Morgunblaðið - 16.09.1998, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KÍNAVÖNDUR - perla haustsins.
KÍNAVÖNDUR
(Gentiana sino-ornata)
EFTIR því sem
líður á sumarið
fækkar þeim teg-
undum sem
blómstra í garðin-
um. Mörgum finnst
tilgangslaust að
reyna að rækta teg-
undir sem ekki er
von á að blómstri
fyrr en um eða eftir
miðjan september.
Sé haustið snemma
á ferðinni eða sum-
arið kalt verður oft
lítið úr blómgun.
Sumarið á Suður-
og Vesturlandi hef-
ur í ár verið svo
gott að blómgun flestra jurta
hefur verið nokkrum vikum
fyrr á ferðinni en venjulega. Því
ættu flestar þær síðblómstrandi
jurtir, sem á annað borð þrífast
hérlendis, að ná að sýna blóm-
skrúð sitt. Kínavöndur er ein
þessara haustblómstrandi
jurta, sem byrjar íyrst að
blómstra þegar kemur fram í
september, en hann getur hins
vegar staðið í blóma langt fram
í október.
Vendirnir - Gentiana - eru
mjög skemmtileg ættkvísl. Þá
er að finna víða um heim, allt
frá heimskautalöndum til hita-
beltissvæða svo sem Nýju-
Gíneu, en eru yfirleitt taldir
fjallaplöntur. Það er mjög á
reiki hversu fjölmenn þessi ætt-
kvísl er talin. I plöntubókum
sem ég hef undir höndum má
sjá töluna 200, 400 og 800 teg-
undir, þannig að þarna virðast
ráða duttlungar bókahöfunda.
Við getum státað af einum með-
lim ættkvíslarinnar, dýragrasi,
og nokkrum fjarskyldari ætt-
ingjum, sem eru maríuvöndur,
maríuvendlingur og þeir frænd-
ur.
Það liggur í augum uppi að
svona fjölmenn ættkvísl hýsir
tegundir, sem henta vel til
ræktunar í görðum, og Genti-
ana-ættkvíslin er nánast talin
safnaraættkvísl, en ekki eru all-
ar garðplöntumar auðveldar
viðfangs. Þetta eru einærar
(eins og dýragras), tvíærar eða
fjölærar plöntur og stærð
þeirra er mjög breytileg, dýra-
gras er aðeins um 5 cm á hæð
en gulvöndurinn, sem er risinn í
hinni ræktuðu grein fjölskyld-
unnar, getur verið nálægt 1,5 m
á hæð. Eins er blómgunartím-
inn breytilegur, vorvöndur og
dvergvöndur blómgast í lok maí
eða í júní, gulvöndur í júlí,
klukkuvöndur í ágúst og kína-
vöndur í september, október.
Sameiginleg einkenni vanda
eru að þetta eru jurtir með heil-
um eða heilrenndum blöðum,
sem standa ýmist hvert á móti
öðru (gagnstæð) eða í krans á
blómstönglinum. Blómin em
með samvöxnum bikarblöðum
og krónublöðin eru samvaxin,
a.m.k. neðst, og með oddmjóum
krónuflipum. Langsamlega al-
gengasti blómlitur-
inn er blár, oft
ákaflega fallegur
blár litur, eins og
þeir geta vottað
um, sem þekkja ís-
lenska dýragrasið
sem líka er kallað
bláin, en nafnið vís-
ar sjálfsagt til hins
ótrúlega sterka
bláa litar. Þó eru
líka til tegundir eða
gerðir með hvítum
blómum og nöfn
purpuravandar og
gulvandar segja til
um litinn.
Eins og ég nefndi
áðan hafa vendirnir margir
hverjir það orð á sér að vera
erfiðir í ræktun og því era til
jafnmörg góð ráð um ræktun og
ræktendurnir era margir. Þó
læt ég hér fylgja ráðleggingar
úr mjög góðri bók sem danska
garðyrkjufélagið gaf út og heit-
ir „Havens staudeleksikon“.
