Morgunblaðið - 14.10.1998, Page 64

Morgunblaðið - 14.10.1998, Page 64
NIVEA VISAGE Drögum næst HAPPDRÆTTI §&djjj HÁSKÓLA ÍSL SLANDS MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Túnfískveiðiskip losnaði af strandstað út af Skerjafírði seint í gærkvöld 22 japanskir sjómenn fluttir um borð í Ægi ÁHÖFNINNI af japanska túnfískveiðiskipinu Fukuyoshi Maru 68 var bjargað um borð í varð- skipið Ægi eftir að skipið strandaði á Jörundar- boða í Skerjafírði, l'/a sjómílu suðvestur af golf- vellinum á Suðurnesi vestast á Seltjarnarnesi á níunda tímanum í gærkvöld, en í áhöfninni eru 22 menn. Um klukkan ellefu losnaði skipið af boðan- um, björgunarbátur dró það af grynningum út að varðskipinu sem tók það í tog til hafnar í Reykja- vík þangað sem það var væntanlegt um klukkan i^jtvö í nótt er leið. Neyðarkall barst frá skipinu, sem er rúmlega 450 tonn að stærð, en það var á leiðinni til Reykjavíkur þegar það strandaði. Skipið hefur undanfarið verið á túnfiskveiðum langt suður af landinu, en það hefur ekki leyfi til veiða í ís- lenskri lögsögu og enginn íslendingm- var um borð. Björgunarsveitir frá Reykjavík, Seltjarnarnesi og Hafnarfírði voru kallaðar út og fóru út að strandstað á þremur björgunarbátum. Björgun- arsveitarmenn voru komnir um borð í skipið laust fyrir kl. 21, en varðskipið Ægir kom á vett- vang um 20 mínútum síðar. Pungt var í sjóinn og erfiðar aðstæður en þó tókst slysalaust að flytja alla áhöfn japanska skipsins á björgunarbátunum um borð í varðskipið. Stýrimaður af varðskipinu var eftir það einn um borð í túnfiskveiðiskipinu og kannaði aðstæð- ur. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, kom á strandstað um klukkan hálfellefu og lýsti upp japanska skipið. Óttast var að gat hefði komið á olíugeyma skipsins og olía lekið úr því í sjóinn, en ekki hafði fengist úr því skorið í gærkvöld. Hollustuvernd ríkisins var gert viðvart til öryggis. Morgunblaðið/Kristinn ÞYRLA Landhelgisgæslunnar lýsti upp japanska skipið Fukuyoshi Maru 68 á strandstað á Jörundarboða úti af Skerjafírði, björgunarbátar og varðskipið Ægir voru í grennd. Er féll að seint í gærkvöld losnaði skipið af boðanum. Fossvirki hf. skilaði Hvalf]*arðargöngum formlega af sér í gær 011 skilyrði fyrir lang- tímafj ármögmin uppfyllt FOSSVIRKI hf. skilaði í gær af sér vinnu við gerð Hvalfjarðar- ganga og Spölur ehf. tók formlega að sér allan rekstur þeiiTa. Athöfn þessu til staðfestingar fór fram í gær, í kjölfar þess að fulltrúar fjárfesta lýstu því yfír að öllum skilyrðum íyrir veitingu langtíma- lána hefði verið fullnægt. Þótt Hvalfjarðargöng hafi verið ~^opnuð í júlí hefur ekki verið gengið - frá verklokum fyrr en nú. Foss- virki hf., sem er í eigu ístaks hf., danska verktakans E. Pihl og spn og sænska verktakans Skanska, gerði göngin eins og kunnugt er. Framkvæmdin var algerlega á ábyrgð verktakans og fjárhags- ^J.egra bakhjarla hans en sænski WfcJE-bankinn og fleiri erlendar og innlendar fjármálastofnanir önn- uðust fjármögnun verksins. I samningum var gert ráð fyrir tveggja mánaða reynslurekstri verktakans á göngunum og lang- tímafjármögnun færi fram að þeim tíma loknum. Reynslureksturinn varð heldur lengri og segir Stefán Reynir Kristinsson, framkvæmdastjóri Spalar ehf., að það stafi af