Morgunblaðið - 16.09.1998, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
fWtrgiumMiilíií
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
„FORTIÐINNI
FORÐAÐ
FRÁ GLÖTUN“
SJÁLFSEIGNARSTOFNUN í Reykjavík, sem heitir Forn-
leifastofnun íslands, hefur að undanförnu unnið að skrán-
ingu fornleifa á landinu öllu. Petta er mikið og þarft verk, því
að tímans tönn vinnur á fornleifum og því nauðsynlegt að skrá
þær og ganga úr skugga um hver þörf sé á frekari rannsókn-
um. Björgunarstarfið er hafið og eru nú um 20.000 minjastaðir
komnir í gagnagrunninn Isleif um fornminjar. Með þessu er
verið að leggja grunn að öflugri minjavernd á næstu öld.
I grein í Morgunblaðinu í gær, sem bar fyrirsögnina „For-
tíðinni forðað frá glötun", kemur m.a. fram, að með lögum um
þjóðminjavörzlu frá 1989 hafi orðið vatnaskil í minjavernd.
Með lögunum öðluðust allar fornminjar á Islandi friðhelgi og
fornminjaskráning varð lögbundin forsenda skipulagsvinnu.
Lög frá 1993 um umhverfismat hertu enn á fornleifavernd, þar
sem óheimilt er að hefja framkvæmdir nema gerð hafi verið
fornleifakönnun á undan.
Orri Vésteinsson, fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun,
segir að lögin hafi kallað á markvissar aðgerðir við skráningu
fornminja, sem fram að því, er lögin tóku gildi, hafði verið
ómarkviss, hægvirk og afar kostnaðarsöm. Fornleifastofnun
hefur þjálfað nokkra starfsmenn í fornminjaskráningu, en
áhyggjum veldur hve fáir fornleifafræðingar eru í landinu. Nú
eru fjórir sem stunda skráninguna allt árið um kring, en nauð-
synlegt er að tvöfalda þann hóp, ef hægt á að vera að skrá allt
landið á næstu tuttugu árum.
Fornleifafræðingar leggja áherzlu á að nauðsynlegt sé að
styðja við fornleifarannsóknir. Þær séu ekki ótæmandi auðlind
og „þjóð, sem veit ekki hvaðan hún kemur, getur ekki vitað
hvert hún er að fara“. Það er ekki sízt ánægjulegt að þetta
verk er framtak nokkurra ungra fornleifafræðinga, sem hafa
tekið höndum saman um stofnun og starfrækslu Fornleifa-
stofnunar íslands.
FRÉTTAÞJÓNUSTA
OG ÞRÝSTINGUR
MORGUNBLAÐIÐ telur það að sjálfsögðu í fullu samræmi
við upplýsingaskyldu sína að birta myndir er slys verða.
Blaðið gætir þess að birta ekki myndir sem gætu misboðið til-
finningum fólks, hvorki lesenda né þeirra, sem um sárt eiga að
binda. Það hefur reyndar verið aðal blaðsins í myndbirtingum
alla tíð og svo verður áfram. Mynd er einfaldlega ekki birt
gangi hún gegn þessum meginsjónarmiðum.
Að sjálfsögðu tekur ritstjórnin tillit til ábendinga fólks um
myndbirtingar sé ástæða til, því að rök gegn myndbirtingu
kunna að vera fyrir hendi, þótt ekki liggi í augum uppi. Hins
vegar er þýðingarlaust að beita i-itstjórnina þrýstingi til að
koma í veg fyrir eðlilega myndbirtingu. Það var reynt vegna
flugslyssins á Bakkaflugvelli, en þar björguðust allir giftusam-
lega. Það voru sannarlega gleðitíðindi.
Oft er því miður einnig ástæða til myndbirtinga, þegar
hörmulegir atburðir eiga sér stað, enda er það einatt hlutverk
fjölmiðla að skýra frá því sem veldur sorg og sárindum ekki
síður en gleði og fögnuði. En heiðarlegur fjölmiðill lætur ekki
beita sig þrýstingi og hlýtur að hafna sérhverri tilraun til að
hefta eðlilega fréttaþjónustu, þótt þess sé krafizt, stundum
vegna hagsmuna.
