Morgunblaðið - 31.10.1998, Page 4
4 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eldvarnaeftirlitið um skemmtistaði
Öflugl eftir-
lit hérlendis
Ekki ástæða til gagngerrar úttektar
að mati umsjónarmanns Eldvarna
Lögreglusfjóri veitir
veitingaleyfí
Barnahús tekið
formlega í notkun
Kosið
verður 8.
maí nk.
KOSIÐ verður til Alþingis 8.
maí nk. Þegar stjórnskipunar-
lögum var breytt árið 1995
samþykkti Alþingi bráða-
birgðaákvæði þar sem segir að
kjósa skuli annan laugardag í
maí árið 1999 hafí þing ekki
verið rofíð áður.
Ástæðan fyrir þessari laga-
breytingu er sú að samkvæmt
stjórnarskrá skal kjörtímabil
alþingismanna vera fjögur ár.
Lögin hafa verið túlkuð með
þeim hætti að ekki megi kjósa
síðar en fjórum árum eftir síð-
asta kjördag. Þess vegna hefur
kjördagur verið að færast
framar á árið. Árið 1995 var
kosið 8. apríl.
Kjördagur á næsta ári hefði
samkvæmt þessu getað verið 3.
apríl, en hefðbundið er að kjósa
á laugardegi. 3. apríl er hins
vegar laugardagur fyrir páska,
sem þykir ekki heppilegur kjör-
dagur og því er sýnt að kosn-
ingar hefðu orðið að fara fram í
mars ef ekki hefði komið til
breyting á stjómskipunarlög-
um. Breytingin nær aðeins til
kosninganna 1999 og því verða
kosningarnar árið 2003 að fara
fram fyrir 8. maí. Þetta kjör-
tímabil verður hins vegar ekki
fjögur ár heldur íjögur ár og
einn mánuður.
Umdæmi
Læknavaktar-
innar stækkar
LÆKNAVAKTIN sf. mun frá 1.
nóvember nk. kl. 00.00, reka vakt-
þjónustu heimilislækna utan dag-
vinnutíma allt árið um kring fyrir
þjónustusvæði heilsugæsluumdæm-
anna í Reykjavík, Kópavogi, Sel-
tjarnarnesi, Garðabæ og Hafnarfírði.
Á vakttíma mun læknavaktin
sinna móttöku frá kl. 17.00-23.00 alla
virka daga og 09.00-23.30 um helgar
og frídaga. Símaráðgjöf og vitjunum
verður sinnt frá ki. 17.00 til kl. 8.00
alla virka daga og allan sólarhring-
inn um helgar og frídaga.
Læknavaktin verður fyrst um sinn
staðsett á Heilsuvemdarstöðinni við
Barónsstíg í Reykjavík, en flytur að
Smáratorgi 1 í Kópavogi hinn 1. des-
ember nk. Símanúmer Læknavaktar-
innar er 552-1230 en nýtt símanúmer
verður tilkynnt við flutninginn.
Að sögn Geirs Guðmundssonar
afleysingavaktsjóra á Læknavakt-
inni, felst helsta breytingin í stækk-
un á þjónustusvæði Læknavaktar-
innar, þar sem Hafnarfjörður,
Garðabær og Álftanes eru sameinuð
Reykjavík. Onnur breyting sé sú að
afgreiðslutími á móttökum verður
lengdur lítillega.
REGLULEGT eldvamaeftirlit er
öllum atvinnubyggingum og sam-
komuhúsum hérlendis. Bjami
Kjartansson, umsjónarmaður Eld-
vama, segir að öflugasta eftirlitið sé
hins vegar með skemmtistöðum.
Hann kveðst ekki sjá ástæðu til
gagngerrar úttektar á þessum mál-
um þegar hann var inntur eftir því
hvort hinn hörmulegi brani á
skemmtistað í Gautaborg í fyrradag
ýtti undir slíka úttekt.
Bjami segir að allir staðlar og
reglugerðir um brunamál séu
byggðir á undangenginni reynslu.
Vissulega hafí brannið stórar
byggingar þar sem menn töldu sig
hafa hugsað fyrir öllu og þá era
staðlar lagfærðir og reglugerðum
breytt.
„Svona atburðir vekja alla til um-
hugsunar. Þótt við fóram ekki í ein-
hverja herferð í kjölfarið verður at-
burðurinn okkur vissulega ofarlega
í huga, það er bara óhjákvæmilegt,"
segir Bjami.
Hann segir að veitingastaðir hér-
lendis eigi það sammerkt að fá veit-
ingaleyfi sitt frá lögreglustjóra.
Eldvamaeftirlitið er umsagnaraðili
um veitingaleyfi og skoðar staðina
með samþykktum bygginganefnda-
teikningum að viðkomandi húsum.
