Morgunblaðið - 20.09.1998, Qupperneq 48
'48 SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998
MORGUNB LAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
i/d.,mo2>uf' XfÉQ-iriiC /m' ektc
U'/tchco c/c~ yaíþú ætyr ao
munc/. EircC harhxa /xana e,ht
cxtMifiS ysifirUena.þu .
aUra, bestu!(kannt Aanaciéanab
Ferdinand
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Eg er að koma að
ná í aumingja-
kortið mitt
Frá Jóhannesi Þór Guðbjartssyni:
HVAÐ hef ég ekki heyrt þetta oft
og alltaf er það jafnsárt að heyra
þetta sagt. Það er ekki mikið eftir
af sjálfsáliti þess sem er með þetta
hugarfar. Hvað getum við gert til
að breyta þessu?
Það er umhugsunarvert hvort
ekki sé kominn tími til að berjast á
móti svokölluðum sérréttindum
fatlaðra, það er að segja allskonar
niðurfellingum á aðgangseyri og
gjöldum sem eru felld niður í nafni
vorkunnar og lélegrar íjárhags-
stöðu fatlaðra.
Því það er oft á tíðum að þegar
minnst er á að lífeyrir fatlaðra sé
lágur, þá er talið upp það sem við
fáum niðurfellt þannig að þetta bít-
ur okkur í hælinn.
Það er þekkt dæmi úr veraldar-
sögunni þegar ákveðinn kynstofn
var látinn bera á sér stjömu svo yf-
irvöld gætu þekkt þá sem honum
tilheyrðu frá almenningi, það er
kannski það sem stjórnvöld taka
uppá næst.
Allavega er það skoðun margra
þeirra sem koma á skrifstofu
Sjálfsbjargar á höfuðborgar-
svæðinu að þetta kortafargan sé
orðið ansi langsótt. Örorkukort,
lyfjakort, strætókort, sundkort o.fl.
Það er niðurdrepandi fyrir sið-
ferðisþrek fólks að þurfa í tíma og
ótíma að verða að sanna það með
skírteini að það sé það illa statt
fjárhagslega að það þurfí á sér-
stökum kjörum (ölmusu) að halda.
Það drepur niður sjálfsálitið að
vera alltaf að rétta fram „aum-
ingjakortið“
Við eigum að berjast íyrir
mannsæmandi kjörum þannig að
við þurfum ekki að vera alltaf að
sanna það með allskonar skírtein-
um að við séum öryrkjar og þurf-
um á sérstakri ölmusu að halda.
Það brýtur niður sjálfstraustið og
lætur okkur finnast við vera minni
máttar.
Það er algengt að þegar ég hef
fært þetta í tal við þá aðila sem
með þessi mál fara þá er sagt
„þetta er ekki rétt hjá þér, fólk er
það félagslega þroskað að það lítur
ekki þannig á þetta“. Þeir sem
segja slíkt hafa ekki þurft að sækja
þjónustu til opinberra aðila sem
sitja fyrir innan rafdrifnar hurðir
eins og í amerískri fangamynd og
skammta okkur smánarlaun (líf-
eyri) þannig að við erum alltaf á
hungurmörkunum.
Nú fer að líða að næstu alþingis-
kosningum og þá er tækifæri fyrir
okkur að láta heyra í okkur.
Það væri fróðlegt að sjá hvort
einhver af þeim aðilum sem bjóða
fram í komandi kosningum skreyti
listann sinn með einhverjum
fötluðum eða hvort einhver þeiiTa
gefi fötluðum tækifæri til að vinna
á jafnréttisgrundvelli innan raða
sinna.
Við skulum fylgjast vel með
þeim sem gefa kost á sér til
Alþingis og láta þá heyra í okkur
þannig að ekki fari framhjá þeim
hver kjör fatlaðra eru. Svo að þeg-
ar kemur að prófkjörum og Alþing-
iskosningum getum við haft áhrif á
hverjir hafa með kjör okkar að
gera.
JÓHANNESÞÓR
GUÐBJARTSSON,
framkvæmdastjóri
Sjálfsbjargar
á höfuðborgarsvæðinu.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunbiaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Smáfólk