Morgunblaðið - 16.09.1998, Page 48
48 MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
genunum
✓
Kvikmynd Agústs Guðmundssonar „Dans-
inn“ verður frumsýnd næstkomandi mið-
vikudag. Margir hafa komið við sögu við
gerð myndarinnar en það vakti athygli
Dóru Oskar Halldórsdóttur að tveir synir
. hins ástsæla leikara Arnars Jónssonar
leika ásamt föður sínum 1 myndinni.
Morgunblaðið/Kristinn
KAMPAKATIR viku fyrir frumsýningu, Jón Magnús, Arnar og Þorleifur.
Kvikmyndin „Dansinn“ frumsýnd eftir viku
Með leik-
listina í
ÞAÐ er talsvert liðið á
kvöld þegar ég geng til
fundar við feðgana í
Iðnó. Þorleifur Arnars-
son vinnur á bamum á
efstu hæð Iðnó og segir hlæjandi að
nánast sé þar um fjölskyldufyrir-
tæki að ræða. „Við vinnum eigin-
lega öll hérna,“ bætir bróðir hans
Jón Magnús við, „ég sé hér um upp-
vaskið." Umhverfið gæti ekki verið
meira viðeigandi fyrir fundinn, eða í
kringum þessa skemmtilegu fjöl-
skyldu þar sem nánast allir koma
eitthvað nálægt leikiist. Þórhildi
Þorleifsdóttur, móðurina á heimil-
inu, þarf ekki að kynna og feðgarnir
hlæja þegar þeir segja blaðamanni
að nánast allir í fjölskyldunni séu
leikarar.
-Hvernig kom það til að þið
feðgarnir leikið saman ímyndinni?
Arnar: „Þú verður eiginlega að
spyrja Ágúst Guðmundsson að því.
Hann þekkir náttúrulega til mín því
ég hef leikið hjá honum áður. Svo
býr hann í götunni og hefur fylgst
með Þorleifi og Jóni Magnúsi, og
veit að þeir hafa báðir komið nálægt
leiklist áður. Þetta er bara eitthvað
í genunum," segir Arnar og hlær.
Djákninn forn í skapi
„Dansinn“ er byggð á samnefndri
smásögu Færeyingsins Williams
Heinesens og fóru upptökur fram
síðastliðið haust í Vík í Mýrdal og í
Færeyjum.
- Nú leikur þú djákna í myndinni.
Hvernig persóna er djákninn og
hvernig bjóstu þig undir hlutverkið?
Arnar: „Kvikmynd er allt annað
form en leiki-it, og öðnivísi að hiut-
unum staðið. Maður hefur ekki
sömu heildaryfirsýn og í leikhúsinu,
en auðvitað liggja sömu hlutir til
grundvallar persónusköpun í báðum
miðlum.
Djákninn er dálítið stífur á mein-
ingunni, blessaður. Enginn spaug-
ari og vill vera ansi strangur í allri
afstöðu og forn í skapi. Fyrir bragð-
ið verður hann dálítið hlægilegur."
- Er þá meira um gaman en ai-
vöru í myndinni?
Arnar: „Sagan er nú ekki ein-
hliða, eða einhöm, því í aðra röndina
er þetta háalvarleg saga. Heinesen
er ekkert ólíkur Halldóri Laxness
að sumu leyti. Honum þykir ákaf-
lega vænt um allar sínar persónur
en hann er ekkert endilega að hlífa
þeim mikið. Hann sýnir þær í
þannig ljósi að við sjáum bæði kosti
þeirra og galla. En fyrir vikið verða
persónurnar stundum ansi hlægi-
legar, eins og við getum öll orðið í
okkar hvunndagsbasli. Þótt við trú-
um því auðvitað statt og stöðugt
sjálf að við séum ákaflega merkileg-
ar persónur, og ekki sé á okkur
blettur eða hrukka.“
Eins og Arnar segir hafa synimir
báðir komið nálægt leiklist áður en
þeir léku í „Dansinum“. Þorleifur
ARNAR Jónsson í hlutverki Sigvalda djákna.
KVIKMYNDIN „Dansinn" er gerð
eftir smásögu færeyska rithöf-
undarins, listmálarans og tón-
skáldsins Williams Heinesens sem
er íslendingum að góðu kunnur,
enda flestar sögur hans verið
þýddar og gefnar út hérlendis.
„Dansinn" er líklega fyrsta saga
Heinesens sem kemst yfir á hvíta
íjaldið.
’ Leiksljóri kvikmyndarinnar er
„Dansinn“
Ágúst Guðmundsson, en hann
gerði einnig handrit, í samvinnu
við Kristínu Atladóttur. Kvik-
myndatökumaður er Emest
Vincze, leikmyndahönnuður Ton-
ie Jan Zetterström, búningahönn-
uður Þórunn María Jónsdóttir og
hljóðupptaka er í höndum Pauls
Oberle, en Kai Dorenkamp samdi
tónlistina.Fjöldi Ieikara tekur þátt
í „Dansinum“ en aðalhlutverk eru
í höndum Gunnars Helgasonar,
Baldurs Trausta Hreinssonar,
Pálínu Jónsdóttur og Dofra Her-
mannssonar. Auk þeirra má nefna
Arnar Jónsson, Þorleif og Jón
Magnús Arnarssyni, Kristinu
Sundar Hansen og Gisla Halldórs-
son.
lék í kvikmyndinni „Stellu í orlofi“
og sjónvarpsmyndinni „Marías" og
Jón Magnús lék í sjónvarpsþáttun-
um „Þrettánda riddaranum" auk
þess að leika í nokkrum ára-
mótaskaupum. Þetta er því engan
veginn frumraun þeirra fyrir fram-
an kvikmyndatökuvélarnar.
