Morgunblaðið - 31.10.1998, Síða 11

Morgunblaðið - 31.10.1998, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 11 FRÉTTIR Leiðrétting í GREIN frá Sjómannafélagi Reykjavíkur í Morgunblaðinu sl. föstudag urðu þau mistök að því var haldið fram að bróðir sýslumannsins í Hafnarfirði gegndi ábyrgðarstöðu hjá íslenska álfélaginu hf. Þetta er rangt og var byggt á röngum upplýs- ingum. Beðist er velvirðingar á þessu. Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykja- víkur. Morgunblaðið/Ásdís BJÖRN Bjarnason, án efa netvæddasti ráðherra landsins, skautaði um nýjan og víðfeðman vef menntamála- ráðuneytisins á kynningarfundi í gær. Ný heima- síða fyrir mennta- málaráðu- neytið MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur tekið í notkun nýja og aðgengilegri heimasiðu þar sem meðal annars birtast úr- skurðir og svör ráðuneytisins við erindum og allt útgefið efni þess. Stefnt er að því að hægt verði að fylla út umsóknir um styrki eða annað sem sótt er um til ráðuneytisins á vefnum. Björn Þór Jónsson tölvunar- fræðinemi hefur unnið að hönnun nýju heimasíðunnar. Hann segir að samtals séu um 1300 vefsíður á vegum ráðu- neytisins og er þá ótalið efni á eigin síðu ráðherrans og öðr- um tengdum síðum. Á nýju vefsíðunni er meðal annars birt yfirlit um árangur í 59 stefnumálum sem kynnt voru í bæklingi árið 1996. Að sögn Björns Bjarnason, menntamálaráðherra, hefur þeim stefnumálum flestöllum verið náð eða að vel hefur mið- að í átt til þeirra. Upplýsingum um framgang þeirra verður bætt inn á netið reglulega. Borgarráð vegna umframkostnaðar við Iðnó Skýringa endurbygg- ingarnefndar óskað BORGARRÁÐ hefur óskað eftir skýringum frá endurbyggingar- nefnd Iðnó á því hverju sæti að kostnaður við bygginguna hefúr farið um fjörutíu milljónir króna fram úr áætlunum og hvers vegna ekki hafi verið leitað eftir fjárveit- ingu frá borgarráði þegar ljóst var að kostnaðurinn yrði umfram áætl- anir. Árni Þór Sigurðsson, aðstoðar- maður borgarstjóra, sagði að beðið væri eftir greinargerð frá endur- byggingarnefndinni, en af þeim lauslegu svörum sem fengist hefðu virtist sem að skýringar á auknum kostnaði lægju í lyftu fyrir fatlaða, í aukinni einangrun í húsinu vegna tvíþættrar starfsemi, auk þess sem farið hefði verið í innréttingu á ris- inu, sem ef til vill hefði ekki verið gert ráð fyrir á þessu stigi máls- ins. „Mér sýnist svona að þetta séu þeir þættir sem valda því að það hefur verið farið fram úr, en eins og ég segi þá bíðum við eftir end- anlegri greinargerð frá nefndinni," sagði Árni Þór. Upphafleg kostnaðaráætlun vegna endurbyggingar Iðnó var upp á 240 milljónir króna, sam- kvæmt upplýsingum Árna Þórs, en eftir að hún var endurskoðuð til lækkunar var gert ráð fyrir að kostnaðurinn yrði 205 milljónir króna. Núna lægi fyrir að kostnað- urinn við endurbygginguna yi'ði 241 milljón króna eða tæpar 40 milljónir umfram áætlanh-. Ami sagði þennan umframkostnað mjög bagalegan ekki síst í ljósi þess að ekki hefði verið farið með beiðni um viðbótarframlög fyrir borgarráð. Fornleifastofnun íslands í nýtt húsnæði Samstarf við skoska háskóla undirbúið FORNLEIFASTOFNUN íslands gengst um helgina fyrir samræðum íslenskra og skoski’a fomleifafræðinga um samstarf stofnunarinnar við fjóra háskóla í Skotlandi. Stofnunin hefur nú fengið nýtt húsnæði til af- nota, á Bárugötu 3 í Reykjavík. Fornleifafræðingarnir- Adolf Frið- riksson og Orri Vésteinsson standa að