Morgunblaðið - 20.09.1998, Síða 23

Morgunblaðið - 20.09.1998, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 23 þangað til komið er að klettabelti síðustu 20 til 30 m. Lofthræddum gæti orðið um og ó og vafalaust væri til bóta að setja þarna upp reipi til stuðnings eða einfaldlega fyrir lofthrædda að vita af.“ Hins vegar segist Ingvar Birgir undrast að sumir skuli hafa áhuga á því að fara sömu gönguleiðina oft og jafnvel mörgum sinnum í hverj- um mánuði. „Af Pverfellshorni er frábært útsýni yfir Sundin og yfir Reykjanesið. Aftur á móti þarf að ganga töluvert langa leið uppi á sjálfu fjallinu til að njóta útsýnisins til norðurs. Að fara hjá Skrauthól- um upp á Kerhólakamb eða fjall- lendið þar fyrir vestan gefur mun víðari sjóndeildarhring. Eins er hægt að fara upp á Móskarðs- hnúka til að sjá yfir höfuðborgar- svæðið, suðurfýrir og austur í gos- beltið á Þingvöllum, Kjósina og norður um allt. Löngu er orðið tímabært að varða þarna fleiri gönguleiðir fyrir göngufúsa." Aðrir eiga eflaust eftir að halda áfram að skeiða sömu leið upp á Þverfellshorn. „Kunningi minn er einn af þeim,“ segir Ingvar Birgir og gefur til kynna að kunninginn hafi reynt að útskýra fyrir honum hvað lægi að baki atferlinu. „Hann sagðist hafa farið í World Class og hamast þar í svitaskýi frá sér og öðrum áður fyrr. A meðan hann nyti líkamsræktarinnar einn í Esj- unni þyrfti hann hins vegar aðeins að þola svitalyktina af sjálfum sér. Hann andaði að sér fersku útilofti og nyti fegurðarinnar í umhverf- inu. Síðast en ekki síst þyrfti hann ekki að velta því fyrir sér hvaða stefnu bæri að taka heldur skeiða einfaldlega ósjálfi-átt upp sömu leið eins og af gömlum vana.“ Flestar gerðir gosbergs Ekki er að undra að Esjan sé talsvert notuð í kennslu því þar er að finna flestar gerðir íslensks gos- bergs. „ísland er að 90 hundraðs- hlutum basalt og því er efniviðurinn nánast allur sá sami. Lögun og ásýnd fer einfaldlega eftir því við hvaða aðstæður gosin hafa orðið. Ef gos verður á þurna landi myndast gígaröð og hraunið rennur í nokkra metra þunnu lagi yfir stórt svæði eins og til dæmis í Heiðmörk eða kringum Reykjavík. Ef gosið verð- ur á hinn bóginn í sjó, stöðuvatni eða undir jökli verða mun meiri átök. Glóandi kvikan, hátt í 1.200 gráðu heit, snarkólnar og veldur gufusprengingu. Basaltblandan þeytist í háaloft, rignir aftur niður á jörðina og myndar hrúgur. Gott dæmi um hvort tveggja er þegar Surtsey myndaðist. Eftir að Surts- ey var orðin svo há að sjórinn náði ekki lengur inn í gíginn hvarf feiki- mikill gufustrókur og basaltkvika með nákvæmlega sömu samsetn- ingu fór allt í einu að mynda þunnt hraunlag," útskýrir Ingvai- Birgir. Hann rífjar upp að á milljón ára myndunarskeiði Esjunnar hafi gengið yfir um 10 jökulskeið. „Gos- in urðu því gjaman undir jökli og mynduðu stóra móbergshrauka eins og við sáum beinlínis í sjón- varpinu þegar gaus í Vatnajökli fyrir tveimur árum. A hlýskeiðum hörfuðu jöklarnir og eftir stóðu fal- lega mynduð móbergsfjöll. Ef gos urðu á hlýskeiðum tóku við