Þar segir: Þeir vendir sem eru
ættaðir frá fjallasvæðum þurfa
mikla birtu og helst að standa á
svölum stað. Þeir þurfa að vaxa
í vel framræstum jarðvegi, þeir
þurfa mikinn raka á vorin og
sumrin og því er gott að jarð-
vegurinn sé dálítið leirkenndur.
Látið vendina vaxa nálægt öðr-
um plöntum - þeir hata einvera.
Vendir af Asíuupprana þurfa
birtu eða hálfskugga. Þeir þola
ekki þurrk á vaxtartímanum og
kjósa helst myldna, létta jörð,
t.d. blöndu af sandi, mómold,
safnhaugamold, barrnálum og
leir.
Þetta segja Danir um vanda-
ræktun. Nafn kínavandarins
segir til um uppranann. Evr-
ópubúar kynntust þessari perlu
meðal vandanna ekki fyrr en í
byrjun þessarar aldar og enn er
hann sjaldgæfari í íslenskum
görðum en hann ætti að vera.
Kínavöndurinn myndar breiður
af jarðlægum sprotum. Blöðin
era lítil (1,5 cm) og oddmjó og
sitja gagnstæð á fíngerðum
stönglinum, sem myndar auð-
veldlega rætur. Blómklukkurn-
ar, sem vaxa á stöngulendun-
um, eru hins vegar ótrálega
stórar, nálægt 5 cm, dökkbláar
að innan en að utan skiptast á
purpuralitar og grænleitar
rendur. Blómklukkumar
standa óvenjulengi. Þær lokast
í dimmviðri og á kvöldin en
opnast síðan þegar sólin skín.
Smávegis frost virðist ekki gera
kínavendinum neitt illt og hann
er nægjusamur, einu kröfurnar
era dálítil mómold og ekki of
mikill þurrkur. Auðvelt er að
fjölga tónavendi með skiptingu.
Kínavöndur í ræktun er mjög
breytilegur og því jafnvel talinn
blendingur af hinum eina sanna
kínavendi sem þrífst helst í
súrri jörð líkt og lyngrósir
(rhododendron) og fleiri teg-
undir.
S. Ifl.
BLOM
VIKUIVMR
396. þáttur
Imsjón Ágústa
BjömsdoUir
f DAG
VELVAKAMII
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Sóðaskapur á
Rey kj anesbraut
ÉG var að keyra á Reykja-
nesbraut sl. laugardag um
kl. 18.30. Keyrði þá á eftir
bifreiðinni Ö 194 þar sem
bflstjórinn gerði sér lítið
fyrir og skrúfaði niður rúð-
ina og hellti úr fullum
öskubakka á götuna. Þetta
er óþolandi subbuskapur. I
lögreglusamþykkt er mjög
há sekt við þessu.
Jón Stefánsson,
Langholtsvegi 139.
Vonarpeningur
í ÍÞRÓTTALÝSINGU um
helgina sagði iþróttamaður
útvarpsins um efnilegan
knattspyrnumann að hann
væri einn helsti vonarpen-
ingur KR-inga. Þetta er
röng notkun því það var
alltaf sagt hér áður ef
skepnur voru vesælar að
það væri ekkert hægt að
gera annað en að vona að
þær lifðu, það væri vonar-
peningur. Það var kannski
sagt á þessa leið: Uss,
þetta er algjör vonarpen-
ingur. - Ég er búinn að
heyra þetta hjá þeim áður
og þetta gildir alls ekki um
þennan unga og efnilega
knattspyrnumann.
Helgi.
