róna.“
Jeltsín nýtur ekki lengur
stuðnings meðal hermanna
Atburðurinn um borð í rússnesk-
um kafbát á föstudag, þegar nítján
ára sjóliði gekk berserksgang og
drap átta félaga sína áður en loks
tókst að yfirbuga hann, þykir vís-
bending um að andrúmsloft sé á
suðupunkti í hemum, örvænting sé
tekin að grípa um sig.
Öruggt er talið að Borís Jeltsín,
forseti Rússlands, getur ekki lengur
reitt sig á stuðning hermanna. Ai-ið
1993 leysti hann upp störf Dúmunn-
ar, neðri deildar rússneska þings-
ins, og lét herinn skjóta fallbyssu-
skotum á þinghúsið, er þingmenn
neituðu að hlíta ákvörðuninni. Slíkt
gæti ekki átt sér stað nú, enda
Jeltsín rúinn trausti meðal her-
manna, og þetta vita stjórnarand-
stæðingar í Dúmunni og er það ein
skýring þess að þeir voru reiðubún-
ir til að láta hart mæta hörðu í síð-
ustu viku er deilt var um tilnefningu
Viktors Tsjernómyrdíns í embætti
forsætisráðherra. „Meirihluti hers-
ins hefur ekki fengið greitt síðan í
apríl,“ segir Gennadí Zjúganov,
leiðtogi Kommúnista í Dúmunni.
„Það er útilokað að herinn geti
hugsað sér að verja þessa rotnu rík-
isstjórn.“
Segir Medvedev liðsforingi að
vissulega sé það hugmyndin að her-
mennirnir fylgi skipunum forsetans,
sem er æðsti yfírmaður hersins.
„En ég get sagt þér enn á ný að við
munum ekki taka upp vopn gegn
fólkinu okkar.“
Eru rússnesku fjármálafurst-
arnir að missa áhrif sín?
The Daily Telegraph.
RÍKUSTU menn Rússlands, sem
hafa haft töluverð áhrif á stjórn
landsins undanfarin sex ár, þurfa
nú að takast á við nýja tegund
stjórnmálamanna - forsætisráð-
herra sem á ekkert inni hjá þeim.
Ymislegt þykir nú benda til þess
að áhrif þeirra fari minnkandi, en
auk þess sem Jevgení Prímakov
sýnir þeim klærnar hefur efna-
hagskreppan í Rússlandi leikið þá
grátt.
Fjármálafurstarnir hafa í for-
setatíð Jeltsins haft töluvert að
segja um það hver stjórnar land-
inu og hvernig, enda fjármöghuðu
þeir að miklu leyti kosningabar-
áttu hans er hann var endurkjör-
inn árið 1996. Margir telja jafnvel
að „bankastjórarnir sjö“ sem er
orðaleikur og minnir á „bojarana"
sjö sem voru við völd 1 skamman
tíma á 17. öld, hafí í raun stjórnað
landinu sjálfir.
Fjármálafurstarnir eiga Viktor
Tsjernómyrdín, sem hefur gegnt
embætti forsætisráðherra meira
eða minna undanfarin sex ár, að
þakka stóran hluta auðæfa sinna.
I valdatíð hans hleypti ríkisstjórn-
in af stað stórtækri einkavæðing-
aráætlun og komust þeir þannig
yfir gríðarstór ríkisfyrirtæki á
mjög lágu verði. Það er því engin
furða að þeir hafi gjarnan viljað
hafa hann áfram við stjórnvölinn.
Þegar Jeltsín lét undan þrýstingi
þeirra um að tilnefna Tsjernó-
myrdín á ný í embætti forsætis-
ráðherra er hann rak Sergei Kíríj-
enkó fyi-ir þremur vikum, sneri
Tsjernómyrdín til gömlu skrifstof-
unnar sinnar með hinn allra rík-
asta fjármálafurstanna, Boris
Berezovskí, sér við hlið.
Nú hefur efnahagskreppan í
Rússlandi hins vegar gengið nærri
fjármálaveldi „bankastjóranna
sjö“ og haft af þeim stóran hluta
auðsins og áhrifanna sem þeir öðl-
uðust með því að eiga háttsetta
vini. Lækkun á oliuverði hefur
komið illa niður á sumum þeirra,
en aðrir hafa neyðst til að samein-
ast fyrrverandi keppinautum sín-
um til að lifa af kreppuna í banka-
geiranum.
Hallar undan fæti
Einn þeirra sem hallað hefur
undan fæti fyrir er Alexander
Smolensky, stofnandi SBS-Agro
bankans. Fyrir þremur árum
lagði hann til um 50 kíló af gulli
til að gylla hvelfingar dómkirkj-
unnar í Moskvu. Undanfarnar
vikur hefur hann hins vegar þurft
að há harða baráttu til að koma í
veg fyrir gjaldþrot SBS-Agro
bankans, þar sem viðskiptavinirn-
ir hafa þúsundum saman lokað
reikningum sínum. Á blaða-
mannafundi í síðustu
viku var eftir því tek-
ið að hann fletti
pappírsmiða sundur
og saman í fáti, en á
hann sást ritað síma-
númer eins nánasta
samstarfsmanns
Tsjernómyrdíns.
