Morgunblaðið - 31.10.1998, Page 8
8 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
„TIL eru fræ sem fengu þennan dóm, að falla í jörð og verða ..."
Miðlun gerir at-
hugasemd við 118
MIÐLUN ehf. hefur sent Sam-
keppnisstofnun erindi þar sem
gerðar eru athugasemdir við rekst-
ur Landssímans á upplýsingaþjón-
ustunni 118. Miðlun telur að
Landssíminn veiti þar margvísleg-
ar aðrar upplýsingar en um síma-
númer og heimilisföng. Einnig ger-
ir fyrirtækið athugasemd við söfn-
un net- og veffanga Landssímans á
vefrænni símaskrá fyrirtækisins.
Árni Zophoníasson hjá Miðlun
segir að gerðar séu athugasemdir
við það að í 118 sé svarað spurning-
um sömu ættar og Miðlun sérhæfi
sig í því að svara á Gulu línunni.
Þar er t.d. um að ræða upplýsingar
um þjónustuaðila eða umboðsaðila
fyrir tiiteknum vörutegundum sem
Arni segir að falli ekki undir skil-
greindt starfssvið 118.
„Þessi þjónusta Landsímans býr
við samkeppnisyfirburði sem okkur
Segir Landsvirkjun
fara út fyrir
starfssvið sitt
er ekki gert kleift að mæta. Þar er
einkum tvennt sem við bendum á.
118 er rekið á þriggja stafa númeri
sem enginn annar hefur aðgang að.
Þá er 118 heimilt að taka
greiðslu fyrir símtöl en okkur er
það ekki heimilt á Gulu línunni.
Þarna eru tvö þjónustufyrirtæki
sem að hluta ti) veita sömu upplýs-
ingarnar en búa við mjög ólík sam-
keppnisskilyrði. Við bendum á þá
kosti til lausnar málinu að 118 haldi
sig við sitt afmarkaða starfssvið
sem er að veita upplýsingar um
símanúmer og heimilisföng ein-
staklinga og fyrirtækja eða að
Miðlun njóti sömu skilyrða og 118,“
segir Arni.
Landssíminn hætti
að skrá netföng
Hann segir að Miðlun geri einnig
athugasemd við það að Landssím-
inn safni í gegnum símakrá á vefn-
um net- og vefföngum og bjóði þau
til sölu þar. Miðlun hafi í 2-3 ár
haldið úti starfsemi sem felst í því
að gefa út netfangaskrá. „Við fögn-
um samkeppni þarna eins og ann-
ars staðar en okkur finnst að með
þessari leið sem Landssíminn fer,
að nota símaskrána við þessa starf-
semi, sem er markaðstæki sem fyr-
irtækinu er fengið í hendur af
stjórnvöldum, séu ólögmætir sam-
keppnishættir. Við gerum þá kröfu
að Landssíminn hætti að skrá net-
föng í gegnum þennan miðil,“ segir
Arni.
Prófkjör Sjálfstœðisflokksins á Reykjanesi
• •••••
Markús Möller
Ég vil öflugt
atvinnulíf sem
skapar
hámarksverðmœti
og bœtir lífskjör
almennings.
mstans 14. nóv.
Hrina
árekstra í
Reykjavík
Á ANNAN tug árekstra voru til-
kynntir til lögreglunnar í Reykja-
vík eftir kl. 14 í gær.
Flestir voru minniháttar og gat
lögreglan sér til um að orsaka
væri að leita í vondum birtuskil-
yrðum, þar sem sólin blindar öku-
menn auðveldlega nú þegar hún
er lágt á lofti.
Kl. 10.20 varð harður árekstur
á gatnamótum Egilsgötu og
Snorrabrautar. Tvær fólksbifreið-
ar rákust saman og voru ökumenn
beggja bifreiða fluttir á slysadeild
með höfuð- og hálsáverka.
Bifreiðarnar skemmdust svo
draga þurfti þær burt með krana-
bifreið.
Selkórinn syngur með Sinfóníunni
Veglegir tón-
leikar á 30
ára afmæli
Páll Gunnlaugsson
SELKÓRINN held-
ur tónleika með
Sinfóníuhlj ómsveit
íslands í Langholts-
kirkju kl. 17 í dag. Á tón-
leikunum verða flutt tvö
verk, C-dúr Messa Moz-
arts og Requiem eftir
Gabriel Fauré, og hefur
hvorugt verkanna áður
verið flutt með stórri
hljómsveit hér á landi.
Fjórir einsöngvarar
syngja með kór og hljóm-
sveit á tónleikunum. Tón-
leikamir eru haldnir í til-
efni af 30 ára afmæli
kórsins og eru tileinkaðir
minningu frú Guðrúnar
Katrínar Þorbergsdótt-
ur, fyrrverandi forseta-
frúar og bæjarfulltrúa á
Seltjarnarnesi.
Páll Gunnlaugsson, formaður
Selkórsins, segir að söngfélagar
séu alla jafna á bilinu 40 til 50.
„Kórinn er áhugamannakór og
dagskráin yfirleitt fremur hefð-
bundin. Hinu er ekki að leyna að
af og til hefur kórinn tekist á við
kröfuharðari verkefni í góðri
samvinnu við hinar ýmsu smærri
hljómsveitir og er þar hægt að
nefna Lúðrasveit Seltjarnarness.
