Morgunblaðið - 14.10.1998, Side 40
jto MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Tvö kjördæmi
í Reykjavík
ÞAÐ þóttu mikil tíð-
indi um allan heim
þegar Berlínarmúrinn í
Þýskalandi féll á sínum
tíma. Þar með var
kalda stríðinu á milli
austurs og vesturs lok-
ið og kommúnisminn
liðinn undir lok. Ógn-
arstjórn austursins var
hrunin og vestrið hélt
hmreið sína í austrið
óg fólk sem hafði lifað
við kúgun, morð og
hungur var nú „frels-
að“. Hvað gera þá ís-
lenskir þingmenn? Jú,
þeir koma með tillögu
um nýja kjördæma-
skipan sem byggð er á gamla austr-
inu. Tillögu sem mun valda sundr-
ungu, tortryggni og hatri á meðal
fólks. Tillögu um einræði á vissu
sviði.
Munu þá ekki verða
tveir sýslumenn yfír
Reykvíkingum spyr
Kristinn Haraldsson,
og tveir borgar-
stjórar hvor í sínu
kjördæminu?
Tillagan er þannig sett fram að
ómögulegt er fyrir þingmenn kom-
andi kynslóða að kynnast sínu kjör-
dæmi persónulega og komast í
snertingu við einstaklingana. Þing-
«<enn framtíðarinnar munu verða
menn sem eiga nóg af peningum og
munu sitja á Alþingi í eiginhags-
munaskyni. Þetta eru þingmenn
auðugra fyrirtækja og auglýsinga-
stofa. Auglýsingastofur munu
blómstra fyrir hverjar kosningar í
framtíðinni og fjölmiðlar munu
moka inn peningum
fyrir auglýsingar.
Verkamenn og þeir lág-
launuðu munu ekki
eiga fulltrúa á þingi.
Bilið mun breikka á
milli þeirra fátæku og
þeirra ríku og á endan-
um yrði Island að litla
Rússlandi þar sem til
yrði viðurkennd lág-
launastétt, það er þeir
fátæku fengju ekki
greidd laun sín eins og í
Rússlandi og þeir ríku
m.a. á Alþingi mundu
bara hækka skattana
til að greiða fjár-
magnstapið.
Berlínarmúrinn upp
Kljúfa á Reykjavík í tvennt eins
og Berlín á sínum tíma. Líklega
verður dregin lína með Reykjanes-
brautinni og þar með yrði risinn
ímyndaður Berlínarmúr og stríð
hæfist á milli kjördæmanna tveggja,
stríð á milli austurs og vesturs. Við
færum aftur í tíma og græfum upp
löngu niðurlagðar stríðsaxir ung-
linganna eins og í bíómyndinni um
Benjamín dúfu. Þessir sömu ung-
lingar sem nú eru orðnir fullorðnir
mundu halda áfram orrustunni.
Orrustunni á milli Vesturbæjar og
Austurbæjar.
Orrustan á milli Austurbæjar og
Vesturbæjar yrði ekki háð í þetta
sinn með lurkum og grjótum. Hún
yrði háð með peningum og plotti.
Þingmenn kjördæma Vesturbæjar
og Austurbæjar myndu bítast um
fjármagn til allskonar framkvæmda,
gatna, stofnana og fl. Ekki skulum
við gleyma að í hverju kjördæmi er
flugvöllur og ef einhverjum þing-
manninum dytti í hug að Austur-
bærinn þyrfti á flugvelli að halda
yrði barist um að fá hann með þeirri
réttlætingu að flugvöllur væri nauð-
synlegur þar sem Reykjavíkurflug-
Kristinn
Haraldsson
völlur væri úr sér genginn. Senni-
lega risi hann á Kjalarnesi.
Munu þá ekki verða tveir sýslu-
menn yfir Reykvíkingum og tveir
borgarstjórar hvor í sínu kjördæmi?
