Morgunblaðið - 31.10.1998, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Brýnasta verkefni samfylkingarinnar snýst nú um að ná samkomulagi um framboðsmál
Alpýðuflokkur, Al-
þýðubandalag og
Kvennalisti, flokkarnir
þrír sem stefnt hafa að
sameiginlegu framboði fyiár al-
þingiskosningarnar í vor, auk Jó-
hönnu Sigurðardóttur formanns
Þjóðvaka, hafa enn ekki komið sér
saman um hvaða aðferðir verði
notaðar til að velja fulltrúa á fram-
boðslista samfylkingarinnar. Níu
manna nefndir flokkanna þriggja í
öllum kjördæmum landsins sem
undirbúa eiga framboðið eru flest-
ar byrjaðar að starfa þó mest hafi
borið á vinnu nefndanna í Reykja-
víkur- og Reykjaneskjördæmi.
Þetta eru stærstu og að mati
rnargra mikilvægustu kjördæmin
og segja sumir að þar kristallist sá
ágreiningur sem sé á milli flokk-
anna þriggja um aðferðir til að
velja frambjóðendur á lista sam-
fylkingarinnar. Þar vilji Alþýðu-
flokkurinn prófkjör með eins fáum
takmörkunum og hægt er en Al-
þýðubandalagið að flokkarnir fái
úthlutað ákveðnum sætum á listan-
um og ákveði síðan sjálfir aðferðir
til að velja í þau sæti. Kvennalist-
inn vilji hins vegar tryggingu fyrir
ákveðnum þingsætum, tveimur í
Reykjavík og einu í Reykjanesi,
eða að minnsta kosti þremur á
landsvísu, en að öðru leyti sé hann
opinn fyrir öllum hugmyndum um
framboðsaðferðir. Jóhanna Sigurð-
ardóttir stefhir hins vegar á efstu
sæti listans í Reykjavík.
Það fór reyndar eftir viðmæl-
endum blaðamanns hvað gert var
mikið úr ágreiningi flokkanna í
Reykjavík og á Reykjanesi og
sögðu sumir að níu manna nefnd-
imar í þessum kjördæmum væru
einfaldlega að taka sér góðan tíma
til þess að fara yflr alla hugsanlega
möguleika og tillögur sem lagðar
væra fram. Eðlilegt væri að menn
væra með mismunandi skoðanir og
að líf samfylkingarinnar héngi síð-
ur en svo á bláþræði.
Aðrir vildu þó meina að ágrein-
ingur um framboðsaðferðir í þess-
um kjördæmum væri mikill og að
hann gæfi skýrt til kynna þá valda-
baráttu sem væri milli A-flokk-
anna. Átökin væra með öðrum orð-
um um það hvort Össur Skarphéð-
insson, fyrsti þingmaður Alþýðu-
flokksins í Reykjavík, hreppti
fyrsta sætið þar eða Svavar Gests-
son, fyrsti þingmaður Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík. Alþýðu-
flokksmenn vildu þó láta reyna á
styrk sinn með prófkjöri en sam-
kvæmt heimildum blaðamanns er
Svavar mótfallinn þeirri leið. Hann
vilji láta handraða á listann og að
Margrét Frímannsdóttir, formaður
Alþýðubandalagsins, styðji hann í
því. Þeir sem tala um alvarlegan
ágreining era þó margir hverjir á
því að sátt eigi eftir að nást um
þessi mál. Tíminn til þess sé enn þá
nægur.
Ekki langt í niðurstöðu
á Reykjanesi
En burtséð frá eðli ágreiningsins
um framboðsleiðir er ljóst að vandi
samfylkingarinnar snýst nú fyrst
og fremst um að flokkarnir komist
að samkomulagi um aðferðir við
val á lista. Búið er að ná saman um
málefnaskrá flokkanna en enn er
þó eftir að ganga frá verkefnaskrá
samfylkingarinnar til næstu fjög-
urra ára og útfæra þar mikilvæg
málefni eins og auðlindamál, utan-
ríkismál og ríkisfjármál, að sögn
Ágústs Einarssonar, þingmanns
jafnaðarmanna og full- _____________
trúa í svokallaðri „Líklegt að
stýrinefnd sameiginlegs Kvennalistinn
framboðs. Leggur hann «. «„
áherslu á að þeirri vinnu
sé enn ólokið.
Morgunblaðið/Þorkell
FORYSTUSVEITIR tlokkanna í samfylkingunni fjalla nú um hvernig ná megi samkomulagi um framboð. Frá vinstri: Guðný Guðbjörnsdóttir, Sig-
hvatur Björgvinsson og Margrét Frímannsddttir.
Kvennalistakoniir
taka ákvörðun um
þátttöku í dag
Nokkur óvissa ríkir um niðurstöðu lands-
fundar Kvennalistans í samfylkingarmál-
um í dag en síðdegis er stefnt að endan-
legri ákvörðun um hvort Kvennalistinn eigi
að taka þátt í sameiginlegu framboði.
Meiri líkur virðast þó á því að þær
samþykki að ganga til liðs við sam-
fylkinguna. Arna Schram kynnti sér
stöðuna í samfylkingarmálum.
niðurstaðan á Reykjanesi „hanga
saman við“ niðurstöðuna í Reykja-
vík enda væri samráð milli níu
manna nefndanna í báðum þessum
kjördæmum og reyndar allra kjör-
dæmisnefndanna á landinu.