Tapað/fundið
Myndavél týndist í
Hafnarfirði
UM miðjan ágúst þegar ég
var heima í fríi varð mér á
að leggja splunkunýju
myndavélina mína frá mér
á þak bfls sem lagt var við
hliðina á bílnum sem ég
var að fara inn í. Ég hafði
lagt á Linnetstígnum í
Hafnarfirði, á móti blóma-
búðinni Burkna, á meðan
ég fór erinda minna. Þegar
ég svo ætlaði að opna bfl-
hurðina á bflnum sem ég
ók lagði ég myndavélina
mína á þakið á bflnum
næst mér þar sem ég var
með fangið fullt af pappír-
um og átti erfitt með að ná
í bfllykilinn. En því miður
gieymdi ég myndavélinni
þar sem ég hafði lagt hana
frá mér og ók í burtu. Þeg-
ar ég var komin áleiðis til
Reykjavíkm- uppgötvaði
ég hvað ég hafði gert,
sneri við, en þá var bíllinn
og myndavélin mín horfin
á braut. Ég gerði lögregl-
unni í Hafnarfirði og
Reykjavik strax viðvart en
vélinni hafði ekki verið
skflað þangað þegar ég fór
svo aftur heim til Flórída
hinn 8. september. Mikið
þætti mér vænt um, ef sá
sem fann myndavélina les
þetta, að hann mundi
hringja í síma 555 3476 eða
555 0565 til að koma vél-
inni til skila. Þetta er
Kodak Advantix-mynda-
vél, svört að lit með filmu i.
Á filmunni eru myndir af
móðursystur minni teknar
á 91 árs afmælinu hennar
sem mér þykir afar sárt að
eiga ekki lengur. Með
kæru þakklæti.
Hrafnhildur Ólafsdóttir.
Kápa og veski týndust
á Skuggabarnum
SIÐ svört ullarkápa týnd-
ist á Skuggabarnum sl.
laugardagskvöld. Einnig
týndist svört taska. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 565 2835 eða
555 0551.
Nokia GSM-sími
týndist
NOKIA GSM-sími týndist
á Nelly’s kaffi aðfaranótt
laugardags. Hans er sárt
saknað. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
567 7676 eða 567 5171.
Dýrahald
Söngkettir
í karlakórshúsinu við
Skógarhlíðina hefur lítil
læða leitað skjóls til að
gjóta fimm myndarlegum
kettlingum. Læðan er
svört með hvít veiðihár,
hvítar hosur, hvít á bringu
og augljóslega heimilis-
köttur. Kettlingarnir eru
alhr bröndóttir og mismik-
ið hvitir svo að augljóst
þykir að faðirinn er mynd-
arbrandur. I dag era kett-
lingarnir orðnh’ nógu stór-
ir til að fara frá mömmu
sinni. Þá vantar alla gott
heimili, hjá góðu fólki, sem
vfll veita þeim gott heimfli
og gott líf. Þeir sem kann-
ast við læðuna, eða vilja
taka að sér kettling, vin-
samlegast hringi í síma
557 3623.
Svartur köttur
í óskilum
UNGUR, svartur, loðinn
köttur, með græna ól en
ómerktur, er í óskilum á
Hagamel. Upplýsingar í
síma 562 9246.
Sambó
er týndur
KOLSVARTUR ungur
fress týndist frá Njálsgötu
30. ágúst. Þeir sem hafa
orðið hans varir hafi sam-
band í síma 5519364.
(Rangt símanúmer birtist
sl. laugardag.)
SKAK
lluisjón Margeir
Pctursson
íu, hafði svart og átti leik.
38. - Hxf3+! 39. Kxf3 -
Dd5+ 40. Kg3 - Rxf4! 41.
Hgl - Kf7 42. Hcel - Hg8+
43. Kxf4 - Bd6+ 44. Be5 -
Bxe5+ og Portisch gafst
upp.
Staðan kom upp
í Roquebrunne í
Frakklandi þar
sem bestu skák-
konur heims etja
kappi við heims-
þekkta stórmeist-
ara af eldri kyn-
sióðinni. Ungveij-
inn Lajos Portisch
(2.595) var með
hvítt, en Maja
Tsjíburdanidze
(2.525) fyrrum
heimsmeistari
kvenna frá Georg-
SVARTUR leikur og vinnur
ÞESSIR duglegu drengir söfnuðu með tombólu kr. 2.985
til styrktar Rauða krossi íslands. Þeir heita Bjarki Freyr
Júlíusson og Trausti Þorsteinsson.
Víkverji skrifar...
