Morgunblaðið - 14.10.1998, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Starfsumhverfí ríkisstarfsmanna
Könnun breytt
vegna gagnrýni
FJARMALARAÐUNEYTIÐ hef-
ur lagt fram tillögur að breytingum
á könnun á starfsumhverfi ríkis-
starfsmanna sem miða að því að
ekki sé hægt að þekkja ákveðna
einstaklinga og stofnanir af svörun-
um.
Könnunin hefur verið gagnrýnd
vegna þess að spurningablöð voru
merkt þeim stofnunum sem svar-
endur starfa við. Magnús Péturs-
son, ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneytinu, segir að breytingarn-
Fjallgöngu-
mennirnir
komnir í
grunnbúðir
ÍSLENSKI Landssímaleiðang-
urinn sem ætlar að klífa tind
Ama Dablam (6.856 m.y.s.) í
Himalaja er kominn í grunn-
búðir fjallsins, sem eru í 4.600
metra hæð. I gær hófu leiðang-
ursmenn að flytja klifurbúnað
og tjöld úr grunnbúðum upp í
fyrstu búðir, sem eru í 5.700
metra hæð. Þeir fara síðan aft-
ur niður í grunnbúðir.
Með í för er Ang Babu
Sherpa, sem kleif Everest-tind
með íslenska Everest-leið-
angrinum í fyrra. Þá kleif hann
fjallið Cho Oyu í 8.201 (m.y.s)
með sama hópi árið 1995. Babu
hefúr óhemju reynslu af há-
fjallaklifri og hefur margoft
klifíð 8.000 metra tinda, þai' af
Everest-tind í um tug skipta.
„Það gladdi okkur mikið að
Babu skyldi vera með í fór, því
hann er mjög traustur félagi,“
segir í nýjasta skeyti frá
Landssímaleiðangrinum. Is-
lendingarnir hittu meðal ann-
arra leiðangursstjóra sinn Nick
Keukos um helgina, en aðstoð-
armaður hans, Fabrizio að
nafni, þurfti frá að hverfa
vegna meiðsla.
Tveir íslensku leiðangurs-
mannanna, Pálmi Másson og
Sveinn Þorsteinsson, munu hér
eftir halda kyrru fyrir í grunn-
búðum Ama Dablam og senda
fréttir af gengi þeirra fímm
sem takast munu á við tindinn.
Samkvæmt áætlun þeirra verð-
ur tindurinn klifinn eftii- eina
viku.
ar séu gerðar í samráði við Tölvu-
nefnd.
Samkvæmt tillögum ráðuneytis-
ins í bréfi til Tölvunefndar í gær
verða spumingablöð sem ætluð eru
stofnunum með færri en 40 starfs-
menn, sem eru um 70% stofnan-
anna, ekki merkt þeim, en tiltekinn
verður starfsmannafjöldi þeirra í
heilum tugum. Tiltekin verður gerð
stofnunarinnar, það er að segja
hvort hún er framkvæmdastofnun,
stjómsýslustofnun eða þjónustu-
stofnun.
Gefíð verður upp hvort hún er
staðsett á höfuðborgarsvæðinu eða
á landsbyggðinni og þá í hvaða
landsfjórðungi. Einnig verður gefið
upp verkefni stofnunarinnai-, það er
að segja hvort hún fæst við til
dæmis menntamál, heilbrigðismál,
vinnuvemd eða annað.
Ein spuming í könnuninni sem
varðar stéttarfélagsaðild verður
felld út.
I bréfi ráðuneytisins segir að list-
um sem búið er að fylla út eða fyr-
irhugað er að dreifa verði breytt í
þessa veru.
Fjármálaráðuneytið hafði þegar
fengið heimild Tölvunefndar fyrir
könnuninni en í bréfi ráðuneytisins
til nefndarinnar frá mánudag kem-
ui' fram að viðtöl við framkvæmda-
stjóra hennar í fjölmiðlum hafi tor-
veldað framhald könnunarinnar.
Því var óskað eftir fundi með hon-
um og vom tillögumar unnar í
framhaldi af því.
Gleði söngsins
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
TÓNLEIKAR til heiðurs Jóni Ásgeirssyni sjötugum
voru haldnir í Langholtskirkju í gærkvöldi. Þar fluttu
Kammerkór, Gradualekór, Kammersveit Langholts-
kirkju og Bergþór Pálsson verk Jóns undir sijórn
Jóns Stefánssonar. Fjölmenni var á tónleikunum og
var tónskáldið hyilt lengi og innilega í lok þeirra. Jón
Ásgeirsson ávarpaði tónleikagesti í lokin og þakkaði
fyrir sig með því að vegsama sönginn og þá gleði sem
hann gefur. Nafnarnir, tónskáldið og sljómandinn,
voru hlaðnir blómnum í lok tónleikanna.
