Morgunblaðið - 20.09.1998, Page 40

Morgunblaðið - 20.09.1998, Page 40
J 40 SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ALMA TYNES + Alma Sövrine Petersen Tynes fæddist á Siglufirði 18. febrúar 1917. Hún andaðist á heimili sínu, Aust- urströnd 8, Sel- tjarnarnesi, 13. september sl. Faðir hennar var Carl Petersen Tynes organisti, tréskurð- armeistari og skó- smiður í Noregi, síðar í N-Ameríku. Móðir hennar var Sesselja Elín Steins- dóttir frá Gröf á Höfðaströnd, f. 25.10. 1887, d. 12.5. 1957, veit- ingakona á Siglufirði. Systkini Olmu sammæðra eru Ragnar Björnsson Pálsson, f. 15.4. 1920, d. 30.6. 1924, og Ragna Hólm- fríður Pálsdóttir, f. 16.5. 1925, gift Haraldi Þórðarsyni _ vél- smíðameistara, áður í Ólafs- firði, nú búsett á Sauðárkróki. Þeirra börn eru Elín Hólmfríð- ur nuddari, Litlu-Gröf, Sauðár- króki og Þórður Gunnar banka- starfsmaður, Cleveland í Bandaríkjunum. Alma ólst upp á Siglufirði hjá Elínu móður sinni og stjúpa, Páli Guðmundssyni verslunar- og veitingamanni úr Fljótum í Skagafírði, f. 12.11. 1883, d. 23.8. 1956, en þau áttu og ráku um árabil gisti- og veitingahús- ið Hótel Siglufjörð. Eftir hefð- bundna skólagöngu á Siglufirði stundaði Alma nám um skeið í ensku og dönsku, lærði auk þess á gítar og píanó. Hún starfaði við veitingarekstur for- eldra sinna og þar að auki við sfldarsöltun. Hinn 19. október 1935 giftist hún Einari Thoroddsen Guð- mundssyni, f. 15.11. 1913 í Króki á Rauðasandi, d. 3.4. 1974, sem lengst af var héraðs- læknir á Bfldudal, síðar á Eyr- arbakka. Börn Ölmu og Einars eru: 1) Guðmundur Rúnar, f. 3.4. 1936, garðyrkjubóndi Reykjaflöt, Hrunamannahreppi, maki Erla Sigurmundsdóttir. Börn þeirra: a) Ævar, verksmiðjusijóri Rækjuvers á Bfldudal, giftur Ingibjörgu Hjartardóttur og eiga þau þijá syni, b) Arnar prentsmiður í Reykjavík, átti áður dóttur með Asthildi Pét- ursdóttur og aðra dóttur með Svanhvíti G. Jóhannsdóttur, var seinna í sambúð með Astu Jóns- dóttur og eiga þau tvö börn, c) Einar Thoroddsen, starfsmaður Rækjuvers á Bfldudal, giftur Josephine Wade og eiga þau þijá syni, d) Guðjón bifreiða- stjóri í Mosfellsbæ, giftur Stellu Eiríks- dóttur og eiga þau þijú börn, e) Guð- rún Thoroddsen bú- fræðingur á Reykjaflöt, í sam- búð með Lúðvík Kaaber. 2) Ragnar Páll, f. 22.4. 1938, listmálari í Reykja- vík, maki Sigurrós Ósk Arthursdóttir, þau skildu. Sambýl- iskona Svava Snorradóttir, þau slitu samvistum. Börn Sigurrósar og Ragnars Páls: a) Arthur listmálari í Gautaborg, giftur Evu Eriks- dotter og eiga þau einn son, Arthur átti áður son með Lottu Bondesson, b) Víðir, grafískur hönnuður í Reykjavík, giftur Guðrúnu Þórðardóttur og eiga þau tvo syni, Víðir átti áður son með Aðalheiði Þorsteinsdóttur. 3) Sverrir, f. 26.5. 1947, heimil- islæknir í Gautaborg, maki Lena Wallberg sálfræðingur. Dætur þeirra: a) Anna Elín menntaskólanemi, b) Agnes Edda, c) Henrietta Marianne. 4) Elín Guðrún, f. 3.12. 1948, hjúkrunarfræðingur í Kaup- mannahöfn. 5) Anna Sigríður, f. 25.8. 1951, leikkona og starfs- maður á sambýli í Reykjavík, maki Helgi Pétursson, hans börn eru tvö frá fyrra hjóna- bandi og barnaböm þijú. 6) Norma, f. 22.12. 