Morgunblaðið - 14.10.1998, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
MIÐVTKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 37
Nýju fötin
keisarans
SALA á þjóðbönkunum, Pósti og
síma, orkufyrirtækjum og jafnvel
erfðavísum okkar er nú í fullum
gangi. Óvíst er að allir geri sér
grein fyrir því að þessi þróun leiðir
til þess að almenningur glatar hratt
og örugglega lýðræðislegum áhi-if-
um sínum og möguleikum á að móta
þjóðfélagið.
Það vantar
botninn í þetta
Mörgum verður heldur undarlega
innanbrjósts þegar þeir horfa á
banka þjóðarinnar búna til sölu í
hendur fjármálamanna. En vei
þeim sem láta sér detta í hug að
andmæla þessu. Þeir eru enda
skjótlega kveðnir í kútinn með
töfraorðunum „hagkvæmni“ og
„arðsemi“ og trúarsetningum hins
„frjálsa markaðar". Lögmál mark-
aðarins verða að verka óhindrað,
þannig sé öllu best borgið. „Mark-
aðurinn" finni lausnir á öllum vanda
og það sem hann fær ekki leyst er
einfaldlega ekki þess virði hvort
sem er að leysa. Hver maður veit að
það vantar alveg botninn í þetta.
Það er barnaskapur og
hreint ábyrgðarleysi,
segir Methúsalem Þdr-
isson, að láta peninga-
menn sjá um velferð
heildarinnar.
Satt að segja minnir þessi hjátrú
einna helst á ævintýrið um „Nýju
fótin keisarans" þar sem enginn
þorði að segja það sem honum bjó í
brjósti af ótta við að verða að at-
hlægi.
Að Iáta þá
Ijársterku sijórna
Nú étur hver upp eftir öðrum
firruna um „lögmál markaðarins“ þó
allir viti að þar er ekki um að ræða
nein lögmál heldur mannlegan vilja
sem birtist í athöfnum bísness-
manna á efnahagssviðinu. Á mark-
aðnum vegur vilji þeirra sem hafa
yfir að ráða miklu fjármagni mest.
Vilji þeirra sem litlu eða engu fjár-
magni ráða er léttvægur fundinn.
Að láta „markaðinn“ ráða þýðir því
að láta þá fjársterku stjórna þróun
þjóðfélagsins. Samkeppni þar sem
sá sterkasti neytir aflsmunar, gerir
síðan þá ríku ríkari en þá fátæku fá-
tækari. Ef „samkeppnin“ dugar ekki
í þessum efnum er komið á einokun
með einkaleyfum. Þeir sem ekki
sætta sig við þetta fýrirkomulag eru
ýmist kallaðir öfundsjúkir eða gam-
aldags.
Lýðræðið skrípaleikur
Sannleikurinn er hins vegar sá að
það er bamaskapur og hreint
ábyrgðarleysi að láta peningamenn
sjá um velferð heildarinnar. Hluthaf-
ar og fjárfestar vilja hagnað og engar
refjar, annars fara þeir annað með
peningana segja menn. Það er ekki
forsvaranlegt að færa gróðapungum
fjöregg þjóðarinnar. Þjóðin þarf að
geta stjómað efnahagsmálum sínum
sjálf og til þess þarf hún áfram að
eiga bankana en ekki að selja þá
hæstbjóðanda. Allt tal um sölu til al-
mennings og starfsmanna er sýndar-
mennska og blekkingaleikur. Hvem-
ig má það vera að þeir bjóði fólki að
kaupa hlut sem það þegar á. Nei,
mergur málsins er sá að ráðamenn
em að taka eignir þjóðarinnar að
okkur forspurðum og færa í hendur
þeirra ríku. Alþingismenn hafa ekk-
ert umboð til að selja bankana því
þeir hafa ekki samið við kjósendur
um það. Það er hreint með ólíkindum
að stjómmálamenn sjái ekki að þeir
era að grafa undan sjálfum sér með
sölu sameignarinnar. Að lokum
munu þeir ekki hafa um neitt að
segja því þeir hafa afhent hinu al-
þjóðlega peningavaldi allan sjálfs
ákvörðunai'rétt þjóðarinnar. Þannig
verður lýðræðið einber skn'paleikur.
Þangað er stefnt óðfluga.
Að selja ömmu sína
Þjóðin þarf að hafa full yfirráð
yfir virkjunum og orkufyrirtækj-
um, það er ótækt að afhenda þau
stór-fjármagninu, sem lætur sig
engu varða almannaheill, náttúru
landsins eða hagsmuni
vinnandi fólks. Landið
er hjartfólgið íslend-
ingum og það á ekki
að selja auðjöfrum
heimsins sem eyði-
leggja perlur náttúr-
unnar í einskærri
gróðahyggju. Stund-
um er sagt um ósvífna
menn að þeir myndu
„selja ömmu sína“ ef
þeir hefðu hag af því.
Þetta má segja um þá
sem nú ætla að veita
alþjóðlegum auðhring
einkaleyfi á að nýta
upplýsingar um erfða-
vísa Islendinga lifandi
og látinna og gera að verslunar-
vöru. Þótt margir vilji kenna þessa
starfsemi við vísindi, lýtur hún
fyrst og fremst hags-
munum fjárfestanna
sem krefjast hagnað-
ar. Tæpast er hægt að
tala um vísindi þegar
átt er við rannsóknir
sem eru settar í
spennitreyju „ávöxt-
unarkröfunnar". Jafn-
vel þó fyrirbærið sé
klætt í flíkina „íslensk
erfðagreining" (sbr.