Það yrði annar sýslumaður í Austur-
bænum en í Vesturbænum og lög-
gæslan færi eftir því hvað þingmenn
kjördæmanna legðu fram af fjár-
magni með hrossakaupum og borg-
arstjórinn yrði ekki einn heldur
yrðu þeir tveh-, enda kjördæmin tvö.
Það liði ekki langur tími eftir að búið
væri að samþykkja tillöguna þar til
Austurbæingar færu fram á að hafa
sinn eigin borgarstjóra með vísun til
Kópavogs því það sé í öðru kjör-
dæmi. Greiðsla útsvars yrði misjöfn
hjá Reykvíkingum eftir því hvoru
kjördæminu þeir tilheyrðu.
Skólarnir munu ala á ríg milli
kjördæma og unglingarnir myndu
safnast saman í hópum til þess eins
að berja hvor á öðrum í hefndar-
skyni fyrir misrétti, svona mætti
lengi telja. Félagasamtök, hvað svo
sem þau heita munu splundrast, sér
í lagi stjórnmálafélög, góðgerðarfé-
lög með félaga um alla Reykjavík
munu ekki ná saman þar sem félags-
menn yrðu í hvorir í sínu kjördæm-
inu og fjármagninu stýrt eftir kjör-
dæminu.
Hvað með önnur
kjördæmi?
Ekki vil ég tjá mig um önnur
kjördæmi að svo stöddu, en ég hef
áhyggjur af því ef þessar tillögur ná
fram að ganga að þeir þingmenn,
sem að þeim stóðu, muni naga sig í
handarbökin það sem þeir eiga eftir
ólifað vegna þess glundroða sem
þeir höfðu skapað meðal fólks með
vanmati einu saman. Hver vill svona
þjóðfélag? Vissulega eru þessar
hugrenningar ýktar, en gætu þær
orðið að veruleika við svona kjör-
dæmaskipulag ef Reykjavík yrði
skipt upp í tvö kjördæmi? Virðulegu
þingmenn. Brennið þessar tillögur
og komið með nýjar tillögur sem
ríkja má sátt og samlyndi um svo
ekki verði í framtíðinni þjóðsöngur
Austurbæinga: Sjá roðann í austri,
og Vesturbæinga: Sól rís, sól sest.
Höfundur er í fulltrúaráði
Alþýðuflokksins í Reykjavík.
Mistök að hætta
Lúxemborgarflugi
-~v EINS og greint hef-
ur verið frá í fjölmiðl-
um, ætla Flugleiðir að
hætta allri starfsemi í
Lúxemborg, eftir nær
45 ára veru sína á
staðnum. Það eiga sjálf-
sagt margir erfitt með
að skilja þessa ákvörð-
un og hún kemur illa
við marga hér. Þar að
auki missir allt starfs-
fólk Flugleiða hér i
Lúxemborg vinnuna.
Það er ekki lengra
síðan en 1995, að haldið
var upp á það með
pompi og prakt, að
-Lúxemborg var besti
sölustaður Flugleiða. Nú, þremur
árum síðar, er því svo haldið fram að
Lúxemborgarskrifstofan borgi sig
ekki. Samt er það svo, að hver sem
reynir að panta flug með Flugleið-
um í dag, kemst að því, að nú þegar
er fullbókað í flest flug á vegum
Flugleiða langt fram í tímann.
Þannig er til dæmis orðið nær
ómögulegt að fá flug um páskana
1999. Auðvitað verður alltaf tap á
einstökum flugferðum, en hver hef-
ur nokkurn tímann heyrt af 100%
sætanýtingu hjá flugfélögum, sér-
♦staklega á þeim krepputímum sem
nú eru í heiminum? Og ástandið
breytist síst til batnaðar þótt menn
skelli í lás og hlaupist á brott.
