Morgunblaðið - 20.09.1998, Page 8

Morgunblaðið - 20.09.1998, Page 8
8 SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 FRETTIR r „Sendið til íslands..." Ráðstefna um loftslagsbreytingar MUk/Q- Hér er þetta stundað villt og brjálað út og suður, og telst ekki til synda. Eina syndin sem hægt er að drýgja hér er að fara í lax, herra forseti. Mikilvæg ábending til matvælafyrirtækja! Betri áranaur með skipulögðu mirliti í reglugerð umhverfisráðuneytisins um matvælaeftirlit °g hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla eru ákvæði um innra eftirlit í matvælafyrirtækjum. INNRA EFTIRLIT er á vegum framleiðanda eða dreifingaraðila til að tryggja gæði, öryggi og hollstu vörunnar. I bæklingi Hollustuverndar um MATVÆLAEFTIRLIT sem fæst hjá Hollustuvernd og Heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga, eru leiðbeiningar og upplýsingar. Hollustuvernd ríkisins Ármúla la, 108 Rvik, sími 568 8848, heimasíða www.hoiiver.is Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur Vettvangur fólks I fasteignaleit ww.mbl.is/fasteignir Umferð um Hvalfjörð 84% bfla fara um göngin MIKILL meirihluti umferðar um Hvalfjörð fer um Hvalfjarðargöng- in eða kringum 84% að meðaltali. Umferð um göngin er hlutfallslega minnst um helgar. Fyrstu þrjár vikurnar í ágúst fóru 85.543 bflar um göngin en á sömu þremur vik- unum í fyrra óku 74.077 bílar fyrir Hvalfjörð samkvæmt talningu við Fossá. Vegagerðin lét Morgunblaðinu þessar tölur í té en ekki hefur ver- ið lesið af mælum síðan 23. ágúst og er því ekki hægt að bera saman allan ágústmánuð í ár og í fyrra. Á tveggja vikna tímabilinu 10. til 23. ágúst fóru samanlagt 60.477 bflar um Hvalfjarðargöng og framhjá mælinum við Fossá. Af þeim óku 50.735 um göngin en 9.742 fóru hjá Fossá. Nokkuð er misjafnt eftir dögum hversu mikið af heildarum- ferðinni fer um göngin eða allt frá 79% og upp í 87,9%. Hlutfallið er hærra á virkum dögum en 79%-82,7% umferðarinnar fara um Hvalfjörðinn báðar helgarnar á þessu tímabili. Stefán Reynir Kristinsson, framkvæmdastjóri Spalar, segir eðlilega skýringu á því. Hluti um- ferðarinnar um helgar sé sumar- bústaðaeigendur, sem fara til dæmis í Skorradal, og þeir spari sér lítinn tíma með því að fara göngin. Hann nefnir einnig að um helgar séu menn síður á hraðferð eins og virka daga og sé því ekki áríðandi tímans vegna að stytta sér leið. Stefán Reynir segir nú unnið að uPPgjöri vegna framkvæmdanna við Hvalfjarðargöngin, verið sé að fara yfír reikninga og samninga og ganga frá uppgjöri og endur- fjármögnun. Telur hann að verk- inu muni ljúka um næstu mánaða- mót. Hugað að fram- tíðarrannsókn- arverkefnum Rannsóknarráð ís- lands (RANNÍS), National Science Foundation (NSF) í Bandaríkjunum og Evr- ópusambandið halda ráð- stefnu um loftslags- og umhverfisbreytingar á norðurslóðum á Grand Hóteli í Reykjavík dagana 23.-26. september. Helstu viðfangsefnin á ráðstefn- unni verða: Loftslags- og umhverfísbreytingar á Norður-Atlantshafí mælt í áratugum og árhundnið- um; áhrif loftslags- og umhverfísbreytinga á Kf- ríkið; forspárgildi rann- sókna og mat á svæðis- bundnum áhrifum. Um 80-90 vísindamenn frá Norður-Ameríku og Evr- ópu verða á ráðstefnunni og fluttir verða um 15 fyrirlestrar af fremstu vísindamönnum heims á sviði umhverfís- og lofts- lagsrannsókna. Meginmarkmið ráðstefnunnar er að koma með ábendingar um mikilvægustu rannsóknarverkefni framtíðar- innar á þessu sviði og styrkja enn frekar vísindasamstarf á milli Evrópu og Norður-Amer- íku. - Hver er aðdragandinn að því að ráðstefnan er haldin? „Fyrir tveimur árum ákvað Rannsóknarráð íslands að kanna möguleika á tvíhliða