Morgunblaðið - 16.09.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998 25
GOSIÐ hefst í daufum kvöldsól-
arbjarma eftir að Kristín
prinsessa hefur með fágaðri
ræðu og ósýnilegum takka sett
þriðju Dans- og leiklistarhátið
Gautaborgar. Þá hefur rauð-
klædda konan ferð sína yfir poll-
inn í átt frá óperubyggingunni til
áhorfenda. Um leið myndar eld-
rauður slóðinn dregil yfir vatns-
flötinn við undirleik ósýnilegra
tónlistarmanna. Þegar konan
nálgast áhorfendur á bakkanum
blakar hún höndunum og í sömu
svipan spretta goshverir upp úr
örmum hennar og brjósti. Gosið
deyr svo út þegar konan afklæð-
ist rauðum möttlinum og hverfur
hvítklædd í kvöldið meðal áhorf-
enda.
„In praise of solitude" er nafn-
ið á þessum dansgjörningi Anja
Birnbaum í hlutverki gjósandi
gyðju.
Um tuttugu erlendar sýningar
voru í boði á þessari átta
daga hátíð, m.a. frá Israel,
Rússlandi, Víetnam, Spáni,
Frakklandi, Belgíu og
Englandi. „Berskjöldun"
eða hlífðarleysi var þema
hátíðarinnar.
Eftir setningarathöfnina
var boðið upp á „Sabotage
Baby“, nýjustu sýningu
Batsheva Dance Company
frá Tel Aviv, en höfundur-
inn Oliad Naharin hefur
verið stjórnandi dans-
flokksins undanfarin átta
ár og er honum þökkuð
mikil velgengni flokksins
nú um stundir. „Vegalaus
glæsimennska“ var ein-
kunn gagnrýnanda Gauta-
borgarpóstsins og vildi
hann meina að samfélags-
gagnrýni, sem er frekar
dularfull en markviss, geti
vissulega heillað mann
upp úr skónum, en ekki
hjálpað manni í þá aftur.
„Ég þarf ekkert að vita
hvert ég er að fara,“ er
haft eftir Ohad Naharin
sem svar við spurningum
um listræna stefnu hans.
Yngri ísraelskur dans-
flokkur er Liat Dror Nir
Ben Gal Company, sem sýndi
„The dance of Nothing", sem
ísraelskir dansarar dönsuðu við
arabíska tónlist. Þótti sýning
flokksins öllu markvissari en sýn-
ing landa hans.
Frá Rússlandi kom m.a. leik-
hópur undir stjórn Anatolij
TÖNLIST
Hljnmiliskar
ÞÚ FAGRA VOR
20 lög eftir Árna Gunnlaugsson.
Söngur: Elín Ósk Óskarsdóttir, Alda
Ingibergsdóttir, Kjartan Ólafsson,
Kristín Sædal Sigtryggsdóttir, Jó-
hanna Linnet, Guðmundur Þór Gísla-
son, Árni Gunnlaugsson, Kamma
Karlsson, Kór Bústaðakirkju. Hljóð-
færaleikarar: Júlíana Elín Kjartans-
dóttir, Rósa Hrund Guðmundsdóttir
og Hrönn Geirlaugsdóttir (fiðlur),
Sesselja Halldórsdóttir (víóla), Oliver
J. Kentish (selló), Guðrún Guðmunds-
dóttir, Hólmfríður Sigurðardóttir (pí-
anó), Guðni Þ. Guðmundsson (píanó
og orgel), Carl Möller (pi'anó og
hljómborð), Eyjólfur Eyjólfsson
(fiauta), Kristján Edelstein (klassísk-
ur gítar og mandólín), Birgir Karls-
son (rafgítar), Jón Rafnsson (kontra-
bassi), Guðjón Pálsson (harmoníka).