Kannað sé hvort öryggismál sé með
þeim hætti sem mælt er fyrir um.
Einnig er metið hve marga gesti
staðirnir bera. Það sé hins vegar
erfíðleikum bundið fyrir Eldvama-
eftirlitið að fylgjast með því hvort
útgönguleiðir hafi verið tepptar, t.d.
með hlöðum af vöra og vamingi fyr-
ir neyðarútganga eða hvort of
mörgum gestum sé hleypt inn á
staðina.
,Almennt má segja að eftirlitið sé
öflugt hérlendis. Eldvamaeftirlitið
gerir athuganir á veitingahúsum að
meðaltali eina til tvær helgar í mán-
uði,“ segir Bjami.
BARNAHÚS var fomlega tekið í
notkun í gær. Markmið með opnun
hússins er að bæta aðstoð og þjón-
ustu við böm sem sætt hafa kyn-
ferðislegu ofbeldi eða áreitni. í
húsinu verður faglegt samstarf
þeirra sem bera ábyrgð á vinnslu
og úrlausn kynferðisbrotamála.
Auk rannsóknarstarfs sem þar fer
fram býður húsið upp á áfallahjálp
fyrir börn sem sætt hafa kynferð-
islegu ofbeldi og fjölskyldur
þeirra.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, kynnti starf-
semi hússins og aðdraganda að
stofnun þess á blaðamannafundi í
gær. í máli hans kom fram að í
kjölfar þingfyrirspumar Jóhönnu
Sigurðardóttur hafí verið gerð
könnun á umfangi kynferðisaf-
brota gagnvart börnum á íslandi.
Niðurstöður könnunarinnar hafi
sýnt að ástandið í þessum málum
væri mun alvarlegra en menn
hefðu talið. Að meðaltali höfðu
komið upp í kringum 100 tiivik á
ári sl. fímm ár, eða 560 tilvik alls á
ámnum 1992-1996. Einnig kom í
ljós að ýmislegu var áfátt í rann-
sóknum á afbrotunum og þá sér-
staklega hvað varðaði meðferð og
stuðning við þolendur, þ.e. börn.
Félagsmálaráðuneytið fól barna-
verndarstofu að fínna leiðir til úr-
bóta og er opnun Baraahúss af-
leiðing þess.
Samhæfðar rannsóknir
„Gmndvallarhugmyndin að baki
starfi hússins er að það leiði til
samstarfs allra þeirra sem standa
að rannsóknum á kynferðisafbrot-
um sem framin era gagnvart börn-
um á íslandi. Með því að færa
starfsemina í eitt hús em aðgerðir
allra rannsóknaraðila samhæfðar.
Rannsóknin verður þannig þver-
fagleg og sérhæfðir aðilar sjá um
sitt svið. Aðalatriðið er þó að með
samræmdum aðgerðum em hags-
munir barnsins í fyrirrúmi. í stað
þess að barnið flakki á milli við-
tala, og læknisskoðana er allt á
einum stað. Aðeins einn aðili, sér-
hæfður rannsakandi, annast
skýrslutöku og fer hún fram í sér-
stöku herbergi. Aðrir rannsóknar-
aðilar geta fylgst með viðtalinu á
sjónvarpsskjá í öðru herbergi og
haft áhrif á framvindu þess,“ segir
Bragi.
Börnin em látin vita af þessari
tilhögun og segir Bragi hana eiga
að auðvelda baminu þá erfiðleika
sem það upplifir við skýrslutökur.
Að viðtalinu loknu geta sérfræð-
ingar gert sameiginlegar áætlanir
um framhald rannsóknarinnar.
Húsið mun þjóna öllu landinu,
böraum yngri en 18 ára, og verður
opið á virkum dögum frá kl. 9-17.
Við húsið starfa tveir sérfræðing-
ar, Vigdís Erlendsdóttir forstöðu-
maður og Ragna Björg Guð-
brandsdóttir, sem gegnir starfi
sérhæfðs rannsakanda. Auk þess
munu barnaverndaryfirvöld, lög-
regluyfírvöld, ríkissaksóknari og
barnageðlæknir koma að rann-
sóknunum.
Fullkominn
tækjabúnaður
Undirbúningur að stofnun húss-
ins hófst í september 1997 og er
stofnkostnaður áætlaður um 5
milljónir króna. Fjárfest hefúr ver-
ið í sérhæfðum tækjum sem auð-
velda rannsóknarstarf, og má þar
nefna svokallað „video
colposcope" sem gerir alla skoðun
á hugsanlegum áverkum nákvæm-
ari. Tækið er hið fyrsta sinnar teg-
undar sem tekið er í notkun í Evr-
ópu og með því má prenta út
myndir sem hægt er að nota sem
sönnunargagn í dómsmáium.