hraun- lög og eftir því sem hlýskeiðin voru lengri og gosvirknin meiri grófst meira og meira af móberginu undir hraunlög. Með þversniði af Esjunni væri því auðveldlega hægt að greina heilu móbergsfjöllin inni í sjálfu fjallinu. Móbergið gefur Esj- unni sérstakan blæ og ekki síst vestast. Þar hefur bergið orðið íyr- ir áhrifum frá feikilega stórum kvikuþróm frá tímum Kjalarnes- eldstöðvarinnar. Kvikuþræmar teygðu sig upp og hituðu bergið í efstu lögum jarðskorpunnar. Berg- ið er mestmegnis úr gleri og svo viðkvæmt að við 100 til 200 gráðu hita fara sum efnanna að leysast upp og bergið fær á sig ljósan blæ. Þegar Þórbergur kvað „Esjan er yndisfógur utan úr Reykjavík. Hún ljómar sem litfríð stúlka í ljós- grænni sumarflík," er hann að lýsa ljósu skriðunum þarna." Ingvar Birgir segir fróðlegt að hægt að ganga upp á gígtappann Bláhnúk og alla leið upp á Mó- skarðshnúka.“ „Önnur auðveld leið er með gamla þjóðveginum upp í Svína- skarð. Efst úr Svínaskarði er svo auðvelt að ganga á austasta Mó- skarðshnúkinn. Þaðan er frábært útsýni til suðurs, austurs og norð- urs. Stardalshnúkur er svo í sér- stöku uppáhaldi hjá klifrurum. Þama er einna fallegast innskot á vestanverðu landinu. Bergið er fal- lega stuðlað og svo grófkristallað að þama eru góðar festur íyrir þá sem stunda fjallaklifur með reipum.“ Spurningum ósvarað Eins og áður segir er Ingvar Birgir skólastjóri Jarðhitaskóla Sa- meinuðu þjóðanna og fram kemur að doktorsverkefnið hafi á sínum tíma tengst jarðhita. „Ein aðalá- stæðan fyrir því hversu nákvæm- lega ég rannsakaði fjallið var að ég hafði áhuga á að vita meira um í gegnum hvaða jarðlög verið væri að bora eftir heitu vatni í þéttbýlinu hér sunnanlands. Eini munurinn á jarðlögunum í Esjunni og í borhol- um eftir heitu vatni fyrir Reykvík- inga, Seltiminga og íbúa í Mosfells- sveit er að hægt er að sjá jarðlögin í fjallinu með bemm augum í giljum og klettaveggjum en jarðlögin í hol- unum koma aðeins upp í svarfi. Að mörgu leyti er því hægt að skilja betur eðli jarðhitans á höfuðborgar- svæðinu með því að skoða Esjuna." Ingvar Birgir segir að þó hann haldi að með rannsóknum sínum hafi hann getað dregið fram helstu einkenni í myndunarsögu fjallsins sé enn mörgum spumingum ósvar- að. „Eftir að styrkari stoðum hefur verið rennt undir framhaldsnám í jarðfræði við Háskóla Islands er ekki ólíklegt að fleiri fari að rann- saka jarðlög í megineldstöðvum eins og í Esjunni. Ný greiningar- tækni er spennandi kostur og gefur ítarlegri upplýsingar en hægt var að nálgast á áttunda áratugnum.“ FYRIR ofan Vallá má greina jarðhitaummyndað móberg og hraunlög þar fyrir ofan. Upp í gegnum bergið hefur kvika þrengt sér upp keilulaga sprungur og myndað keilu- ganga. líta upp í hlíðarnar í vestanverðri Esjunni. „Athyglisvert er að sjá hvernig dökk hraunlögin liggja neðan og ofan við móbergið. Ef vel er að gáð sést sumstaðar hvemig jarðhitaspmngur ná upp í gegnum móbergið og hraunlögin þai- fyrir ofan. Hraunlögin em þéttari fyrir og hafa því ekki ummyndast eins og móbergið. Fjallið er