Morgunblaðið - 14.10.1998, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Börn og
breyttir
tímar
BÖRN og breyttir tímar eru yfir-
skrift fræðslu- og umræðufundar
sem Norðurlandsdeild Barnaheilla
efnir til á morgun, fimmtudaginn
15. október, frá kl. 16 til 19.
Þetta er fyrsti þáttur í umræðu
um uppvaxtarskilyrði bama á veg-
um Bamaheilla á Norðurlandi, en í
febrúar næstkomandi er stefnt að
því að hafa annan umræðudag um
þetta þema, þar sem stefnt verður
saman ýmsum þeim sem skoðun
hafa á því hvernig uppvaxtarskil-
yrði barna á Akureyri era.
Á fundinum á morgun munu
fræðimennirnir og félagsráðgjaf-
arnir Nanna K. Sigurðardóttir og
Sigrún Júlíusdóttir segja frá rann-
sóknum sem þær hafa verið að
vinna að undanfarin ár á högum ís-
lensku fjölskyldunnar um leið og
þær hvetja til umræðu um þroska
barna og velferð fjölskyldna. Heiti
fyrirlestrar þeirra er sem fyrr segir
Börn og breyttir tímar, en þar er
varpað fram spurningunni hvort
böm og foreldrar eigi í vök að verj-
ast. I fyrirlestrinum fjalla þær
stuttlega um þróun fjölskyldu og
hjónabands, þær segja frá rann-
sóknum sínum á íslenskum barna-
fjölskyldum og beina athyglinni að
því hvernig flókin verkefni fjöl-
skyldna kalla á nýja aðlögun og
lausnir sem era hliðhollar þroska
barna og velferð fjölskyldna.
-------------------
Samvera
eldri borgara
SAMVERA verður fyrir eldri borg-
ara í Glerárkirkju fimmtudaginn 15.
október kl. 15, en slíkar samverar
eru að jafnaði einu sinni í mánuði og
er þetta sú fyrsta í vetur.
Sr. Örn Friðriksson fyrrverandi
prófastur kemur í heimsókn og flyt-
ur eigin píanóverk og spjallar við
gesti. Veitingar verða á boðstólum.
AKSJÓN
14. október, miðvikudagur
12.00Þ-Skjáfréttir
18.15ÞKortér Fréttaþáttur í sam-
vinnu við Dag. Endursýndur kl.
18.45,19.15,19.45, 20.15 og 20.45.
21.00^Bæjarsjónvarp Förðun -
Face Stockholm.
Opið hús fyrir kynslóðirnar í Glerárkirkju
, .. Morgunblaðið/Kristján
ÓLOF Ananíasdóttir kemur með barnabarni sínu, Kristófer Beck Bjarkasyni á opið hús í Glerárkirkju.
LEIKFÖNG hafa verið keypt handa börnunum svo þau geti leikið
sér á meðan mömmurnar fylgjast með fróðlegum erindum.
Samvera
þriggja
kynslóða
OPIÐ HIJS fyrir foreidra og
börn verður í Glerárkirkju í
vetur, alia fimmtudag frá kl. 10
til 12 og var það fyrsta nú í
byrjun október þar sem dag-
skráin var skipulögð. Þar sem
áhugasöm amma var í hópnum
þótti réttast að kalla þessar
samverustundir „kynslóðirnar"
eða „opið hús fyrir kynslóðirn-
ar“ þar sem saman voru komn-
ar þrjár kynslóðir og er hug-
myndin sú að fá fieiri ömmur
til að vera unga fólkinu til
haids og tausts.
Safnaðarsalurinn í kirkjunni
er rúmgóður og hafa verið
keypt leikföng fyrir börnin, en
betur má ef duga skal og er
þeim sem til eru í að gefa eða
lána Glerárkirkju leikföng, s.s.
dúkkur og bfla, bent á að hægt
er að koma með þau alla virka
daga frá kl. 10 til 16.
