Morgunblaðið - 31.10.1998, Page 14
GSP
14 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Afkoman ræð
Fiskur er okkar helsta útflutningsvara. Aflinn sem veiðist á íslandsmiðum
er nær allur seldur á alþjóðlegum mörkuðum. Afkoma Islendinga ræðst
þess vegna að stórum hluta af því hvort erlendir neytendur velja okkar
sjávarafurðir fremur en afurðir annarra þjóða.
íslendingar framleiða einungis 2% af þeim sjávarafurðum sem í boði
eru á alþjóðamörkuðum. Við eigum í harðri samkeppni við öflugar
þjóðir og því er nauðsynlegt að geta uppfyllt kröfur neytenda, bæði
hvað varðar verð og gæði afurðanna.
íslensk fagþekking er ómetanleg auðlind sem tryggir okkur gæðin sem
til þarf. Við höfum reyndar áhafnir, hæít landvinnslufólk og útvegsmenn
sem bæði kunna skil á eðli sjávarútvegs og hafa þekkingu á alþjóðlegum
mörkuðum.
Útflutningur er íslenskri þjóð lífsnauðsyn. Við flytjum út 97% af öllum fiski sem við veiðum á íslandsmiðum. Helmingur
gjaldeyristekna og 70% vöruútflutnings kcmur úr sjávarútvegi. Helstu markaðssvæði okkar eru á Bretlandscyjum,
í Bandaríkjunum, Þýskalandi og í Suður-Evrópu auk þess sem Asíulönd verða æ mikilvægari markaðslönd, einkum Japan.
Bandaríkin Bretland
Norður-Evrópa
Rússland
P
Japan
Grálúða
Karfi
Rækja
Loðna
Nígería
Austur-Asía
Grálúða
Karíi
Loðna
Kortið sýnir helstu útflutningssvæði íslendinga. Fiskurinn er nýttur á margvíslegan hátt; saltaður, frystur, flakaður
eða bræddur. Neytendur eru ólíkir í útliti og háttum og neyslumynstur ólíkt eftr heimshlutum. Þekking á erlcndum
mörkuðum er því grundvallaratriði fyrir afkomu sjávarútvegsins.