Morgunblaðið - 20.09.1998, Síða 38
38 SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
BANKAR OG BREYTINGAR
RÍKISSTJÓRNIN hefur haft að
leiðarljósi á kjörtímabilinu að jafna
aðstæður á milli ríkis og einkaaðila
og draga úr hlutverki íTkisins í
starfsemi sem einkaaðilar geta
stundað og þar sem samkeppni
þrífst. Þetta á t.d. við um fjár-
magnsmarkaðinn. Vel heppnuð
breyting á rekstrarformi ríkisvið-
skiptabanka og sameining íjárfest-
ingarlánasjóða í einn öflugan fjár-
festingarbanka og einn nýsköpun-
arsjóð gekk í gildi um síðustu ára-
mót. Með þessu fyrsta skrefi var
almennri fjármálastarfsemi ríkis-
ins mótað sama form og fjármála-
fyrirtækja á samkeppnismarkaði,
en hlutverk ríkisins í nýsköpun
staðfest. Ekki er lengur um deilt
að ríkið eigi í framhaldinu að draga
sig út úr rekstri fjármálafyrir-
tækja. Með hlutafjárútboði Lands-
bankans er stigið fyrsta skrefið í
þessa átt og fleiri sla-ef verða stig-
in á næstunni. Stefnt er að því að á
næstu mánuðum verði Landsbank-
inn, Búnaðarbankinn og Fjárfest-
ingarbanki atvinnulífins allir
skráðir á Verðbréfaþingi Islands
og að hluta í eigu íslensks almenn-
ings. Þetta er grundvallarbreyting
á íslenskum fjármagnsmarkaði.
Árangnrinn að koma í Ijós
Síðan 1995 hefur viðskiptaráðu-
neytið markvisst unnið að áður-
nefndum umbótum. Þessi breyting
var mjög umfangsmikil en tökst í
alla staði vel og í mjög góðri sam-
vinnu við starfsmenn. Sérstaklega
ber að þakka starfsmönnum bank-
anna fyrir þeirra þátt í þessari víð-
tæku breytingu á rekstrarformi.
Breytingamar tóku gildi um síð-
ustu áramót. Þá urðu Landsbank-
inn og Búnaðarbankinn að hlutafé-
lögum og Fjárfestingarbanki at-
vinnulífsins hf. og Nýsköpunar-
sjóður atvinnulífsins stofnaðir úr
fjórum fjárfestingarlánasjóðum í
eigu ríkisins.
Árangurinn af þessum aðgerðum
er þegar að koma í ljós. Rekstur
Landsbankans og Búnaðarbankans
hefur gengið ákaflega vel á þessu
ári og er hagnaður
þeirra meiri en um
mjög langt skeið þrátt
fyrir að vaxtamunur
hafi lækkað verulega.
Ahyggjur manna um
að bankamir þyrftu
langan tíma til aðlög-
unar áður en hægt
væri að hefja sölu
hlutafjár ríkissjóðs
hafa ekki átt við rök
að styðjast. Aðlögun-
arhæfni bankanna hef-
ur verið með ágætum,
svo sem sést á hagnaði
þeirra og lægri lán-
tökukostnaði á nýjum
lánum þrátt fyrir af-
nám ríkisábyrgðar.
Óhætt er að fullyrða að rekstur
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
hafi gengið vel. í stað gamalla sér-
hæfðra atvinnugreinasjóða er kom-
ið eitt framsæknasta fjármálafyrir-
tæki landsins sem hefur virkað
sem vítamínsprauta á markaðinn
og bryddað upp á nýjungum við
fjármögnun. Þessi róttæka skipu-
lagsbreyting, þar sem fjármálafyr-
irtækjum í eigu ríldsins var fækk-
að, hefur án nokkurs vafa aukið
verðmæti þessara eigna þjóðarinn-
ar.