Fjölbreyttir og
fræðandi fyrirlestrar
Á siðustu samveru flutti
Magnús Stefánsson, yfirlæknir
á barnadeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri, erindi um
helstu sýkingar hjá ungum
börnum. Á morgun, fímmtu-
dag, flytur Sesselja Sigurðar-
dóttir leikskólaráðgjafi erindi
um Ieik og hvers vegna hann er
mikilvægur. Næstu fimmtu-
daga verða einnig flutt erindi, í
þessari röð; Björg Sigurvins-
dóttir leikskólasljóri fjallar um
það að byrja í leikskóla, Guð-
rún Alda Harðardóttir, lektor á
leikskólabraut Háskólans á
Akureyri, ræðir um nútíma-
barnið, Bryndís Jóhannesdóttir
um betri h'ðan, dr. Krislján Kri-
stjánsson, prófessor í heim-
speki við Háskólann á Akur-
eyri, um siðferðisþroska barna,
sr. Gunnlaugur Garðarsson um
börn og bænir og þá verða
tveir fundir tengdir komu jól-
anna.
Eftir áramót hefur þegar
verið gengið frá því að Björg
Bjarnadóttir sálfræðingur flyt-
ur erindi um tilfinningatengsl,
Guðfinna Nývarðsdóttir hjúkr-
unarfræðingur um mataræði
barna, Hrafnhildur Sigurðar-
dóttir leikskólaráðgjafi ræðir
um hvernig best sé að taka á
hegðunarvandamálum hjá
börnum, Magna Guðmundsdótt-
ir tónlistarkennari ræðir um
börn og tónlist og Margrét
Björgvinsdóttir kennari um
börn og bækur.
Stofnun
félags um
Gáseyri
STOFNFUNDUR félags áhuga-
fólks um hinn forna versiunarstað á
Gáseyri við Eyjafjörð verður hald-
inn næstkomandi laugardag, 17.
október kl. 14, í Deiglunni í Kaup-
vangsstræti. Allt áhugafólk um
sögu og fornleifar á Eyjafjarðar-
svæðinu er hvatt til að mæta á fund-
inn.
Hugmyndir hafa verið uppi á
undanförnum árum að auka þátt
menningarsögunnar í eyfirskri
ferðaþjónustu og hefur sá áhugi
ekki hvað síst beinst að hinum fornu
kaupstaðarminjum á Gáseyri við
vestanverðan Eyjafjörð. Talið er að
hvergi á landinu séu jafn miklar
minjar um verslun til forna og á
Gáseyri. Nokkuð hefur verið unnið
að rannsóknum á svæðinu á þessari
öld en mikið verk er þar óunnið.
Auk almenns áhuga á að fræðast
meira um þær fornleifar sem eru á
Gásum er einnig áhugi fyrir því að
samhliða verði almenningi gert auð-
veldara að heimsækja svæðið og
skoða þessar fomminjar.
Til að vinna að framgangi málsins
hefur hópur áhugamanna nú ákveð-
ið að stofna félag sem hefði m.a. að
markmiði að stuðla að því með öll-
um ráðum að rannsóknum verði
haldið áfram af fullum krafti af fær-
ustu fræðimönnum.
-----♦-♦“♦----
Hvers vegna
á minkurinn
enga vini?
„HVERS vegna á minkurinn enga
vini?“ og „Geta plöntur orðið stress-
aðar?“ er yfirskrift erinda sem flutt
verða í Deiglunni í Grófargili annað
kvöld, fimmtudagskvöldið 15. októ-
ber, kl. 20.30.
Fyrir hálfum mánuði hófst funda-
röð þar sem fjallað er um náttúru-
fræðileg efni, verið er að kynna list-
ina í mesta listaverki veraldar eða
sjálfu sköpunarverkinu.
Á fundinum annað kvöld mun
Þórir Haraldsson svara því hvers
vegna minkurinn á enga vina en
Bjami Guðleifsson glímir við seinni
spurninguna, hvort plöntur geti
orðið stressaðar. Á milli erinda
verður boðinn molasopi og Þórarinn
Hjartarsson syngur við gítarandir-
leik. Allir eru velkomnir og er að-
gangur ókeypis.