1955, leiðbein- andi við grunnskólann á Eyrar- bakka, maki Skúli Þórarinsson sjómaður. Börn þeirra: a) Alma Tynes háskólanemi, b) Bjami, hann á einn son með Jónínu Sig- tryggsdóttur, c) Einar Thoroddsen. Alma og Einar bjuggu í Reykjavík meðan Einar nam læknisfræði við Háskóla fslands og starfaði hún þá m.a. við saumaskap á heimili sínu fyrir ýmsar verslanir í bænum en á sumrin dvaldi hún á Siglufírði og vann í sfld. Hún sinnti eftir það heimilisstörfum og uppeldi barna þeirra hjóna. Alma og Einar bjuggu á Breiðabólsstað á Síðu frá 1945 til 1947, vora síð- an hálft annað ár í Reykjavík en árið 1948 fluttu þau til Bfldudals í Arnarfirði og bjuggu þar til ársins 1967 er þau fluttu til Eyr- arbakka. Eftir lát Einars bjó Alma á Miklubraut 66 í Reykja- vík en síðustu 10 árin á Austur- strönd 8 á Seltjarnarnesi. títför Ölmu fer fram frá Fossvogskirkju á morgun, mánudaginn 21. september, og hefst athöfnin klukkan 15.00. Engum er ljóst, hvaðan lagt var af stað, né hver lestinni miklu ræður. Við sláumst í fórina fyrir það, jafnt ffisir sem nauðugir, bræður! Og hægt hún fer, en hún færist um set, þessi fylgd yfir veginn auðan, kynslóð af kyslóð og fet fyrir fet. Og ferðinni er heitið í dauðann. (Tómas Guðm.) Þegar mér barst fréttin af and- láti systur minnar, Ölmu, sunnu- daginn 13. september, varð mér hugsað til síðustu samfunda okkar. Við Haraldur vorum í Reykjavík á leið til Bandaríkjanna til dvalar hjá syni okkar Þórði Gunnari, sem er búsettur þar. Að sjálfsögðu ætluð- um við að kveðja Ólmu, en Ragnar Páll listmálari, sonur hennar og nánast uppeldisbróðir minn, kom með þau skilaboð frá móður sinni, að okkur væri öllum boðið til há- degisverðar miðvikudaginn 19. ágúst heima hjá henni á Austur- Skilafrestur minningargreina EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fímmtudags-, fostudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveirnur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útfór hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. strönd 8. Þar höfðu dætur hennar, Anna og Norma, framreitt hinn besta og fallegasta málsverð, af allri þeirri snilld, sem þeim einum er lagið. Alma var svo hress og kát, að ég man varla eftir að hafa séð hana svona vel útlítandi og hressa í lang- an tíma. Við töluðum mikið saman, um foreldra okkar og vini, Siglu- fjörð og margt frá liðnum tíma. Nú er ég svo þakklát fyrir þessa sam- verustund, því við kvöddumst svo glaðar og ánægðar. Alma sagði mér frá ferð sinni í apríl síðastliðnum en þá flaug hún til Kaupmannahafnar að heimsækja Elínu dóttur sína, sem er hjúkrunarfræðingur og bú- sett þar. Þær fóru svo saman til Gautaborgar að heimsækja son og bróður, Sverri Einarsson og fjöl- skyldu, en hann er læknir þar og Arthur Ragnarsson sonarson Ölmu og fjölskyldu hans. Að þeirri dvöl lokinni var farið aftur til Kaup- mannahafnar, en þar veiktist Alma alvarlega, var flutt á sjúkrahús þar sem hún gekkst undir skurðaðgerð sem heppnaðist vel. Sjálf sagðist hún halda að þetta hefði lengi verið að búa um sig, því nú væri hún við bestu