Morgunblaðið - 20.09.1998, Side 50

Morgunblaðið - 20.09.1998, Side 50
50 SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 I DAG MORGUNBLAÐIÐ rj Rúmfatnaður fyrir börn og fullorðna og ungbarnafatnaður. Njálsgötu 86, sími 552 0978. FASTEIGNASALAN frÓn FINNBOGI KRISTJÁNSSON LÖGG. FASTEIGNASALI SÍÐUMULA 1 SIMI 533 1313 FAX 533 1314 OPtÐ HIJS ASVALLAGATA 46 Um er að ræða 101 fm 4-5 herbergja sérhæð á besta stað i Vesturbænum. Ibúðin er öll nýlega tekin í gegn, t.d. parket á gólfum og fiísar á eldhúsi og baði. Franskir gluggar og rósettur í lofti. Mjög skemmtileg eign. Þak og rennur nýtt. Ragnar og Unnur taka á móti fólki milli kl. 14 og 16 með kaffi á könnuni. Verð 10,5 m. Um er að ræða 82 fm 4ra herb ibúð neðanvert við götu. Ibúðin skiptist í stofu og borðstofu ásamt 2 svefnh. Nýlega viðgert hús. Góðar svalir, frábært útsýni. Hún Cecilia og Friðrik taka á móti fólki milli kl. 13-16. Látið endilega sjá ykkur. Austurgerði 7 Opið hús í dag, sunnudag, á milli kl. 13 og 16. Um er að ræða einbýlishús sem er kjallari, hæð og ris, alls um 300 fm. Mikið og fallegt hús á sér- lega fallegum stað. Verð 16,8 millj. Sölumaður verður á staðnum. • ••••••• Höfum kaupendur að eftirtöldum eignum sem búnir eru að selja sínar eignir. 1. Einbýlishús í Smábúðahverfi á verðbilinu 11 til 15 millj. 2. 3ja til 4ra herb. íbúð í húsi fyrir eldri borgara. Staðgr. í boði. 3. 2ja til 3ja í Hólum eða Bökkum. Staðgr. í boði. 4. 4ra herb. eða lítið sérbýli í Fossvogi, Smáíbúða- hverfi eða Háaleitishverfi. 5. Hæð 100 til 120 fm í austurborginni. VELVAKAJXÍDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags „Eldri kona“ hafi samband ELDRI kona - gaf ekki upp nafn sitt - sendi fyrir- spurn til Velvakanda sl. fimmtudag og sagðist hafa lagt leið sína í Glæsibæ, þar sem félag eldri borg- ara í Reykjavík og ná- grenni (FEB) hefur nýver- ið komið upp glæsilegri fé- lagsmiðstöð. Konan skrif- ar: „Eg var ekki nógu vel klædd en ég var mikið klædd vegna kvefs.“ Hún skrifar að hún hafi haft á tilfinningunni að hún væri ekki velkomin vegna klæðnaðar síns. Þetta eru hugarórar í konunni. Hún er væntanlega ekki félagi í FEB og þekkir því ekki það góða starf sem þar er unnið. Konan endar skrif sín: Svar óskast. Ég, sem er almennur félagi í FEB, bið þessa konu að hringja í mig og hún fær svar. Jón f sfma 552 4977. Slæmt símasamband VELVAKANDA barst eft- irfarandi: „Ég þurfti að hafa síma- samband við heilsugæslu- stöðina í Fossvogi. Þegar ég hringdi þá komst ég í samband við símsvara sem segir að maður sé kominn í samband við stöðina og að símtöl verði afgreidd eftir röð. Þetta gerðist þrisvar sinnum en svo slitnaði. Beið ég dálitla stund, hélt að ég væri að fá samband, en svo var ekki. Hringdi ég þá aftur, alls níu sinnum, og alltaf kom símsvarinn inná með þau skilaboð að allar línur væru upptekn- ar. Hringdi ég þá í skipti- borð Sjúkrahúss Reykja- vík og fékk þá strax sam- band við Heilsugæslustöð- ina. Sagði konan á síman- um að það væri búið að kvarta yfir þessu áður og hefði verið reynt að laga þetta en það gengi illa. Væri ekki hægt að laga þetta ástand á símamálum heilsugæslustöðvarinnar? Sjúklingur. Athyglisverð grein SIGRÍÐUR hafði sam- band við Velvakanda og vildi hún benda fólki á að lesa athyglisverða grein eftir Pál Daníelsson sem birtist í Morgunblaðinu 15. september. Greinin heitir „Menning, hvað er það?“. Sóðaskapur KONA í Vesturbænum hafði samband við Velvak- anda og viil hún vekja at- hygli á sóðaskapnum fyiir framan Þjóðai’bókhlöðuna. Hún segir að þar sé tyggjó, sígarettustubbar og alls konai- rusl. Finnst henni sorglegt að þetta sé eftir upprennandi mennta- fólk, sem gengui4 þarna um. Tapað/fundið Leikfiniidót í poka týndist LEIKFIMIDÓT í p-áum poka týndist á leiðinni Skólavörðustígur-miðbær sl. fóstudag, 11. sept. Skil- vís finnandi hafi samband í síma 562 1796. Hjólkoppur týndist HJÓLKOPPUR týndist 16. september. Koppurinn er af Volvo-bíl. Hann týnd- ist á leiðinni Sæviðarsund eða Vitatorgi. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi samband í síma 553 0593. Dýrahald Stálpaður kettlingur f óskilum STÁLPAÐUR kettlingur fannst sl. miðvikudag á Grenimel. Hann er fress, ómerktur, brúnbröndóttur með hvítan kvið. Upplýs- ingar í síma 551 2302. Kettlingur óskar eftir heimili GULBRÖNDÓTTA læðu, þriggja mánaða, blanda af norskum og persneskum, vantar gott heimili. Upp- lýsingar í síma 421 6964. Kettlingur óskast ÓSKA eftir kettlingi, helst læðu, síðhærðri og Ijúfri á gott heimili. Upplýsingar í síma 557 9033 eftir kl. 18. Sambó er týndur NORSKUR, svartur skóg- arköttur, með eina græna ól með rauðu hjarta og aðra hvíta ól týndist í síð- ustu viku úr Blönduhlíð- inni. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi samband í sima 551 2252. SKÁK IJnisjón Margcir Pctursson STAÐAN kom upp á minningarmótinu um Paul Keres í Tallinn í Eistlandi í sumar. Svíinn Ulf Andersson (2.635) hafði hvítt og átti leik gegn heimamanninum Tarvo Seeman (2.435). Andersson hafði aldrei þessu vant fómað manni fyrir sóknarfæri. Svartur lék síðast 41. - Ha7-g7 og gerði sér vonir um að ná gagnsókn. 42. e6! - Hxg3 43. Df6+ - Kg8 44. Dd8+ - Kg7 45. De7+ - Kg8 46. De8+ - Kg7 47. Df7+ - Kh6 48. Df6+ og svartur gafst upp. HVÍTUR leikur og vinnur. Víkverji skrifar... HAUSTJAFNDÆGUR eru mið- vikudaginn 23. september. Þá er jafnrétti dægranna - dagur og nótt jafnlöng. Frá þeim tíma hrekur myrkrið birtuna smám saman út úr sólarhrignum. Vinnur loks það sem kalla má „pyrrhusarsigur" á vetrar- sólhvörfum, 22. desember. Þá er stytztur sólgangur í hringrás árs- ins. Síðan hefst á nýjan leik sigur- ganga birtunnar. Haustmánuður að fornu tímatali hefst 24. september. Þessi síðasti mánuður fyrir vetur hefst á fimmtu- degi í 23. viku sumars. Stendur fram til 24. október, fyrsta vetrar- dags. Með honum hefst Gormánuð- ur, fyrsti mánuður vetrar. xxx FYRSTA DAG Gormánaðar árið 1938, fyrir réttum sextíu árum, var stofnaður „Sameiningai-flokkur alþýðu, sósíalistaflokkurinn". Þá voru vinstri menn að „sameinast" eins og stundum endranær. Þessi „sameiningarflokkur" var arftaki Kommúnistaflokks íslands sem klauf sig út úr Aiþýðuflokknum í nóvemberskammdegi árið 1930. Sameiningarflokkurinn sálugi, blessuð veri minning hans, var síð- an „genabanki" Alþýðubandalags- ins, sem reyndar var einnig „sam- einingarflokkur". Það á tvo stofn- eða afmælisdaga: 4. apríl 1956 (kosningabandalag) og 3. nóvember 1968 (stjórnmálaflokkur). Verður sem slíkt þrítugt ef því endist líf í byrjun nóvember nk. Og góða veizlu gjöra skal, eins og þar stendur. xxx LÖNGU áður en ímynduð eða raunveruleg gróðurhúsaáhrif komu til sögunnar var árferði hér á landi mjög breytilegt. Gengnar kyn- slóðir gætu, mættu þær mæla, sagt frá ísaárum þegar hafís var land- fastur langtímum saman, fram á vor- og sumarmánuði. Annálar greina frá „sumrum sem aldrei komu“! Enn lifir fólk sem man „frostaveturinn mikla“ 1918. Þá mældist kuldinn á Grímsstöðum mínus 38 gr. á Celsíus (22. janúar). Enginn hafði tekið sér í munn þetta orð, gróðurhúsaáhrif, árið 1939, þegar þjóðir Evrópu hófu heimsstyrjöldina síðari - í kjölfar sáttmála Hitlers og Stalíns um skiptingu Póllands. Þetta ár andaði suðrið sælum vindum þýðum á Fjallkonuna. Þá mældist lofthiti á Teigarhorni 30,5 gr. C 22. dag júní- mánaðar! Fólk á norðausturhorni landsins talar þessa dagana um sumar sem vart hafi sést og vetur sem virðist ætla að koma á undan hausti. Á suð- vesturhorninu lofa menn á hinn bóginn milt og gott sumar. Það var sum sé misskipt sólskinsstundum á landinu bláa. Vonandi verður vetur- inn sem í hönd fer góður lands- mönnum öllum. Það væri ekki ama- legt að fá veðurfarslega hagsæld til viðbótar annarri velferð - með kosn- ingar framundan að vori. xxx RÍTUGT Alþýðubandalagið virðist vera á leið til upphafs síns, ef Víkverji dagsins metur framvinduna rétt. Verður m.ö.o. dregið í einhvers konar kratadilk í pólitískum haustréttum. Svipaðan þeim sem Kommúnistaflokkur ís- lands brauzt út úr annó 1930. Þar með lokast hringurinn. „Ég gekk í hring í kring um allt sem er,“ segir Steinn skáld Steinarr í þekktu kvæði, „Utan hringsins". í fyrri hluta þess segir: „og innan þessa hrings er veröld mín.“ Þau orð gætu verið vegvísar Margi-étar flokksformanns og hennar liðs. í síðari hlutanum er niðurstaðan: „og utan þessa hrings er veröld mín.“ Það er brottfarartexti Hjörleifs, Steingríms, Ögmundar & Co! Hætt er við að hringlandinn í Al- þýðubandalaginu hafi þau áhrif á margan vinstri manninn að hann geti tekið undir þessar ljóðlínur til- vitnaðs skálds: „Svo námumviðstaðar: Það var auðn og myrkur á allar hliðar, og enginn vegur!“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.