Morgunblaðið - 20.09.1998, Page 42

Morgunblaðið - 20.09.1998, Page 42
42 SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ BÁRA SIG URJÓNSDÓTTIR + Bára Sigurjóns- dóttir fæddist í Nonna-húsi á Akur- eyri 8. október árið 1903. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð 12. september síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Siguijón Friðbjarn- arson, f. 11.2. 1870, d. 11.7. 1942 og Sig- ríður Kristjánsdótt- ir, f. 24.6. 1874, d. 4.11. 1956. Systur hennar voru 1) Hr- efna, f. 10.3. 1898, 2) Kristín, f. 2.4. 1900. 3) Jóm'na, f. 16.1. 1907. Þær eru allar látnar. 4) Hulda. f. 7.3. 1917. Bára giftist 23.5. 1925, Alfreð Jónssyni, f. 12.10. 1896, d. 10.5. 1972. Kjörsynir: 1) Siguijón, f. 10.8. 1928, d. 10.6. 1934. 2) Sig- uijón Viðar, f. 29.11. 1934, d. 19.11. 1994, kvæntur Birnu Viggósdóttur, f. 1.4. 1935. Þeirra böm: Alfreð Viggó, kvæntur Elínu Haukdsdóttur, Bára, gift Garðari A. Garðarssyni, Svavar Páll, sam- býliskona Anna María Hjaltadóttir og Margrét, sam- býlismaður Hrann- ar Ö. Hrannarsson. 3) Jón Viðar, f. 29.11. 1934, kvænt- ur Kristjönu I. Svavarsdóttur, f. 6.5. 1935. Þeirra böm: Svavar Alfreð, kvæntur Bryndísi Bjömsdóttur, Emelía Bára, gift Viðari Magn- ússyni og Sigríður Margrét, gift Karli Jónssyni. titför Bám fer fram frá Akureyrarkirkju á morgun, mánudaginn 21. september, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Æg?,SS „ 1 v/Nýbýlaveg SOLSTEBJNÍAIL 554 4566 .7* 4 •p Þegar andlát ber að höndum Útfararstofa kirkjugarðanna ehf. Sími 551 1266 Allan sólarhringinn Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri I TfSblómaverksíæði 1 I JSlNNA I Skólavöröustíg 12. á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090 © ÚTFARARÞJÓNUSTAN Stofnað 1990 Persónuleg þjónusta Sími: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is utfarir@itn.is 0 é!%p Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson útfararstjóri útfararstjóri Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró íslensk framleiðsla MOSAIK . Bára Sigurjónsdóttir, sem lengst af ævinni bjó inn í Fjörunni á Akur- eyri að Aðalstræti 22, er látin í hárri elli. Um skeið var hún kaup- kona, seldi sælgæti í litlum turni, sem stóð við hlið pósthússins í Hafnarstræti og muna margir rosknir Akureyringar eftir henni þaðan. Hún giftist móðurbróður okkar Alfreð Jónssyni - Alla frænda - og saman áttu þau gott líf og stóran vinahóp. Það var fóst venja að fara í heim- sókn til Alla og Báru, strax þegar haustaði og við mættum til náms í Menntaskólanum. Þar mætti manni þetta glaðværa og hlýja viðmót, sem var þeim svo eiginlegt og stundum ringdi jafnvel yfír mann karamellum og „bolsíum" á leiðinni upp stigann! Slíkar móttökur gleymast aldrei, þær vermdu hug og hjarta okkar systkinanna frá Nöf í Siglufirði. Við fundum að við vorum velkomin og það gerði okkur gott, gerði mann á einhvern hátt öruggari, e.t.v. full- orðnari. Við dvöldum öll hjá þeim lengri eða skemmri tíma á fallega og snyrtilega heimilinu þeirra, þar sem húsmóðirin ræktaði rósir í hverjum glugga og hannyrðir prýddu veggi. Aldrei fór hjónunum styggðaryrði á mill þrátt. fyrir endalausa stríðni frænda okkar, heldur einkenndist samband þeirra af fágætum hýrleik og yl. Síðar, þegar við systkinin höfðum eignast okkar eigin fjölskyldur, nutu makar okkar og börn