Morgunblaðið - 16.09.1998, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998 49
FOLK I FRETTUM
Slagsmál við
ljósmyndara
50 fíðlur
Meryl
Streep
LEIKKONAN margverð-
launaða Meryl Streep sækir
fiðlutíma í New York þrjá
tíma á dag. „Ég er að búa
mig undir myndina 50 fiðl-
ur. Hún fjallar um kennara í
New York sem setur á fót
fiðlukennslu í
Austur-Har-
lem. Upphaf-
lega átti Ma-
donna að
vera í aðal-
hlutverkinu,“
segir Streep.
„Þegar
hún hætti við
var haft samband við mig.
Ég get ekki sagt annað en
að ég er himinlifandi yfir
því að ráðandi menn í
Hollywood álíti að ég geti
komið í staðinn fyrir Ma-
donnu,“ segir hún af hóg-
værð og brosir.
Hún hefur ekkert við það
að athuga að hrollveikjuhöf-
undurinn Wes Craven leik-
stýri 50 fiðlum. „Wes skrif-
aði mér afar siðfágað bréf
og sagði að þetta hefði verið
gæluverkefni sitt í 25 ár.
Hann hefur skuldbundið sig
til að leikstýra „Scream 3“
en ætlar að byrja á því að
gera 50 fíðlur. Ég hef það
fyrir reglu sem leikkona að
taka hiklaust þátt í hverju
verkefni sem er ástríða leik-
stjórans.
FÍNA kryddið í Spice Girls, Victor-
ia, lenti í útistöðum við ljósmyndara
um helgina. Hún hafði farið á bens-
ínstöð ásamt kærastanum, David
Beckham, til að kaupa sér eitthvað
í svanginn þegar ljósmyndari nokk-
ur birtist og fór að taka myndir af
þeim í gríð og erg. Beckham brást
hinn versti við og lenti í slagsmál-
um við ljósmyndarann.
„Þetta var ótrúlegt,“ segir Vict-
oria og bætir við að atburðurinn
hafi haft mjög slæm áhrif á hana.
„Ég óttaðist að eitthvað gæti kom-
ið fyrir ófætt barn mitt í öllum
hamaganginum," segir hún.
Lögreglan mætti á staðinn og
stöðvaði slagsmálin, en ljós-
myndarinn elti samt parið áfram.
Þrátt fyrir þessa uppákomu náði
parið að mæta í giftingu Mel B á
sunnudaginn.
Koifinna BaWwnsdóttir uar seinheapin í solím
me ífj
nfi V lEYRt |
Mþi’ :gr'' W m
listffiSt nppaki
ÞUqætir
Fariðtil
- á hverjum degi!
í kvöld er dregiö í Víkingalottóinu
um tugi milljóna króna!
Fáðu þér miða fyrir kl. 16 í dag.
25