Minna er meira
Þorleifur: „Ágúst hringdi í mig og
var að grennslast fyrir um hvað ég
væri að gera, hversu gamall ég væri
og fleira almennt í þeim dúr. Síðan
hringir hann stuttu síðar og býður
mér hlutverk Dions. Undirbúningur
minn íyrir hlutverkið fór mest fram
innra með mér, en auðvitað hafði ég
á heimilinu tvo frábæra kennara,
mömmu og pabba,“ segir Þorleifur
og hlær.
„Einnig vil ég þakka Jóni Bjarna
Guðmundssyni aðstoðarleikstjóra
fyrir góð ráð. Hann er nýkominn frá
námi í Bandaríkjunum og þekkir vel
inn á kvikmyndaleik. Hann sagði við
mig þessa frábæru setningu: „Less
is more,“ eða „Minna er meira." Á
sviði þarf kannski dramatískar
hreyfingar til að koma ákveðnum
hlutum til skila meðan eitt augna-
tillit getur haft sömu áhrif í kvik-
mynd. Þessi gullvæga regla var mér
ofarlega í huga og reyndist mér vel.
Eg leik yngri bróður aðalpersón-
unnar, en var samt einum _________
20 cm hærri en hann,
þannig að ég varð að
minnka mig, gera mig
hokinn. Þessi gullvæga
regla Jóns Bjama,
„minna er meira“, var því
tekin bókstaflega að því leyti að ég
minnkaði mig líkamlega til að passa
inn í hlutverkið."
- Nú leikur þú Betúel Jón Magn-
ús. Hvernig persóna erhann?
Jón Magnús: „Hann er einn af
þeim yngstu í myndinni og er alltaf
að reyna að vera með, komast inn í
hópinn."
Upptökur í Færeyjum
- Hvernig var í Færeyjum ?
Þorleifur: „Já, við komum þang-
að og vorum látnir gista á trúboða-
heimili.“
- Var það liður í andlegum undir-
búningi fyrir myndina?
Þorleifur hlær og segir að ástæð-
an hafi nú líklega frekar verið sú að
heimilið var nálægt tökustaðnum.
„Það var niðamyrkur þegar við
komum til Færeyja og menn fengu
mikið sjokk þegar þeir vöknuðu um
morguninn og litu út um gluggana.
Það er ekkert hérna, varð mér að
orði. Hvar eru þessi fimmtíu þús-
und sem búa í Færeyjum? Búa allir
í Þórshöfn?"
Arnar: „Ætli það sé ekki svipað
íyrir Islendinga að koma til
Færeyja og fyrir útlendinga að
koma til Islands.“
Þorleifur: „Við höfum þó eitt-
hvert undirlendi. I Færeyjum eru
bæirnir allir í miðri fjallshlíð!“
Þegar Jón Magnús er spurður
um Færeyjar svarar hann alvarleg-
ur í bragði: „Ég segi ekki að það sé
gaman,“ en bætir þó við að
skemmtilegt hafi verið að vinna að
myndinni, gott fólk og góður andi.
Hann hefur fullan hug á að halda
áfram í leiklistinni þótt hann sé ný-
byrjaður í Kvennaskólanum í
Reykjavík. Hann segir að mjög
þægilegt hafi verið að hafa pabba
með sér, og gott að leita til hans ef
einhverjar spurningar komu upp í
sambandi við hlutverkið og leikinn.
Þorleifur tekur undir orð bróður
síns og segir að mjög gaman hafi
verið að taka þátt í „Dansinum" og
að hann geti vel hugsað sér að gera
meira af því að leika í framtíðinni.
Spenntir fyrir frumsýningu
- Nú hefur enginn ykkar séð
myndina. Er ekki kominn spenning-
ur í fjölskylduna?
„Vitaskuld," segir Arnar og bætir
við að í myndinni séu margir spenn-
andi hlutir, bráðkaup og heilmikið
húllumhæ í kiingum það, strand er-
__________ lends skips sem setur
mikla sveiflu í samfélag-
ið, og margt fleira sem
gaman verði að sjá
hvemig kemur út á hvíta
tjaldinu.
” Þorleifur segir að nú
sé komið næstum ár frá því síðustu
tökum lauk, svo meðgöngutíminn sé
orðinn langur. „Auðvitað er maður
spenntur fyrir að sjá útkomuna,"
segir hann.
Jón Magnús^ segist bæði spenntur
og kvíðinn. „Ég ætla eiginlega að
mæta dulbúinn á frumsýninguna og
' sjá hvemig fólk tekur þessu. Ef ég
kem undarlega út í myndinni er bara
að finna næsta neyðarátgang í
hvelli," segir hann, sem mætir skelli-
hlátri viðstaddra. Enda tilhugsunin
fyndin: Hattur, skegg og víður
frakki ásamt laumulegu augnatilliti.
Amar bætir því við að vinnan við
myndina hafi verið heilmikið ævin-
týri. Vinnan hafi verið stíf og ströng
en mikil alúð og kraftur hafi ein-
kennt vinnubrögðin. „Slíkt skilar sér
alltaf," segir hann að lokum, og bæt-
ir við að fyrir sig persónulega verði
erfitt að sjá svanasöng Gísla Hall-
dórssonar, sem hafi farið á kostum
eins og hans var von og vísa.
Að þessum orðum sögðum kveð ég
þessa skemmtilegu feðga og geng út
í haustnóttina.
„Djákninn er
dálítið stífur á
meiningunni,
biessaður.“