Þeir sem tóku þessa ákvörðun
hljóta að búa á einhverri annarri
plánetu, ef þeir halda að ferðamenn
frá París eða Frankfurt flykkist til
Llands í kjölfarið. Yfir veturinn,
'pegar vart sést til sólar á íslandi, er
tæplega hægt að gera
ráð fyrir fullum vélum
af Þjóðverjum eða
Frökkum á þessum
leiðum. Útilegur og
skemmtireisur í niða-
myrkri islenska vetrar-
ins eru nefnilega ekki
mjög aðlaðandi fyrir
þetta fólk frekar en
aðra. Og á háannatíma
sumarsins bjóðast aðrir
valkostir. Þannig má
nefna að Þjóðverjar,
svo dæmi sé tekið,
fljúga gjarnan með sín-
um eigin flugfélögum
til íslands, enda bjóða
þau flug á mjög hag-
stæðu verði frá hinum ýmsu borgum
Þýskalands.
Astæðan, sem gefin hefur verið
upp fyrir lokun Lúxemborgarskrif-
stofunnar, er sú, að Flugleiðir hygg-
ist einbeita sér að þvi að fljúga með
ferðamenn til Islands. Það er meira
en lítið vafasamt, að flugfélagið lifi
af ef þetta verður uppi á teningnum.
Og farþegar, sem ætla til Amer-
íku, koma tæpast til með að fljúga
þangað með Flugleiðum frá París
eða Frankfurt, þegar þeir geta valið
milli þess að komast yfir Atlantshaf-
ið á sjö tímum með flugfélögum eins
og Lufthansa eða Air France annars
vegar, eða eyða í það tíu til ellefu
klukkustundum með stoppi á íslandi
hins vegar. Það virðist ekki komast
inní kollinn á sumum stjómarmönn-
um Flugleiða, að samkeppnin í þess-
um tveimur stórborgum er mun
harðari en víðast hvar annars staðar.
Þá hefur Lúxemborg þann kost,
Það væri affarasælla að
beita niðurskurðar-
hnífnum á hið alltof
stóra og þunglamalega
skrifstofubákn stjórnar
fyrirtækisins í Reykja-
vík, segir Marc Origer,
fremur en að leggja
niður starfsemina í
Lúxemborg.
umfram bæði París og Frankfurt, að
hér eru lendingargjöld tiltölulega
lág, á meðan hinir tveir flugvellimir
eru á meðal þeirra dýrastu í heimin-
um. Annað, sem Lúxemborg hefur
framyfir þessa risaflugvelli, er að öll
afgreiðsla farþega, hvort sem þeir
era að koma eða fara, gengur hratt
og auðveldlega fyi’ir sig. Það læðist
því að manni sá granur, að París og
Frankfurt séu á einhvem hátt „fínni“
flugvellir í hugum einhverra herra-
manna, en þessi fínheit gætu reynst
býsna dýrkeypt þegar fram líður.
Það væri affarasælla að beita nið-
urskurðarhnífnum á hið alltof stóra
og þunglamalega skrifstofubákn
stjórnar fyrirtækisins í Reykjavík,
fremur en að leggja niður starfsem-
ina í Lúxemborg. Að öðram kosti er
þess vart langt að bíða, að Flugleiðir
leggi upp laupana fyrir fullt og allt.
Höfundur er opinber starfsmaður í
Lúxemhorg.
Marc
Origer
Staðlar í
dagsins önn
í DAG er alþjóðlegi
staðladagurinn og er
þess minnst víðsvegar
um heim, en Alþjóðlegu
staðlasamtökin ISO
vora stofnsett á þessum
degi árið 1946. Yfir-
skriftin er að þessu
sinni „staðlar í dagsins
önn“. Af því tilefni er
rétt að staldra við og
hugleiða hvaða hlut-
verki staðlar gegna og
hvaða áhrif þeir hafa á
daglegt líf okkar í leik
og starfi.
Á síðustu árum hefur
viðskiptaumhverfi
heimsins gjörbreyst.
