Morgunblaðið - 14.10.1998, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 51 *
FRÉTTIR
Nýtt upp-
lýsingakerfí
kynnt
ÞORSTEINN I. Víglundsson,
framkvæmdastjóri Gagnalindar
hf., flytur erindi í fyrirlestrasal á 2.
hæð í Þjóðarbókhlöðu, miðvikudag-
inn 14. október nk., kl. 15.30, um
Sögu, nýtt sjúkraskrár- og upplýs-
ingakerfí heilbrigðisupplýsinga
sem Gagnalind hf. hefur þróað.
I fréttatilkynningu fræðsluhóps
Félags um skjalastjórn segir:
„Markmið Sögu er að koma á fót
samræmdri, öruggari og ítarlegri
skráningu gagna, ásamt því að auð-
velda boðskipti innan heilbrigðis-
þjónustunnar. Með noktun þessa
kerfis sparast bæði tími og vinna
hjá notendum en um leið fæst góð
yfírsýn yfir skráningu og vinnslu
upplýsinga er varða heilsufar sjúk-
linga, rekstur, gæði og faglega
starfsemi."
Allir eru velkomnir á fundinn.
Ókeypis aðgangur. Boðið verður
upp á kaffí í hléi.
Rabb um
rannsóknir og
kvennafræði
GUÐMUNDUR Páll Ásgeirsson
námsráðgjafí verður gestur á
rabbfundi Rannsóknarstofu í
kvennafræðum fimmtudaginn 15.
október. Yfirskrift fundarins er:
Úr felum. Frásagnir af eigin ótta
og fordómum samkynhneigðra.
Guðmundur mun fjalla um viðtöl
sín við nokkrar lesbíur og homma.
Þar sögðu þau frá átökunum við
eigin ótta og fordóma er þau gerðu
sér grein fyrir að þau væru sam-
kynhneigð. Einnig sögðu þau frá
viðbrögðum umhverfísins þegar
þau komu úr felum. Athyglinni
verður beint að sorg og sárum til-
finningum og hvemig tekist var á
við þær, segir í fréttatilkynningu.
Rabbið er á vegum Rannsókna-
stofu í kvennafræðum við Háskóla
Islands og fer fram í stofu 201 í
Odda kl. 12-13. Rabbið er öllum
opið.
Málstofa um
hönnunarfor-
sendur fyrir
vatnsveitur
MÁLSTOFA í umhverfis- og bygg-
ingarverkfræðiskor Háskóla Is-
lands verður haldin fimmtudaginn
15. október. Jónas Elíasson pró-
fessor segir frá rannsóknum
Vatnastofu Verkfræðistofnunar
HÍ. Nefnir hann erindi sitt: Hönn-
unarforsendur fyrir vatnsveitur -
öruggu megin við hvað?
Fyrirlesturinn fer fram í stofu
157 í húsi verkfræði- og raunvís-
indadeildar við Hjarðarhaga. Hefst
málstofan kl. 16.15 og stendur í um
lVá tíma. Við lok erindisins verða
umræður og íyrirspurnir.
Öld í Miðbæjarskóla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÞESS var minnst með margvíslegum hætti á
laugardaginn að 100 ár eru liðin síðan Miðbæjar-
skólinn í Reykjavík var tekinn í notkun. Mikill
íjöldi fólks sótti skólann heim þennan dag og
voru fyrrverandi nemendur og kennarar áber-
andi í þeim hópi.
Happ-
drætti
Hjarta-
verndar
DREGIÐ var í Happdrætti
Hjartaverndar 1998 hinn 10.
október sl. Vinningar féllu
þannig:
1. Toyota Land Cruiser
sjálfsk. kr. 3.725.000 nr.
74442. 2. Toyota Avensis Sed-
an sjálfsk. kr. 2.089.000 nr.
102001. 3.-5. Ævintýraferð
eða skemmtisigling m/Urvali-
Útsýn kr. 500.000 (hver) nr.
42964, 53686, 98720. 6.-25.
Ferð m/Urvali-Útsýn eða
tölvupakki frá Tæknivali kr.
275.000 (hver); nr. 574, 3445,
7395, 9922, 15786, 18352,
31774, 52958, 54117, 55336,
56712, 58472, 59959, 69624,
78243, 85133, 95758, 97180,
98020,102329.
Vinninga má vitja á skrif-
stofu Hjartavemdar, Lág-
múla 9, 3.h., Reykjavík.
(Birt án ábyrgðar)
Frjómagii yfír
meðallagi
HEILDARFRJÓMAGN sumarsins
í Reykjavík (3609 frjókom/m3) var
nokkuð yfir meðaltali tíu ára tíma-
bilsins 1989-98. Gras- og súnifrjó
voru rétt við meðaltalið á meðan
birkifrjó og frjókom annarra teg-
unda voru nokkuð yfir meðaltalinu.
Á Akureyri varð heildarfrjómagnið
tæplega 2200 frjókom/m3 sem er
svipað og mælst hefur á köldum eða
votviðrasömum sumrum syðra. Júlí
reyndist írjóríkasti mánuðurinn
syðra en aftur á móti ágúst nyrðra.
Bæði ágúst og september vora undir
meðaltali syðra á meðan fyrstu þrír
mánuðimir vom vel yfir meðaltali.
Þvert á spá um magn birkifrjóa
kom nú annað árið í röð frjógæft ár
hjá birkinu syðra. Asparfrjó skiluðu
sér hins vegar illa í Reykjavík en
töluvert mældist af þeim á Akur-
eyri. Fyrstu gi’asfrjóin sáust strax í
lok maí á báðum stöðum. í lok júní
jukust grasfrjó í lofti syðra og náðu
hámarki 18. júlí þegar 347 frjó
mældust í hverjum rúmmetra.
Magn grasfrjóa í ágúst og septem-
ber var undir meðaltali í Reykjavík
og í september fór frjótala grasa
aldrei yfir 3.
Frjómælingar 1989-1998
4500
frjó/rúmmetra
4000 -
3500
3000
2500
2000
1500
1000
500
Reykjavík 1989-98
á Akureyri 998
Aðrar frjó- og grógerðir
Birkifrjó
Asparfrjó
1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998
1998
BREYTILEIKI í heildarfrjómagni í Reykjavík sl. 10 ár, 1989-98, og
heildarfrjdmagn á Akureyri árið 1998. Skipting milli algengustu
frjógerða er sýnd með mismunandi skyggingu. A Akureyri mældist
töluvert af asparfrjóum en lítið af súrufrjóum.
Fólags- og fræðslustarf fyrir
hreyfíhamlaða unglinga
KYNNINGARFUNDUR um félags-
starf Sjálfsbjargar fyrir hreyfihaml-
aða unglinga verður haldinn fimmtu-
daginn 15. október nk. Þá verður
tekið á móti nýjum félögum og
einnig verða lögð drög að vetrardag-
skrá. Fundurinn verður kl. 20 í
Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, 1.
hæð, vestanmegin. Ungliðahreyfing
Sjálfsbjargar og fulltrúar frá URKI
munu sjá um kynninguna. Veitingar
verða í boði.
„í fréttatilkynningu segir: „Sjálfs-
björg, landssamband fatlaðra, stend-
ur fyrir félags- og fræðslustarfi fyrir
hreyfihamlaða unglinga. Félags-
skapurinn er fyrir unglinga á aldrin-
um 13-16 ára (fæddir ‘82-85) og er
markmiðið að unglingarnir kynnist
og vinni saman _að ýmsum málum.
Félagar í URKÍ (Ungmennahreyf-
ingu Rauða kross íslands) og Ný-
ung, unglingahreyfing Sjálfsbjargar,
sjá um leiðbeinendahlutverkin með
stuðningi félagsmálafulltrúa Sjálfs-
bjargar lsf. Nú eru um 20 unglingar
skráðir í félagsskapinn og eru 14
virkir og mæta oft. Unglingamir
hafa gefið þessu starfi nafnið BUSL
(þ.e. Besta unglingastarf Sjálfs-
bjargar landssambands fatlaðra).
Starfsemin hófst í júní í fyrra og hef-
ur gengið mjög vel. Unglingarnir
hittast að jafnaði tvisvar í mánuði en
ekki er nauðsynlegt að taka þátt í
öllu, heldur mæta sumir einungis á
það sem þykir áhugavert hverju
sinni. Dagskráin er mjög fjölbreytt
og samanstendur af fróðleik og afþr-
eyingu."
Þeir sem áhuga hafa á að koma á
kynningarkvöldið hafi samband við
Lilju Þorgeirsdóttur eða Maríu Þor-
steinsdóttur, félagsmálafulltrúa
Sjálfsbjargar.
Á LÓNSÖRÆFUM. Myndina tók Kristján M. Baldursson.
Myndasýning frá Arbók-
arferð og Lónsöræfum
FYRSTA myndakvöld Ferðafé-
lagsins í vetur verður í dag í húsi
félagsins í Mörkinni 6 í kvöld,
miðvikudagskvöldið 14. október,
kl. 20.30.
Myndakvöldið er tiieinkað
nokkrum af ferðum sumarsins.
Fyrir hlé sýnir Skúli Gunnars-
son myndir og segir frá Árbók-
argöngu þar sem gengið var um
Hagavatns- og Jarlhettusvæði
en síðan um Lambahraun að
Hlöðuvöllum og niður með
Skriðunni. Einnig sýnir hann
myndir úr helgar- og dagsferð-
um m.a. frá Landmannalaugum,
Skælingum og Ljósufjöllum.
Eftir hlé sýnir Leifur Þorsteins-
son myndir sínar og Krisljáns M.
Baldurssonar úr Lónsörfæfaferð
sem var farin síðla í ágúst en Leif-
ur var fararsljóri í ferðinni. Ferð-
in var öðruvísi en hefðbundnar
Lónsöræfaferðir þar sem gist var
þijár nætur í skálanum Egilsseli
við Kollumúlavatn og tvær nætur í
Múlaskála.
Allir eru velkomnir að mæta
og kynnast spennandi ferðum og
ferðasvæðum. Góðar kaffiveit-
ingar í hléi, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Gengið um
vesturbæinn
HAFNARGÖN GUHÓPURINN
stendur fyrir gönguferð í kvöld, mið-
vikudagskvöld, um vesturbæinn.
Farið verður frá Hafnarhúsinu að
vestanverðu kl. 20 og þræddar
fáfarnar leiðir í fylgd vesturbæinga.
Allir eru velkomnir í ferð með Hafn-
argönguhópnum.
Fræðslufundir
fyrir þjálfara
og íþróttamenn
FRÆÐSLU- og útbreiðslunefnd
FRI í samvinnu við Félag íslenskra
frjálsíþróttaþjálfara gengst fyrir
ft'æðslufundum í vetur sem ætlaðir
eru bæði þjálfurum og íþróttamönn-
um.
Fundirnir verða fjórða hvert
fimmtudagskvöld í húsnæði ÍSÍ í
Laugardal í Reykjavík, 2. hæð. Þeir
hefjast kl. 20 og standa yfir í um 2
tíma. Þátttökugjald er 500 kr. fyrir
hvert kvöld og greiðist á staðnum.
Fyrsti fundurinn verður haldinn
fimmtudaginn 15. október nk. kl. 20
þar sem Þórarinn Sveinsson fjallar
um þolþjálfun við sjávarmál og í há-
fjallalofti. Kl. 21 ræðir Fríða Rún
Þórðardóttir um næringu íþrótta-
fólks.
Næstu fundir verða 12. nóvember
og 10. desember nk.
LEIÐRÉTT
Rangt foðurnafn
í FRÉTT í Lesbókinni sl. laugai'dag
um danshöfundasamkeppni íslenska
dansflokksins, var fóðurnafn eins
umsækjendanna sem komust í úrslit
ekki rétt. Það var nafn Jóhanns
Freys Björgvinssonar.
Röng heimilisföng
BÚSETA tveggja frambjóðenda í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi var rangt til-
greind í frétt í blaðinu í gær. Markús
Möller er búsettm' í Garðabæ og Jón
Gunnarsson í Kópavogi. Beðizt er
velvirðingar á misherminu.
Rangt föðurnafn
RANGT var farið með fóðurnafn
Ólafs Amar Haraldssonar, þing-
manns Framsóknaifiokksins, í blað-
inu í gær og hann sagður Hilmars-
son. Morgunblaðið biðst afsökunar á ^
mistökunum.