samningum við bandarískar stofnanir á sviði vísinda og tækni til að skapa jafnvægi í alþjóða- samskiptum á þessu sviði með hliðsjón af vaxandi samstarfí ís- lendinga við Evrópusambandið. A ýmsum vísindasviðum, t.d. á sviði umhverfisrannsókna og hnattrænna breytinga, líf- og læknisfræði og fleiri sviðum, er ekki síður áhugavert að eiga samvinnu við Bandaríkjamenn. Auk þess fara margir íslenskir námsmenn til Bandaríkjanna og margir ljúka doktorsprófi frá bandarískum háskólum. í könn- un sem RANNÍS gerði á stöðu í samskiptum íslands og Banda- ríkjanna kom einmitt í ljós að fjölmargir íslenskir vísindamenn eiga samvinnu við bandaríska starfsbræður. Síðastliðið haust fóru fjórir fulltrúar Rannsóknarráðs í ferð til Bandaríkjanna til viðræðna um tvíhliða samstarf íslands og Bandaríkja Norður-Ameríku á sviði vísinda og tækni. Þessir fulltrúar auk mín voru dr. Vilhjálm- ur Lúðvíksson, fram- kvæmdastjóri RANNÍS; próf. Þorsteinn Ingi Sigfússon, for- maður Rannsóknarráðs, og dr. Halldór Þorgeirsson, deildar- stjóri á RALA. Heimsóttar voru ýmsar stofnanir í Bandaríkjun- um, þ.á m. National Science Foundation (NSF)og National Institutes of Health (NIH).“ -Hverjar voru helstu niður- stöður ferðarinnar? „Mikill áhugi er hjá banda- rískum stofnunum sem stunda rannsóknir á náttúruferlum í hafí, andrúmslofti og jarðskorpu á samstarfi. Þessar rannsóknir miða að því að skilja samspil þessara þátta í hnattrænum um- hverfísbreytingum og samspil þeirra við umsvif mannsins á jörðinni. Benda má á að íslend- Kristján Krisfjánsson ► Dr. Kristján Kristjánsson fæddist í Reykjavík árið 1956. Hann lauk BS-prófi í líffræði frá Háskóla íslands árið 1980 og doktorsprófi frá Landbúnað- arháskólanum í Kaupmanna- höfn árið 1989. Að því búnu stundaði hann rannsóknir og kennslu í skordýrafrævun nytjaplantna við Landbúnaðar- háskólann í Kaupmannahöfn frá 1989-1994. Hann hefur einnig stundað rannsóknir í Bandaríkj- unum (1989), Italíu (1993) og á íslandi (1994). Hann hóf störf hjá Rannsóknarráði íslands í nóvember 1994 sem forstöðu- maður vísindasviðs RANNÍS. Kristján er kvæntur Ólöfu Loftsdóttur dýralækni. ingar hafa lengi safnað áhuga- verðum gögnum í þessu sam- hengi og er ísland tilvalið til rannsókna og alþjóðlegra vinnufunda um þessi mál. Sp- urningin er íyrst og fremst um bolmagn íslendinga og áhuga á þátttöku í slíku samstarfi. Greinilegur áhugi er íyrir því í bandarísku visindasamfélagi að Islendingar skipuleggi vinnufundi og ráðstefnur á þeim sviðum sem snúa mest að ís- lenskri náttúru og skapi sameig- inlegan farveg fyrir áhuga bandarískra og evrópskra vís- indamanna á þessu sviði og hvetji til samstarfsverkefna eftir því sem kostur er. í framhaldi af vel heppnaðri ferð okkar til Bandaríkjanna ákvað Rannsókn- arráð í nóvember á síðasta ári að stefna að því að haldin yrði fyr- irhuguð ráðstefna." - Verður framhald á _________ samvinnu landanna á þessu sviði? „Ég tel að þessi ráðstefna sé aðeins íyrsta skrefíð að eflingu vísindasamstarfs við Norður- Ameríku. Til viðbótar mun Rannsóknarráð íslands leita frekari leiða til að auka vísinda- leg samskipti við Bandaríkin á þessu og öðrum sviðum vísinda, m.a. með stuðningi við íslenska vísindamenn sem áhuga hafa á að undirbúa samstarfsverkefni með bandarískum (eða kanadískum) starfsfélögum svo og með því að bjóða framúrskar- andi vísindamönnum hjá stofn- unum vestanhafs til dvalar á ís- landi. Er ætlunin m.a. að leita til Fulbright-stofnunarinnar og annarra samstarfsstofnana vest- anhafs um fjárhagslegan stuðn- ing í þessu efni.“ íslendingar hafa safnað áhugaverðum gögnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.