Léttsveit Lúðrasveitar Akureyrar,
stjórnandi Atli Guðlaugsson. Utsetn-
ing: Oliver J. Kentish, Eyþór Þorláks-
son, Páll Kr. Pálsson, Guðni Þ. Guð-
mundsson, Finnur Torfi Stefánsson,
Jónatan Ólafsson, Atli Guðlaugsson
og Carl Möller. Hljóðvinnsla og sam-
setning: Halldór Vikingsson. Fram-
leiðsla: Sony DADC í Salzburg, Aust-
urríki. Útg. (1998) Árni Gunnlaugs-
son - AG 001.
EINS og menn vita er Árni
Gunnlaugsson þekktur Hafnfirðing-
ur, en ekki vissu allir að hann er
söngvari góður og enn færri að
hann hefur samið lög og texta. A
Gyðja gýs
í Gauta-
borg
Rauðklædd kona tekur
að gjósa í heimagerðum
polli fyrir utan óperu-
- —- —
húsið við ána. A Jussi
Björlings plats. Þannig
hefst dans- og leikhátíð
í Gautaborg, sem Krist-
ín Bjarnadóttir sótti og
segir frá.
Vasiljev með sýningu sem einna
helst minnti á helgileik. Hún
byggðist á Harmljóðum Gamla
testamentisins og er til orðin í
samvinnu leikstjórans við tón-
skáldið Valdimir Martinov.
Önnur sýning, sem orkaði
sterkt á hugann, var nýtt dans-
Við minn-
inganna
arin
þessum hljómdiski má heyra tutt-
ugu laganna, sem flest eru sönglög,
og hefur hann einnig samið flesta
textana - og syngur sjálfur í einu
við eigið ljóð, í klaustrinu, í smekk-
legri útsetningu Finns Torfa Stef-
ánssonar. „Söngurinn er mitt sálar-
vítamín, minn lífselexír, og án hans
get ég ekki verið og þess vegna
syng ég á hverjum degi. Byrja yfir-
leitt daginn í sundlauginni og syng
þar oft með með nokkrum góðum
sund- og söngmönnum. Þetta er
bara eðlilegur hlutur - mín tjáning,
sem ég verð að fá útrás fyrir, hvem-
ig svo sem menn túlka það,“ er haft
eftir Áj’na, sem innritaði sig sextug-
ur I söngnám í Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar. Ami var um árabil í Kar-
lakórnum Þröstum og í söngtímum
hjá Einari Sturlusyni (um 1950). Að
loknu lögfræðiprófi fór hann til
Hamborgar í framhaldsnám og sótti
þá tíma hjá virtum þýskum kennara
að áeggjan Einars.
Ámi Gunnlaugsson er (oftast)
góður lagasmiður og textar hans
einlægir, þótt hvorugt sæti tíðind-
um nema fyrir vini og velunnara, en
„góður“ er reyndar nokkuð afstætt í
verk eftir Eo Sola frá Víetnam:
„II a été une fois.“ Eo Sola hefur
áður vakið athygli á alþjóðlegum
hátfðum fyrir verk eins og
„Þurrkur og regn“, sem byggist
á danshefð fólks á landsbyggð-
inni og höfundurinn vann með
konum á þeim slóðum. Nú hefur
Eo Sola leitað í ævintýrið um
prinsinn af hafí og prinsessu til
lands; þau eignast hundrað börn
og svo hverfur hann aftur til
sjávar og tekur með sér hálfan
barnaskarann. „Sá sem aldrei
þorir að kveðja, getur ekki fund-
ið leiðina til uppruna síns,“ hef-
ur verið haft eftir Eo Sola, sem
sjálf flúði ung til Parísar.
Af öðrum athyglisverðum sýn-
ingum hátíðarinnar má nefna
belgíska sýningu: „lets op Bach“
með níu dönsurum frá átta lönd-
um, nærgöngula blöndu af dans-
stílum og götumenningu undir
stjórn Alain Platel við tilfinn-
ingaríkan flutning á tón-
list eftir Bach; söngleik-
inn „Irmaos de Sangue",
sem er árangur samvinnu
Evu Bergman við Teatro
Avenida í Mocambique og
loks frumsýningu Borgar-
leikhússins við Gauta-
torgið á „Husesyn“.