Nýir markaðir hafa opnast og aðrir
jafnframt liðið undir lok. Heimurinn
er að verða að einu allsherjar mark-
aðssvæði, sem hefur m.a. leitt til
þess að neytendavara streymir milli
í tilefni alþjóðlega
staðladagsins er rétt
að staldra við, segir
Birna Hreiðarsdóttir,
og hugleiða hvaða hlut-
verki staðlar gegna.
landa svo til óheft. En neytendur
verða að vera vel á verði og krefjast
þess að vörar séu ódýrar án þess að
það komi niður á gæðunum og kröf-
um um öryggi. Hér gegna staðlar
mikilvægu hlutverki, en þó svo að
við leiðum hugann sjaldan að stöðl-
um er ákaflega erfitt að ímynda sér
nútíma líf án þeirra.
Við gerð staðla er almennt leitast
við að hafa það að leiðarljósi að gera
daglegt líf okkar þægilegra, einfald-
ara og öraggara með því að taka til-
lit til þátta svo sem öryggis, heilsu
og verndunar umhverfis. Svo dæmi
sé tekið þá finnst öllum sjálfsagt að
geta notað bankakort hvar sem er í
heiminum, en fæstir leiða hugann að
því að stærð kortanna er stöðluð,
samkvæmt staðlinum á þykkt
bankakorts að vera 0,76 mm, hvorki
meira né minna. Það er afar út-
breiddur misskilningur að staðlar
leiði til minni fjölbreytni í vöru. Eins
og margir eflaust minnast náðist
ekki á sínum tíma sátt um einn stað-
al fyrir myndbönd, og varð niður-
staðan sú að tvenns konar staðlar
voru til, það er fyrir Beta-kerfið og
VHS-keríið. Þar sem myndbands-
spólur voru mismunandi fyrir hvort
kerfið, varð neytandinn að halda sig
við sama kerfið við endurnýjun á
myndbandseign sinni og þar með
skertist úrvalið um helming, sem
hann hafði úr að velja.
Staðlaráð íslands er aðili að evr-
ópsku staðlasamtökunum CEN, en á
þeirra vegum voru nýlega sam-
þykktir staðlarnir EN 1176, sem
fjalla um leikvallatæki. Höfðu full-
trúar neytenda mjög þrýst á um
gerð slíkra staðla. Tilgangur með
gerð staðlanna er að skapa börnum
öruggara umhverfi á leikvöllum þar
sem þau geta fengið eðlilega útrás
fyrir leikjaþörf, án þess að þeim sé
hætta búin umfram það sem ófyrir-
sjáanlegt er miðað við þá þekkingu
og reynslu sem fyrir hendi er. Leik-
vallastaðlarnir eru valkvæðir, þ.e.
framleiðendum leikvallatækja er í
sjálfs vald sett hvort þeir taka upp
nýju staðlana við framleiðsluna.
Ýmsar ástæður geta legið til þess að
þeir kjósi að gera það ekki, og er
ástæðan oftar en ekki að það hefur
kostnað í for með sér í upphafi að
þróa framleiðsluferli sem byggt er á
stöðlum. Á vöra sem framleidd er í
samræmi við staðla koma oftast
fram upplýsingar þar að lútandi.
Neytendum er bent á að kynna sér
hvort til era staðlar um vöra sem
ætlunin er að festa kaup á, einkum
ef um er að ræða flókna hluti, sem
mikilvægt er að uppfylli öryggis-
kröfur. Reyndar hafa drögin að leik-
vallastöðlunum verið
vel kynnt hér á landi,
og því er eftirleikurinn
auðveldari. Slys á börn-
um eru mikið áhyggju-
efni, og ef við getum
fækkað þeim með
kaupa leikvallatæki
sem framleidd er í sam-
ræmi við öryggisstaðla,
ber okkur einfaldlega
að leita eftir slíkum
tækjum. Hér skal enn-
fremur sérstök áhersla
lögð á, að einkum er
verið að samræma
(staðla) prófunarað-
ferðir og öryggisatriði,
t.d. lágmarkslengd
milli rimla í klifurgrindum, svo að
ekki sé hætta á að börn geti festst
með höfuðið á milli rimlanna, útlit
tækjanna er eftir sem áður jafnt
misjafnt og framleiðendurnir eru
margir!
