Morgunblaðið - 20.09.1998, Side 58

Morgunblaðið - 20.09.1998, Side 58
58 SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ MISSTU EKKI A F EINSTÖKU TÆKIFÆRI!!! GRUNNNAMSKEIÐ I VOGA orka - jafnvægi - árangur Pétur Valgeirsson er reyndur yogakennari og er nýlega kominn frá einni þekktustu yogastöð Bandaríkjanna, þar sem hann kenndi undirstöðuatriði í Hatha Yoga o.fl. Planet Pulse býður nú grunnnámskeið í yoga hjá einum hæfasta yogakennara á íslandi, Pétri Valgeirssyni Námskeiðið er haldið í fallegu og róandi umhverfi Planet Pulse á Hótel Esju og er öllum opið. Námsefnið er eftirfarandi: • Grunnstöður í Hatha yoga • Öndunaræfingar • Slökun • Hugleiðsla • Hugmyndafræði o.fl. Kennt er tvisvar í viku, 90 mínútur í senn í fjórar vikur. NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 30. SEPTEMBER. Einnig bjóðum við kennslumyndbönd í yoga. UPPLÝSINGAR OG INNRITUN í SÍMA 588 1700 NAMSKEIÐ ÍSJÁLFSSTYRKINGU FYRIR KONUR Rannsóknir sýna að draga megi úr líkum á þunglyndi og neikvæðum áhrifum streitu með því að temja sér jákvæðan hugsunarhátt og auka leikni sína í mannlegum samskiptum. Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um leiðirtil að: Efla gott sjálfsmat Koma fram málum sínum af festu og kurteisi Halda uppi samræðum og svara fýrir sig Hafa hemil á kvíða og sektarkennd Upplýsingar og skráning eru í síma 55123 03 Anna Valdimarsdóttir sálfræðingur Bræðraborgarstíg 7 552 3333 tausavegur 588 8043 Mosfeilsöær 554 1317 Knpavoiiur 565 4460 Hafnarljörflur S'NIÆIANÍÐ) : Yió:ío : Par sem nýiustu myndirnar lást FÓLK í FRÉTTUM PÁLÍNA Jónsdóttir í hlutverki Sirsu í Dansinum. Nýtt verkefni í sjónmáli ANDY Paterson er framleiðandi og fram- kvæmdastjóri Oxford Film Company, og er einn þeirra er koma að framleiðslu íslensku kvikmyndarinnar Dansinn, sem Agúst Guðmundsson leikstýr- ir og verður frumsýnd núna á miðvikudaginn. Andy er upptekinn maður en eftir nokkrar tilraunir náðist í hann þar sem hann var ný- kominn frá kvikmynda- hátíðinni í Toronto. „Það er búið að vera mikið að gera,“ segir Andy, „enda er ég með tvær myndir í kynningu, Dansinn og Hilary og Jacky. En fólk virtist taka Dansinum vel í Toronto, svo ég er bara bjartsýnn.“ Hann segir þó fullsnemmt að segja nokkuð um hvemig sölu myndarinnar og frek- ari dreifingu miðar, en staðfestir að viðræður um þau mál hafi verið reifuð í Toronto. Andy Paterson kemur til Islands á miðvikudaginn og verður við- staddur frumsýningu Dansins, og mun þá einnig halda erindi um stöðu evrópskrar kvik- myndagerðar á vegum Kvikmyndaskóla Is- lands. Andy Paterson er vel þekktur í Bretlandi sem einn af yngri framleiðendum sem hafa unnið hörðum höndum að því að koma breskri kvik- myndagerð á blöð sög- unnar. Stærsta verk- efni hans til þessa var kvikmyndin „The Restoration“ fyr- ir Miramax, en hún hlaut tvenn Oskarsverðlaun, en hann fram- leiddi sína fyrstu kvikmynd þegar hann stundaði nám í eðlisfræði við Oxfordháskóla. „Hilary and Jackie“ er nýjasta mynd hans, en fjallar hún um sérstakt samband sellóleikarans Jacqueline Du Pre og Hilary systur hennar. Myndin hefur vakið athygli, og var valin á kvikmyndahátíðina í Feneyjum, og fékk góðar viðtökur. Andy segir bjartari tíma framundan í kvikmyndagerð í Bretlandi, en núverandi