Morgunblaðið - 14.10.1998, Síða 19

Morgunblaðið - 14.10.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 19 Mörgum spurningum er ósvarað enn eftir samkomulagið um frið í Kosovo Óljóst hver pólitísk framtíð hóraðsins verður Belgrad, Antalya. Reuters. SAMKOMULAGIÐ sem tókst á síðustu stundu á milli Riehards Holbrookes, erindreka Banda- ríkjastjórnar, og Slobodans Milosevics Jú- góslavíuforseta í gær bægði frá hættunni á að herflugvélar Atlantshafsbandalagsins létu til skarar skríða gegn serbneskum skotmörkum vegna Kosovo-deilunnar, en mörgum spurning- um var ósvarað enn sem olli vissri tortryggni og óvissu um framhaldið. Einkum er enn óljóst að hve miklu leyti stjórnvöld í Belgrad eru tilbúin til að semja um sjálfsstjórn til handa héraðinu, þar sem íbúarnir eru flestii- af albönskum ættum. Milosevic sættist á að alþjóðlegt eftirlit yrði haft með því bæði á jörðu niðri og í lofti að hann efndi það sem hann hefði skuldbundið sig til í samkomulaginu, það er að binda enda á vopnaða herferð serbnesla-a öryggissveita gegn aðskiln- aðarsinnuðum Kosovo-Albönum, sem staðið hef- ur í sjö mánuði. Hann hét því jafnframt að hindra ekki frjálst streymi flóttamanna frá Kosovo aftur til heimila sinna og trufla ekki flutninga á hjálp- argögnum til flóttamannanna. Um innihald samkomulagsins sagði Holbrooke á blaðamannafundi að Júgóslavíustjóm myndi á næstu dögum undirrita samkomulag um eftirlits- flug NATO yfir Kosovo-héraði og að 2000 manna eftirlitslið á vegum Öryggis- og samvinnustofn- unar Evrópu, ÖSE, gæti starfað að vild í hérað- inu. Meðlimir eftirlitsliðsins eiga að njóta réttar- stöðu erlendra stjórnarerindreka og hafa það hlutverk að ganga úr skugga um að júgóslavnesk stjómvöld standi við skuldbindingar sínar um að binda enda á ofbeldið í Kosovo. Holbrooke sagði að ekkert herlið myndi verða í fylgd með eftirlits- mönnum ÖSE. Talsmaður ÖSE í Vín tilkynnti í gær að fyrsti hluti þessa eftirlitsliðs myndi geta verið kominn til starfa í Kosovo innan viku. Holbrooke sagðist vænta þess, að stjómvöld í Júgóslavíu gæfu út yfirlýsingu, sem „við vonum að móti straumhvörf í átt að því að koma af stað pólitísku ferli sem færa muni íbúum Kosovo sjálf- stjóm“. í yfirlýsingu sem gefin var út af skrifstofu Milos- evic sagði að skapaður hefði verið grundvöllur fyrir „pólitíska lausn fyrir Kosovo innan Serbíu". Aðskilnaðarsinnar tortryggnir Bardhyl Mahmuti, talsmaður Frelsishers Kosovo (KLA), sagði í Sviss að hann væri mjög tortrygginn í garð samkomulagsins, sem aðeins gerði ráð fyrir þeim möguleika að héraðið hlyti sjálfsstjórnarréttindi innan Júgóslavíu en ekki fullt sjálfstæði. „Við krefjumst fulls sjálfstæðis. Okkur er ómögulegt að lifa með Serbíu. Við erum reiðu- búnir að fallast á þriggja ára millibilstímabil sem leiða myndi til sjálfstæðis. Ef Milosevic fellst á þetta, þá væri KLA sáttur,“ sagði Mahmuti. Ráðstefna ríkja á Balkanskaga, sem fór fram í Antalya í Tyrklandi, samþykkti í gær ályktun þar sem lýst var stuðningi við að Kosovo fengi sjálfs- stjómarréttindi. í sameiginlegri yfirlýsingu sem borin var upp af Momir Bulatovic, forsætisráð- herra Júgóslavíu, samþykktu fulltrúar níu ríkja á Balkanskaga eftirfarandi: „Við lögðum áherzlu á nauðsyn þess að tafarlaust yrði bundinn endir á ofbeldi og að þegar verði hafnar uppbyggilegar viðræður án fyrirfram gefinna skilyrða til að leita pólitíski-a samningslausna á því hvemig koma megi á sjálfstjórn í Kosovo." I yfirlýsingunni sagði einnig, að þessi sjálfs- stjóm yrði að eiga sér stað innan núverandi landamæra Júgóslavíu og hvatt var til þess að hinum hundruðum