því hvað margir aðilar komi að þessum samningum sem séu afar flóknir enda fyrstu samningar um fjár- mögnun af þessu tagi á Norður- löndum. I gær barst síðan símbréf þar sem bandaríska líftryggingafé- lagið John Hancock lýsir því yfir að öll skilyrði hafí verið uppfyllt fyrir því að félagið reiði fram lán- in. John Hancock er stærsti aðil- inn að langtímafjármögnuninni en íslenskir stofnanafjárfestar koma þar einnig við sögu. Stefán Reynir segir að nú muni Spölur ehf. taka síðasta hluta byggingarlánsins og greiða Foss- virki lokagreiðsluna, sem er tæpur milljarður kr. Að því loknu verði öll byggingalán fyrirtækisins greidd upp með langtímalánunum. Endurgreiðsla þeirra fer eins og kunnugt er fram með gjaldi sem innheimt er af vegfarendum. Kostnaður 5 milljarðar Af þessu tilefni hittust nokkrir af fulltrúum verktakans og verk- kaupans í vinnuaðstöðu Fossvirkis við suðurenda Hvalfjarðarganga. Staðfestingin frá Hancock var af- hent með formlegum hætti og full- trúar Fossvirkis afhentu Spalar- mönnum lyklavöldin. Sögur voru rifjaðar upp á milli þess sem skál- að var í kampavíni. Endanlegur kostnaður við Hval- farðargöng er nálægt 5 milljörðum að sögn Stefáns Reynis, og er þá talinn með undirbúningskostnaður og verðlagsbreytingar á fram- kvæmdatímanum. Framkvæmda- stjórinn er einnig ánægður með það hvað göngin eru mikið notuð. Umferðin er af ýmsum ástæðum meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir og Stefán Reynir er sérstaklega ánægður með hvað margir sjá sér hag í að nota göngin í stað þess að aka fyrir Hvalfjörðinn. Dagvist barna Gjaldskrá hækkar um allt að 13,64% BORGARRÁÐ hefur samþykkt allt að 13,64% hækkun á gjaldskrá Dag- vistar barna og tekur hækkunin gildi frá og með 1. janúar nk. Gert er ráð fyrir að heildartekjur hækki um 50 millj. á ári. Tillagan gerir ráð fyrir hækkun á tímagjaldi úr 1.900 kr. í 2.100 kr. en hækkunin verður nokkuð minni hjá forgangshópum og námsmönnum. Ennfremur er gert ráð fyrir að heilsdagsgjald verði breytilegt eftir því hvort barnið dvelur átta eða níu stundir á dag á leikskóla en áður var eingöngu um eitt heilsdagsgjald að ræða. Fæðisgjald verður óbreytt en systkinaafsláttur hækkar úr 25% í 33%. ■ Hærri gjöld/4 Newsweek á leslista nema í VI í VERZLUNARSKÓLA ís- lands lesa sjöttubekkingar m.a. tímaritið Newsweek fyrir ensku- tíma í þeim tilgangi að auka orðaforða, einkum í hagfræði. „Við lesum t.d. um kreppu og kapítalisma og það er almenn ánægja meðal nemenda með þetta námsefni," segir Heiðar Sigurfínnsson, formaður mál- fundafélags Verzlunarskólans. Frumkvæðið að notkun Newsweek er komið frá ensku- kennurunum, en tímaritið kem- ur í staðinn fyrir þætti á BBC- sjónvarpsstöðinni, sem nemend- ur áttu að horfa á í fyrra í sama tilgangi. Heiðar segir að Newsweek henti sýnu betur til kennslu en sjónvarpsþættirnu. „Mér hefur oft fundist vanta skýrari tengingu við daglegt líf í skólastarfi og því fullnægir Newsweek vel þörf okkar á því sviði. Það mætti jafnvel gera meira af þessu.“ Nemendur taka síðan próf úr efni Newsweek með reglulegu millibili. Allir nemendur sjötta bekkjar gerðust áskrifendur að tímaritinu í haust og borga áskriftina, sem er ekki tiltakan- lega há, úr eigin vasa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.