JÓN ARNAR MEÐAL
ÞEIRRA BESTU
LÍTILL VAFI leikur á því ap Jón Arnar Magnússon er einn
fremsti íþróttamaður sem íslendingar hafa átt. Ferill hans
sem tugþrautarmanns er ekki langur en hann hóf keppni í
þeirri grein árið 1994. Engu að síður er hann nú kominn í hóp
bestu tugþrautarmanna heims. Frammistaða hans á alþjóðleg-
um mótum undanfarin ár gefa það skýrt til kynna og þá ekki
síst öruggur sigur hans á tugþrautarmótinu í Talence í Frakk-
landi um síðustu helgi þar sem þátt tóku margir af fremstu
köppum heims í greininni.
Athygli vekur að Jón Arnar sigrar á mótinu þrátt fyrir að
eiga ekki sína bestu þraut og sýnir það vel að hann á mikið
inni. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Jón Arnar þennan
sigur ekki síst vera mikilvægt innlegg á reynslureikninginn:
„Eg ber virðingu fyrir andstæðingum mínum sem persónum,
en ekki vegna þess að þeir séu betri en ég í flestum greinum
eins og áður var. Nú hafa hlutverkin snúist við. Nú get ég
heldur meira en þeir. Þetta er mjög mikilvægt atriði." Þjálfari
Jóns Arnars, Gísli Sigurðsson, tekur í sama streng og segir
þennan sigur stærsta skrefið á ferii hans.
Ástæða er til þess að óska Jóni Arnari til hamingju með ár-
angurinn og velgengni á komandi árum.
Ungur Reykvíkingur undirbýr herferð ungs fólks í Evrópu gegn eiturlyfjum
Um þúsund ungmenni í
lestarferð um Evrópu
Pallas Athena-Thor er
heiti á verkefni sem mið-
ar að því að hrinda af
stað herferð ungs fólks í
Evrópu gegn eiturlyfj-
um. Hápunktur hennar
verður lestarferð ungs
fólks frá Aþenu til Ósló-
ar og ferjusigling þaðan
til Reykjavíkur, þar sem
haldnir verða tónleikar
og ráðstefna um for-
varnir gegn fíkniefnum.
Hugmyndina að verk-
efninu átti ungur
Reykvíkingur, Jóhannes
Kr. Kristjánsson að
nafni. Arna Schram
ræddi við hann og komst
m.a. að því að einn helsti
tilgangur verkefnisins
væri sá að sýna ungu
fólki fram á það hve
gaman það væri að
ferðast og skemmta
sér án vímuefna.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
JÓHANNES Kr. Kristjánsson, framkvæmdastjóri verkefnisins Pallas Athena-Thor.
FYRIR rúmu ári var verkefn-
ið Pallas Athena-Thor, sem
ber undirtitilinn Ungt fólk 1
Evrópu gegn fíkniefnum,
einungis hugmynd í höfði Jóhannesar
Kr. Kristjánssonar, en þá var hann
starfsmaður Jafningjafræðslu fram-
haldsskólanna. Síðar ritaði hann
megindrætti hugmyndarinnar niður á
eitt A-4 blað og bar þá undir hóp af
ungu fólki, meðal annars starfsmenn
Hins hússins, sem tók þeim vel. Nú
er svo komið að undirbúningur verk-
efnisins er kominn vel á veg og ítar-
leg skýrsla um framkvæmd verkefn-
isins hefur hlotið góðar undirtektir
hjá ráðamönnum á íslandi og í Evr-
ópu. Til dæmis mætti nefna að alþjóð-
legar stofnanir og samtök á borð við
UNESCO, European Youth Forum
og European Cities Against Drugs
hafa lýst sig tilbúnar til þess að
leggja verkefninu lið á einn eða ann-
an hátt.
Jóhannes hefur starfað að undir-
búningi verkefnisins Pallas Athena-
Thor í fullu starfí frá því í byrjun des-
ember á síðasta ári og hóf annar
starfsmaður, Víkingur Viðarsson,
störf við verkefnið í síðasta mánuði.