Berezovskí
flúinn
Sá alræmdasti af
fjármálafurstunum er
Boris Berezovskí, við-
skiptajöfur sem
byggði veldi sitt á
einokunaraðstöðu í
bílaframleiðslu í
Rússlandi, og hefur státað sig af
því að geta fellt og skipað ríkis-
stjórnir að eigin geðþótta. Nú er
talið að hann sé flúinn úr landi,
sennilega til London, eftir að hafa
mistekist að telja Jeltsín á að
standa við tilnefningu Tsjernó-
myrdíns í forsætisráðherraemb-
ættið.
Berezovskí er enn talinn hafa
áhrif á Jeltsín í gegnum dóttur
hans, Tatjönu Díasjenkó, en þau
ku vera nátengd. Þau áhrif hafa
þó, líkt og rúblan, fallið í verði, nú
þegar andlegri og líkamlegri
heilsu Jeltsíns hefur hrakað og
hann virðist hafa eftirlátið Jevgení
Prímakov mikið af
völdum sínum.
Það þykir ótvírætt
til marks um minnk-
andi áhrif auðjöfr-
anna að þingið hafi
hafnað tilnefningu
Tsjernómyrdíns og
skipað Jevgení
Prímakov í embætti
forsætisráðherra í
síðustu viku, án þess
að þeir gætu komið í
veg fyrir það. Príma-
kov hefur síðan notað
hvert tækifæri til að
sýna að hann muni
ekki hlýða skipunum
frá neinum, enda eigi
enginn neitt inni hjá honum.
Bakland Prímakovs er herinn og
leyniþjónustan, sem hefur ekki
farið leynt með fyrirlitningu sína á
hinum nýríku fjármálafurstum.
I íyrsta sjónvarpsviðtalinu sem
tekið var við Prímakov eftir að
hann varð forsætisráðherra fór
hann hörðum orðum um „þá
hræðilegu mótsögn sem felst í því
að helmingur þjóðarinnar lifi und-
ir fátæktarmörkum". Fáum duld-
ist að þarna var hann að ráðast á
auðjöfrana og óhóflegan lífsstíl
þeirra. Ekki er því að undra að
margir telji áhrifaskeið þeirra
senn á enda.
Berezovskí
Dregur sam-
an með SPD
og CDU
Bonn. Reuters.
MUNURINN á fylgi flokks Helm-
uts Kohls, kanzlara Þýzkalands, og
jafnaðarmanna, helztu keppinaut-
anna um völdin í komandi þingkosn-
ingum, dróst enn saman samkvæmt
niðurstöðum nýjustu skoðanakann-
ana sem birtar voru í gær. Kohl nýt-
ur þó enn mjög lítils fylgis í austur-
hluta landsins, þar sem kommúnist-
ar réðu ríkjum á árum áður.
Samkvæmt skoðanakönnun
Forsa-stofnunarinnar, þeirrar
fyrstu sem gerð var eftir Bæjara-
landskosningarnar og birt var í gær,
hefur munurinn á fylgi Kristilegra
demókrata, CDU og Jafnaðar-
mannaflokksins, SPD, hafði minnk-
að niður í þrjú prósentustig, úr sex
stigum, en það er sá munur sem
mældist í síðustu viku. Þannig var
fylgi flokks Kohl nú komið upp í
38%, en SPD tapaði einu stigi og
mælist nú með 41% fylgi. í austur-
hluta landsins mælist munurinn á
fylgi stóru flokkanna þó ennþá 10%.
----------------------
Nyrup frið-
mælist í
Færeyjum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
MEÐ Færeyjaferð sinni virðist Poul
Nyrup Rasmussen forsætisráðherra
hafa friðmælst við flokksmenn sína í
Færeyjum eftir öldurót bankamáls-
ins undanfarin ár. Færeyskir jafn-
aðarmenn halda þó enn fast við fyrri
loforð til heimamanna um að þeir
muni ekki blanda sér í dönsk mál-
efni, svo Nyrup getur enn ekki verið
öruggur um stuðning þeirra í
danska þinginu. En ánægja Færey-
inga með heimsókn forsætisráð-
herra og uppgjör dönsku stjórnar-
innar frá í sumar gæti þýtt að meiri
friður komist á í samskiptum Dana
og Færeyinga.
Með heimsókninni nú er sýnt að
færeyska landstjórnin er að fullu
sátt við uppgjörið vegna bankamáls-
ins. En hvorki Joannes Eidesgaard,
formaður jafnaðarmanna, né Marita
Petersen, fyrrverandi lögmaður
Færeyinga, draga dul á að þau eru
enn þeirrar skoðunar að stjórnin
geti ekki notað atkvæði færeyskra
þingmanna til að koma dönskum
málum í gegn.
Hins vegar er málinu ekki lokið
heima fyrir, þar sem nýlega hófust
málaferli á hendur Den Danske
Bank vegna bankamálsins á árunum
1992-1993. Bankinn svaraði svo
hraustlega fyrir sig við upphaf mála-
ferlanna að allt bendir til að þau
muni ekki ganga þegjandi og hljóða-
laust fyrir sig.
^NOHA
Brunaslöngur
frá Noregi
Viðurkennd brunavöm
Fáanlegar með og án skáps
Heildsöludreiflng:
TEnGlehf
Smiðjuvegi 11, Kópavogi
Sími 564 1088,fax564 1089
Fást í byggingavöruverslunum um land allt.