Morgunblaðið - 20.09.1998, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 49
V
Enn um Skeiðarvog
Frá Guðmundi Bergssyni:
ÁGÚST Tómasson skrifar í Morg-
unblaðið 9. september þar sem
hann gerir gi-ein fyrir því sem ég
kallaði skemmdir á Skeiðarvogi og
vil ég þakka honum fyrir það. Eg
er þér sammála um það að allt þarf
að gera sem hægt er til að koma í
veg fyrir slys og þessvegna er ég
hissa á þessari framkvæmd sem þú
segir að eigi að standa í eitt ár. Því
í ósköpunum var gatan ekki
þrengd báðum megin og einstefnan
látin halda sér með einni akgi-ein í
hvora átt. Það hefði þá verið minni
hætta á árekstram og þar er meiri
von að þá væri ekki tjaldað til einn-
ar nætur eins og nú er.
Þú segir, Ágúst, að þú takir fólk
fram yfir bíla. Að sjálfsögðu er ég
sammála því, varla hefur þú mis-
skilið mig svo hrapallega að þú haf-
ir fundið það út úr orðum mínum.
Ágúst, það er fólk í bílunum og göt-
ur eru fyrir fólk í bílunum en
gangstéttir fyrir fólk á göngu, eins
og nafnið ber með sér og gang-
brautir til að komast yfir göturnar.
Þú segir að þrengingin sé gerð til
að minnka hraðann. Það er kominn
áratugur síðan Vesturbæjarsam-
tökin fengu lækkaðan hraða þar í
30 km og það er orðið víða í íbúðar-
hverfum. Hefur ykkur ekki komið
til hugar að fá 30 km hámarks-
hraða á Skeiðarvog milli Suður-
landsbrautar og Langholtsvegar.
Það hefði líka mátt láta eina eða
tvær hraðahindranir á götuna frá
torginu að Langholtsvegi til að
koma í veg fyrir hraðakstur.
Vogaskólinn er orðinn nokkuð
gamall og er því með ólíkindum að
eklri skuli vera komið ljós við gang-
brautina fyi'ir langa löngu. Á
Langholtsveginum var gangbraut-
arvörður við Holtaveg sem gat ýtt
Barnavagnar
Rauðarárstíg 16,
sími 561 0120.
á hnapp og þá bhkkaði ljós til að
stoppa umferð. Það hefur ekki
hvarflað að ykkur að gera eitthvað
í þá átt eða fenguð þið því ekki
framgengt? Þú talar um vörabíla
og þungaflutningabíla með tengi-
vagn, þar er ég þér hjartanlega
sammála að þeir eiga að hverfa af
Skeiðarvoginum enda er það nú
svo að umferð slíkra tækja er víða
bönnuð í borginni. Hafið þið farið
fram á að götunni verði lokað fyrir
svoleiðis ófögnuði í íbúðarhverfi,
var ykkur kannski neitað um það?
Þetta og kannski margt fleira hefði
mátt gera til úrbóta og vonandi
verður það gert.
Ágúst, þú segir að best þætti þér
að götunni væri lokað, er þetta ekki
prentvilla í blaðinu? Þú hefur ekki
mikla trú á góðum vættum en vilt
heldur halda þér við veraldlega.
Ekki ætla ég að blanda mér í á hvað
þú trúir. Þú mátt vera tölvutrúar-
maður fyrir mér en ég ætla að biðja
góða vætti að vera mér hliðholla í
umferðinni hér eftir sem hingað tíl.
Það hefur reynst mér vel í á milli 50
og 60 ár. Áð svo mæltu læt ég
útrætt um það sem ég kallaði
skemmdarverk á Skeiðarvogi.
Eg vona svo sannarlega að út-
koman verði góð, þó ég telji að
verri leiðin hafi verið valin við að
mjókka götuna.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178, Reykjavík.
Ert þú alltafá leiðinni
í Ræktina?
Nú er þinn tími runninn upp.
Skelltu pér á byrjendanámskeið
r I *
í Ræktinni.
Námskeiðið stendur yfir í 8 vikur og er boðið
upp á m.a. spinning, pallaleikfimi, body pump
og mjúkt eróbikk undir handleiðslu Báru.