Sjö manna stjóm hefur verið skipuð
til að hafa yfírumsjón með verkefninu
og flest bendir til þess að hápunktur
þess, lestarferð 1.000 ungmenna um
Evrópu og tónleikar og ráðstefna í
Reykjavík, geti orðið að veruleika
næsta sumar.
Að sögn Jóhannesar er megintil-
gangur verkefnisins að benda ungu
fólki á að hægt sé að lifa lífínu og
skemmta sér án fíkr.iefna og enn-
fremur að sýna fram á að ungt fólk
geti átt frumkvæði að og stjórnað
risavöxnu verkefni á borð við Pallas
Athenu-Thor. Nafn verkefnisins á
líka að vísa til baráttuþreks unga
fólksins gegn fíkniefnum, segir Jó-
hannes, en Pallas Athena er baráttu-
gyðjan í grískri goðafræði og Thor
eða Þór er baráttuguðinn í norrænni
goðafræði. Það fer þvi vel á því að
baráttuferðin gegn fíkniefnum hefjist
í Aþenu í Grikklandi og endi í
Reykjavík á íslandi.
Lestarferð
næsta sumar
Jóhannes segir að í áætlun verkefnis-
ins Pallas Athena-Thor sé gert ráð
fyrir því að það hefjist formlega í
nóvember nk. Þá eigi verkefnastjórn-
ir, sem verið er að koma á í öllum
löndum Evrópu, að ýta úr vör herferð
ungs fólks gegn eiturlyfjaneyslu. Að
sögn Jóhannesar er það hlutverk
verkefnastjórnar í hverju landi fyrir
sig að skipuleggja slíka herferð gegn
fíkniefnum, en aðalatriðið sé að hún
sé undirbúin og framkvæmd af ungu
fólki í viðkomandi löndum. Jóhannes
segir að stefnt sé að því að herferðin
standi fram á næsta vor og að í lok
júnímánaðar nái verkefnið hápunkti
með lestarferð evrópskra ungmenna
um meginland Evrópu. Síðan verði
siglt til Islands, þar sem haldnir verði
tónleikar og ráðstefna um forvarnir í
fíkniefnamálum.
Jóhannes segir að fyrrnefnd lestar-
ferð eigi að hefjast í Aþenu í Grikk-
landi. Aætlað er að grísk ungmenni
haldi þaðan norður eftir meginlandi
Evrópu og stoppi í nokkrum borgum
á leiðinni, þar sem skipulagðar verði
ýmsar uppákomur tengdar verkefn-
inu og tekið við fleiri ungmennum í
lestina.
Að sögn Jóhannesar er reiknað
með því að um 20 ungmenni á aldrin-
um 16 til 25 ára taki þátt í ferðinni frá
hverju landi og að því muni samtals
um 1.000 ungmenni enda ferðina í
Ósló í Noregi. Unnið er að því í sam-
ráði við alþjóðleg samtök lestarfyrir-
tækja að fá lestir til að flytja hópinn
um Evrópu, að sögn Jóhannesar. Frá
Ósló er ætlunin að hópurinn taki skip
til Reykjavíkur með viðkomu í
Færeyjum og að sögn Jóhannesar er
unnið að því í samráði við borgaryfir-
vöid í Ósló að útvega sérstakt skip til
verkefnisins.
Þegar til Reykjavíkur verður kom-
ið er ætlunin að fara með hópinn í
ýmsar ævintýraferðir um landið, til
dæmis í hestaferðir og hvalaskoðun-
arferðir, en að þremur dögum liðnum
hefst að sögn Jóhannesar ráðstefna
undir yfirskriftinni European Youth
Against Drugs eða Ungt fólk í Evr-
ópu gegn eiturlyfjum. Gert er ráð
fýrir því að ráðstefnan standi yfir í
þrjá daga, þar sem meðal annars
verði skipst á skoðunum um forvarnir
gegn fíkniefnum, og að í lok hennar
verði formlega stofnuð samtökin
European Youth Against Drugs.
„Eftir ráðstefnuna hefjast síðan tón-
leikar í Reykjavík og er það loka-
hnykkurinn í verkefninu," segir Jó-
hannes, en stefnt er að því, í samráði
við forsvarsmenn tónlistarblaðsins
Undirtóna, að fá heimsfræga tónlist-
armenn til að spila á tónleikunum.