Tvíburar á
afmælisdaginn
BIRNA Guðrún Jóhannsdóttir á
Hauganesi fékk góða afmælis-
gjöf á áttræðisafmæli sínu, 12.
september síðastliðinn, en þann
dag fæddust tvíburabræðumir
Óðinn Freyr og Aron Ingi. Þeir
eru synir Heiðmars Inga Felix-
sonar og Elvu Rögnvaldsdóttur,
en Heiðmar er sonur Baldvinu
Guðrúnar Valdimarsdóttur, sem
er dóttir Jóhanns Valdimars
Kjartanssonar sonar Birnu. Ætt-
liðirnir fimm eru þarna saman
komnir daginn sem drengirnir
voru skírðir, 27. september síð-
astliðinn, Valdimar til vinstri og
Heiðmar til hægri en milli
þeirra sitja Baldvina og Birna
með þá Oðin Frey og Aron Inga,
en aldrei er að vita nema þeir
eigi eftir að láta að sér kveða á
handboltavellinum líkt og faðir
þeirra sem nú leikur með
Stjöraunni í Garðabæ.
Fjölmiðlakönnun um kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna
Sjómenn fengu meiri
tíma en útvegsmenn
ÚTVEGSMANNAFÉLAG Norður-
lands hefur gert ítarlega könnun á
umfjöllun fjögurra ljósvakamiðla
um kjaradeilu sjómanna og útvegs-
manna í upphafi þessa árs og var
hún kynnt á aðalfundi félagsins sem
haldinn var á Akureyri í gær.
Fjölmiðlamir sem könnunin nær
til era Ríkisútvarpið, Sjónvarpið,
Bylgjan og Stöð 2. Gagnagrannur
könnunarinnar er frá Fjölmiðlavakt
Miðlunar og nær til allra fréttatíma
þessara fjölmiðla á þriggja mánaða
tímabili, frá 1. janúar til 31. mars.
Unnið var eftir tilteknum skilgrein-
ingum og er tímamæling frásagna
og viðtala grannurinn að þeim nið-
urstöðum sem fyrir liggja. Fram
kemur að þó tímamæling ein og sér
gefi ekki tæmandi mynd af umfjöll-
un þessara fjölmiðla um kjaradeil-
una gefi samanburður milli fjöl-
miðla sterka vísbendingu um mis-
munandi áherslur.
Heildarumfjöllun um kjaradeil-
una í fréttatímum þessara fjölmiðla
nam 9 klukkustundum og 26 mínút-
um, en mest var umfjöllunin í Ríkis-
útvarpinu, 3 klukkustundir og 8
mínútur og minnst á Bylgjunni 1
klukkustund og 37 mínútur.
Mest misvægi í
Ríkisútvarpinu
Vakti það athygli þeirra sem
könnunina gerðu að við samanburð
milli fjölmiðlanna skar Ríkisútvarp-
ið sig úr varðandi vægi milli
deilenda. í öllum fjölmiðlum fengu
fulltrúar sjómanna lengri tíma í
viðtölum en fulltrúar útvegsmanna
en skar Ríkisútvarpið sig úr hvað
varðar misvægi í þessum efnum;
þar fengu fulltrúar sjómanna tæp-
lega þrisvar sinnum lengri tíma en
fulltrúar útvegsmanna sem er meiri
mismunur en mældist á hinum fjöl-
miðlunum.
Við endursögn fréttamanna af
sjónarmiðum deilenda gætti
nokkurn veginn jafnvægis í umfjöll-
un Sjónvarpsins og Stöðvar 2 en
fréttamann Ríkisútvarps og Bylgj-
unnar notuðu lengri tíma við endur-
sögn af sjónarmiðum sjómanna;
Bylgjan ríflega tvöfalt lengri tima
og Ríkisútvarpið tæplega tvöfalt
lengri.
Töluðu oftar við ríkisstjórnina
Einnig var í könnuninni litið til
umfjöllunar af vettvangi stjórnmál-
anna en eins og kunnugt er lauk
deilunni með lagasetningu. Niður-
stöður könnunarinnar leiða í ljós að
allir fjölmiðlarnir hafi varið lengri
tíma í viðtöl við fulltrúa ríkisstjórn-
ar en fulltrúa stjórnarandstöðu.
Ríkisútvarpið var eini miðillinn þar
sem fréttamenn vörðu lengri tíma í
að endursegja sjónarmið stjórnar-
andstöðu en ríkisstjórnar.