Eins og kunnugt er hafa viðræð-
_______ ur þær sem fram hafa
farið í níu manna nefnd-
inni í Reykjavík verið
gerðar opinberar að ein-
hverju leyti og er
skemmst að minnast
Fulltrúar í níu manna nefndinni í
Reykjaneskjördæmi, sem blaða-
maður hafði samband við, vildu
sem minnst segja um þær viðræð-
ur sem þar færa fram um fram-
boðsaðferðir en gáfu í skyn að ekki
væri langt í niðurstöðuna. Hins
vegar var bent á að líklega myndi
þess munnlega samkomulags sem
gert var á milli fulltrúa flokkanna
um að ákveðið jafnræði skuli ríkja
við röðun í öragg sæti á framboðs-
lista samfylkingarinnar í Reykja-
vík. Þá hefur komið fram að hug-
myndin um galopið prófkjör með
engum takmörkunum komi alls
ekki til greina og að nú sé helst
rætt um þær leiðir sem áður vora
nefndar, þ.e. handröðun á lista
annars vegar og prófkjör með
ákveðnum leikreglum hins vegar,
jafnvel í anda prófkjörs Reykja-
víkurlistans fyrir síðustu borgar-
stj ómarkosningar.
Rökin fyrir prófkjöri segir Ágúst
Einarsson vera þau að með þeim
fái kjósendur færi á því að taka
þátt í vali á framboðslista en auk
þess skapi það möguleika fyrir
nýja fulltráa að komast í örugg
þingsæti. „Mín skoðun er sú að ef
að þetta framboð ætlar sér að ná
35-45% íylgi verði að treysta fólk-
inu til að velja fulltrúa á framboðs-
lista. Allt annað er bandalag
flokkseigenda og núverandi þing-
manna. Það tel ég ekki vera gæfu-
legt upphaf í þessu sameiningar-
ferli,“ segir hann.
Fylgjendur þeirrar leiðar að
handraða á listann nefndu það m.a.
sem rök að sameiginlegt framboð
væri á þessu stigi ekki nægilega
þroskað til þess að fara í opið próf-
kjör með ákveðnum takmörkunum
og því væri nær að handraða á list-
ann eins og R-listinn gerði fyrir
borgarstjórnarkosningarnar árið
1994. Eðlilegt væri að læra af
reynslu R-listans. Aðrir vildu þó
meina að krafan um fyrsta sætið
væri eina ástæðan fyrir því að Al-
þýðubandalagið vildi láta handraða
á listann í Reykjavík.
Alþýðubandalagsmenn
ræða málin í dag
Aðalfundur miðstjórnar Alþýðu-
bandalagsins verður haldinn í dag
og er á þeim fundi gert ráð fyrir
því flokkurinn ákveði formlega að
taka þátt í sameiginlegu framboði
og að formaðurinn fái þar
með heimild til þess að
vinna áfram að undirbún-
ingi framboðsins. Niður-
staða landsfundar ________
Kvennalistans um það
hvort Kvennalistinn verði með í
sameiginlegu framboði er á hinn
bóginn ekki eins öragg.
Guðný Guðbjörnsdóttir, þing-
maður Kvennalistans, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að kvenna-
listakonur hefðu viljað að fram-
boðsmál samfylkingarinnar væra
„Galopið próf-
kjör strax út
úr myndinni“
sem skýrast fyrir landsfundinn
þannig að þær vissu hvað „héngi á
spítunni“.
Nú er hins vegar ljóst að eina
tryggingin um þingsæti sem
kvennalistakonur hafa fyrir lands-
fundinn er samkomulagið um jafn-
ræði flokkanna í Reykjavík eins og
áður var minnst á. Um heiðurs-
mannasamkomulag er að ræða, að
sögn Steinunnar V. Óskarsdóttur,
fulltráa Kvennalistans í níu manna
nefndinni í Reykjavík, og túlkar
hún það reyndar sem svo að
Kvennalistanum séu tryggð þing-
sæti á listanum í Reykjavík.
Vandamálið er hins vegar það
hvort hægt sé að treysta þessu
samkomulagi og segja sumar
kvennalistakonur að ákvörðun
landsfundarins í dag muni einmitt
snúast um þá spurningu. Fulltrúai'
Kvennalistans í níu manna nefnd-
inni hafa þó haldið því fram fullum
fetum að samkomulaginu sé hægt
að treysta.
Þótt þær kvennalistakonur sem
blaðamaður náði tali af vildu ekki
fullyrða um niðurstöðu landsfund-
arins mátti lesa úr orðum þeirra að
meiri líkur en minni væra á því að
sameiginlegt framboð yrði ofaná.
Einkum vegna þess að þær konur
sem hefðu verið andvígar samfylk-
ingunni væra annað hvort gengnar
úr Kvennalistanum eða hefðu
dregið sig í hlé. Þær konur sem nú
væra virkar í Kvennalistanum
væra hlynntar sameiginlegu fram-
boði og það væra einmitt þær kon-
ur sem kæmu á landsfundinn. Talið
er að yfir sjötíu kvennalistakonur
________ sæki landsfundinn um
helgina og eftir umræð-
ur um samfylkingarmál í
dag verður tekin endan-
leg ákvörðun um fram-
" haldið. Ekki er líklegt að
gengið verði til atkvæða heldur er
sennilegra að reynt verði að kom-
ast að sameiginlegri niðurstöðu
eins og venjan er hjá Kvennalistan-
um. Á morgun er síðan ætlunin að
ræða um framtíð Kvennalistans út
frá þeirri niðurstöðu sem tekin
verður í dag.