Verð kr. 10.900
(3 - 36 mánaða kort) kr. 7.900
• Námskeiðin hefjast 21. september.
Innritun er í síma 551 2815.
*
/u riLij-jj
Magni Sigurhansson
Pramkv.stjóri Alnabæ
wMeð náminu fékk ég mjög
góða yfirsýn yfir möguleika
PC fölvunnar og góða
þjálfun í notkun þess
hugbúnaðar sem ég nota
hvað mest í starfi mínu,þ.e.
ritvinnslu, töflureikni og
Internetinu. Oll aðstaða,
tækjabúnaður og
frammistaða kennara hjá
NTV var fyrsta flokks og
námið hnitmiðað og
árangursríkt."
Kennt er þrisvar í viku í fjórar vikur.
Almennt um tölvur, Windows, Word,
Excel, og notkunarmöguleikar
Internetsins. Samtals 48 klukkustundir.
Næstu námskeið byrja 28. og 29. september.
Vönduð námsgögn
og bækur fylgja
öllum námskeiðum
Bjbðum upp b Visa & Euro
raögrmðsiur
Nýi tölvu- &
viðskiptaskálinn
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Slmi: 555 4980 - Fax: 555 4981
Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimastða: www.ntv.is
Týnast handklæðin!
Lausnin er sérmerkt handklæði.
Fáanleg í 6 litum í st. 70x140 sm.
Merking áberandi og falleg.
Tilvalið í skólann og íþróttimar.
Aðeins kr. 1.490 með nafni.
ÍR-ingar! Einnig fáanleg sémierkt hand-
klæði með félagsmerkinu ykkar kr. 1.970.
Sendingarkostnaður bætist við
vöruverð.
Afhendingartími
7-14dagar
93,5
PÖNTUNARSÍMI
virka daga kl 16-19
557 1960
Hjálp
Vinalínu Rauða krossins bráðvantar fleiri sjálfboðaliða
Ef þú ert 25 ára eða eldri, hefur 10—12 klst. aflögu á mánuði og vilt
láta gott af þér leiða, þá vantar okkur sjálfboðaliða til að svara í síma
Vinalínunnar. Verið er að Ieita eftir fólki sem vill deila reynslu sinni
og tíma með það markmið að vera til staðar, hlusta og gera sitt besta
til að liðsinna þeim sem hringja.
Kynningarfundir verða haldnir í Sjálfboðamiðstöð á Hverfisgötu 105
Reykjavík, sunnudaginn 20. september kl. 14 og kl. 20. Námskeið fyr-
ir verðandi sjálfboðaliða verður síðan haldið helgina 3.—4. október.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Vinalínunnar í síma 561 6720.
Vinalínan+
Sími 561 6464 Grænt númer 800 6464
Reykjavíkurdeild Rauða krossins.
Áskriftarkort - innifaldar eru 8 sýningar
5 á Stóra sviði:
Mávahlátur, Kristín Marja Baldursdóttir/Jón J. Hjartarson
Horftfrá brúnni, Arthur Miller
Vorið vaknar, Frank Wedekind
Stjórnleysingi ferst af slysförum, Dario Fo
íslenski dansflokkurinn, danssýning
3 á Litla sviði:
Ofanljós, David Hare
Búasaga, Þór Rögnvaldsson
Fegurðardrottningin frá Línakri, Martin McDonagh
I/erð áskriftarkorta er 9.800 kr.
Afsláttarkort gildir á 5 sýningar að eigin vali:
Á Stóra sviði:
Mávahlátur, Pétur Pan, Horft frá brúnni,
Vorið vaknar, Stjórnleysingi ferst af slysförum,
Sex í sveit, Grease, (slenski dansflokkurinn.
Á Litla sviði:
Ofanljós, Búasaga, Fegurðardrottningin frá
Lfnakri, Sumarið '37.
Verð afsláttarkorta er 7.500 kr.
®5rLF.ÍKFI;LAplÍB» khðasalan er opin daglega frá kl. 13:00-18:00
RI'YKJ<VVíKUog tram að sýningu sýningardaga. Simapantanir
BORGARLEIKHÚSIÐ eru kl. 10:00 virka daga. Sími 568 8000