einnig gestrisni og hlýju Alla og Báru. Minnisstæðast er að hafa gist hjá þeim og sofið með dúnsæng, og sængurföt úr drifhvítu damaski prýddu hekluðum milliverkum og útsaumi. Þá var matarborðið ekki síður „elegant", stífaður dúkur og serviettur, silfur, krystall og postu- lín og maturinn afburðagóður. Salt- kjötið, jafningurinn og nýupptekn- ar kartöflurnar, sem oft var á borð- um, gleymist seint. Síðustu árin, sem Bára lifði, var hún á dvalarheimilinu Hlíð. Sem forðum var stutt í gleðióp og hlátur hjá þessari sómakonu, sem fylgdist vel með og hélt sinni andlegu reisn til æviloka. Astvinum sendum við samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Báru Sigur- jónsdóttur. Systkinin frá Nöf, Jón, Stefán, Gunnlaugur Tryggvi og Jóhanna Skafta- börn. Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralönq revnsla. 2 I 3 Fersk blóm o§ skreytingar við öll tækifæri Opið til ki.10 öll kvöld Persónuleg þjónusta Fákafeni 11, sími 568 9120 o & tkimmmmmú Við kölluðum hana „ömmu í bænum“. Fyrir okkur var þessi nafngift sérstök og notaleg. Það var stytting úr „amma í innbænum", sem aftur var til aðgreiningar frá ömmu okkar á Eyrinni. Amma í bænum, var stórkostleg kona, ekki bara í okkar huga, heldur líka allra þeirra, sem henni kynntust. Þótt hún sæti lengstum kyrr í sínum stól núna hin síðari ár, var hún full af lífi sem fyrr, skýr í hugsunum og orðum. Otal myndir koma upp í hugann. Amma í eldhúsinu að stússa og galdra fram þann besta mat, sem hægt var að fá á öllu Islandi. Amma að nostra við blómin sín í suður- og austurgluggunum á Aðalstræti 22. Engar rósir voru fallegi-i eða ilmuðu betur en rósirnar hennar. Og ekkert kakó var til betra með kringlunum eða vínarbrauðunum úr Brynju eða Höpnfer. Og alltaf var amma hress og kát og söng með verkunum, gömlu og góðu lögin frá því „í gamla daga“. Og engan bandamann áttum við betri, þegar við þóttumst eiga í stríði við ranglátan og vanþakklátan heim. Henni fannst algjör óþarfi að banna okkur neitt eða þá skamma. „Það á að fara vel að þeim,“ sagði hún ákveðið við pabba eða mömmu. Seinna nutu svo börnin okkar þessarar umhyggju og heimspeki ömmu. Svona rekur hver minningin aðra og er af mörgu að taka. Og nú hefur elsku amma í bænum, fengið hvfldina eftir tæp 95 ár, og er komin til afa. Við söknum hennar sárt en yljum okkur við allar þær góðu minningar sem við eigum um hana. Það sefai- söknuðinn og sársaukann. Vertu Guði falin, elsku amma. Það var svo óumræðilega dýrmætt að fá að eiga þig öll þessi ár. Emilía Bára og Sigríður Margrét. ÓLÖF ÞÓRUNN SVEINSDÓTTIR + Ólöf Þórunn Sveinsdóttir fæddist í Dagverð- arnesseli í Klofn- ingshreppi í Dala- sýslu 22. október 1929. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 20. ágúst síð- astliðinn og fór út- för hennar fram frá Fossvogskirkju 27. ágúst. A útfarardegi Olafar Sveinsdóttur frá Fells- strönd, þann 27. ágúst sl„ naut ég hins fegursta sólarlags á Santorini. Gul sólin skipti um ham yfir í appel- sínulit, að lokum umhverfðist hún í rauðan loga og hvarf niður fyrir sjóndeildarhring. Gyllt Eyjahafið var glitrandi í mætti sínum. Meðan sjónhverfingin gekk yfir naut ég hinnar fegurstu tónlistar og skyggndist inn í eilífðina. Upp í huga minn komu ótal gleði- og ánægjustundir sem ég hef átt með Olöfu og fjölskyldu hennar frá barnæsku. í