Staðlar era afar misjafnir að inni-
haldi, sumir eru flóknir og til fróð-
leiks má geta þess að staðall um far-
síma er 12.000 blaðsíður. Hins vegar
eru til einfaldari staðlar sem neyt-
endur nota í daglegu lífi, án þess
kannski að gera sér grein fyrir því
að um staðla er að ræða. Gott dæmi
er íslenskur staðall, ÍST EN
23758:1993, Trefjavörar - meðferð-
armerkingar með táknum. Sá staðall
fjallar um þvottamerkingar, þ.e. lýs-
ingar og skilgreiningar á táknum
sem notuð era á fatnaði til að gefa til
kynna aðferð við þvott, straujun,
klórbleikingu, hreinsun og þurrkun.
I stað þess að framleiðendur þurfi
hver fyrir sig að setja meðferðar-
leiðbeiningar á fatnað notast þeir við
staðlaðar merkingar, sem gera það
að verkum að ekki er þörf á texta til
að veita ofangreindar upplýsingar.
En til að slík tákn og merki komi að
notum verða neytendur að kunna
skil á þýðingu þeirra. í næsta tölu-
blaði Neytendablaðsins verður yfir-
lit yfir ýmis stöðluð merki og tákn á
neytendavöra og útskýringar á
merkingu þein-a. Þetta yfirlit er
unnið af markaðsgæsludeild Lög-
gildingarstofu í samvinnu við sam-
ráðshóp um öryggis- og staðlamál,
en í hópnum eiga sæti fulltrúar frá
Staðlaráði Islands, Samkeppnis-
stofnun, Umferðarráði, Neytenda-
samtökum, Vinnueftirliti ríkisins,
Lyfjanefnd, Hollustuvernd, við-
skiptaráðuneyti, auk Löggildingar-
stofu.
Alþjóðlegir staðlar stuðla að
auknum alþjóðaviðskiptum, því með
þeim er tryggt að samræmdar kröf-
ur sem koma fram í stöðlum gilda
hjá öllum aðildarlöndum ISO, Al-
þjóða staðlastofnuninni, en þau eru
um 130 talsins. Yfir helmingur Evr-
ópustaðla eru jafnframt alþjóðlegir
staðlar en með samþykkt GATT-
samningsins mun gerð og notkun
staðla óefað stóraukast í framtíðinni,
og þar með mikilvægi þeirra.
Mikilvægt er að stjórnvöld beiti
sér fyrir því að framleiðendur noti í
auknum mæli staðla við framleiðslu
á vöru, en með því móti er sam-
keppnishæfni íslenskrar framleiðslu
best tryggð. Ljóst er að slíkt út-
heimtir vinnu og fjármagn. Það hef-
ur hins vegar sýnt sig að slíkur
stuðningur hefur skilað sér margfalt
til baka í auknum útflutningi. Með
því að framleiða vöra í samræmi við
evrópska staðla opnast 370 milljóna
manna markaður, í stað þess að
framleiðslan miðist einungis við inn-
anlandsmarkað. Og þegar stjórn-
völd og innlendir framleiðendur hafa
áttað sig á þessum möguleikum,
verður ekki lengur þörf á að hvetja
íslendinga til að velja íslenskt, ein-
ungis af því að varan er íslensk,
heldur af þvi að hún er framleidd
eftir ströngustu kröfum og því fylli-
lega samkeppnishæf á við innflutta
vöra.
Höfundur er deildai-stjóri nmrknös-
gæsludeildar Löggildingarstofu og
fulltrúi íslands f ANEC, samtökum
ncytenda á sviði staðlamála á EES.
Birna
Hreiðarsdóttir