Morgunblaðið - 20.09.1998, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 29
BLEIKJUR af Arnarvatnsheiði, nánar tiltekið úr Arfavatnslæk.
Rúmlega 10.000 fleiri
laxar en í fyrra
N ORÐUR-Atlantshafslaxasjóð-
urinn, NASF, sem Orri Vigfús-
son veitir forstöðu, hefur sent
frá sér „útgönguspá" fyrir loka-
útkomu laxveiðivertíðarinnar
1998. Spáin byggir á þeim loka-
tölum sem fyrir liggja og nýjum
eða nýlegum tölum úr helstu lax-
veiðiám landsins þar sem veiði
stendur enn yfir. Samkvæmt
spánni munu íslenskar laxveiðiár
gefa 39.566 laxa, en það er rúm-
lega 10.000 löxum meiri afli
heldur en síðasta sumar og rúm-
lega 4.000 löxum yfir meðalveiði
síðustu 24 ára, en sú meðalveiði
er 35.224 laxar. Fjögur svæði
eru með yfir 2.000 laxa veiði.
NASF telur samanlagða tölu
Eystri- og Ytri-Rangár og er
hún um 3.680 laxar. Þrjár ár,
Þverá ásamt Kjarrá, Blanda og
Norðurá eru einnig í þessum
efsta hópi.
Eystri-Rangá ein og sér er
efst með eitthvað um 2.600 laxa,
en Þverá endaði með 2.189 laxa,
Blanda með 2.010 laxa og Norð-
urá með 2.003 laxa. Ellefu ár til
viðbótar eru með yfir 1.000 laxa,
þ.e.a.s. eílefu auk Ytri-Rangár
sem NASF bindur inni í einni
heildartölu fyrir Rangárnar, en
um 1.000 laxar munu komnir úr
Ytri-Rangá. Annars voru komnir
samkvæmt töflu NASF, sem
dagsett var á fóstudag, 1.925
laxar úr Laxá í Aðaldal, 1.820 úr
Miðfjarðará, 1:650 úr Grímsá
ásamt Tunguá, 1.460 úr Langá á
Mýrum, 1.390 úr Laxá í Dölum,
1.390 úr Laxá í Kjós, 1.170 úr
Laxá á Asum, 1.144 úr Selá,
1.100 úr Vatnsdalsá, 1.012 úr
Hofsá og sléttir þúsund úr Víði-
dalsá ásamt Fitjá. Þá var
Haukadalsá ekki langt undan
með 915 laxa. Silungsveiði var
víðast hvar afburðagóð í sumar.
Það þýðir ekki að það hafi verið
mok upp á hvern dag, því á sil-
ungsveiðislóðum beygja menn
sig undir ytri skilyrði eins og á
öðrum veiðislóðum. Silungsvötn
eru mörg hver grunn og grugg-
ast upp og sumarið hefur ekki
verið sérlega hlýtt og gott norð-
anlands í sumar. Hefur það og
haft áhrif á viðveru og aflabrögð
veiðimanna.
Fregnir af veiðislóðum á Arn-
arvatnsheiði og Skagaheiði eru
þó yfirleitt góðar og á báðum
svæðum var veiðin best framan
af, en dvínaði er á leið. Af sam-
tölum við veiðimenn virðist sem
veiðin hafi dalað fyrr á Skaga-
heiði. A báðum svæðum veiða
þeir best sem fyrstir koma og
tekur þá silungurinn afar vel og
nánast allt agn. Þegar frá líður
dofnar yfir veiðiskapnum og þeir
veiða þá helst sem nota flugu.
Það var fært á þessar fjallaslóðir
óvenjusnemma í sumar, snemma
í júní, vegna snjóleysis og vin-
samlegs árferðis. Margir lentu í
sannkölluðum veiðiveislum og
fengu tugi fiska á dag.
í Veiðivötnum á Landmanna-
frétti var mjög góð veiði, hermt
er að 9.000 silungar hafi verið
dregnir þar á þurrt. Seiðaslepp-
ingar sem lágu niðri um tíma, en
eru nú byrjaðar aftur, eru farnar
að skila sér. Mikið af fiskinum í
sumar var fremur smátt, en það
lofar góðu um að næsta sumar
verði hann mun vænni. Þá var
betri veiði í Þórisvatni en menn
bjuggust við, en fiskur var þar
einnig í smærra lagi. Góður fisk-
ur þó. Þá komu skot í Kvíslaveit-
um þótt þar sé fremur illúðlegt
yfir að líta miðað við það sem áð-
ur var, því nú hefur Þjórsá verið
veitt inn á svæðið með tilheyr-
andi gruggi. Veiddu menn helst
þar sem tærir lækir og ár falla í
drulluna. Fengu menn allt að 10
punda fiska.