Segir Jóhannes að nokkrir tónlistar-
menn hafi tekið vel í þá hugmynd að
spila til styrktar nýjum samtökum á
tónleikunum, en vill ekki að svo
stöddu gefa upp nein nöfn. Jóhannes
bætir því ennfremur við að reynt
verði að semja við sjónvarpsstöðina
MTV um að sjónvarpa frá tónleikun-
um. „Og þegar síðasta nótan er slegin
á tónleikunumn lýkur verkefninu
Pallas Athena-Thor formlega og eftir
standa samtökin European Youth
Against Drugs.“
Ekki gefíst upp
Ekki er hægt að segja annað en að
verkefnið sé risavaxið og segir Jó-
hannes aðspurður að hann hafi marg-
sinnið „rekist á veggi“ eins og hann
orðar það, þegar hann hafí verið að
reyna að kynna hugmyndina í upp-
hafi og að honum hafi oft fallist hend-
ur. Hann hafi hins vegar haldið áfram
á þrjóskunni einni saman og nú loks
sér hann fram á að verkefnið geti orð-
ið að veruleika. Hann bendir einnig á
að verkefnið hefði aldrei komist eins
langt og raun ber vitni nema fyrir að-
stoð starfsmanna Hins hússins, en
hjá þeim hafi hann fengið nauðsyn-
lega starfsaðstöðu og alla þá ráðgjöf
sem hann hafi þurft.
Þegar Jóhannes er spurður að því
hvar hann hafi fengið hugmyndina að
verkefninu segist hann að hún sé í
raun komin frá verkefni Evrópuráðs-
ins frá árinu 1995, sem hafi borið
heitið All different-AU equal. Það
verkefni miðaði að því að vinna gegn
kynþáttafordómum og voru í því
skyni skipulagðar lestarferðir fyrir
um átta hundruð ungmenni sem end-
uðu í Strassbourg með stórri kjöt-
kveðjuhátíð.
„Þegar ég starfaði hjá Jafningja-
fræðslunni frétti ég af verkefni Evr-
ópuráðsins og fór að velta því fyrir
mér hvort ekki væri hægt að gera
eitthvað svipað í sambandi við for-
varnir gegn fíkniefnum. Eg vann
frekar að hugmyndinni og hélt fyrsta
kynningarfund verkefnisins með
nokkrum aðilum í Hinu húsinu 26.
júní 1997,“ segir hann.
Sjö manna stjórn verkefnisins var
skipuð í sumar til þess að tryggja fag-
leg vinnubrögð og skapa tengsl við
aðila úti í þjóðfélaginu, en formaður
hennar er Ketill Berg Magnússon,
verkefnisstjóri Hins hússins.
Markmið og framkvæmd verkefn-
isins virðast skýr og segir Jóhannes
að nú sé verið að vinna að því að
sækja um styrki til Evrópusam-
bandsins og Norrænu ráðherra-
nefndarinnar, auk fleiri aðila, en
talið er að verkefnið muni kosta um
450 milljónir króna. Þetta þykir há
upphæð enda veltur framganga
verkefnisins á því hvort takist að
fjármagna það með fé frá alþjóðleg-
um stofnunum og fyrirtækjum. Jó-
hannes getur þess að síðustu að
ýmsir innlendir aðilar hafa nú þegar
veitt aðstoð og styrkt undirbúning
verkefnisins og að þar á meðal sé
Eimskip, íslandsbanki, menntamála-
ráðuneytið, utanríkisráðuneytið,
Hitt húsið, Islandia Internet og
Re.ykj avíkurborg.
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998 2ÍF
Sveitarstjórnarmenn í Grindavík og Þorlákshöfn þrýsta á þingmenn
Vilja að Suðurstrandar- .
vegur fari inn í vegaáætlun
Morgunblaðið/Golli
EINAR Njálsson, bæjarstjóri í Grindavík, og Sesselja Jónsdóttir, sveitarstjóri í Ölfushreppi, kyimtu skýrslu Byggða-
stofnunar um liagkvæmni Suðurstrandarvegar.
