Morgunblaðið - 14.10.1998, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 14.10.1998, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 21 MARÍULIKNESKI í Conyers var rdsura skrýtt í tilefni athafnarinnar. Tugir þiísimda komu saman í Georgíu Flutti boðskap Maríu guðsmóð- ur í síðasta sinn Conyers. Reuters. TUGIR þúsunda manna söfnuðust saman á búgarði í Georgíu-ríki í Bandaríkjunum í gær til að með- taka boðskap Maríu guðsmóður úr munni fyrrverandi hjúkrunarkonu, Nancy Fowler, í síðasta sinn. Mun María hafa tjáð Fowler á síðasta ári að athöfnin í ár yrði sú síðasta og hyggst Fowler nú flytja til Flórída. Fowler segist hafa fengið heimsókn heilags anda árið 1990 sem sýndi henni bóndabæ einn þar sem hún átti að leita Jesú Krists. Fann hún bóndabæinn í Conyers í Georgíu, rúmlega 50 kílómetra frá Atlanta. Hefur Fowler frá árinu 1991 sagt fólki að elska hvert annað, leita friðar og hætta að dýrka veraldar- gæðin en skilaboð sín segist hún fá frá Maríu mey. Hélt Fowler í upp- hafi mánaðarlegar guðsþjónustur en árið 1994 hótuðu yfirvöld að binda enda á samkomurnar fyrir fullt og allt, vegna umferðaröng- þveitis og þeirra óþæginda sem af hlutust, og hefur Fowler síðan þá einungis flutt boðskap Maríu einu sinni á ári. í fyrra voru um þrjátíu þúsund manns á samkomunni en í þetta sinn gerði lögreglan ráð íyr- ir á milli hundrað og hundrað og fimmtíu þúsund manns. Á mánudagskvöld, þegar Fowler kom óvænt fram og ræddi við gesti samkomunnar, hlýddu meira en tuttugu þús-, und manns á orð henn- ar og kom fólkið víða að, jafnvel frá Brasilíu og Ástralíu. Sumir voru í hjólastólum og margir aðrir eiga um sárt að binda. „Ég vona að eitthvað gerist á þriðjudag því húsið okkar brann til grunna í síðasta mánuði," sagði Gren Bur- gess, 13 ára drengur frá Mississippi. Sjálf sagðist Fowler á mánudag ekki geta lýst Jesú í útliti en að hún hefði séð hann mörgum sinnum. „Ég get þó ekki sagt ykkur að ég hafi séð Jesúm eins og ég sé ykkur, þetta var frekar gífurlega sterk kærleikstilfinning,“ sagði Fowler við fjöldann á mánudag. „Hjarta mitt fylltist af kærleik." 1 i1 . Nancy Fowler A Mál þýzks kaupsýslumanns í Iran Dauðadómur til hæstaréttar Teheran. Reuters. MÁLI þýzks kaupsýslumanns, sem dæmdur var til dauða í undirrétti í íran fyrir að hafa átt meint ástar- samband við innfædda konu, hefur verið vísað til hæstaréttar írans. Frá þessu greindi íranska frétta- stofan IRNA á sunnudag. Haft var eftir talsmanni dómsmálakei-fís Irans að dómstóllinn myndi fella „endanlegan dóm“ í málinu. Kaupsýslumaðurinn Helmut Hofer var í janúar sl. dæmdur fyrir að hafa átt vingott við 27 ára gamla ógifta íranska konu, sem leggur stund á læknisfræðinám. Þetta dómsmál hefur reynzt stór ásteyt- ingarsteinn til viðbótar í samskipt- um Irans og Þýzkalands, sem ekki voru of góð fyrir. Ef hæstiréttur landsins staðfest- ir dauðadóm undirréttar hefur Ayatollah Ali Khamenei æðstiklerkur einn vald til að náða hinn dæmda. Umfangsmiklar aðgerðir til bjargar bönkum í Japan 25.000 milljörðum dælt í bankakerfíð Tókýó. Rcuters. STJORN Japans samþykkti end- anlega í gær áætlun um að bjarga bankakerfi landsins með því að dæla í það 43 billjónum jena, and- virði rúmra 25.000 milljarða króna. Stjórn Japans og tveir