FRÉTTIR
Landsbankinn styrkir eiginfjárstöðuna
Gefur út 500 milljóna
króna víkjandi lán
LANDSBANKI íslands hf. hefur
gefið út víkjandi skuldabréf að fjár-
hæð 500 milljónir kr. til styrkingar
á eigin fé bankans og fengið sam-
þykki Verðbréfaþings íslands til
skráningar bréfanna. Skráning
bréfanna fer fram 22. þessa mánað-
ar.
Eins og heitið bendir til víkur
krafa samkvæmt víkjandi skulda-
bréfi fyrir öllum öðrum kröfum á
hendur útgefanda við slit á félaginu.
Bankar hafa heimild til að telja slík
skuldabréf til eigin fjár og hafa ís-
lenskir bankar nýtt sér það eins og
bankar erlendis.
Bankastjóri Landsbankans hefur
heimild til útgáfu 1.500 milljóna kr.
víkjandi láns og nýtti sér þá heimild
að hluta með útgáfu umræddra 500
milljóna kr. Halldór J. Kristjánsson
bankastjóri segir að skuldabréfin
hafi þegar verið seld völdum hópi
fjárfesta. Heldur hærri vextir eru á
bréfunum en almennum bankabréf-
um, ávöxtunarkrafan er í þessu til-
viki 5,52% á útgáfudegi, og segist
Halldór vera ánægður með kjörin.
Eigið fé 10%
Að loknu yfirstandandi hlutafjár-
útboði Landsbankans verður eigið
fé hans í A-flokki, það er að segja
hlutafé og annað eigið fé, rúmlega
8%, að sögn bankastjórans. Að við-
bættum B-flokki eigin fjár, það er
að segja fyrri víkjandi lánum og
þeirri viðbót sem nú kemur, verður
eigið fé bankans rúmlega 10%. Það
telur Halldór að sé hæfilegt og mið-
ar þá við það sem algengast er á
hinum Norðurlöndunum.
TÖFRAR AUSTURLANDA
1. OKT. 3 YIKUR
Vegna ótrúlega hagstæðs verðs og gæða bjóðum við hagstæðustu kjörin.
ALLAR AUSTURLANDAFERÐIR HEIMSKLÚBBSINS UPPSELDAR TIL
ARAMÓTA — en aðeins 4 sæti laus í vönduðustu og hlutfallslega ódýrustu
ferðina undir fararstjórn Ingólfs sjálfs, sem gjörþekkir hinn austurlenska
heim.
Meðal áfangastaða:
KUALA LUMPUR 3 d. í einni glæsiiegustu nýtískuborg heimsins.
Hið nýja 5* HOTEL RENAISSANCE. Ein ódýrasta heimsborgin í dag.
SAGION, YÍETNAM, hin fræga endurreista borg, 4 d. á frábæru
HOTEL EQUATORIAL, 4*+ og ferðir út í heiilandi sveitir Iandsins.
„HÖLL GYLLTU HESTANNA“, 5*+ nýlega valið besta hótel ASÍU, skammt
frá Kuala Lumpur, 4 d. LÁTTU EINU SINNI EFTIR ÞÉR AÐ BÚA í HÖLL!
MALACCA, hin sögufræga borg. Ekið um frjósamar, fagrar lendur Malasíu og
dvalist 3 d. við sjóinn á frábæru RIVIERA BAY, 4*+ (S. Mandarin hringurinn).
SINGAPORE, sem margir telja hápunkt nútímans í Austurlöndum vegna
menningar og frábærs skipulags. Algjör verslanaparadís.
GRAND PLAZA, nýtt 4* á besta stað. Heimflug frá Singapore um London.
Allt þetta með einu fremsta flugfélagi heimsins, akstri,
gistingu skv. lýsingu, morgunverði og fararstjórn fyrir
rúmar 9.000 kr. á dag að meðaltali.
TÆKIFÆRI,
FERÐASKRIFSTOFAN
PRIMAe
HEIMSKLUBBUR
INGOLFS
Austurstræti 17,4. hæð 101 Reykjavik,
SEM EKKI BÝÐST AFTUR.
sími 56 20 400, fax 562 6564
Netfang: prima@heimsklubbur.is
Heimaslða: hppt://www.heimsklubbur.is
MEBRIHÁTTAR NÝIR SKÓR FRÁ ROOBINS
Litir: Svart — grátt — blátt — brúnt
og hermannagrænt
Nýtt kortatímabil
Laugavegi 91, sími 511 1717
Kringlunni, sími 568 9017
Verð 5.900
St. 35-41