stjómvöld hafa tekið ákveðna stefnu um að veita styrki til kvikmyndagerðar. „Mikilvægi þess að geta gert myndir á heimavígstöðvum, með aðstoð styrkja, án þess að leita strax til bandarískra dreifmgarað- ila er ómetanlegt viðvíkjandi list- rænni stjórnun myndanna," segir hann. Samstarf Andy Patersons og Agústar Guðmundssonar er ekki á enda nú þegar Dansinn er tilbúin til frumsýningar. „Við höfum unnið að nýju verkefni í talsverðan tíma, en höfum ekki enn gengið alveg frá handritinu. Ljóst er þó að myndin verður gerð á ensku, en tekin að stórum hluta upp á Islandi.“ Andy vill ekiœrt segja um vænt- anlega mynd annað en að í henni sé rómantík og ævintýri, og að tímabil- ið sé 19. öldin. „Annars reynum við yfirleitt að tala sem minnst um ný verkefni. Bíðum yfirleitt þangað til þau eru komin upp á borð, handritið frágengið og gengið frá öllum laus- um endum,“ segir Andy að lokum. Jákvæðar viðtökur í Toronto ÁGIJST Guðmundsson var ný- lentur eftir flugferð frá Bandaríkjunum þegar náðist í hann og hann var spurður hvernig Dansinum hefði reitt af á kvikmyndahátíðinni í Toronto. „Sýningarnar gengu mjög vel. Myndin var sýnd tvisvar fyrir troðfullu húsi og fólk virtist taka henni mjög vel. Eftir báðar sýn- ingarnar sátum við fyrir svörum, og ef marka má spurning- arnar var Ijóst að fólk skildi myndina og hafði haft gaman af. Myndin er ef- laust framandi fyrir marga, hún sýnir allt aðra menningu en þekkist þarna vestra, en kannski er það einmitt þess vegna sem fólk sýn- ir henni áhuga,“ segir Ágúst. Hann bætir því við að hann hafí farið áður ÁGÚST Guðmundsson NYTT FRA SVISS! Ekta augnhára- og augnbrúnalitur með c-vítamíni. Allt í einum pakka, auðvelt í notkun og endist frábærlega. Útsölustaðir: Líbia Mjódd, Dísella Hafnarfiröi, Háaleitisapótek, Grafarvogsapótek, Egilsstaðaapótek, I ; Apótekiö Hvolsvelli, Apótekiö Hellu, Iðunnar apótek, Isafjaröarapótek, Borgarnesapótek, Regnhlífabúöin, Apótekið Suðurströnd, Apótekið löufelli, Apótekiö í Smáratorgi, Vesturbæjarapótek, Hafnarapótek, Höfn, j | Akureyrarapótek, Hraunbergsapótek. ! Dreifing: KR0SSHAMAR. S. 5888808. 11 mm- ÍS’, Dreifing: Ijl* KR0SSH/ Swlss-o*Pars KROSSHAIVIAR, simi 588 8808 Swlss-8-Par en nokkrir dómar birtust um Dansinn, en eflaust séu þeir væntanlegir á næstu dögum. „Við erum líka mjög spennt að vita hvort einhver sala á myndinni kemur í kjölfarið. Einhverjar þreifingar voru í gangi, en ekkert sem hægt er að staðfesta á þessu stigi málsins. Uinboðsaðili okkar, Sales Company, stendur í viðræðum og sér alfarið um sölu myndarinnar erlendis. All- ir fjórir framleiðendurnir, frá Islandi, Danmörku, Þýskalandi og Englandi, hafa skrifað undir samning þar sem sölumálin eru sett í hendurnar á þessu eina fyrirtæki, og er það Andy Pa- terson hjá Oxford Film Company sem á heiðurinn af því að koma okkur í tengsl við þetta fólk,“ segir Ágúst. Þegar Ágúst er spurður hvað taki við nú þegar Dansinn er að koma fyrir sjónir áhorfenda, segir hann það vera verkefni sem enn er verið að koma í end- anlegt form. „Við Andy Pater- son erum að spá í verkefni, sem ég get ekki upplýst hvað er, nema að það er ensk bíómynd, sem yrði þó væntanlega tekin að stórum hluta á íslandi.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.