Fangelsismálastjóri ekki bjartsýnn á að samningar takist fyrir mánaðamót
Fangaverðir gera kröfu
um 25-30% hækkun launa
ÞORSTEINN A. Jónsson fangels-
ismálastjóri segir að fangaverðir
geri kröfur um 25-30% launa-
hækkun. Hann segir að mikið beri
á milli aðila og er ekki bjartsýnn á
lausn málsins. Þorsteinn segir að
öllum mönnum sé frjálst að segja
upp starfi. Verði það niðurstaðan
verði auglýst eftir nýjum starfs-
mönnum.
„Það hefur staðið til að koma til
móts við fangaverði en ekki að fall-
ast á kröfur þeirra. Það stendur
verulega mikið á milli. í prósent-
um gera þeir kröfu um 25-30%
hækkun launa,“ segir Þorsteinn.
Síðast var fundur með fanga-
vörðum og Fangelsismálastofnun
sl. föstudag. Ekki hefur verið boð-
að til annars fundar.
Þorsteinn segir að þeim sem
segi upp verði veitt lausn og aug-
lýst eftir nýjum fangavörðum. „Að
sjálfsögðu getur það komið sér illa
ef margir segja upp en það er
alltaf hægt að bjarga slíkum hlut-
um.“
Þorsteinn segir að áður en hann
svari því hvort neyðarástand blasi
við í fangelsum landsins vegna fyr-
irhugaðra uppsagna vilji hann taka
á móti þessum uppsögnum.
„Ég hef enga trú á því að
80-90% fangavarða segi upp. Eins
og staðan er núna hef ég litla trú á
því að málið leysist."
Fangaverðir höfðu ekki
óunna yfirvinnu
Samkvæmt svonefndum aðlög-
unarnefndarsamningum, sem
stofnanir eiga að gera við stéttar-
félög starfsmanna, er ákvæði um
að annar aðili eða báðir geti vísað
málinu til úrskurðarnefndar þar
sem ríkissáttasemjari tilnefnir
oddamann, stéttarfélag tvo full-
trúa og stofnun og viðkomandi
ráðuneyti tilnefnir sitt hvom. Úr-
skurðarnefndir eiga að kveða upp
úrskurð um röðun starfsmanna í
flokka.
„Fangaverðir hafa óskað eftir
því að ég vísaði málinu ekki til úr-
skurðarnefndar og hafa beðið um
frest. Þeir vilja halda viðræðunum
opnum og ég hef ekki séð ástæðu
til að verða ekki við þefrri beiðni,"
segir Þorsteinn.
Víða eftir að gera
aðlögunarsamninga
Fjármálaráðuneytið hefur lokið
við gerð samninga við alla sína við-
semjendur en enn er eftir að gera
aðlögunarnefndarsamninga í
mörgum stofnunum ríkisins. Sam-
ið var um nýtt launakerfi við lang-
flest félög innan BHMR en um
helming aðildarfélaga BSRB. Eftir
að kjarasamningur er gerður
myndar hver stofnun aðlögunar-
nefnd, sem í eiga sæti tveir fulltrú-
ar starfsmanna og tveir fulltrúar
stofnunarinnar. Nefndinni er ætl-
að að koma sér saman um röðun
starfa í launaflokka. Stofnunin
raðar síðan starfsmönnum í flokka
eftir þessum reglum.
Samkvæmt upplýsingum frá
samninganefnd fjármálaráðuneyt-
isins hefur víða reynst erfitt að
ljúka aðlögunarnefndarsamning-
um. Ein af skýringunum á því er
sú að víða í ríkisstofnunum hafa
verið greiðslur í formi óunninnar
yfirvinnu. Við gerð aðalkjarasamn-
ings var yfirvinnan víða felld inn í
mánaðarlaunin og hafði því ekki í
fór með sér hækkun á heildarlaun-
um. Ýmsar stéttir hafa hins vegar
ekki haft fastar yfirvinnugreiðslur,
þar á meðal fangaverðir, sem telja
sig bera skarðan hlut frá borði
þegar þeir bera sig saman við aðr-
ar stéttir.
Sérblöð í dag
mmmm
itlpifyiiublníiib
www.mbl.is
Á
úrVERINU
'
► VERIÐ fjallar í dag um margfalda söluaukningu SH
á Spáni og í Portúgal, birtir fréttaskýringu um Verð-
lagsstofu skiptaverðs og fjallar um spár um að verð á
fiski muni líkast til haldast hátt vestan hafs.
AsSmmi
n«™a. Hvað á selur-
SAMKEPPNI jnn Qg he|ta?
Byrja
Rússar með
látum?
C2
Patrekur
ekki með
gegn Sviss
C1
Síðasti
iandsleikur
Eyjólfs
C1