Morgunblaðið - 31.10.1998, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Framleiðendur á matvælamarkaði taka höndum saman
Boða stofnun nýrrar
dreifingarmiðstöðvar
MATVÆLAFYRIRTÆKIN Ágæti, Kaupfélag Eyfirðinga, Kjötumboðið,
Mjólkurbú Flóamanna, Mjólkursamsalan í Reykjavík, Osta- og smjörsalan,
Sölufélag garðyrkjumanna og Sláturfélag Suðurlands, hafa stofnað félag
um stofnun nýrrar dreifingarmiðstöðvar í Reykjavík fyrir kæli- og frysti-
vörur en frá miðstöðinni verður vörum dreift til viðskiptavina um allt land.
Á blaðamannafundi sem boðað
var til í gær í húsakynnum Mjólkur-
samsölunnar var félagið kynnt. Þar
kom fram m.a. að ýtarleg könnun
verði gerð á næstu mánuðum á
rekstrargrundvelli slíkrar stöðvar
og íyrirhugað er að hefja rekstur
hins nýja fyrirtækis strax í kjölfar-
ið, eða þegar á næsta ári. „Við ætl-
um að hafa hraðar hendur við stofn-
un miðstöðvarinnar," sagði Birgir
Guðmundsson stjórnarformaður
hins nýja félags.
Félagið er sjálfstætt hlutafélag
að hans sögn og hafa félögin lagt
fram nokkrar milljónir í stofnkostn-
að þess.
Birgir sagði að sambærilegar
dreifingarmiðstöðvar í nágranna-
löndunum hafi víða náð góðum ár-
angri, vegna hagræðingar í rekstri,
bættrar vörumeðferðar og aukinn-
ar þjónustu við kaupmenn og aðra
viðskiptavini. „Það er augljóst hag-
ræði af því að hafa sameiginlega
dreifingarmiðstöð. Þannig er t.d.
hægt að aka öllum vörum frá fyrir-
tækjunum sameiginlega í búðir eða
annað, í stað þess aka vörunum í
mörgum bílum eins og nú er gert.“
Að sögn Birgis er gert ráð fyrir
sérhönnuðu húsnæði og sérhæfðum
búnaði til geymslu hvers kyns kæli-
og frystivöru. Öðrum framleiðend-
um slíkrar vöru verður boðin þjón-
usta hins nýja fyrirtækis. í athugun
er að sögn Birgis hvort byggt verð-
ur húsnæði undir starfsemina eða
hvort leitað verður að öðru hentugu
húsnæði.
Borið undir
Samkeppnisstofnun
Málið var borið undir aðila hjá
Samkeppnisstofnun en engin at-
hugasemd var gerð við fyrirhugaða
dreifingarmiðstöð.
Dreifingarmiðstöðin verður sam-
eiginlegt þjónustufyrirtæki en ekki
er gert ráð fyrir að það tengist með
innkaupum né sölu einstakra vöru-
tegunda.
I stjóm félagsins auk Birgis sitja
þeir Guðlaugur Björgvinsson frá
MS, Pálmi Haraldsson frá SFG,
Steinþór Skúlason SS, Helgi Ó.
Óskarsson Kjötumboðinu og Þórar-
inn Sveinsson KEA.
Morgunblaðið/Ásdís
BIRGIR Guðmundsson stjórnarformaður félagsins skýrir frá vænt-
anlegri stofnun dreifingarmiðstöðvar. TU hægri á myndinni er
Guðlaugur Björgvinsson frá Mjólkursamsölunni.
Verðbréfaþing
Héðinn
hækkar
um 26,7%
VIÐSKIPTI með hlutabréf á
Verðbréfaþingi Islands námu
tæpum 57 milljónum króna í
gær. Mest viðskipti voru með
bréf Eimskipafélagsins fyrir
10,5 milljónir króna. Héðinn -
smiðja hækkaði mest, eða um
26,7%. Verð bréfa SR-mjöls
lækkaði um 8,8%. Gengi flestra
fyrirtækj'i lækkaði í gær, þá
sérstaklega sjávarútvegsfyrir-
tækja. Hlutabréfavísitala sjáv-
arútvegs lækkaði um 2% og
Urvalsvísitala aðallista lækkaði
um 1,4%. Hlutabréf íslenskra
aðalverktaka voru skráð á
Vaxtarlista í gær. Einungis ein
lítil viðskipti voru með bréf
fyrirtækisins á genginu 1,90.
Velta á langtímamarkaði
nam rúmlega einum milljarði
króna í gær. Ávöxtunarkrafa 2
ára óverðtryggðra ríkisbréfa
hækkaði um 9 punkta en verð-
bólguálag ríkisbréfa er nú um
2,35% á spariskírteini með
sambærilegan líftíma.
Maras Linija Ltd. bregst við efnahagserfíðleikum í Rússlandi
Hættir siglingum til
Bandarískt fyrirtæki
vill kaupa 10% í Flögu hf.
