Morgunblaðið - 14.10.1998, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 14.10.1998, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Jenný Dagbjört Jóramsdóttir var fædd í Bergvík í Leiru 13. júní 1901. Hún lést á Garð- vangi, vistheimili fyrir aldraða, í Garði 4. október síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Ragnhildur Péturs- dóttir frá Bergvík í Leiru, f. 12.5. 1877, d. 18.11. 1963 og Jóram Filippus Jónsson sjómaður, frá Melbæ í Leiru, f. 24.7. 1869, d. 12.5. 1910. Systk- ini Jennýjar voru Guðrún Oktavía, f. 13.10. 1899, d. 20.6. 1982, Sigurðína Ingibjörg, f. 25.11. 1903, d. 24.7. 1975, Pétur Friðrik, f. 18.10. 1906 og Sveinsína Guðrún, f. 20.7. 1909, d. 5.2. 1992. Jenný giftist Ragnari Jóni Guðnasyni vélstjóra 12.8. 1921. Þau eignuðust þrjár dætur, Jórunni Bergheiði, f. 2.1. 1922, d. 1.4. 1953, gift Kristni Þorbergs- syni, f. 28.5. 1918, d. 7.7. 1962, Ragnhildi, f. 21.10. 1927, gift Skúla Eyjólfssyni, f. 14.8. 1924 og Guð- nýju Sigurbjörgu, f. 25.2. 1929, gift Þor- birni Kjærbo, f. 27.3. 1928. Barn Jórunnar og Kristins er Geir- mundur, f. 9.2. 1944, kvæntur Stefaníu Vallý Sverrisdóttur, f. 25.1. 1946. Börn þeirra eru, Kristín Jórunn, Sverrir Hartvig og Guð- munda Margrét. Börn Ragnhild- ar og Skúla eru Ragnar Jón, f. 9.12. 1946, í sambúð með Bryn- dísi Þorsteinsdóttur, f. 3.10. 1955. Börn þeirra eru Þorsteinn Lár., Ragnar Jón og Styrmir. Selma, f. 3.4. 1951, gift Matthíasi Sigurðssyni, f. 13.7. 1952. Börn þeirra eru Ragnhildur, Sigurður Vignir, Davíð og Vigdís. Jórunn Dagbjört, f. 19.12. 1953, gift Árna Má Ámasyni, f. 2.12. 1959. Börn þeirra eru Birkir Már og Jafet Már. Jórunn Dag- björt átti áður Skúla og Árna Frey með fyrri manni sínum, Sigurði Haraldssyni. Elsa Ina, f. 1.6. 1957 gift Guðna Birgis- syni, f. 16.8. 1956. Börn þeirra eru Guðrún, Björgvin og Vikt- or. Kristinn, f. 8.6. 1963 kvænt- ur Drífu Daníelsdóttur. Börn þeirra era Anna Kristín, Iris Thelma og Arnór Dan. Börn Guðnýjar og Þorbjörns eru Guðni Björn, f. 3.7. 1952 í sam- búð með Gerði Guðmundsdótt- ur, f. 15.2. 1955. Börn þeirra eru Þorbjörn Emil og Tinna Eir. Jóhann Rúnar, f. 31.5. 1957 kvæntur Elísabetu Guðrúnu Þórarinsdóttur, f. 21.2. 1957. Börn þeirra eru Guðný Björg, Þórunn Kristín, Bryndís Jenný og Eydís Sjöfn. Einnig hafa bæst í hópinn 2 langa- langömmubörn sem heita Geir- mundur Ingi, sonur Kristínar Jórunnar Geirmundsdóttur og manns hennar Eiríks Reynis- sonar, og Ari Leifsson, sonur Ragnhildar Matthíasdóttur og manns hennar Leifs Arasonar. Utför Jennýjar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. JENNY DAGBJORT JÓRAMSDÓTTIR * Amma mín, Jenný Dagbjört Jóramsdóttir, fæddist í Bergvík í Leiru 13. júní 1901. Þar ólst hún upp til 9 ára aldurs, en þá fluttist móðir hennar, Ragnhildur Péturs- dóttir, til Reykjavíkur með þrjár elstu dætur sínar, Guðrúnu, Jennýju og Sigurðínu, eftir að eig- inmaður hennar, Jóram Filippus, drukknaði í sjóróðri hinn 12. maí 1910. Tvö þau yngstu, Pétur og Sveinsínu, lét hún í umsjón til góðra ættingja og vina. * I þá daga voru ekki neinar ekkna- né barnabætur og taldi móðir ömmu sem þá stóð ein uppi með fímm börn, það elsta 10 ára og það yngsta aðeins eins árs, að betri afkomumöguleika væri að fínna í höfuðborginni. Þessi atburður hafði mikil áhrif á ömmu, enda hafði hún verið mjög hænd að fóður sínum og má segja að hún hafi ætíð syrgt þennan ótímabæra fóðurmissi. Brottflutningurinn úr Leirunni hafði líka djúpstæð áhrif á hana og talaði hún oft um Leiruna sína og það hvað þar hefði búið gott fólk. Þegar til Reykjavíkur kom vann móðir Jennýjar hörðum höndum