Þeirri sýningu stjórn-
aði nýráðinn leikhús-
stjóri, Jasenko Selimovic,
sem undanfarin ár hefur
vakið athygli með sýning-
um sínum; nú síðast með
uppsetningu á Hamlet í
Borgarleikhúsinu.
Selimovic tók við stjórn-
artaumunum í vor og kom
í nöturlegt andrúmsloft
þar sem flestu starfsfólki
hafði verið sagt upp störf-
um.
Nú hefur hann gripið
til þess ráðs að setja
áhorfendur á svið í bók-
staflegri merkingu, um
leið og hann býður fólki
upp á sögu hússins í þess-
ari fyrstu frumsýningu
leikársins. „Gömlu“ leik-
ararnir eru á sínum stað
en á víð og dreif um húsið
og áhorfandinn leitar þá
uppi og horfir á þá fara með
brot úr sýningum fyrri ára.
Jasenko hefur áður reist leik-
Iist úr rústum og örugglega
munu margir fylgjast með því af
áhuga, hvernig til tekst i' Borg-
arleikhúsi Gautaborgar næstu
misserin
þessum bransa. Aftur á móti hefur
hann fengið til liðs við sig góðan og
fjölbreyttan hóp söngvara og hljóð-
færaleikara, að ógleymdum útsetj-
urum sem flestir vinna verk sitt
smekklega og af látlausri kunnáttu.
I síðustu lögunum kveður nokkuð
við annan og léttari tón með svolítið
meiri sveiflu og Léttsveit Lúðra-
sveitar Akureyrar í lokin. Ekki
verður samt hjá því komist að þrátt
fyrir „fjölbreytnina" verður útkom-
an dálítið einhæf, sem vonlegt er -
því það þarf fjári góða og þraut-
reynda tónlistarmenn á öllum svið-
um til að halda athygli manns og
áhuga vakandi gegnum 20 lög!
Ekki er samt að efa að hljómdisk-
urinn mun gleðja marga.
Oddur Björnsson
í SÝNINGU Liat Dror Nir Ben Gal Company
dönsuðu ísraelskir dansarar við arabíska tónlist.
í DANSI Eo Sola segir frá fimmtíu
börnum á landi og fimmtíu í sjó.
Eg lifí áfram
ANNA S. Björnsdóttir
hefur gefið út sex ljóða-
bækur á tíu árum. Hún
hefur fengið viðurkenn-
ingar erlendis fyrir ljóð
sín, m.a. fékk hún í
Frakklandi verðlaun
fyrir ljóðið Kveðja sem
birtist nú fyi’ir skömmu
í nýjustu ljóðabók henn-
ar, Hægur söngur í
dalnum.
Taktu bréfrn í silfurkassan-
um, elskan mín
og settu þau undir sængina
inn í lófa mína
þegar loginn minn er slokknaður
ég ætla að lesa bréf á himnum
hverfast með orðum í jörðinni
ogundirbúa nýjar rætur
„Ég hef lengi verið að skrifa um
minn eigin dauða, en svo deyja ást-
vinir mính' - en ég lifi áfram,“ sagði
Anna í samtali við blaðamann um
ljóðlist hennar. Hún lítur á sjálfa sig
fyrst og fremst sem „rómantíker" í
ljóðlistinni. „Það er dauðinn og sam-
skipti manns og konu sem hafa verið
mín hugstæðustu viðfangsefni,“ seg-
ir hún. En hvers vegna skyldu þessi
tvö viðfangsefni hafa fangað huga
hennar í slíkum mæli? „Þetta tvennt
veldm' manneskjunni þjáningu. I
skáldskapnum er ég að reyna að
leita lausna. Enginn kemst undan
dauðanum. Ahtaf er verið að tala um
hlutverkið sem bíður þeirra sem
deyja - en það gleymist oft að hugsa
um bi'eytinguna á hlutvei'kum þeirra
sem eftir lifa.