þúsunda flóttamanna frá hér- aðinu yrði veitt aðstoð til að snúa heim. Reuters KALT og blautt var í flóttamannabúðunum við Kisna Reka í Serbíu í gær, þar sem þúsundir flóttamanna frá Kosovo hafast við. Aðstæður eru þar ömurlegar, ekki síst í ljósi þess að vetur er á næsta leiti. Stjórnmálaskýrendur vantrúaðir á samkomulag um lausn Kosovo-deilunnar Ekki lausn heldur frestur Efast um að samningurinn muni auka stöðugleika á Balkanskaga Indíánar mótmæla á Kólumbus- ardegi Tegucigalpa. Reuters. INDÍÁNAR í Ameríku minntust Kólumbusardagsins með sínum hætti í fyrradag. I Hondúras tóku þeir sæfarann Kristófer Kólumbus „af lífi“ með táknrænum hætti; í Mexíkó sviptu sumir sig klæðum og í Paraguay kröfðust þeir aftur yfir- ráða yfir landi forfeðra sinna. Fimm hundr-uð og sex ár eru liðin síðan Kólumbus „fann“ Ameríku og Indíánar segja, að afleiðingin hafi verið þjóðai-morð á því fólki, sem hann kallaði Indíána vegna þess, að hann taldi sig vera kominn til Ind- lands. í Hondúras var brennd brúða í líki landkönnuðarins og þess kraf- ist, að Spánarstjórn greiddi Indíán- um bætur og bæði þá afsökunar á glæpaverkunum. í Bandaríkjunum og í Evrópu er Kólumbusar jafnan minnst sem mik- ilmennis en svo er ekki meðal afkom- enda frumbyggjanna í Rómönsku Ameríku. Þeir minnast morðanna, þrælkunarinnai- og sjúkdómanna, sem Spánverjar færðu þeim. Sendi- herra Spánar í Hondúras vildi þó ekki ljá máls á neinni afsökun og sagði, að engin leið væri að umskrifa söguna, aðeins að læra af henni. --------------- Kampavín bresk upp- finning? London. Reuters. KAMPAVÍN, sem um aldir hefur verið hampað sem helstu vísbend- ingu um franska forfrömun, er í raun bresk uppfínning. Þetta er altént kenning Toms Stevensons, en á næstunni kemur út bók hans „A Worid Encyclopaedia of Champagne and Sparkling Wine.“ Er í bókinni birt skjal sem, að sögn kunnugra, sannar svo ekki verður um villst að Bretinn Christopher Marret flutti fyiirlest- ur um gerð freyðivíns hjá Royal Society í Bretlandi árið 1662, heilum tuttugu árum áður en franski munk- urinn Dom Perignon lauk við að þróa aðferð sína við gerð þess. London, Kisna Rcka. Rcutcrs. MEÐ samkomulagi um skilyrði sem uppfylla þarf til að komast hjá loftárásum Atlantshafsbandalags- ins, NATO, á sambandsríkið Jú- góslavíu er Kosovo-deilunni aðeins slegið á frest, hún ekki leyst, að mati vestrænna stjórnmála- skýi-enda. Segja þeir að samkomu- lagið geri bæði NATO og Slobodan Milosevic, forseta Júgóslavíu, kleift að hrósa sigri. Kosovo-Albanar og þá sér í lagi KLA, Frelsisher Kosovo, beri hins vegar skarðan hlut frá borði. Albanskir flótta- menn sem fréttamaður Reuters ræddi við í gær vildu lítið tjá sig um samkomulagið, sögðust vilja bíða og sjá til. Stjórnmálaskýrendurnir segja að gera megi ráð fyrir að NATO muni hreykja sér af því að raunveruleg og yfirvofandi hætta á loftárásum hafi neytt Milosevic til að ganga að kröfum Sameinuðu þjóðanna um að binda enda á kúgun Serba á al- banska minnihlutanum í Kosovo. Milosevic geti hins vegar fært fyrir því rök að honum hafi tekist að komast hjá loftárásum NATO og þar með varið herafla landsins, komið í veg fyrii- upplausn sam- bandsríkisins og komið ábyrgðinni á því að hindra skæruhernað Kosovo-AIbana yfir á herðar Vest- urveldanna. Þykir samkomulagið til marks um það að enn einu sinni virðist Milosevic vera ómissandi við gerð slíkra samninga á Balkanskaga, auk þess sem hann hefur minnt rækilega á hversu lífseigur hann er á valdastóli. „Byssan áfram hlaðin" Samkvæmt samkomulaginu verður ekki sendur landher til Ser- bíu en þess í stað um 2.000 