stjórnar- andstöðuflokkar náðu samkomulagi um áætlunina á mánudag og neðri deild þingsins samþykkti hana í gær. Búist er við að hún verði síðan samþykkt í efri deildinni ekki síðar en á föstudag. Stjórn Frjálslynda lýðræðis- flokksins samþykkti í gær hvernig fjái-magna ætti aðgerðirnar og bú- ist er við að fleíri flokkar leggi blessun sína yfir fjármögnunina. Samkvæmt áætluninni verður opinbert fé notað til að bjarga bönkum, sem hafa orðið fyrir mikl- um útlánatöpum vegna efnahags- samdráttarins í landinu en eru taldir lífvænlegir til lengri tíma lit- ið. Jafngildir allri framleiðslu Ástralíu Með samþykktinni í gær hefur stjórnin ákveðið að verja alls 60 billjónum jena, andvirði 35.000 milljarða króna, til að bjarga bönkunum. Sú fjárhæð sýnir glögglega hversu mikilvægu hlut- verki Japan gegnir i efnahag heimsins og gífurlegt umfang þeirra vandamála sem japanska bankakerfið á við að stríða. Heild- arfjárhæðin samsvarar um það bil allri þjóðarframleiðslu Ástralíu og hartnær tveggja ára útgjöldum Bandaríkjastjórnar til varnar- mála. Áætluninni hefur verið vel tekið á fjármálamörkuðunum en margir fjárfestar efast þó enn um að henni verði framfylgt nógu vel. Japanska verðbréfavísitalan Nikkei hækkaði um rúm 5% á mánudag en lækkaði aftur í gær sem nemur tæpum helmingi hækk- unarinnar. Kiichi Miyazawa fjármálaráð- herra sagði í gær að 18 billjónum jena yrði varið til að þjóðnýta banka timabundið eða til að mæta útlánatöpum banka sem nýr ríkis- banki á að taka við. Nota á allt að 25 billjónir jena til að styrkja stöðu banka, sem standa illa, með kaup- um á hlutabréfum og skuldabréfum þeirra. Stjórnin hefur þegar lagt 17 billjónir jena til hliðar í því skyni að vernda sparifjáreigendur verði bankar þeirra gjaldþrota eða þjóð- nýttir. Hugo Chavez lfldegur forseti í Venesuela Reyndi að ræna völdum 1992 Caracas. Reuters. HUGO Chavez, fýrrverandi fallhlíf- arhermaður, sem reyndi að ræna völdum í Venesúela 1992, hefur langmest fylgi forsetaframbjóð- enda í landinu. Kemur það fram í skoðanakönnun, sem birt var í fyrradag. Af 1.500 kjósendum, sem spurðir voru, studdu 48% Chavez en aðeins 25% þann, sem næst honum kom, hagfræðinginn Henrique Salas. Frambjóðendur eru alls 12 og þar á meðal Irene Saez, fyrrverandi Ung- frú alheimur. Ekki þarf helming at- kvæða til að bera sigur úr býtum í kosningunum 6. desember, aðeins fleiri atkvæði en keppinautamir. Segist fylgja „þriðju leiðinni" Chavez, sem er 44 ára að aldri, var náðaður árið 1994 og hafði hann þá setið í fangelsi í tvö ár fyrir valdaránstilraunina. Stendur heil- mikið flokkakraðak að baki honum, flokkar jafnt yst til vinstri sem hægri, en í kosningabaráttunni hef- ur hann lagt megináherslu á bar- áttu gegn spillingu. Salas nýtur aft- ur stuðnings atvinnulífsins í Venes- úela en hann þykir hafa staðið sig vel sem ríkisstjóri í Cai-abobo. Chavez hét því í fyrstu að hætta að greiða af erlendum skuldum rík- isins en hefur síðan dregið verulega í land til að hræða ekki fjárfesta. Nú segist hann hlynntur „þriðju leiðinni", stefnu Tony Blairs, for- sætisráðherra Bretlands, og hafna jafnt hreinræktuðum kapitalisma sem sósíalisma. Pólverjar breyta stjórn- sýslukerfi Varsjá. Reuters. PÓLVERJAR efndu á sunnudag til kosninga sem eiga