öll þau störf sem til féllu. Unnið var í _>físki, þvottum, farið í vinnu- mennsku, allt til að framfleyta sér og dætrum sínum. Amma Jenný Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri I blómaverkstæði 1 I Binna I Skólavörflustíg 12. á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090 talaði oft um það hversu hörð lífs- baráttan var á þessum árum og hvað vinnudagurinn hefði verið langur. Algengt hefði verið að mamma sín hefði þurft að vakna eldsnemma og ganga langa leið í hvaða veðri sem var inn í Þvotta- laugar til að þvo þvotta fyrir fólk. Skólaganga ömmu var ekki löng. Hún gekk í Miðbæjarbarnaskólann og talaði hún oft um það, hvað hún hefði haft góða kennara. I þá daga hefðu kennaramir ávallt verið þéraðir, eitthvað annað en tíðkast nú til dags. Amma var mjög næm og vel gefín og ef efni og aðstæður hefðu verið fyrir hendi hefði hún örugglega gengið menntaveginn eins og sagt er. Hún var mjög ljóð- elsk og hafði yndi af bókmenntum og las mikið alla tíð. Þá starfaði hún mikið í KFUM og K hjá séra Frið- riki Friðrikssyni sem hafði mikil áhrif á lífsviðhorf hennar. Þegar móðir þeirra hafði komið dætrum sínum á legg fóru þær að vinna fyrir sér og réðust tvær þeirra til Keflavíkur. Þar kynntust þær eiginmönnum sínum og ílent- ust þar. Jenný amma giftist 12. ágúst 1921 afa mínum, Ragnari Jóni Guðnasyni frá Keflavík. Giftu þau sig á Utskálum í Garði og fóru þau fótgangandi báðar leiðir. Ragn- ar Jón og Jenný eignuðust þrjár dætur, Jómnni Bergheiði sem lést langt um aldur fram og varð það þeim mikill harmur. Hinar tvær dæturnar em Ragnhildur og Guðný Sigurbjörg og búa þær báðar í Keflavik. Afkomendur ömmu era nú orðnir 38 talsins. Hér á áram áður höfðu amma og afi mikið yndi af ferðalögum. Ferð- uðust þau um landið þvert og endi- langt og þekktu það orðið mjög vel. í þá daga var tjaldið haft meðferðis og oftast var fundinn fallegur stað- ur við lækjarsprænu til að tjalda á. Kunnu þau margar skemmtilegar sögur frá þeim ferðalögum, sem við fengum að heyra. Amma og afi vora ákaflega sam- rýnd hjón. Heimili þeirra var ósköp venjulegt íslenskt heimili sem ávallt var gott að heimsækja. Og nú þegar þessi aldamótakynslóð ömmu og afa er óðum að hverfa af sjónar- sviðinu skilja þau eftir ómetanlegan arf til okkar kynslóðar. Öll getum við verið þakklát þessari kynslóð, sem man tímanna tvenna og lifað 0 ÚTFARARÞJÓNUSTAN Stofnað 1990 Persónuleg þjónusta Sími: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is utfarir@itn.is Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson útfararstjóri útfararstjóri hefur meiri þjóðfélagsbreytingar en nokkur önnur. Amma mín. Nú að leiðarlokum vil ég þakka þér og afa fyrir allt gott sem þið vorað mér. Guð blessi minningu ykkar. Guðni Björn Kjærbo. Þegar ég var barn áttu amma og afi, Ragnar Jón Guðnason, heima á Hafnargötunni £ Keflavík. Þar fæddist ég og því æxlaðist það þannig að heimili þeirra varð mitt annað heimili. Amma hugsaði um mig, gaf mér að borða, þvoði af mér og jafnvel kenndi. Eg gekk út og inn og hafði aðstöðu fyrir sjóstakk- ana, háfana og allt veiðidraslið sem fylgdi mér á þeim áram. Aldrei sagði hún neitt en ætlaðist þó til að ég passaði uppá hlutina mína og héldi þeim til haga. Amma vildi hafa heimilið sitt hreint og fallegt og þannig var það. Allir hlutir á sín- um stað. En þrátt fyrir að ég hafi verið svolítið baldinn og ef til vill tilætl- unarsamur leið hún mér ýmislegt. Og sitthvað reyndi hún að kenna stráknum á þessum áram, fannst ef til vill eitthvað vanta upp á mannasiði og því um líkt og hver veit nema eitthvað af því sem hún