þessum samræðum við háskólana í Edinborg, Glasgow, St. Andrews og Stirling og taka fulltrúar þeirra allra þátt í viðræðunum ásamt fulltrúa frá Cambridge. Adolf Friðriksson greindi Morgunblaðinu frá því að kannað yrði hvort grundvöllur væri fyrir samstarfi um rannsóknir, kennslu og kynningu á þeim menn- ingararfi sem sameiginlegur væri löndunum frá víkingatímanum, en hann væri margháttaður. Vinnuhópurinn er kallaður INIS, sem stendur fyrir Iceland and the Northern Isles of Scotland, ísland og norðureyjar Skotlands, og sagði Adolf að síðar hefði komið í Ijós að inis þýddi á forn-gelísku eyja en um það ætti samstarfið einmitt að snú- ast. Á fundinum um helgina, sem Rannsóknaráð Islands hefur styrkt, munu fornleifafi’æðingarnir greina frá ýmsum rannsóknum sínum í hvoru landinu um sig auk þess sem þeir ræða samstarfshugmyndimar. ---------------------------- Athugasemd við grein ATHUGASEMDIR vegna greinar Jónasar Garðarssonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur, í Morgunblaðinu 30. október 1998: „Við viljum leiðrétta misskiln- ing greinarhöfundar þegar hann segir að sýslumaðurinn í Hafn- arfirði eigi bróður í ábyrgðar- stöðu hjá ÍSAL. Meðal 510 starfsmanna ÍSAL á sýslumað- urinn í Hafnarfirði engan bróð- ur. Hugsanlegt er að greinarhöf- undur rugli saman nöfnunum Sophusson, sem er föðumafn sýslumannsins í Hafnarfirði og Sófusson, sem er föðumafn inn- kaupastjóra ÍSAL. Einnig viljum við gera at> hugasemd við það að nafn látins föður forstjóra félagsins er dregið inn í þessa umræðu. íslenska álfélagið hf. Iðnó án opinberra styrkja - Athugasemd LEIKHUSSTJORI Loftkastal- ans hefur undanfarna daga kvart- að sáran í fjölmiðlum vegna þess sem hann telur vera styrkveiting- ar Reykjavíkurborgar til Leikfé- lags íslands sem rekur menning- arstarfsemi í Iðnó. Leikhússtjór- inn telur að 11 milljónum hafi verið veitt í styrk til Leikfélags- ins í formi sviðsbúnaðar. Stað- reyndir málsins em að Leikfélag Islands hefur engan styrk þegið frá Reykjavíkurborg og hefur keypt allan færanlegan sviðsbún- að fyrir eigið fé eins og um var samið. Milljónirnar sem leikhús- stjóri Loftkastalans telur vera styrk til leikfélagsins voru notað- ar af Reykjavíkurborg til að greiða fyrir fastan búnað í húsinu svo sem rár í lofti, raflagnir, lúgu í sviðslofti og fleiri hluti sem ekki er mögulegt að taka úr húsinu eða nota annars staðar. Búnaðurinn er í eigu Reykjavíkurborgar og fylgir Iðnó. Ljóskerfi, hljóðkerfi, sviðstjöld, stólar, pallakerfi í sal og annar laus búnaður var keypt- ur fyrir fé Leikfélags íslands. í umræðunni hefur leikhússtjór- inn vegið ómaklega að starfsheiðri Iðnó. Þau ummæli dæma sig sjálf enda em í þessum mánuði um það bil 40 sýningar á fjölunum í Iðnó, sem skarta mörgum bestu lista- mönnum þjóðarinnar. Fyrir þessa metnaðarfullu menningardagskrá hlýtur Leikfélag íslands enga styrki frá hinu opinbera. Eiríkur Bergmann Einarsson, framkvæmdastjóri Leikfélags Is- lands í Iðnó. Loðfóðraður kvenskór í svörtu leðri. Stærðir 37-42. Loðfóðraður kvenskór í svörtu leðri. Stærðir 37-42. Grandagarði 2 - Rvík. Sími 552-8855 og 800-6288 0PIÐ VIRKA DAGA 8-18 LAUGARDAGA 10-14 Vatnsheldur með lausum einangrunarsokk. Stærðir 41-46. Loðfóðraðir kuldaskór í svörtu leðri með rennilás á hliðinni. Stærðir 40-46. Vandaðir gönguskór með góðum sóla. Cotex- öndunareiginleikar. Stærðir 36-46. SENDUM UM ALLT LAND

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.