heilsu. Talið barst, eins og svo oft áður, að æskuslóðum okkar, síldarbæn- um Siglufírði. Móðir okkar, Elín Steinsdóttir, eignaðist Ölmu 18. febrúar 1917 með norskum manni, Carli Tynes, en í Noregi hafði hún dvalið með frú Indíönu og Ole Ty- nes, sem var mikill arhafnamaður á Siglufírði þessi ár. Síðar giftist móðir okkar föður mínum, Páli Guðmundssyni verslunarmanni, og gekk hann Ölmu í fóðurstað og þótti engu síður vænt um hana og hennar börn, en mig og mín börn. Eins veit ég að Ölmu þótti innilega vænt um hann sem foður, enda lét hann sér mjög annt um okkur syst- urnar. Fyrst fæddist þeim sonur, Ragnar B. Pálsson, en þau misstu hann úr lömunarveiki aðeins 4 ára gamlan. Síðan fæddist ég undirrit- uð, Ragna Hólmfríður, 16. maí 1925. Foreldrar okkar hófu hótelrekst- ur á Siglufírði skömmu eftir að þau giftu sig. Móðir okkar var góð mat- reiðslukona, enda verið árum sam- an hjá frú Indíönu Tynes og var það henni góður skóli, hvað mat- reiðslu og heimilishald snerti. Hún hafði sömu stúlkurnar við hótel- störfín ár eftir ár, enda urðu þær sumar eins og hluti af fjölskyldunni og allt gekk vel undir styrkri stjórn mömmu og pabba. Það var alltaf ákveðin stúlka sem sá um okkur systurnar og flestar okkar þarfir, því móðir okkar hafði svo mikið og erilsamt starf með hönd- um. Alltaf kom þó pabbi upp á kvöldin að lesa bænirnar með okk- ur. Vegna 8 ára aldursmunar átt- um við systurnar ekki samleið í leik og starfi á bernskuárum mín- um, en þegar ég var orðin 13 til 14 ára urðu samskiptin miklu meiri. Alma giftist Einari Th. Guð- mundssyni læknanema haustið 1935 og stofnuðu þau heimili í Reykjavík. I mars 1936 kom Alma norður til Siglufjarðar og hinn 3. apríl fæddi hún þar frumburð sinn, soninn Guðmund Rúnar. Mér fannst stórkostlegt að þessi fallegi drengur væri systursonur minn. Guðmundur varð svo eftir hjá for- eldrum okkar, sem fengu indæla og góða konu, Svanborgu, til að fóstra hann um tíma. Við pabbi fórum á hverju kvöldi að færa honum mjólk og svo fékk ég að halda á honum. Alma og Einar komu norður hvert vor meðan hann var í háskólanum. Einar fékk vinnu í Síldarverksmiðj- um ríkisins og Alma vann á síldar- plani og þá voru þau ætíð hjá for- eldrum okkar. Þetta var gangur lífsins, fólkið streymdi til Siglu- fjarðar í sfldina og ævintýrin. Ein af upprifjunum okkar systr- anna var hún Fríða frænka, Hólm- fríður Jónasdóttir skáldkona frá Sauðárkróki. Hún kom til Siglu- fjarðar á hverju vori meðan á sfld- arvertíðinni stóð og bjó alltaf heima hjá okkur. Ef það var ekki síld, þá saumaði hún heimsins fallegustu kjóla á okkur systurnar. Fenmingarárið mitt 1938 kom systir mín norður með 5 vikna gamlan son sinn Ragnar Pál, fædd- an 22. apríl 1938. Þessi litli drengur varð strax augasteinn foreldra minna, enda skírður í höfuðið á litla drengnum sem þau höfðu áður misst og syrgðu mikið. Ragnar Páll var elskulegt barn og sérlega góður við ömmu sína og afa. Hann var hjá þeim fram á unglingsár, eða allt þar til þau féllu frá og var þeim sem besti sonur. Til marks um það, hef- ur hann alltaf hugsað um leiði þeirra í kirkjugarðinum, hafi