Kostnaður við tækið er um 1,6
milljónir króna.
Eftirtalin embætti og stofnanir
koma að undirbúningi og mótun
Barnahúss: Barnaverndarstofa,
Félagsmálastofnun Reykjavíkur,
ríkissaksóknaraembættið, ríkislög-
reglustjóraembættið, lögreglan í
Reykjavík, Barnaspítali Hringsins,
barna- og unglingageðdeild Land-
spítalans og Samtök félagsmála-
stjóra. Barnaverndarstofa sér um
rekstur Barnahúss. Vegna eðlis
þeirrar starfsemi, sem fram fer í
húsinu, verður staðsetningu þess
haldið leyndri.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BARNAHÚS var formlega tekið í notkun í gær. Hér skoða starfsmenn og gestir hússins tæki sem gerir skoðun
á hugsanlegum áverkum mun nákvæmari. Tækið er hið fyrsta sinnar tegundar sem tekið er í notkun í Evrópu.
Ný stjórn BHM kjörin
á aukaaðalfundi
NÝ stjóm Bandalags háskóla-
manna var kjörin á aukaaðal-
fundi bandalagsins sem haldinn
var í Hlégarði í Mosfellsbæ í
gær. Til fundarins var boðað
vegna samstarfsörðugleika í frá-
farandi stjóm og var samkomu-
lag um að enginn úr fyrri stjóm
gæfi kost á sér í nýju stjórnina.
Björk Vilhelmsdóttir félagsráð-
gjafi var kjörin formaður og
Tryggvi Jakobsson varaformað-
ur, en samtals sjö manns era í
stjóminni.
Björk sagði í samtali við Morg-
unblaðið að einhugur hefði ríkt á
fundinum í gær, enda væri fólk
orðið þreytt á átökum og innri
deilum. Ný stjóm hefði verið
kjörin einróma og sama gilti um
þær tillögur í skipulagsmálum
sem bornar hefðu verið upp, þær
hefðu verið samþykktar sam-
hljóða.
Hún sagðist ekki eiga von á
neinum samstarfsörðugleikum í
nýju stjóminni. Mikill vilji væri
til þess að taka til óspilltra mál-
anna í þeim málum sem Banda-
lagið ætti að sinna.
Reglulegir aðalfundir BHM
era haldnir á tveggja ára fresti
og var síðasti reglulegi fundur í
apríl í vor. Björk sagði að fyrri
stjóm hefði aldrei orðið staríhæf
vegna persónulegra átaka, en nú
horfði þetta allt til betri vegar.
Auk Bjarkar og Tryggva sitja í
stjórninni Auður Antonsdóttir,
Ásta Björg Björnsdótttir, Elín-
borg Stefánsdóttir, Már Ársæls-
son, og Óskar Th. Traustason.
fbúðalánasjóður tekur til starfa um áramót
25 starfsmönnum veð-
deildarinnar sagt upp
LANDSBANKI íslands hefur sagt
upp 25 starfsmönnum veðdeildar
bankans við Suðurlandsbraut, en
veðdeildin hefur um langt árabil
annast ýmsa þjónustu við Húsnæð-
isstofnun ríkisins.
í frétt frá Landsbanka íslands
kemur fram að Húsnæðisstofnun
verði lögð niður frá og með áramót-
um og íbúðalánasjóður taki við
stjórn húsnæðismála. Gert sé ráð
fyrir að verkefni veðdeildarinnar
flytjist að minnsta kosti að hluta til
íbúðalánasjóðs.
Bjöm Líndal, framkvæmdastjóri
Allra leiða leitað
til að endurráða
sem flesta
starfsmenn
hjá Landsbanka íslands, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að íbúðalána-
sjóður tæki til starfa 1. janúar og ekki
lægi enn fyrir hvernig þeirri þjónustu
yrði sinnt sem veðdeildin hefði ann-
ast. Viðræður stæðu yfir um það við
íbúðalánasjóð, en vegna óvissunnai- í
þessum efnum hefði bankinn ekki séð
sér annað fært en að grípa til þessar-
ar ráðstöfunar gagnvart starfsmönn-
um deildarinnar.
Björn sagði að bankinn myndi
leita allra leiða til að endurráða sem
flesta starfsmenn og gera það á
næstu tveimur til þremur vikum.
Deildarinnar yrði hugsanlega að
einhverju leyti áfram þörf og réðist
það af niðurstöðu viðræðnanna við
Ibúðalánasjóð, en einnig kæmi til
greina að finna starfsfólkinu ný
störf innan útibúanetsins eða í höf-
uðstövum bankans.