eftirlits- menn frá Öryggis- og samvinnu- stofnun Evrópu, ÖSE. Hins vegar segja sérfræðingarnir líklegt að NATO-sveitir verði í viðbragðs- stöðu, reiðubúnar til árásar, verði samkomulagið brotið. „Byssan verður áfram hlaðin,“ sagði James Gow, sérfræðingur við rannsóknar- stofnun í varnannálum við King’s College í London. Þar sem ÖSE mun sinna eftirliti í Kosovo og Rússar eiga aðild að stofnuninni segja sérfræðingarnir að þar með hafi þeir í raun fengið neitunarvald yfir aðgerðum NATO, nokkuð sem NATO hefur ævinlega sagt að komi ekki til greina. Eykur tæplega á stöðugleika Hvað tímasetningu afskipta Vesturveldanna varðar hafa stjóm- málasérfræðingar og vestrænir stjórnarerindrekar sagt að hún tengist ekki síst æ háværari kröf- um Albana í Kosovo um fullt sjálf- stæði og tali þeirra um „Stór-Al- Ohugur vegna dauða samkynhneigðs ncma Haturs- glæpir varði við alríkislög Denver. Reuters. DAUÐI samkynhneigðs náms- manns við háskólann í Wyoming hefur vakið hryggð og fordæmingu um öll Bandaríkin. Fannst hann á miðvikudag fyrir viku illa á sig kom- inn, hafði verið bundinn við girðingu og misþyrmt hrottalega. Lést hann síðan í fyrradag. Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, vottaði foreldrum unga manns samúð sína sl. laugar- dag og lagði jafnframt áherslu á, að þingið samþykkti fyrirliggjandi frumvarp um, að alríkislög tækju til hatursglæpa af þessu tagi. Matthew Shepard, 21 árs gamall, hafði hangið bundinn og stórslasað- ur utan á timburgirðingu í allt að 18 klukkustundir er hann fannst og var hann svo illa leikinn, að öku- maður, sem átti leið framhjá og sá til hans, hélt fyrst, að einhverjir hefðu komið fuglahræðu fyrir á girðingunni. Hafði hann hlotið svo alvarleg höfuðmeiðsl, að læknar töldu aðgerð óhugsandi og lést hann síðan á mánudag á sjúkrahúsi í Fort Collins í Colorado. Clinton hvetur til umburðarlyndis Glæpurinn hefur ekki aðeins vak- ið óhug í smábænum Laramie þar sem Matthew Shepard bjó, heldur um öll Bandaríldn. Clinton hvatti til þess í fyrradag, að landsmenn lærðu að sýna hver öðrum meira umburðarlyndi en lagði líka áherslu á, að glæpurinn sýndi, að þingið ætti að samþykkja framkomið frumvarp um, að svokallaðir haturs- glæpir, morð og misþyrmingar á fólki, sem tilheyrir einhverjum minnihlutahópi, féllu undir alríkis- lög. Tveir menn, Russell A. Hender- son og Aaron McKinney, hafa verið handteknir vegna þessa máls og einnig vinkonur þeirra. Eru þær sagðar hafa reynt að gefa þeim fjar- vistai'sönnun og hjálpað við að fela blóðug föt. Telur lögreglan, að hvorttveggja hafi vakað fyrir mönn- unum að ræna Matthew Shepard og misþyrma honum fyrir að vera sam- kynhneigður. baníu“ en engin vestræn ríkisstjórn styðji fullt sjálfstæði héraðsins. Sérfræðingarnir sem Reuters ræddi við voru sammála um að samkomulagið myndi tæplega auka á stöðugleika á Balkanskaga, sem þó sé ætlunin með afskiptum Vest- urvelda af ástandinu. Kosovo-Al- banar hafi lýst því yfir að þeir séu ósáttir við samkomulagið og jafnvel þótt bardagar muni liggja niðri í vetur vegna snjóa muni þeir líklega hefjast að nýju í vor. Þá hafi Frels- isher Kosovo, KLA, bundist sam- tökum við Sali Berisha, sem leiðir stjórnarandstöðuna í Albaníu, þar sem stjórnmálaástandið sé óstöðugt. Sérfræðingarnir segja veru al- þjóðlegs herliðs og allar breytingar í átt að auknu sjálfstæði Kosovo munu kynda undir sjálfstæðiskröf- um albanska minnihlutans í lýð- veldinu Makedóníu og slíkt geti hæglega orðið til þess að Makedón- íustjórn muni halla sér æ frekar að stjórnvöldum í Belgrad.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.