Stefnumörkun ríkisstjómar
Að formbreytingu ríldsviðskipta-
bankanna og fjárfestingarlánasjóð-
anna afstaðinni tók við að móta
stefnu um með hvaða hætti ríkið
ætti að draga sig út úr rekstri
bankanna þriggja. Þegar lágu fyrir
heimildir um að selja 49% hlutafjár
í Fjárfestingarbanka atvinnulífins
og að gefa út nýtt hlutafé í Lands-
banka og Búnaðarbanka þannig að
aðrir en ríkissjóður ættu 35% af
bönkunum. Undir forystu við-
skiptaráðuneytis voru ýmsir val-
kostir kannaðir og þeir teknir til
umfjöllunar í ráðherranefnd um
einkavæðingu, sem í eiga sæti for-
sætisráðherra, utanríkisráðherra,
viðskiptaráðherra og fjármálaráð-
herra.
Finnur
Ingólfsson
Sem lið í undirbún-
ingi þessarar stefnu-
mörkunar lét við-
skiptaráðuneytið
leggja mat á virði
bankanna þriggja og
átti viðræður við ýmsa
aðila, erlenda og inn-
lenda, um þær gríðar-
legu hröðu breytingar
sem nú eiga sér stað á
alþjóðlegum banka-
markaði. Þannig átti
ráðuneytið fundi með
sérfræðingum nokk-
urra erlendra fjár-
málastofnana í
London sem hafa í
gegnum störf sín hér á
landi öðlast þekkdngu á íslenskum
fjármagnsmarkaði. Leitað var við-
horfa þessara aðila um hvaða að-
gerða væri þörf og hver væru lík-
indi á þátttöku erlendra aðila í
þeim breytingum sem framundan
eru.
Um mitt ár ákvað ráðherranefnd
um einkavæðingu síðan að ganga
Stefnumörkun ríkis-
stjórnarinnar miðar að
því, segir Finnur Ing-
ólfsson, að gera rekst-
ur íslenskra fjármála-
fyrirtækja enn traust-
ari og líkari því sem
gengur og gerist
erlendis.
til viðræðna við Skandinavíska En-
skilda Banken um kaup bankans á
hlutafé í Landsbankanum, en hinn
sænski banki hafði lýst yfir áhuga
sínum á að gerast kjölfestufjárfest-
ir í Landsbankanum. Skömmu síð-
ar ákvað ráðherranefndin að ganga
til könnunarviðræðna við Islands-
banka um kaup hans á öllu hlutafé
INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT
Tegund Lítrar (br.) Stærð Verð Stgr.
GFP 4141 146 lítrar 85x60x60 31.263,- 29.700,-
GFP 4220 220 lítrar 88x89x65 37.579,- 35.700,-
GFP 4290 294 lítrar 88x109x65 41.789,- 39.700,-
GFP 4370 370 lítrar 88x132x65 47.053,- 44.700,-
GFP 4435 443 lítrar 88x164x65 52.316,- 49.700,-
Q
Z
D
z
«2 GFP 4435
O
Z
Frystikistur
Titboðsverð sem eru komin til að vera.
| Eigum einnig ýmsar
I stæpöip fpystiskápa
BRÆÐURNIR 1
m ORMSSON
Láqmúla 8 • Sími 5 3 3 2800
ríkissjóðs í Búnaðarbankanum og
við Samband íslenskra sparisjóða
um kaup sparisjóðanna á öllu
hlutafé ríkissjóðs í Fjárfestinga-
banka atvinnúlífsins, en þessir aðil-
ar höfðu óskað eftir viðræðunum,
og Islandsbanki raunar sett fram
formlegt tilboð.
Samhliða þessu fór fram mikil
umræða um bankamál, bæði í ríkis-
stjórn, þingflokkum og á vettvangi
fjölmiðla. Þessi umræða var mjög
gagnleg. Skýrt kom í ljós að um-
ræðan er stutt á veg komin og var
það mat stjómvalda að rétt væri að
láta reyna frekar á rekstur bank-
anna í nýju rekstrarformi áður en
ráðist yrði í svo róttækar aðgerðir.