Mér finnst fólk oft skorast undan
ástinni og hagsmunir frekar látnir
ráða í samskiptum manns og konu.
Kannski er ástin svo dýr að aðeins
örfáir hafa efni á henni.
Það er á degi sem þessum
að skilningurinn springur út eins og brum að
vori
naktir fætur dansa gleðidans í takt við ljóðið
sem steig til himins í orðlausu kjökri
og andartökin verða að árum í hjarta sem
slær
hjarta sem elskar
Er ljóðlist þín svar við atburðum
raunveruleikans? „Eins
nákvæmt og ég megna
er hún það. Ég hef valið
mér það að gefa þannig
hlutdeild í sjálfri mér
en vissulega kostar það
talsvert að opinbera
þannig sálai’líf sitt. Ég
undrast stundum sjálf
að ég skuli gera þetta -
en veit að ég á alltaf
þann möguleika að
hætta.
Ég er ekki eitt af
þeim skáldum sem
segjast yrkja af nauð-
syn. Ljóð mín eru mun-
aður minn - ef aðrir geta einnig not-
ið þeirra þá er ég hamingjusöm. Um
leið og ljóð eru komin í bók geta aði'-
ir átt aðgang að þeim og notað þau í
sínu lífi. Ljóð geta ferðast milli fólks
og milli landa og verið notuð í ýms-
um miðlum - sem dæmi get ég nefnt
að ég frétti að ljóð eftir mig er á sím-
svara í Hollandi. Þannig komast ljóð-
in eftir ýmsum leiðum til margra -
ég vil gjai-nan að ljóðin mín séu not-
uð - meðal annars þess vegna gef ég
þau út og reyni að vanda til þeii-ra.
Maríuljóð
María leggur lófann
blítt á höfúðið
sem hvílir í skauti hennar
lýtur niður
og hvíslar lágt
lausnarorðum
Hún horfir til himins
og biður bænarinnar
sem hún kann
syngur fyrir hann
sem hvílist
og þegar hann vaknar
syngur hún áfram
fyrir augu hans
sem virðast sjá allt
Hún kyssir hann
fyrir opnum himninum
og Guði
sem ætlaði honum
þessa hvflu
og hann lætur sefast
við lítinn lófa
og hjartaslátt
Alþjóðleg
ferðamarkaðsfræði
Nú sem fyrr er Ferðamálaskóli íslands leiðandi skóli fyrir þá,
sem vilja auka menntun sína í ferðaþjónustu. Ferðamálaskóli
íslands var fyrstur skóla til að byrja með alþjóðlegt IATA/UFTAA
(Alþjóðasamband flugfélaga) nám, sem er viðurkennt um allan
heim og hlotið hefur miklar vinsældir hér á landi.
Ferðamálaskóli íslands hefur nú fyrstur skóla fengið samþykki
IATA/UFTAA til að bjóða uppá nýtt námsefni, sem IATA/UFTAA
hefur hleypt af stokkunum og á örugglega eftir að verða hagnýtt
og eftirsótt nám.
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
Söluráðar Verðlagning
Markaðsrannsóknir
Markaðsumhverfið
Markaðshlutun
Arðsemi
Árstíðarsveiflur
Dreifing
Auglýsingar
Samkeppni
Markaðsáæltanir
Markaðsvirkni
Sölustjórnun
Sölutækni
Markmið
Stefnumótun
Ferðaþjónusta á Islandi
Námið er alls 300 stundir og kennt verður þrisvar í viku frá
kl. 18.15-22.00.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekið er próf í mars nk. og
veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á (slensku.
Námið hentar öllum þeim,
sem áhuga hafa og vilja auka
þekkingu sína á
ferðaþjónustu.
Ferðamálaskóli Islands
Bíldshöfða 18
567 1466