Islenska álfélagið) þá
dylst engum að hér er
um að ræða fjölþjóð-
legan auðhring sem
setur ekki hag ís-
lensku þjóðarinnar of-
ar hag sínum. Hér er
um of mikiivægt mál að ræða til að
hægt sé að setja það í hendur
gráðugum hluthöfum.
Höfnum landsöluöflunum
Það er algert metnaðarleysi og
jaðrar við sjálfseyðingarhvöt að
við leggjum örlög okkar í hendur
hins alþjóðlega fjármagns og full-
trúa þess meðal íslenskra stjórrf^-
málamanna. Tökum heldur sjálf
örlögin í okkar hendur og sköpum
okkur þau lífsskilyrði sem við vilj-
um fyrir okkur og þá sem í kring-
um okkur eru. Við þurfum að trúa
á mátt okkar og megin og sköpun-
arkraftinn til að byggja upp þjóð-
félag í þágu íslensku þjóðarinnar.
Höfnum landsöluöflunum til hægri
og vinstri í næstu kosningum.
Fylkjum liði undir merkjum
Húmanista.
Höfundur er i stjórn
Húmanistaflokksins.
Ráðstefna um öryggis
og björgunarmál
Grand hótel Reykjavík 17.-18. október nk.
Innlendir og erlendir sérfræðingar flytja fróðleg
og fjölbreytt erindi um eftirfarandi efni:
Sprengingin í Kenya (enska)
Michael P. Regan
Fairfax County alþjóðabjörgunarsveit
Nýjungar hjá Almannavörnum ríkisins
Sólveig Þorvaldsdöttir
Framkvæmdarstjóri Almannavarna ríkisins
Að ná slösuðum úr bílflaki
Höskuldur Friðriksson
Slökkvilið Reykjavíkur
Irridium - nýtt símkerfi
Einar Vilhjálmsson
Landssíminn
Áherslur/nýjungar í stjóm leitaraðgerða
Þorsteinn Þorkelsson
Skólastjóri Björgunarskóla Landsbjargar
og SVFI
Tetra til framtíðar
Nýtt fjarskiptakerfi
Guðmundur Gunnarsson
Landsvirkjun
Nákvæmni korta
Stefán Guðlaugsson
Vekfræðistofan Hnit
Áherslur í skyndihjálp
Jón Baldursson
Yfirlæknir siysadeildar SHR
Jeppar á Suðurskauti
Freyr Jónsson
Toyota-umboðið
Uppbygging alþjóðasveitar (enska)
Michael P. Regan
Fairfax County alþjóðabjörgunarsveit
Skyldur opinberra aðila gagnvart
týndum loftförum
Hallgrímur Sigurðsson
Flugmálastjórn
Snjóflóðavarnir á íslandi
Árni Jónsson
Verkfræðistofan HNIT
Ófarir á Grímsfjalli
Biðin eftir björgunarmönnunum
Bryndís Brandsdóttir
Raunvísindastofnun HÍ
Flugslys fyrr á öldinni
Héðinsfjörður 1947
Hörður Geirsson
Stjórnun aðgerða á sjó
Þór Magnússon
Deildarstjóri SVFÍ
Kal og aðrir kuldaáverkar (enska)
Howaitl Oakley
Institute of Naval Medicine
Björgunarmenn og hundar
Björgunarhundasveitar íslands
Vertu markviss
iris Marelsdóttir
Sjúkraþjálfari
Tæknibúnaður í rústaleit (enska)
Michaei P. Regan
Falrfax County alþjóðabjörgunarsveit
Bráðaviðvaranir vegna náttúruhamfara
Ragnar Stefánsson
Jarðskjálftafræðingur
Ert þú persónulega ábyrgur?
Réttarstaða björgunarmanna
Óðinn Elísson
Lögfræðingur
Öryggi í ferðaþjónustu
Álit ferðaþjónustuaðila
Einar Torfi Finnsson
íslenskir fjallaleiðsögumenn
Fjarlækningar
Jón Bragi Björgvinsson verkfræðingur
Sigurður F. Kristinsson læknir
Flugslys - leit og vettvangsrannsókn
Aðkoma, vettvangsrannsókn, flugritar
Steinar Steinarsson
Rannsóknarnefnd flugslysa (RNF)
RAÐSTEFNA OG SYNING
Ofkæling - lífslíkur og meðhöndlun
Howard Oakley
Institute of Naval Medicine
Alþjóðleg aðstoð
Niðurstaða Samvarðar
Árni Birgisson
Almannavörnum ríkissins
Árangur leitaraðgerða
Einar Hrafnkeil Haraldsson
Formaður Landsstjórnar björgunarsveita
Þróun klifurs
Guðmundur Helgi Christianssen
Klifrari FBSR
Breytt veðurfar á íslandi
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur
Boðkerfi SMS
Notkun SMS í boðun björgunarsveita?
Lárus Frans Guðmundsson
Tal
Skíðaganga á Suðurskautið
Ólafur Örti Haraldsson alþinglsmaður
Haraldur Örn Ólafsson lögfræðingur
Skíðagöngukappar
Gufuskálar, framtíðin?
Gufuskálanefndin
Leit með beltatækjum
Davíð Rúnar Gunnarsson
Eru of margar stjórnstöðvar á íslandi
Þorsteinn Þorkelsson
Stór björgunarskip -hverju breyta þau?
Þór Magnússon
Rústabjörgun þemafundur
Sigurður Sveinsson
Stefna undanfara og viðmiðunarkröfur
Leifur Örn Svavarsson
Sýning fyrirtækja á björgunar- og
útiuistarbúnaöi verður á Grand hótel
meöan á ráðstefnunni stendur.
Upplýsingar og skráning í síma 587 4040
Þátttökugjald kr. 4000.-
LANDSBJORG
Landssamband björgunarsvetta
Methúsalem
Þórisson