fjarlægðinni urðu minningamar svo nálægar í tíma og rúmi, að þær runnu um huga minn sem kvikmynd. I byrjun sjöunda áratugarins var líf og fjör í Heimahverfinu hér í borg, barnmargar fjölskyldur og krakkaskarinn út um allt. Leik- svæðið var víðáttumikið, Laugar- dalurinn sjálfur sem var sveit í þá daga, þar sem kýr, kindur og aligæsir gengu um haga. I listigarð- inum var frumskógurinn okkar og við klifruðum svo sannarlega í trjánum. Laugarásinn Alparnir, Sundin strendurnar, Viðey útlönd og Vogamir völundarhús. Hið for- boðna „Kanasjónvarp", svarthvítt, var á örfáum heimilum sem urðu að félagsmiðstöðvum. Já, þetta voru senur sem nokkrir af okkar fremstu listamönnum eru í óða önn að skrifa um eða festa á filmu. Inn í þetta samfélag fluttust ung og glæsileg hjón, Haraldur Lýðs- son og Olla, eins og hún var jafnan kölluð, og vöktu athygli fyrir dugn- að og myndarskap. Góð kynni tók- ust þegar með okkur krökkunum og gjörvulegum börnum þeirra, þeim Ingu, Friðgeir og Haraldi yngri. Olla var fljót að komast í gott stjórnmálasamband við ærslabelg- ina. Heimilið var ávallt opið og góð- gæti borið fram af höfðingsskap. Hún kunni lagið á hlutunum og við báram mikla virðingu fyrir hinni frjálslegu nútímakonu. Kynnin urðu ár og áratugir, mannfagnaðir, hesta- ferðir, samræður og hinar bestu gleði- stundir. Ávallt lagði Olla líf sitt og yndi í að gleðja þá sem á vegi hennar vora. Hún töfraði fram hinn besta veislukost sem völ var á hverju sinni. Allt heimilishaldið lék í höndum hennar, mat- reiðsla og skreytingar á heims- mælikvarða, hugnan og ekki síst geislandi elskulegt og hlýtt viðmót- ið. Það var ekki að undra að gestum liði vel í hennar höndum. Heimilið var Olla og Olla var heimilið. Þar var hennar heimur á breyttum tímum. Þegar húsmæður fóra út á vinnumarkaðinn þá vann hún heimilisstörfin af ánægju, sinnti fjölskyldunni, ættingjum, vinum og ekki síst „gamla fólkinu". Olla var sannkallaður gleðigjafi. Heiðríkja ríkti yfir óvenju fagur- lega búnu heimilinu. Eiginmaður- inn studdi og hvatti konu sína með ráðum og dáð í umsvifum hennar. Miklir kærleikar og vinátta var með þeim hjónum alla tíð frá ung- lingsáram. Olla var hávaxin og vel á sig komin, tíguleg dama til orðs og æð- is. Ljósbláu augun heilluðu sam- ferðamenn hennar og stutt var í brosið og kitlandi gáskann. Dökkt og þykkt hárið var vel til haft, hún klæddist af einfaldri smekkvísi og bar fallega skartgi-ipi óvenju vel. Mér fannst hún alla tíð vera á besta aldri, enda ung í anda. I raun var Olla hlédræg og bjó í henni tregi yfir fóðurmissi, bróður- missi og erfiðri lífsbaráttu ung- lingsáranna. Hún elskaði sveitalífið, það umhverfi sem hún var sprottin úr, íslenska náttúru og hesta- mennska var líf hennar og yndi. Draumaland nefndist sumarbústað- urinn í Rauðhólum og þar naut hún sín vel. Kynslóðir koma og kynslóðir fara og nú var röðin komin að sálu Olafar að hverfa á braut til „Lands- ins fagra“, þangað sem leið okkar allra liggur. Kæra vina, megi andi þinn njóta frelsisins og svífa frjáls um víðátturnar öllum, öllum til blessunar um aldir alda. Armann Reynisson. Formáli minningargreina ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dá- inn, um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinun- um sjálfum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.