Þannig ætti að nýta betur þau
sóknarfæri sem til staðar eru að
óbreyttu, svo sem með skráningu á
Verðbréfaþingi. Hins vegar var
ákveðið að ganga hraðar fram við
sölu á Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins en upphaflega hafði verið
gert ráð íyrir og afla á komandi
löggjafarþingi heimildar til sölu
alls hlutafjár ríkisins í bankanum.
Þessi stefnumörkun ríkisstjóm-
innar er skynsamleg. Skjót skrán-
ing bankanna á Verðbréfaþingi
veitir þeim nauðsynlegt aðhald og
skapar festu og aga í rekstri
þeirra. Verðmæti bankanna verður
þá mælt með viðskiptum á markaði
og viðskiptalegur agi skráningar
nýttur þeim til framdráttar. Mark-
miðið er að sala hlutafjár verði nýtt
til hins ítrasta af stjómendum
bankannna til að styrkja markaðs-
lega ímynd þeirra og efla sam-
keppnishæfni, meðal annars með
innri hagræðingu og tækninýjung-
um. Þetta er mjög mikilvægt. Enn-
fremur er mikilvægt að tryggja
dreifða eignaraðild, enda verður
við það miðað við sölu hlutafjár að
almenningur eigi þess kost að eign-
ast hlut í bönkunum að svo miklu
leyti sem markaðsaðstæður leyfa.
Undirbúningur sölu
Þegar hefur verið hafist handa
við að koma stefnumörkun ríkds-
stjómarinnar í verk. Nú stendur
yfir sala nýs hlutafjár í Lands-
bankanum að nafnvirði einn millj-
arður króna. Að útboði loknu mun
ríkissjóður eiga 85% hlutafjár í
bankanum. Ekki er ástæða til að
ætla annað en að almenningur
muni taka þessum nýja fjárfesting-
arkosti vel. Landsbanldnn er rót-
gróinn banki og hefur verið
stærsta fjármálastofnun þjóðarinn-
ar um áratugaskeið. Rekstur bank-
ans gengur nú vel og á þessu ári
hafa verið gerðar víðtækar skipu-
lagsbreytingar sem leitt hafa til
nútímalegri stjómunarhátta.
Áhugi eins best rekna banka á
Norðurlöndum, SE-bankans, á að
eignast hlut í honum sýnir vel þá
möguleika sem felast í bankanum
og þá framtíðarmöguleika sem til
staðar eru.
Mjög mikilvægur þáttur í hluta-
fjárútboði Landsbankans er sala til
starfsmanna. Ríkisstjómin ákvað í
lok síðasta árs að starfsmönnum og
eftirlaunasjóðum Landsbanka og
Búnaðarbanka yrði boðið tiltekið
hlutfall heildarhlutafjár til sölu á
gengi sem samsvaraði verðmæti
jafnháu eigin fé í árslok 1997. f því
skyni að gæta samræmis ákvað
ríkisstjómin þann 20. mars síðast-
liðinn að starfsmönnum Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins yrði
tryggður réttur sem jafna mætti til
fyrrgreindrar ákvörðunar rílds-
stjómarinnar. Aðgerðir af þessu
tagi em vel þekktar hér á landi og
erlendis og miða að því að treysta
böndin á milli fyrirtækja og starfs-
manna þeirra. Starfsmönnum mun
gefast færi á að fylgjast betur með
bankanum sínum og hagsmunir
starfsmanna, stjómenda og hlut-
hafa almennt verða samtvinnaðir,
þ.e. að vinna bankanum vel.
Auk hlutafjárútboðs Landsbank-
ans er nú unnið að sölu hlutafjár í
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins.