EGAR fréttir bárast um and-
lát George Wallace, sem á sín-
um tíma var þekktur ríkisstjóri í
Alabamaríki í Bandaríkjunum og
þá fyrst og fremst fyrir baráttu
sína gegn réttindum blökkumanna,
rifjaðist upp fyrir Víkverja fundur,
sem hann átti með Wallace fyrir
þrjátíu áram.
Þá háttaði svo til, að Wallace
hafði verið ríkisstjóri svo lengi að
lög ríkisins leyfðu ekki að hann færi
í framboð á nýjan leik. I hans stað
var eiginkona hans í framboði og
vann en þegar Víkverja bar að
garði í höfuðstöðvum ríkisstjóra
Alabama var það Wallace sjálfur,
sem sat á skrifstofu ríkisstjórans,
en ekki eiginkona hans, sem var
réttkjörin í embættið.
Knúinn af hugsjónaeldi æsku-
mannsins hafði Víkverji hugsað sér
að gera harða hríð að George
Wallace vegna stefnu hans í kyn-
þáttamálum. Ríkisstjórinn fyrrver-
andi reyndist hins vegar ekkert
lamb að leika sér við. Hann hóf
samtalið umsvifalaust á þessa leið:
„Þú ert frá Islandi. Þið leyfið enga
blökkumenn í varnarliðinu á Kefla-
víkurflugvelli." Eftir þessi inn-
gangsorð George Wallace var gest-
ur hans í stöðugri vöm allan tímann
við að bera af sér og öðram íslend-
ingum þær sakir, að við hér uppi á
Islandi stæðum fyrir kynþáttamis-
rétti.
Þrátt fyrir ofstækisfullar skoðan-
ir á þessum áram var George
Wallace sterkur og að mörgu leyti
heillandi persónuleiki. Víkverji
skildi betur en áður hvað hann naut
mikils fylgis í heimaríki sínu. Með
áranum varð hann mildari í afstöðu
sinni til kynþáttamála og skapaði
sér aukna virðingu.
x x x
AD er athyglisvert að fýlgjast
með fréttum af kaupum Sky-
sjónvarpsstöðvarinnar á brezka
knattspyrnuliðinu Manchester
United, en sjónvarpsstöðin er sem
kunnugt er í eigu fjölmiðlajöfursins
ástralska, Ruperts Murdochs. Þessi
kaup benda til þess, að Murdoch
hyggist í framtíðinni sitja báðum
megin við borðið, og ekki kæmi á
óvart, að hann reyndi að kaupa
fleiri brezk knattspyrnulið alveg
með sama hætti og hann hefur
eignast allmörg dagblöð í Bret-
landi.
Þeir hagsmunir, sem um er að
ræða, eru þessir: Réttindi sem Sky-
sjónvarpsstöðin hefur keypt til þess
að senda út knattspyrnuleiki í Bret-
landi renna út eftir u.þ.b. þrjú ár.
Nú era að koma fram á sjónarsviðið
í Bretlandi fleiri sjónvarpsstöðvar,
sem munu keppa við Sky um þessi
réttindi. Til þess að tryggja ítök sín
í hópi samningsaðilanna og auka
líkurnar á því að Sky haldi réttind-
unum hefur Murdoch talið öragg-
ast að byrja einfaldlega að kaupa
upp þá, sem hann er að semja við!
Þess vegna eru kaupin á Manchest-
er United örugglega bara byrjunin.
Það er svo önnur saga hvaða
áhrif það kemur til með að hafa á
knattspyrnuíþróttina, ef knatt-
spyrnufélögin verða komin í eigu
nokkurra og kannski örfárra fjöl-
miðlafyrirtækja. Hvenær hefst
þessi þróun hér?
xxx
ANNARS má telja líklegt að
íþróttir verði að langmestu
leyti orðnar að viðskiptum að
nokkram áram liðnum. Sú þróun
hefur staðið yfir í töluvert langan
tíma, ekki sízt í þeim íþróttagrein-
um, sem njóta mikilla vinsælda
meðal almennings. Atburðarásin í
Bretlandi bendir til þess, að breyt-
ingin verði mjög hröð á næstu
misseram.