Sveitarstjórnarmenn í
Grindavík og Þorláks-
höfn þrýsta nú með vax-
andi þunga á að Suður-
strandarvegur verði
settur á vegaáætlun. I
nýrri skýrslu um hag-
kvæmni vegarins segir
að í dag séu um 11.000
tonn af físki fiutt á milli
Suðurlands og Suður-
nesja. Vegurinn muni
hafa mjög mikla þýðingu
við flutning á hráefni
vegna loðnufrystingar.
Miklir möguleikar muni
enn fremur skapast
í ferðaþjónustu með
tilkomu vegarins.
HREPPSNEFND Ölfus-
hrepps og bæjarstjórn
Grindavíkur fóru þess á
leit við Byggðastofnun
snemma á þessu ári að hún léti fara
fram úttekt á gildi Suðurstrandar-
vegar. Vegarslóði liggur í dag á milli
Þorlákshafnar og Grindavíkur og er
hann torfær og ekki haldið opnum
yfír veturinn. Kostnaður við lagn-
ingu vegarins er áætlaður 1.100
milljónir, en inni í þeirri tölu er lagn-
ing vegar alla leið að Reykjanesvita.
Vegstæðið er hins vegar ekki vel
rannsakað og þess vegna er þessi
kostnaðaráætlun ekki nákvæm.
Rætt er um að byggja veginn upp
frá grunni. Við það styttist vegurinn
milli Þorlákshafnar og Grindavíkur
úr 97 km (um Þrengsli) í 58 km.
Styttingin er 39 km eða 40%. Leiðin
milli þéttbýlisstaðanna austan ár og
Grindavíkur styttist um 33 km og
milli Selfoss og Grindavíkur um 17
km. Stytting í umferðartíma er hins
vegar meiri en kílómetratölurnar
gefa til kynna vegna þess að núver-
andi leið liggur í gegn um höfuð-
borgarsvæðið þar sem oft er mikil
umferð. Meðal annars eru 9 umferð-
arljós á leiðinni eins og hún er í dag.
Hafa þarf einnig í huga að Suður-
strandarvegur liggur hvergi í mikilli
hæð yfir sjó, en það gera bæði
Þrengslavegur (270 m) og Hellis-
heiði (370 m).
Miklir fiskflutningar
í skýrslu Byggðastofnunar voru
dregnar saman upplýsingar um
flutninga á milli Suðurnesja og Suð-
urlands. Gerð var könnun í ágúst
1996 í heila viku á flutningi framhjá
Litlu kaffistofunni og jafn-
framt teknar saman tölur
frá höfnum og fiskmörkuð-
um um flutning á fiski
milli þessara landshluta.
Niðurstaðan er sú að í dag
séu flutt um 11.000 tonn á ári af fiski
milli Suðurlands og Suðurnesja.
Einar Njálsson, bæjarstjóri í Gr-
indavík, telur raunhæft að gera ráð
fyrir að þessir flutningar þrefaldist
við tilkomu vegarins.
Byggðastofnun lét kanna sérstak-
lega viðhorf útgerðaraðila á þessu
svæði til vegarins til að kanna hvaða
þýðingu hann hefði fyrir þá. Af 42
útgerðarmönnum aflamarksskipa
sagði meirihlutinn að öruggur vegur
milli Þorlákshafnar og Grindavíkur
myndi brerfa útgerðarháttum hjá
þeim. 24 sögðu mjög líklegt eða frek-
ar líklegt að vegurinn myndi breyta
útgerðarháttum, en 14 sögðu ólík-
legt eða frekar ólíklegt að hann
gerði það.
Flestir töldu að vegurinn myndi
auðvelda þeim sókn austur með Suð-
urlandi. Suðurnesjamenn nefndu að
þeir myndu í auknum mæli landa
afla í Þorlákshöfn og aka aflanum
vestur um. Við það sparaðist margra
klukkutíma stím, áhöfnin kæmist
fyrr heim í landlegu og
möguleiki á samstarfi við
fyi'irtæki í Þorlákshöfn
ykist. Margir nefndu líka
atriði sem tengjast hag-
kvæmni rekstrar og aukn-
um sölumöguleikum. Má þar nefna
hærra fiskverð með aukinni sam-
keppni og fleíri kaupendum, hægt
yrði að flytja meira út með flugi
vegna góðrar leiðar um Keflavíkur-
flugvöll og möguleikar á að koma
loðnu til frystingar ykist.