hann átt leið um Siglufjörð. Það var alltaf mikil tilhlökkun þegar Alma og Einar komu í sum- arheimsóknir til okkar Haraldar á Ólafsfirði, með barnahópinn sinn. Yngri börnin: Sverrir, Elín, Anna og Norma, ásamt Elínu dóttur okkar voru mjög samrýnd, enda á svipuðum aldri. Þórður Gunnar var yngstur en fékk líka að vera með. Mesta sorgin, sem systir mín varð fyrir, var að missa manninn sinn, Einar, langt um aldur fram. Þá var það henni dýrmætt að eiga þessi góðu börn og tengdabörn sem hafa stutt hana og styrkt í einu og öllu. Við Haraldur og Þórður Gunnar sendum ykkur systkinum og öðrum vandamönnum innilegar samúðar- kveðjur og biðjum Guð að blessa ykkur öll. Systir mín kær, þér þakka ég samfylgdina í gegnum árin. Við trúðum báðar á líf eftir dauðann, því kveð ég þig með kvöldbæn, sem pabbi kenndi okkur og lét okkur fara með á hverju kvöldi. Nú legg ég augun aftur, ó guð, þinn náðarkraftur, mín veri vöm í nótt. Æ virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson.) Blessuð sé minning þín. Ragna Hólmfríður Pálsdóttir, Bandaríkjunum. Amma hún er móðir hennar mömmu og mamma er það besta sem ég á, gaman væri að gleðja hana ömmu og gleðibros á vanga hennar sjá. í rökkrinu hún segir mér oft sögur svæfir hún mig er dimma tekur nótt, syngur hún við mig sálma og kvæðin fógur sofna ég þá sætt og vært og rótt. Þetta voru einar af uppáhalds vís- unum hennar ömmu en hún kunni heil ósköp af þeim og hafði gaman af að kenna okkur þær. Þegar við vorum lítil í heimsókn hjá ömmu Mikló voru margar stundimar sem við sátum í fanginu hennar og hún söng fyrir okkur eða sagði okkur sögur. Okkur fannst alltaf og finnst enn amma ein merkilegasta kona i heimi. Hún hafði alltaf svör á reið- um höndum, hvort sem spurningin var stórmerkileg í augum 5 ára barns eða 15 ára unglings, amma vissi allt. Við trúðum því alltaf statt og stöðugt að hún gæti og kynni allt og hún brást okkur ekki í þeirri trú. Amma fékk okkur líka til að trúa á sjálf okkur og nýta þá hæfi- leika sem við búum yfír hvert fyrir sig. Það er sárt að kveðja ömmu sína en hvert sem við förum og hvað sem við gerum, vitum við að hún lítur eftir okkur eins og hún hefur alltaf gert. Alma Tynes, Bjarni og Einar Thoroddsen Skúlabörn. Það var sl. sunnudag að síminn hringdi. í símanum var Ragnar Páll frændi minn og tjáði hann mér að móðir hans hefði orðið bráðkvödd um morguninn. I amstri dagsins setti mig hljóða, ekki Alma frænka - og af hverju ekki? Hún var orðin 81 árs og orðin frísk og hress eftir veikindi frá liðnu vori. Af hverju núna og af hverju er það svona sárt? Það læðast í huga mér sárindi sem ég get rakið til sjáifrar mín. Af hverju hringdi ég ekki oftar og af hverju kom ég ekki oftar? Nú verð- ur engu breytt, það er allt búið - eða er ferðin mikla að hefjast? Alma frænka var fædd á Siglufirði 18. febr. 1917. Eh'n amma eignaðist hana með norskum manni, Carli Ty- nes. Amma giftist síðan afa mínum, Páli Guðmundssyni, og eignuðust þau tvö börn, móður mína, Rögnu, og dreng sem dó á fjórða ári. Páll afi gekk Ölmu í föður stað og hugs- aði ávallt um hana sem sína dóttur. Til