prédikaði hafi að lokum síast inn í kollinn á mér. Eitt er víst að við amma áttum heilmikil samskipti á þessum bernskuárum mínum og þann tíma sem ég varði með henni geymi ég með sjálfum mér. Fyrir mér eru þær stundir fallegar endurminning- ar bemskunnar. Alltaf velkominn eins og heimili þeirra væri mitt eig- ið heimili og fyrir mér var það mik- ils virði. En nú þegar ég hugsa til baka finnast mér orð mín lítils virði mið- að við þær tilfinningar sem ég ber í brjósti til ömmu og afa sem voru mér alltaf svo góð. Eg vil þó að lok- um þakka þeim fyrir allar samveru- stundirnar og væntumþykjuna sem þau ávallt sýndu mér. Guð blessi minningu þeirra. Ragnar Jón. Hún amma Jenný er dáin 97 ára að aldri. Mig langar að minnast hennar lítillega. Amma var ákaf- lega blíð manneskja, en umfram allt var hún hógvær og lítillát. Hún og afi, Ragnar Jón Guðnason, bjuggu allan sinn búskap í Keflavík og voru þau mjög samrýnd. Afi var ekki „bara“ eiginmaður hennar heldur líka hennar besti félagi. Og þó svo að hún fussaði stundum yfir uppátektarsemi hans, kætti það hana bara, því hún vissi hvernig afi var, alltaf að grínast og gera að gamni sínu. í æsku átti amma sér þann draum að ganga menntaveginn. Sá draumur rættist aldrei. Hún gekk í Miðbæjarbarnaskólann og bjó að því alla tíð. Hún hvatti okkur krakkana til að læra og bar hag okkar í þeim efnum fyrir brjósti og lagði ríka áherslu á menntunina. Mér er það minnisstætt að á mín- um yngri árum sagði amma okkur krökkunum margar sögurnar og þegar maður hugsar til baka furðar maður sig á því hversu margar sög- ur og ævintýri hún kunni, að maður tali nú ekki um allar bænirnar og sálmana sem hún kunni utanbókar. Hún hafði mikið að gefa. Alltaf að ráða manni heilt og gefa okkur holl ráð til að fara eftir í lífinu. Hún var talsverður heimspeking- ur í sér, talaði um það að mennirnir væru misjafnir, en það væri bara gott. Við skyldum ekki troða hvert á öðra, heldur leyfa öðram að njóta sín, hvernig svo sem við væram gerð. Við sóttum því talsvert í að vera hjá henni og alltaf tók hún vel á móti okkur krökkunum þegar við litum inn til hennar. Og meðan hún hlustaði á okkur krakkana segja frá því sem við vorum að gera, gaf hún okkur heitt súkkulaði og pönnukök- ur. Og endrum og sinnum þegar maður lagðist í rúmið, kom hún og sat hjá manni og stjanaði við mann. Þannig var amma, ávallt reiðubúin að hjálpa okkur og leggja öðrum lið í bágindum sínum. Amma var sem betur fer nokkuð heilsuhraust manneskja, en fyrir rúmum tuttugu árum fékk hún heilablóðfall og lam- aðist öðram megin. Þetta fékk mik- ið á hana, en hún lét þó ekki bugast og reyndi áfram eftir því sem hún gat að gleðja aðra og láta gott af sér leiða. Elsku amma mín! Eg þakka þér fyrir þá miklu gjöf sem þú gafst mér, en það var tíminn sem við áttum saman. Blessuð sé minning þín. Hvíl þú í friði. Hans vegur er vænghaf og geiminn þér guð gaf um eilífð sem einn dag hans frelsi er faðmlag. (Ingimar Sig.) Jórunn D. Skúladóttir. Hún amma Jenný er dáin. Hún var orðin fullorðin kona og líkam- inn farinn að gefa sig, en hugsunin var skýr og heilbrigð. Alltaf hvíldi mikil ró yfir henni og það var gott að vera í návist við hana. Ur sjóði minninganna frá bernsku minni streymir þakklæti i'yrir umburðar- lyndi hennar við mig þegar ég var lítil, Ég minnist þess þegar hún sat við rúmið mitt og sagði mér sögur og lét mig fara með faðirvorið og kenndi mér sálma. Ég naut þeirra forréttinda að koma heim úr skól- anum og eiga ömmu sem stóð oft á tíðum í eldhúsinu og bakaði kleinur eða pönnukökur. Það var notaleg heimkoma. Fögur minning mín um ömmu mun verða ljós á lífsins leið. Mig langar að lokum að láta fylgja með fyrstu bænina sem hún kenndi mér. „Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ.virztmigaðþértaka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt.“ Guð veri með þér elsku amma mín. Selma. Amma Jenný, nú er þinn tími kominn og þú hefur að lokum hitt þína nánustu, afa, Jórunni, Kristin og alla þá er þér þótti svo vænt um og eru farnir frá okkur. Á þessari stundu rifjast upp góðar minningar um gamla tíma. Það voru ófáar ferðirnar sem ég kom á Hafnargöt- una til þín og afa, Ragnars Jóns. Þar var alltaf ró og friður. Það eina sem gat rofið þögnina var hláturinn hans afa. Þar að auki var þetta eini staðurinn sem litlum stelpum var boðið upp á „kaffi og bleytt“. Ekki var verra að fá að fara í sendiferðir til Stefáns í Breiðabliki. Já, amma mín, margs er að minnast og hægt væri að telja upp ýmislegt, en ró og friður er það sem ríkti yfír þér og það besta sem þú gerðir var að vera komin undir sæng með góða bók, alltaf svo dugleg að lesa og prjóna meðan heilsan leyfði. Amma mín, þú varst líka mjög trúuð kona og þá fylgdi alltaf er eitthvað var gert fyrir þig, „Guð launi þér“. Þetta voru notaleg orð sem umvöfðu okkur kærleika og mættu oftar fylgja í dag. Ég þakka þér, amma mín, fyrir samfylgdina og ég veit að þú ert nú komin á feg- urri og betri stað. Ég, Guðni og börnin okkar, vott- um þér, mamma mín, Lillu, Geira og fjölskyldum ykkar, samúð okkar og vil ég þakka ykkur fyrir góða umönnun á ömmu, það sýnir okkar sem yngri erum góða fyrirmynd. Elsa Ina. Þann 4. október síðastliðinn lést á Garðvangi, dvalarheimili aldr- aðra í Garði, Jenný D. Jóramsdótt- ir 97 ára að aldri. Þar hafði hún dvalið í hartnær 19 ár og notið ágætrar umönnunar sem ber að þakka. Jenný amma eins og ég og íjölskylda mín kölluðum hana var okkur afar kær, enda á ferðinni bráðgreind kona, myndarleg hús- móðir og góður félagi. Hún var hlédræg, lét ekki mikið á sér bera við dagleg störf en gaf mikið af sér þegar því var að skipta. Ég fór ekki varhluta af þessum eiginleik- um ömmu eftir andlát móður minnar árið 1953 en upp frá því varð heimili hennar og Ragnars Jóns afa opið mér og föður mínum. Hún lagði sig fram um að gera okkur lífið eins þægilegt og unnt var, og hjá henni og afa átti ég mitt annað heimili. Við fráfall föð- ur míns flutti ég alfarið til þeirra og naut umhyggju síðustu upp- vaxtarárin. Ég hef stiklað á stóra yfir tímabil sem bar merki sorgar og söknuðar, en jafnframt tímabil þroska og gleði sem Jenný amma var stór þáttakandi í. Fyrir styrk og hjálp hennar stend ég í ævarandi þakkar- skuld. Árið 1965 verða þáttaskil í sam- skiptum okkar ömmu, en þá stofna ég mitt eigið heimili. Reyndist hún mér og eiginkonu minni sem best verður á kosið, og síðar bömunum okkar hin besta langamma, sem vakti stöðugt yfir velferð þeirra fram á hinstu stund. Við kveðjum þig með söknuði, og biðjum góðan Guð að blessa þig. Geirmundur, Vallý og fjölskylda. Elsku frænka, ég kveð þig með trega. Þegar fólk er komið mikið yfír nírætt er ljúft að fá hvíld, frá hrumum líkama, og andinn getur flogið frjáls og glaður til himin- slóða. En samt, þeir sem eftir lifa, sakna, að geta ekki lengur strokið máttlausa hönd, og kysst fölan vanga, og talað blíðlega til viðkom- andi. Ég er þakklát, Jenný mín, fyrir að hafa fengið að kynnast þér, og meðan þú varst með þitt eigið heimili. Hvað þú tókst alltaf vel á móti mér. Það var ekki til neitt gróft í þínu fari, þú varst svo viðkvæm og ljúf. Hvíl í friði. Þín frænka, Sigurrós. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.