Óli Rúnar Ástþórsson, fram-
kvæmdastjóri Atvinnuþróunarsjóðs
Suðurlands, sagði að Suðurstrandar-
vegur kæmi til með að hafa gríðar-
lega mikla þýðingu meðan loðnu-
frysting stendur yfir. Þá sldpti hver
klukkutími máli og greiðar sam-
göngur gætu bjargað miklum verð-
mætum. Það mætti heldur ekki van-
meta þýðingu þess að losna við þá
miklu flutninga, milli Suðurlands og
Suðumesja, sem nú færa um um-
ferðarkerfi höfuðborgarinnar, sem
þegar væri að springa vegna mikill-
ar umferðar.
í skýrslunni er nefnt að Suður-
strandaivegur gæti leitt til þess að
útgerðarmenn sæju sér frekar hag í
að landa í Þorlákshöfn í auknum
mæli frekar en á höfnum á
Suðumesjum. Einar
Njálsson sagðist ekki hafa
áhyggjur af því að Grinda-
víkurhöfn myndi láta und-
an í samkeppni við Þor-
lákshöfn. Hann sagði að vegurinn
myndi vafalaust leiða til þess að ný
viðhorf sköpuðust og ekki væri ólík-
legt að stofnun hafnarsamlags yrði
skoðuð í framhaldinu.
Hefur mikla þýðingu
fyrir ferðaþjónustuna
Sesselja Jónsdóttir, sveitarstjóri
Ölfushrepps, sagði að Suðurstrand-
arvegur myndi hafa mikla þýðingu
fyrir ferðamannaþjónustu á þessu
svæði. Ein ferðaskrifstofa hefði lýst
yfir áhuga á að stofna tii fjölda ferða
sem einungis biðu eftir að vegurinn
yrði byggður. Þetta svæði byði upp á
mikla náttúrufegurð. Þarna væri
hverasvæði sem vekti mikinn áhuga
ferðamanna. Strandarkirkja væri á
þessari leið og Herdísarvík. Með
Suðurstrandaivegi skapaðist mögu-
leiki fyrir ferðamenn, sem koma til
landsins um Keflavíkui'flugvöll, til að t
hefja ferðina án þess að fai-a um
Reykjavík. Þetta gæti skipt miklu
máli fyrir ferðaþjónustu á Suður-
landi og víðar.
Óli benti einnig á að með tilkomu
Suðurstrandarvegar yrði til hringur,
sem án efa yrði vinsæll „sunnudags-
bíltúr“ hjá höfuðborgarbúum. Ekki
þyrfti að hafa mörg orð um hvaða
þýðingu slíkt hefði fyrir verslun og
þjónustu á þessu svæði.
Suðurstrandarvegur
á vegaáætlun
Suðurstrandarvegur hefur enn
ekki verið settur inn í vegaáætlun.
Hún verður endurskoðuð á næst^.
ári og sögðu Sesselja og Einar að
íbúar á þessu svæði legðu mikla
áherslu á að vegurinn yrði settur inn
í vegaáætlun. Einar sagði að fjár-
laganefnd Alþingis ætlaði
að heimsækja Suðumesin
um næstu mánaðamót og
myndi nefndin fara suður
Hellisheiði og koma Suð-
urstrandarveg til Grinda-
víkur. Hann sagðist vona að ferðin
yki skilning nefndarmanna á miki-
vægi vegarins.
Sveitarstjórnarmenn hafa á síð-r
ustu áram lagt mikla áherslu á aðX
farið verði í þessa vegagerð. í síð-
ustu viku samþykkti Samband sveit-
arfélaga á Suðumesjum ályktun þar
sem skorað var á þingmenn að
byggja upp Suðurstrandarveg.
Sesselja sagðist telja að þingmenn
Suðurlandskjördæmis og Reykja-
nesskjördæmis hefðu skilning á mik-*g
ilvægi þessai-ar vegalagningar.
„11.000 tonn
af fiski flutt
um Reykjavík“
„Fjárlaganefnd
ekur Suður-
strandarveg“