marks um það vissi ég ekki að þær mamma væru hálfsystur fyrr en ég var orðin fullorðin. Fjölskylda mín í móðurætt var því ekki mjög stór í þá daga, ég var einbirni til þrettán ára aldurs en þá kom bróðir minn í heiminn, Þórður Gunnar, svo fjölskyldan á Bfldudal var mér mjög mikilvæg. Til Bfldudals fluttu Alma og Einar Th. Guðmundsson sem var læknir, mikill sómamaður, hjarta- hlýr mjög og skemmtilegur umfram allt. Þau eignuðust sex börn og á þeim tíma fannst mér, einbirninu, eins og um heilan skólabekk væri að ræða. Ég hlakkaði ávallt mikið til þegar við fórum vestur á Bfldudal, þar var líf og fjör, mörg börn, Alma í eldhúsinu að elda eða baka og Ein- ar að sinna sjúklingunum. Alma frænka var fyrst og fremst móðir og mikil húsfreyja. Hún vann heima og hlúði að sínu og undir hennar vemdarvæng tróð ég mér og hélt fast. Þetta var á þeim tíma þegar mæður voru húsmæður, ekki eins og í dag, „bara húsmóðir". Við Alma náðum alltaf mjög góðu sambandi hvor við aðra, hún var mér ekki að- eins móðursystir heldur líka vin- kona. Hún hvatti mig til dáða, hún lagði smyrsl á sárin og börnum mín- um var hún sem amma. Hjá Ölmu dvaldi ég þegar ég stundaði nám í nuddi, þá var hún orðin ekkja og bjó ein á horni Miklubrautar og Löngu- hlíðar, einu mesta umferðarhomi Reykjavíkur. En innan dyra var hlýja, ylur og friður og hún vár alltaf til taks. Þetta var skemmtileg- ur vetur - en öðravísi vetur, ég ein fyrir sunnan en Bjarki og börnin fyrir norðan. „Eiín, þú heldur þínu striki,“ sagði Alma. Hún hjálpaði mér og reyndist búa yfir gagnlegum fróðleik í sambandi við nám mitt, enda gift lækni, átti son sem var læknir og dóttur sem var hjúkrun- arfræðingur. En fyrst og fremst kom hennar eigin reynsla og lífsmat mér mest til góða og af því miðlaði hún mér af öriæti sínu. Hún minnti mig ávallt á Elínu ömmu og það líf sem ég átti hjá afa og ömmu í gamla húsinu á Sigló, ömmu sitjandi við gömlu kolavélina en nýja Rafha- eldavélin stóð ónotuð hinum megin, því það var einhver nýjung sem amma kunni ekki að meta, Ragnar Páll að teikna á móðuna á gluggun- um, afi að fara í pakkhúsið, kisurnar að leika sér á gólfinu, Kobbi mall og Jói sovét í kaffi. Á þeim tíma skiptu mínútur ekki máli. Nú er allt breytt og við stjórn- umst af hringiðu hraða og lífsgæða- kapphlaups en þegar tíminn stopp- ar og hugurinn hverfur aftur í tím- ann mun minningin um þig, elsku Alma, marka djúp spor hjartahlýju og visku og þú verður í sama sessi og Elín amma og Páll afi voru mér, sem bjarg sem alltaf stóð upp úr þó á móti blési. Elsku frændsystkin, Guðmundur Rúnar, Ragnar Páll, Sverrir, Elín Guðrún, Anna Sigríður og Norma, það er komið haust en það vorar aftur. Við sjáum að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, aðþar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóstið þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hjjótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumamótt og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson.) Guð blessi minningu þína, elsku Alma. Elín Hólmfríður Ilaraldsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.