ekki heldur frítt við líparít. Líparítið kom upp í gosi í hringlaga sprungu utan við Stardalsöskjuna fyrir um 2 milljón- um ára. Hringspmngan sker Þver- árkotsháls, fer um suðurhlíðar Mó- skarðshnúka, klórar utan í Skála- fell og aðeins í hæðina Múla fyrir austan Stapa. Oftar en einu sinni hefur gosið í hringsprungunni og ágætt er að sjá hvað kom út úr gos- unum í Móskarðshnúkum. Ekki verður heldur undan skilið að stói’- ir líparítgangar fara í gegnum Þverárdal, yfir Grafardal og ná langleiðina upp á hátind Esjunn- ar,“ segir hann og tekur fram að hægt sé að sjá líparítið langar leið- ir. „Oft finnst fólki að sólskin sé austast í Esjunni af því að Mó- skarðshnúkarnir eru svo ljósir." Agæt dæmi um innskotsberg eru að sögn Ingvars Birgis í Þver- felli í Esjunni og á Músarnesi á Kjalarnesi. A Músamesi séu skemmtilegar gönguleiðir við allra hæfi. „Ekið er að Brautarholti á Kjalarnesi og falast eftir leyfi land- eiganda að fara niður í fjörana þar. Mjög skemmtileg fjara er norðan- megin Músarnessins og gaman að ganga um klettaborgirnar. Eins er hægt að skoða Presthúsatanga á austanverðu Kjalamesinu. Skemmtileg ganga er frá Skraut- hólum og upp á Kerhólakamb í vestanverðu fjallinu. Önnur skemmtileg ganga er frá Skeggja- stöðum inn í hjai’ta Stardalseld- stöðvarinnar í farvegi Leirvogsár Kvölddagskrá kl. 20 - 22 • Akureyri og Reykjavík Dagskrá: 1) Haustskreytingar úr garðinum, Hjördís Jónsdóttir og snillingarnir í skreytingadeildinni sýna haust- skreytingar og færa litskrúð haustsins heim í stofu. 2) Haustlaukar: Stutt laukaspjall og kynning á nýjungum. 3) Brauð og olíur: ítölsk sælkerabrauð og brauðolíur frá "Jóa Fel." Fundarstjóri: Bjarni Finnsson blémciUQl Ljósmynd/I.B.F. í HLÍÐINNI ofan við Skrauthóla á Kjalarnesi hafa basalthraun runnið upp að brattri móbergshlíðinni og runnið að lokum yfir móbergið. Ljósa bergið í forgrunni er jarðhitaummyndað móberg. MÓSKARÐSHNÚKAR eru myndaðir við líparítgos undir jökli. Hægra megin sést líparítgangur skerast skáhallt upp í gegnum basalthraunin beggja vegna gangsins. Upp úr og út úr líparítskriðunum standa víða stuðlaðir eitlar úr biksteini og hrafntinnu. STUÐLABERG í Gráhnúki í hlíðinni sunnan Móskarðshnúka. Stuðlamir em upp í 20 m háir en Gráhnúkur er dólerítinnskot líkt og Stardalshnúkur. inn að Tröllafossi. Auðvelt er að greina móberg sem myndaðist í öskjuvatni Stardalsöskjunnar og sjá hvemig hraunlögin undir móberg- inu halla inn að öskjumiðjunni. Svo hefur kvika troðið sér inn í móberg- ið og myndað grófkomótt innskot. Fyrir þá sem ekki em mjög upp- teknir af jarðfræðinni getur verið gaman að sjá þama hrafnslaup með ungum og tilheyrandi á sumrin,“ segir Ingvar Bii-gir og bætir því við að til að sjá enn meiri fjölbreytileika í landslagi sé gaman að halda áfram fram hjá Hrafnahólum. „Inn eftir Þverárdal er hægt að keyra hvaða bíl sem er að Skarðsá og þaðan er hægt að ganga upp í stórt innskot sem heitir Gráhnúkur og virða fyrir sér falleat stuðlaberg. Afram er svo

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.