Morgunblaðið - 20.09.1998, Side 14
14 SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild karla, hefst í kvöld með sex leikjum
UMFA líklegast til að
veita Fram keppni
JÓN Kristjánsson, þjálfari
og leikmaður Vals, hefur
titilvörnina með félögum
sínum gegn Stjörnunni í
Garðabæ. Á þessari mynd
er hann í baráttu við
varnarmenn KA í leik KA
og Vals í Meistarakeppni
HSI á Akureyri í síðustu
viku.
verið byggt ákveðið grunnstarf.
Ég tel því raunhæft að Fram
verði með sterkasta liðið og í raun
séu Aftureldingai-menn þeir einu
sem geta staðið þeim á sporði tak-
ist Mosfellingum að koma saman
sterku liði, en mikil breyting hef-
ur átt sér stað á leikmannahópi
þeirra frá síðustu leiktíð," segh-
Einar.
Eins og Einar kom inná hefur
mikil breyting átt sér stað hjá
Aftureldingu sem hefur misst
flesta leikmenn sem voru í byrj-
unarliði þess á síðasta keppnis-
tímabili. í stað þess hafa þeir
fengið tvo leikmenn frá Litháen,
Bjarka Sigurðsson sem er kominn
heim á ný frá Noregi, Hafstein
Hafsteinsson hornamann frá
Stjörnunni og unga leikmenn frá
Fram svo fátt eitt sér nefnt.
„Við þessar breytingar tel ég að
leikur Aftureldingar muni breyt-
ast mikið. Aukinnar baráttu og
vinnusemi mun gæta hjá leik-
mönnum og áherslur liðsins
breytast því verulega. I raun tel
ég að takist Aftureldingu að stilla
liðið saman sé það það eina sem
geti veitt Fram keppni."
Því næst telur að Einar að KA
og FH komi og Valur verði þar á
eftir. „Valur hefur misst Sigfús
Sigurðsson og Inga Rafn Jónsson
frá síðustu leiktíð og það tel ég
vera meira en liðið getur þolað,
einkum í vörmnni, til þess að það
geti verið í allra fremstu röð. í
raun tel ég að það hafi átt sér stað
algjört ævintýri á Hlíðarenda á
síðustu leiktíð. Nú þurfa Vals-
menn jafnvel að nota unga stáka
sem eru á fyrsta ári í öðrum flokki
í leikjum sínum og það nægir ekki
til að keppa við bestu liðin.“
Spurning með Hauka
Haukar og Stjarnan eru
óvissulið að mati Einars, einkum
Haukar sem hafa tekið miklum
breytingum frá í fyrra og misst
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
nokkra lykilmenn, s.s. Aron Krist-
jánsson, Gústaf Bjarnason og
Bjarna Frostason, svo einhverjir
séu nefndir. „Nú kemur Einar
Gunnarsson inn sem skytta
vinstra megin og verður að vera
burðarás í liðinu, sem hann hefur
ekki verið í áður. Hann er ungur
og hefur ekki mikla reynslu. Þá
finnst mér línumannsstaðan ekki
eins vel skipuð og áður. Mikið
mun ríða á að stemmning náist í
kringum Haukana ætli þeir sér að
vera með í baráttunni.
Stjarnan er annað spurningar-
merki. Heiðmar Felixson og
Hilmar Þórlindsson verða að leika
vel til þess að Stjarnan verði ofar-
lega. Þeir eru báðir á góðum aldri
og því ætti ekkert að vera til fyr-
irstöðu að þeir geti leikið vel. En
á móti kemur að Stjarnan hefur
fengið annan markvörð til liðs við
sig með Ingvari, og því ætti sú
staða að vera sterkari hjá þeim en
oft áður.
ÍR og HK hafa bætt við sig
mannskap og verða því sterkari
en í fyrra sem gerir hlutverk ný-
liðanna Gróttu/KR og Selfoss erf-
iðara. Miklu máli skiptir fyi’ir ný-
liðana að heimavöllur þeirra verði
sterkur. Takist þeim að mynda
þar stemmningu og vinna leiki
Joar gætu þeir gert öðrum skrá-
veifu, en á móti kemur, tel ég, að
þau muni ekki ná mörgum stigum
á útivelli. Grótta/KR og Selfoss
eru hins vegar með mun betri lið
en nýliðarnir fyrir ári, Víkingur
og Breiðablik, enda miklu meira
gert þar til þess að styrkja liðin
eins og með því að fá erlenda leik-
menn.“
í heild taldi Einar að menn
mættu eiga von á skemmtilegum
vetri framundan í handknattleikn-
um því þrátt fyrir miklar breyt-
ingar væri að koma upp hópur
ungra handknattleiksmanna sem
ættu eftir að setja svip sinn á
deildina þegar frá liði.
Morgunblaðið/Halldór
MIKIÐ mun mæða á Framaranum Oleg Titov, leikmanni 1. deildar karla í fyrra, en flestir telja að Fram
hampi meistarabikamum í vor eftir langa bið.
Handknattleiksvertíðin
hefst í kvöld með heilli
umferð í 1. deild karla
en keppni í 1. deild
kvenna hefst á þriðju-
daginn. Miklar breyt-
ingar setja svip sinn á
1. deild karla og aldrei
hafa fleiri erlendir leik-
menn leikið hér á landi.
ívar Benediktsson
ræddi við Einar Þor-
varðarson fyrrverandi
landsliðsmarkvörð og
telur Einar, eins og
fleiri, að Fram sé með
sterkasta liðið.
Keppni í 1. deild karla hefst í
kvöld klukkan 20 þegar flaut-
að verður til leiks í sex íþróttahús-
um á höfuðborgarsvæðinu. ís-
landsmeistarar Vals hefja titil-
vörnina í Garðabæ er þeir sækja
Stjömuna heim, HK fær KA í
heimsókn, Fram mætir ÍR-ingum
í Fram-húsinu, Haukar taka á
móti Eyjamönnum, nýliðar
Gróttu/KR hefja veru sína í deild-
inni með því að fá gamla stórveld-
ið úr Hafnarfirði, FH, í heimsókn
og hinir nýliðar deildarinnar, Sel-
foss, skunda í Mosfellsbæinn og
mæta Aftureldingu. Miklar breyt-
ingar hafa verið á flestum liðum
frá því í fyrra og aldrei hafa verið
fleiri erlendir leikmenn með liðun-
um í efstu deild handknattleiksins.
Ein meginástæðan er sú að sífellt
fleiri íslenskir handknattleiks-
menn leika með félögum í Evrópu,
einkum þó í Þýskalandi.
„Deildin var mjög jöfn í fyrra en
ég held að hún verði enn jafnari í
ár,“ sagði Einar Þorvarðarson,
þjálfari Fylkis í 2. deild og fyrr-
verandi landsliðsmarkvörður er
Morgunblaðið fékk hann til að spá
í spilin íyrir leiktíðina. „Miklar
breytingar hafa átt sér stað á
flestum liðum og margir leikmenn
farið utan. Á móti kemur að út-
lendingamir hafa aldrei verið
fleiri og því er það mitt mat að
gæði handknattleiksins verði svip-
uð og í fyrra. Breytingarnar á lið-
unum eru þó mismiklar. Sum hafa
orðið að fá erlenda leikmenn til
þess að geta verið með í keppni
þeirra bestu en önnur lið, eins og
Valur og FH, hafa valið þá leið að
byggja upp á yngri strákum og
láta þá sífellt fá stærra hlutverk.
En fýrst og fremst sé ég fram á
mjög jafna keppni þar sem heima-
völlurinn á eftir að skipta meira
máli en áður og sigur á útivelli
vega þungt, einkum hjá liðunum í
neðri hlutanum eins og Gróttu/KR
og Selfossi.“
Framarar sterkastir
Flestir eru á þeirri skoðunn að
lið Fram undir stjóm Guðmundar
Þ. Guðmundssonar verði það
sterkasta í deildinni. Liðið komst í
úrslit íslandsmótsins og bikar-
keppninnar í fyrra en stóð uppi
tómhent. Nú munu Safamýrar-
piltar staðráðnir í að gera betur.
Þeir hafa að vísu misst markvörð
sinn frá í fyrra, Reyni Þór Reyn-
isson, og eins vinstrihandarskytt-
una, Daða Hafþórsson, sem leikur
í Þýsklandi. „Lið Fram hefur
þrátt fyrir breytingarnar tekið
hvað minnstum breytingum. Það
hefur fengið sterkan Rússa í stað
Daða og Sebastían Alexandersson
í stað Reynis. Sebastían hefur að
vísu ekki fengið mörg tækifæri
síðustu misseri og er því svolítið
óskrifað blað. Þá hefur Fram
fengið sterka menn eins og Björg-
vin Þór Björgvinsson ft’á KA. Stór
hlut hópsins hefur hins vegar ver-
ið lengi saman og hjá Fram hefur
1
I
í