Morgunblaðið - 20.09.1998, Page 48

Morgunblaðið - 20.09.1998, Page 48
'48 SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ Dýraglens Ljóska i/d.,mo2>uf' XfÉQ-iriiC /m' ektc U'/tchco c/c~ yaíþú ætyr ao munc/. EircC harhxa /xana e,ht cxtMifiS ysifirUena.þu . aUra, bestu!(kannt Aanaciéanab Ferdinand BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Eg er að koma að ná í aumingja- kortið mitt Frá Jóhannesi Þór Guðbjartssyni: HVAÐ hef ég ekki heyrt þetta oft og alltaf er það jafnsárt að heyra þetta sagt. Það er ekki mikið eftir af sjálfsáliti þess sem er með þetta hugarfar. Hvað getum við gert til að breyta þessu? Það er umhugsunarvert hvort ekki sé kominn tími til að berjast á móti svokölluðum sérréttindum fatlaðra, það er að segja allskonar niðurfellingum á aðgangseyri og gjöldum sem eru felld niður í nafni vorkunnar og lélegrar íjárhags- stöðu fatlaðra. Því það er oft á tíðum að þegar minnst er á að lífeyrir fatlaðra sé lágur, þá er talið upp það sem við fáum niðurfellt þannig að þetta bít- ur okkur í hælinn. Það er þekkt dæmi úr veraldar- sögunni þegar ákveðinn kynstofn var látinn bera á sér stjömu svo yf- irvöld gætu þekkt þá sem honum tilheyrðu frá almenningi, það er kannski það sem stjórnvöld taka uppá næst. Allavega er það skoðun margra þeirra sem koma á skrifstofu Sjálfsbjargar á höfuðborgar- svæðinu að þetta kortafargan sé orðið ansi langsótt. Örorkukort, lyfjakort, strætókort, sundkort o.fl. Það er niðurdrepandi fyrir sið- ferðisþrek fólks að þurfa í tíma og ótíma að verða að sanna það með skírteini að það sé það illa statt fjárhagslega að það þurfí á sér- stökum kjörum (ölmusu) að halda. Það drepur niður sjálfsálitið að vera alltaf að rétta fram „aum- ingjakortið“ Við eigum að berjast íyrir mannsæmandi kjörum þannig að við þurfum ekki að vera alltaf að sanna það með allskonar skírtein- um að við séum öryrkjar og þurf- um á sérstakri ölmusu að halda. Það brýtur niður sjálfstraustið og lætur okkur finnast við vera minni máttar. Það er algengt að þegar ég hef fært þetta í tal við þá aðila sem með þessi mál fara þá er sagt „þetta er ekki rétt hjá þér, fólk er það félagslega þroskað að það lítur ekki þannig á þetta“. Þeir sem segja slíkt hafa ekki þurft að sækja þjónustu til opinberra aðila sem sitja fyrir innan rafdrifnar hurðir eins og í amerískri fangamynd og skammta okkur smánarlaun (líf- eyri) þannig að við erum alltaf á hungurmörkunum. Nú fer að líða að næstu alþingis- kosningum og þá er tækifæri fyrir okkur að láta heyra í okkur. Það væri fróðlegt að sjá hvort einhver af þeim aðilum sem bjóða fram í komandi kosningum skreyti listann sinn með einhverjum fötluðum eða hvort einhver þeiiTa gefi fötluðum tækifæri til að vinna á jafnréttisgrundvelli innan raða sinna. Við skulum fylgjast vel með þeim sem gefa kost á sér til Alþingis og láta þá heyra í okkur þannig að ekki fari framhjá þeim hver kjör fatlaðra eru. Svo að þeg- ar kemur að prófkjörum og Alþing- iskosningum getum við haft áhrif á hverjir hafa með kjör okkar að gera. JÓHANNESÞÓR GUÐBJARTSSON, framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunbiaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Smáfólk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.