Framkvæmdanefnd um einkavæð-
ingu vinnur að undirbúningi söl-
unnar í samráði við iðnaðarráðu-
neyti, sjávarútvegsráðuneyti og
stjómendur bankans. Lögð verður
mikil áhersla á dreifða sölu til al-
mennings. Þessi sala mun fara
fram fyrir áramót og verður
stærsta einkavæðingarverkefni í
sögu ríkisins. Bankinn verður síðan
að sölu lokinni skráður á Verð-
bréfaþingi íslands. Auk þess verð-
ur nú á haustþingi lagt fram frum-
varp um heimild til að selja allt
hlutafé ríkissjóðs í bankanum.
Búnaðarbankinn mun ekki sitja
eftir í þessari þróun. Rekstur
bankans er mjög traustur og hafa
eignir bankans vaxið um 56% á síð-
ustu tveimur ámm. Allt bendir til
að Búnaðarbankinn fari á næstu
mánuðum út í hlutafjárútboð, í lík-
ingu við útboð Landsbankans,og
fái skráningu á Verðbréfaþingi.
Traustir bankar
en breytingar örar
Þróunin á vestrænum banka-
markaði hefur verið geysilega ör á
þessum áratug. Aukin samkeppni,
alþjóðavæðing, opnun hólfa á milli
einstakra tegunda fjármálafyrir-
tækja, lægri vaxtamunur og aukið
framboð af nýrri þjónustu hefur
verið einkennandi fyrir markað-
inn. Ekkert lát virðist vera á þess-
ari þróun. Bankar búa sig undir
enn harðari samkeppni með sam-
runa og yfirtökum. Mikil bylgja
samruna gengur nú yfir Evrópu og
þá ekki síst Norðurlöndin. Nor-
rænir bankar hrepptu mikinn and-
byr í byrjun þessa áratugar en
hafa nú náð sér að fullu. Á síðustu
tveimur árum hafa níu stórir
bankasamrunar gengið í gegn á
Norðurlöndum.
Islendingar þurfa að fylgjast
grannt með þessari þróun því sam-
anburður við kennitölur erlendra
banka er hérlendum bönkum enn
að flestu leyti óhagstæður. Vaxta-
munur er mun meiri hér á landi en
í löndunum í kringum okkur og
kostnaður sem hlutfall af tekjum
hærri. Hins vegar stendur rekstur
íslenskra banka traustari fótum nú
en um mjög langt skeið. Islenskir
bankar sækja nú fram af fullum
krafti eftir langt stöðnunarskeið.
Hagnaður og arðsemi hafa aukist
og vaxtamunur minnkað. Þjónusta
banka hefur batnað auk þess sem
þeir hasla sér nú völl á sífellt fleiri
sviðum, ekki bara hér á landi held-
ur einnig erlendis.
Stefnumörkun ríkisstjómarinn-
ar miðar að því að gera rekstur ís-
lenskra fjármálafyrirtækja enn
traustari og líkari því sem gengur
og gerist erlendis. Þar hefur sala
til almennings og skráning á Verð-
bréfaþingi mest að segja. Verð-
mæti þjóðarinnar í bönkunum
þremur eru mikil og því skiptir það
þjóðina miklu máli að vel sé staðið
að rekstri þeirra. Gera má ráð fyrir
að verðmæti bankanna þriggja
nemi um 30 milljörðum króna. Með
sölu þeirra á næstu árum má
lækka hreinar skuldir íslenska rík-
isins um nærri fimmtung og auka
markaðsverðmæti skráðra hlutafé-
laga um sama hlutfall. Það er því
til mikils að vinna.
I mínum huga er það það lykilat-
riði að þær aðgerðir sem gripið
verður til í framtíðinni leiði til þess
að einstaklingar og fyrirtæki hafi
aðgang að þjónustu sem er sam-
keppnishæf, bæði að verði og gæð-
um. Það er hins vegar mikilvægt að
ríkið sem eigandi vandi ákvarðanir
sínar sem varða veginn að þessu
markmiði. Þannig verður að
tryggja að þær breytingar sem
ráðist er í tryggi nægt framboð
þjónustu á öllum landssvæðum og
að staðið verði hagræðingarað-
gerðum með þeim hætti að það
valdi sem minnstri röskun.
Höfundur er iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra.