Morgunblaðið - 14.10.1998, Qupperneq 54
54 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Maturog matgerð
Afgangsbrauð
og rasp
Um daginn hríngdi kona til Kristúiar Gests-
dóttur og spurði hvernig hún gæti nýtt af-
gangsbrauð og rasp úr því.
Á fyrstu búskaparárum mínum
þegar ég var heimavinnandi
húsmóðir heyrði ég konu segja í
útvarpinu að hámark ómyndar-
skapar húsmæðra væri að kaupa
tilbúið rasp. Hún kvað allar
myndarlegar húsmæður þurrka
afgangsbrauð til þeirra hluta.
Eg var ein þessara ómyndarlegu
en vildi reka af mér slyðruorðið
og fór út í búð og keypti heilt
franskbrauð, sem ég þurrkaði og
hakkaði og átti síðan fulla
krukku af raspi. Síðan hefi ég
alltaf þurrkað ýmsar tegundir
afgangsbrauðs í rasp, ekki til að
vera myndarleg húsmóðir held-
ur finnst mér það mun betra. En
nú er svo komið að ég steiki
sárasjaldan fisk og kjöt í raspi,
enda sýgur raspið í sig mikla fitu
og það vil ég forðast. Hins vegar
nota ég brauðrasp í hakkað kjöt
og ýmiss konar eggjarétti svo og
í blómkálsrétt með afgangsfiski,
talsvert smjör og olía er þar með
raspinu svo að mín gullna regla
er fallin. Ekki þarf nauðsynlega
að hakka þurrkað brauð, yfirleitt
er nóg að setja það í plastpoka
og merja með kökukefli.
Eggjaréttur með raspi
o.fl. handa 4
_____________4 egg______________
_________2 dl brauðrasp_________
___________'/2 tsk. salt________
__________'A tsk. múskat________
_________1 lítil dós aspas______
100 g mjólkurostur, sú____
tegund sem ykkur hentar
3 stórar sneiðar beikon
1. Setjið eggin í skál ásamt
salti, múskati og safanum úr
dósinni, sem áætlað er að sé 2 dl.
Sláið saman með þeytara. Setjið
raspið út í og látið standa á eld-
húsborðinu í 10 mín. Setjið þá
aspasinn út í. 2. Smyrjið eldfasta
skál eða djúpt fat, hellið
hrærunni í það. Rífið ostinn og
stráið yfir, klippið beikonið ofan
á.
3. Hitið bakaraofn í 210°C,
blástursofn í 190°C, setjið í miðj-
an ofninn og bakið í um 25
mínútur. Þetta tekur mun
skemmri tíma í örbylgjuofni,
erfitt er að gefa tíma þar sem ör-
bylgjuofnar eru mismunandi og
gerð íláts skiptir líka máli.
Blómkál með ýsu
og raspi
1 meðalstór blómkálshaus
_________2 1/2 dl vatn_______
__________1/2 tsk. salt______
25 g smjör + 2 msk. matarolía
_______1 '/2 tsk. milt karrí_
_______1 16 dl brauðrasp_____
100-150 g köld ýsa
1. Setjið vatn í pott og látið
sjóða. Hreinsið blómkálshausinn
og holið stilkinn örlítið. Leggið í
vatnið í pottinum, holan snúi nið-
ur, stráið salti yfir og sjóðið við
hægan hita í 5 mínútur. Takið
hausinn í heilu lagi úr pottinum
og setjið á eldfast fat. 2. Setjið
smjör, matarolíu og karrí á
pönnu og brúnið örlítið. Setjið
þá raspið út í og myljið fiskinn
saman við. Hrærið í og látið
aðeins taka lit. Setjið síðan yfir
blómkálshausinn, bregðið hon-
um í vel heitan bakaraofn í 6
mínútur.
Meðlæti: Ristað brauð.
mmmmmmmmmmmMmismMmM
Falskur héri kryddaður
á óvenjulegan hátt
’/2 kg hakk, gott er að nota
_______fleiri en eina tegund__
_________1-1 1/2 tsk. salt____
__________14 tsk. pipar_______
14 tsk. engiferduft, eða 14 tsk
_________. rifin engiferrót___
/2 tsk. kardimommuduft eða 3
______steyttar kardimommur____
__________14 tsk, kanill______
_________1 dl brauðrasp_______
____________legg______________
1/2 msk, milt sinnep
6 stórar sneiðar beikon
______pakkasósa, sú tegund____
________sem ykkur hentar______
2 msk. hreinn rjómaostur
1. Setjið rasp og egg í skál og
hrærið vel saman, látið standa í
10 mínútur. 2. Setjið hakk, salt
og krydd í aðra skál, hrærið
raspblönduna út í. Mótið aflang-
an hleif. Setjið í eldfasta skál
með loki eða steikingarpottinn.
Klippið beikonið í ræmur og
raðið ofan á.
3. Hitið bakaraofn í 210°C,
blástursofn í 190°C, og bakið í
30-40 mínútur.
4. Búið til sósu skv. leiðb. á
pakkanum, setjið soðið úr steik-
ingarpottinum og rjómaostinn út
í og hitið vel.
Meðlæti: Soðnar kartöflur og
soðið grænmeti, rauðkál, hrásal-
at eða það sem ykkur hentar.
í DAG
VELVAKAMM
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Um útgöngn
safnaðar úr
kirkju eftir
messu
VIÐ útfarir þykir sjálfsagt
að þeir sem fremstir sitja í
kirkjum gangi fyrstir út
eftir athafnir. Sama ætti
að gilda um útgöngur eftir
almennar guðsþjónustur
en ekki það sem nú tíðkast,
að flestir ryðjist út í gang-
inn milli bekkjanna þannig
að úr verður þröng mikil.
Ættum við ekki að taka
háttaskiptum í þessu efni
einnig og gæta sjálfsagðr-
ar háttvísi í guðshúsum
okkar?
H.R.I.
Léleg þjónusta
ELÍSABET hafði sam-
band við Velvakanda og
sagðist hafa farið sl. laug-
ardag um eftirmiðdaginn í
Bónus í Holtagörðum.
Segir hún að búðin hafi
verið troðfull af fólki, rétt
eins og fyrir jól. En það
voru ekki allir kassar
mannaðir og gekk því illa
að afgreiða fólkið og
þurftu sumir að bíða í
biðröð í allt að hálftíma.
Var fólk farið að gefast
upp á biðinni og ganga út.
Finnst henni þetta léleg
þjónusta að hafa ekki fleiri
á kössunum og vill hún fá
að vita hvers vegna svo sé
ekki.
Góð sviðsmynd
STEFÁN hafði samband
við Velvakanda og vildi
hann koma því á framfæri
að hann hefði horft á þá
best gerðu og hrikalegustu
sviðsmynd sem gerð hefur
verið í myndinni Björgun
óbreytts Ryans.
Slæmt
leiðakerfi
VE LVAKANDA barst eft-
irfarandi:
Eg vil kvarta yfir stræt-
isvagnakerfinu í Hamra-
hverfinu í Grafarvogi. Það
er einn bíll, leið 15, sem
kemur í hverfið og hægt er
að fara með niður í bæ en
hann fer fyrst upp í
Keldnaholt. Leið 8 kemur
úr Grafarvoginum en hann
endar á skiptistöðinni í
Mjódd. Á kvöldin og um
helgar þarf maður að bíða
á skiptistöðinni í allt að 20
mínútur. Finnst mér þetta
léleg skipulagning ó leiða-
kerfinu og mætti laga
þetta, sérstaklega á kvöld-
in og um helgar.
Farþegi.
Tapað/fundið
Gleraugu
týndust
GLERAUGU í rauðu
hulstri týndust fyrir utan
Borgarieikhúsið sl.
fimmtudag. Skilvís finn-
andi hafi samband f síma
553 0681.
Giftingarhringur
týndist
GIFTINGARHRING-
UR, munstraður, týndist
líklega á golfvellinum á
Korpúlfsstöðum fyrir ca.
2 vikum. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
897 2634.
Dýrahald
Kettlingur fæst gefíns
2JA og hálfs mánaðar
læða fæst gefins, kassa-
vön. Upplýsingar í síma
586 1206.
Læður fást gefins
TVÆR fallegar læður
fást gefins. Barnakisur.
Upplýsingar í síma
861 3590.
Mási er týndur
MÁSI var í pössun í Hæð-
argarði og týndist 30. sept-
ember sl. Hann er
grábröndóttur með hvíta
höku. Hann hefur ljósbláa
ól með þremur bjöllum á
og er eyrnamerktur. Hann
er styggur við ókunnuga
en má reyna að lokka hann
inn með mat. Þeir sem
hafa orðið hans varir hafi
samband í síma 557 6746
eftir kl. 17 eða vinnusíma
560 464 (Linda).
Df2+ 49. Khl - Hcl er mát!
Englendingar gerðu jafn-
tefli við Anneníu 2-2, í
næstsíðustu umferðinni.
Þeir voru taldir með
sterkasta liðið í keppninni,
en náðu þó ekki að blanda
sér í baráttuna um efsta
sætið.
skákmótinu
í Elista í
Kaimykíu.
Matthew
Sadler
(2.640),
Englandi,
var með
hvítt, en
Smbat
Lputjan
(2.615),
Armeníu,
hafði svart
og átti leik.
47. - Hh3+
og Sadler
gafst upp,
því 48. g)di3 - SVARTUR mátar í þriðja leik.
HÖGNI HREKKVÍSI
SKAK
llnisjón Margeir
l'óturs.son
STAÐAN kom upp á
Víkverji skrifar...
HRAÐI tæknilegra framfara á
flestum sviðum er slíkur, að
þeir eru örugglega ekki mjög
margir sem hafa yfirsýn yfir
framþróun tækninnar, nema þá
bara á þröngu sviði. Þetta eru
a.m.k. grunsemdir Víkverja sem
minnist þess hvers konar tækn-
inýjung það var þegar símsvarar
voru að ryðja sér til rúms. Sím-
boðana þekkja allir og símbréf og
símbréfasenda. Tölvur þróast svo
ört að sumir eru aðeins komnir
eitthvað áleiðis að nýta sér tölvuna
sína og þá möguleika sem hún hef-
ur upp á að bjóða, þegar einhver
tölvuspekingurinn lætur niðrandi
orð falla um hvort viðkomandi
tölvubúnaður væri nú ekki betur
kominn á Þjóðminjasafninu en í
hefðbundinni notkun! Nú fara allir
inn á Netið, senda tölvupóst, sem
getur verið kominn fram í annarri
heimsálfu sekúndum síðar, enn
aðrir geta talað saman með aðstoð
Netsins og svona mætti lengi telja.
XXX
AÐ sem Víkverji á erfiðast
með að átta sig á, með tilkomu
allra þessara tæknilegu nýjunga,
sem eiga að auðvelda okkur og
flýta fyrir samskiptum og tjáskipt-
um, er hversu margir, sem þó hafa
atvinnu sína af því að senda út boð,
upplýsingar og þess háttar með
allri þessari tæknilegu aðstoð,
kunna alls ekki að nota þessa nýju
miðlunartækni. Á hverjum einasta
degi er hringt á ritstjóm Morgun-
blaðsins, sennilega aldrei færri en
10 símhringingar, en líklegra er að
þær skipti að meðaltali einhverjum
tugum, þegar allar deildir rit-
stjórnar eru taldar með, og þeir
sem hringja eru þá yfirleitt með
erindi eitthvað á þessa leið: „Góðan
dag. Ég heiti... og ég hringi fyrir...
Ég sendi í morgun fax (símbréf) á
ritstjórn Morgunblaðsins, í faxnú-
mer ... Getur þú sagt mér hvort
símbréfið hefur skilað sér til ykk-
ar?“ Iðulega segjast hinir sömu
hafa sent sömu upplýsingar, fund-
arboð eða gögn í tölvupósti og biðja
þann sem verður fyrir svörum af
hálfu ritstjórnar að kanna hvort
það hafi komist til skila. Allt þetta
kvabb, þar sem verið er að koma
sömu skilaboðum, upplýsingum og
fundarboðum á framfæri á mis-
munandi hátt, verður auðvitað til
þess að þrátt fyrir alla tækniþróun-
ina, framfarirnar og nýjungamar,
þá sparast enginn tími, hvorki fyrir
sendandann né móttakandann -
síður en svo, því með því að reyna
að þjónusta þá sem hringja með
fyrirspurnirnar um það hvort faxið
hafi komist til skila, eða tölvupóst-
urinn, fer auðvitað dýrmætur tími
til spillis. Og Víkverji hefur nú einu
sinni þá bjargföstu skoðun að tími
sé peningar og því er sóun á tíma
sóun á peningum.
xxx
HVAÐ ætli geri það að verkum,
að svo fjölmargir, sem eru að
nýta sér tæknina á hverjum ein-
asta degi, virðast ekkert traust
bera til hennar? Svo geta þeir
meira að segja fengið staðfestingu
á símbréfasendinum, að sfmbréfið
þeirra hafi komist til skila og
sömuleiðis geta þeir gefið tölvunni
sinni fyrirmæli um að láta sig fá
móttökukvittun, þegar tölvupóst-
urinn sem þeir hafa sent er opnað-
ur. Víkverji bíður spenntur eftir
því að menn fari nú að temja sér
einverknað í þessum efnum, í stað
tví- og þríverknaðar.