Ef svo má að orði komast er
kórinn gerður út frá Seltjarnar-
nesi og fara æfingar fram í Tón-
listarskólanum. Kórfélagar eru
úr sveitarfélaginu og nágranna-
sveitarfélögunum og mynda fag-
lega eins konar þversnið þjóðfé-
lagsins. Fyrir venjulegt fólk er
gaman að koma inn í annan og
blandaðri hóp en í vinnunni. Létt
stemmning myndast í hópnum
enda hafa allir gaman af því að
syngja. Ekki spillir heldur að
hafa sameiginlegt markmið að
stefna að.“
- Hvenær kom upp sú hug-
mynd að sækjast eftir því að
syngja með Sinfóníuhljómsveit
Islands?
„Hugmyndin kom upp í tengsl-
um við hvernig hægt væri að
halda upp á 30 ára afmæli kórs-
ins. Sinfóníuhljómsveitin var frá
upphafi mjög jákvæð. Hluti skýr-
ingarinnar er væntanlega að Sel-
tjarnarnes hefur verið eina sveit-
arfélagið utan Reykjavíkur til að
styrkja hljómsveitina fjárhags-
lega.“
- Hvernig hefur undirbúning-
ur tónleikanna farið fram?
„Við höfum fetað í fótspor at-
vinnumannanna í undirbúningn-
um. Fyrst æfði kórinn undir
stjórn kórstjórans Jóns Karls
Einarssonar. Eftir ákveðið æf-
ingatímabil kom hljómsveitar-
stjórinn inn í vinnunna. Að lokum
hittum við svo sjálfa
hljómsveitina. Við höf-
um haft afskaplega
gaman af því að kynn-
ast nýjum vinnubrögð-
um og finnst að sjálf-
sögðu mikill heiður að
fá að syngja með sjálfri Sinfóníu-
hljómsveitinni. Um leið eru tón-
leikarnir að mínu viti visst fram-
hald af því sem við höfum verið
að gera með kröfuharðari verk-
efnum. Hljómsveitirnar hafa að
vísu ekki verið stórar og er
ástæðan fyrst og fremst hversu
dýrt er að vera með mjög marga
hljóðfæraleikara. Nú fáum við
sjálfa Sinfóníuhljómsveitina í lið
með okkur og þurfum ekkert að
borga.“
- Hvernig hefur samvinnan við
hljóðfæraleikarana gengið?
„Okkur hefur verið tekið mjög
vel af allri hljómsveitinni. Mesta
► Páll Gunnlaugsson, formaður
Selkórsins, er fæddur 21. mars
árið 1952. Páll er stúdent frá
Meimtaskólanum við Hamrahlíð
árið 1973 og arkitekt frá Tækni-
háskólanum í Lundi árið 1979.
Eftir að námi lauk hefur Páll
rekið teiknistofur ásamt öðrum.
Hann hefur rekið teiknistofuna
Arkitektar-Skógarhlið með öðr-
um frá árinu 1983.
Eiginkona Páls er Hrafnhild-
ur Óttarsdóttir, líffræðingur og
kórfélagi í Selkórnum. Páll og
Hrafnhildur eiga þijú börn á
aldrinum 14 til 26 ára.
lífreynslan felst hins vegar í því
að sjá fagmennina að verki. Við
höfum verið að hjakka áfram með
blóði, svita og tárum í verkunum
alveg frá því í haust. Svo koma
fagmennimir og vinna verkið al-
veg óhikað.“
- Hvers konar verk verða flutt
á tónleikunum?
„Kórinn flytur tvö verk á tón-
leikunum, C-dúr Messu Mozarts
og Requiem eftir Gabriel Fauré
og hefur hvorugt verkanna verið
flutt áður með stórri hljómsveit á
íslandi. Hið fyrra er létt og
skemmtilegt og eins og nafnið
gefur til kynna er hið síðara sálu-
messa. Gaman hefur verið að fást
við bæði verkin enda henta þau
kórnum vel. Með okkur syngja
fjórir einsöngvarar Þuríður G.
Sigurðardótth sópran, Alina Du-
bik alt, Snorri Wium tenór, og
Aðalsteinn Einarsson bassi. Aðal-
steinn er búsettur í Ameríku og
kemur sérstaklega heim til að
syngja á tónleikunum. Organisti
á tónleikunum er Friðrik Vignir
Stefánsson, fyrrverandi stjórn-
andi Selkórsins og núverandi
organisti á Grundarfirði. Að-
alkarlinn er svo auð-
vitað Bernhardur
Wilkinson, stjórnandi
Sinfóníuhlj ómsveitar-
innar.“
- Af hverju eru
tónleikarnir ekki
haldnir á Nesinu?
„Seltjamarneskirkja er of lítil
fyrir jafn stóran hóp flytjenda.
Háskólabíó er heldur stórt fyrh
utan að verkin henta mjög vel til
khkjuflutnings. Langholtskhkja
varð fyrir valinu enda afar gott
tónleikahús."
- Hefur kvíðinn gert vart við
sigsíðustu daga?
„Æfingar hafa verið strembnar
og kvíðinn hefur ekki verið fjarri
síðustu dagana. Á hinn bóginn er
ég nokkuð viss um að okkur á eft-
ir að takast ágætlega upp. Ann-
ars er ekkert annað fyrh fólk að
gera en að koma og heyra sjálft.“
Með blóði,
svita og
tárum