að gjörbreyta stjómsýslukerfi landsins og færa þúsundum fulltrúa í héraðs- og um- dæmisráðum víðtæk völd á kostnað ríkisstjórnarinnar í Varsjá. Stjórnin hafði vonast til þéss að Pólverjar myndu lýsa yfir stuðningi við kerfisbreytingarnar með því að flykkjast á kjörstaðina. Kjörsóknin var þó lítil og talið er að flókin tilhög- un kosninganna og óvissa um völd héraðsstjórnanna hafi orðið til þess að margir ákváðu að kjósa ekki.. Stjórnsýslubreytingamar taka gildi á næsta ári. Þær felast í því að gömlu héraðsráðunum verður fækk- að úr 49 í 16 og stofnuð verða ný um- dæmisráð, sem eiga að fara með mörg málefni sveitarfélaganna. Kjósendurnir þurftu að greiða allt að fimm atkvæði og tilhögun kosn- inganna var svo flókin að efast er um að niðurstaðan verði ljós fyrr en eftir viku. Fjármálaráðherrar EFTA og Evrópusambandsins funda EMU styrkir stöðu Evrópu á alþjóðavettvangi FJÁRMÁLARÁÐHERRAR aðild- ai-ríkja EFTA og Evrópusam- bandsins héldu árlegan fund sinn í Lúxemborg síðastliðinn mánudag. Á fundinum var rætt um Efna- hags- og myntbandalag Evrópu (EMU) og hugsanleg áhrif þess í alþjóðlegu samhengi, m.a. vegna þess óstöðugleika, sem gætt hefur á alþjóðlegum fjármálamarkaði að undanförnu. „Évrópa er í dag svæði stöðugleika í hagkerfi heims- ins,“ segir í yfírlýsingu fundar ráð- herranna. í fréttatilkynningu frá fjár- málaráðuneytinu kemur fram að stofnun EMU um næstu áramót sé mikilvægt skref í átt til aukinn- ar samræmingar efnahags- og peningamálastefnu í Evrópu. At- burðir síðustu vikna, sem hafi ein- kennzt af miklum sviptingum á al- þjóðafjármálamörkuðum, ekki sízt í gengismálum, hafi enn frek- ar leitt í ljós mikilvægi traustrar efnahagsstefnu, sem byggist á jafnvægi í ríkisfjármálum og lágri verðbólgu. Við ríkjandi aðstæður ***** EVRÓPA^ sé ótvírætt að styrk staða efna- hagsmála í Evrópu stuðli að aukn- um stöðugleika í heimsbúskapn- um og dragi þannig úr neikvæð- um áhrifum fjármálakreppunnar í Asíu, Rússlandi og Suður-Amer- íku. Velgengni EMU mikilvæg fyrir lönd utan bandalagsins Geir H. Haarde fjármálaráð- herra, sem sat fundinn fyrir Is- lands hönd, benti m.a. á mikilvægi þess að stjórnvöld fylgdu ábyrgri og aðhaldssamri efnahagsstefnu, sem miðaði að því að treysta stöðu atvinnulífsins og stuðla þannig að auknum hagvexti og fjölgun starfa. Þetta væri enn mikilvægara í ljósi þeirra sviptinga, sem orðið hefðu að undanfórnu á alþjóðamarkaði. Athyglisvert yrði að fylgjast með því hvemig aðildarríki EMU sam- ræmdu stefnu sína í þessum efn- um. Fjármálaráðherra sagði að miklu máli skipti fyrir lönd utan myntbandalagsins að háleit mark- mið þess næðu fram að ganga. Lönd jafnt innan sem utan banda- lagsins myndu njóta góðs af aukn- um gengisstöðugleika, minni við- skiptakostnaði og þeim aukna hag- vexti sem líklegt væri að fylgdi í kjölfarið. Á hinn bóginn gætu önn- ur áhrif orðið neikvæð, a.m.k. fyrst í stað, t.d. vegna aukins vaxtamun- ar milli landa innan og utan evró- svæðisins. Geir sagði íslenzk stjórnvöld fylgjast vel með þróun þessara mála en þau hefðu ekki talið tíma- bært að aðhafast sérstaklega, með- al annars í Ijósi þess að mikilvæg viðskiptalönd Islands innan ESB myndu standa utan EMU fyrst í stað.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.