St. Pétursborgar
HLUTHAFAFUNDUR í hugbún-
aðarfyrirtækinu Flögu hf. í gær gaf
stjóm fyrirtækisins heimild til að
ganga til samninga við bandarískt
fyrirtæki um markaðssamvinnu og
hlutafjárkaup. Jafnframt var ákveð-
ið að auka hlutafé í fyrirtækinu úr
36 í 42 milljónir króna eða um tæp
17% vegna fyrirhugaðra hlutafjár-
kaupa bandaríska fyrirtækisins.
Flaga framleiðir tæki til rann-
sókna á svefni í lækningaskyni en
bandaríska fyrirtækið sérhæfir sig í
ÁKVEÐIÐ hefur verið að flytja
starfsemi Ferðaskrifstofu íslands úr
Skógarhh'ð í húsnæði móðurfélags-
ins, Úrvals-Útsýnar, í Lágmúla.
Að sögn Harðar Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra Úrvals - Útsýn-
ar, er ekki um formlega sameiningu
fyrirtækjanna að ræða, heldur miða
breytingarnar fyrst og fremst að
framleiðslu tækja til meðferðar á
kæfisvefni. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hefur bandaríska
fyrirtækið áhuga á að kaupa 10%
hlutafjár í Flögu fyrir eina milljón
dollara eða tæplega sjötíu milljónir
króna. Samkvæmt tilboðinu telur
bandaríska fyrirtækið markaðsvirði
Flögu því vera um 700 milljónir
króna. Ekki er hins vegar gert ráð
fyrir því að nýjum fjárfestum innan-
lands verði gefinn kostur á að taka
þátt í hlutafjáraukningunni.
því að ná fram auknu rekstrarhag-
ræði m.a. með því að samnýta hús-
næðið í Lágmúla sem hefur verið
stækkað og selja eignina í Skógar-
hlíð. Félögin ætla hins vegar að
sameina ákveðna rekstrarþætti og
hyggjast t.a.m. taka höndum saman
og styrkja þá starfsemi sem snýr að
ráðstefnuhaldi á Islandi.
MARAS Linya, dótturfélag Eim-
skips, hefur ákveðið að hætta við-
komum í St. Pétursborg vegna
breytinga á efnahagsástandi í
Rússlandi og samdráttar í flutning-
um af þeim sökum. Akvörðunin
verður endurskoðuð næsta vor en
Maras Liníja mun sem fyrr sigla
vikulega til Riga í Lettlandi og
bjóða flutningaþjónustu til og frá
Rússlandi um Riga.
Erlendur Hjaltason, fram-
kvæmdastjóri utanlandssviðs Eim-
skips, segir að með þessum breyt-
ingum bregðist Eimskip og Maras
Linija við því efnahagsástandi og
þeim erfiðleikum sem tengjast
ástandinu í Rússlandi. „Maras
Linija hefur siglt til St. Péturs-
borgar í sjö ár en hefur nú ákveðið
að hætta siglingum þangað í vetur.
Þessi siglingaleið hefur að stórum
hluta byggst á innflutningi til
Rússlands en vegna efnahagserfið-
leikanna þar hefur verulega dregið
úr honum og hafa keppinautar
okkar á leiðinni einnig dregið úr
starfsemi sinni. Það gæti liðið ein-
Obreytt þjón-
usta í Eystra-
saltslöndum
hver tími þar til ástandið þar
eystra batnar svo að hægt verði að
hefja beinar siglingar þangað að
nýju, a.m.k. er ég hræddur um að
ástandið batni ekki á næstu mán-
uðum.“
Flutningafyrirtæki í eigu Eim-
skips, MGH Ltd., hefur séð um
þjónustu við nokkur skipafélög í
Rússlandi og rekið skrifstofur í St.
Pétursborg og Moskvu. Erlendur
segir að þær muni nú draga úr um-
svifum sínum til að mæta þessum
breyttu aðstæðum, m.a. með fækk-
un starfsmanna.
Siglingar til Riga í jafnvægi
Erlendur segir að breytingar
séu ekki fyrirhugaðar á þjónustu
Maras Linija við Eystrasaltsríkin
og mun félagið sigla vikulega til
Riga í Lettlandi eins og verið hef-
ur. „Siglingar þangað hafa verið í
góðu jafnvægi. Sú leið byggist á
staðbundnum mörkuðum í Eystra-
saltsríkjunum sjálfum þar sem enn
er hagvöxtur.“
Afkoma Maras Linija hefur ekki
verið viðunandi síðastUðin tvö ár og
á Erlendur von á að tap verði
einnig af rekstrinum á þessu ári.
„Þessar aðgerðir munu bæta af-
komuna á árinu 1999,“ segir Er-
lendur.
Ferðaskrifstofa íslands flytur
Kosningaskrifstofa
G ummfD Mrmmím?
opnar í Skothúsinu, Keflavík
í dag 31. okt. kí. 15.
Opíð kvöld fyrír konur í Skolhúsinu
míðvíkudagínn 4. nóv. Nánar auglýst síðar.
Skrifstofan er opín vírka daga kl. 17-22.
Laugardaga kl. 12-19.
Sunnudaga kl. 13-17.
Alltaf heítt á könnunni.
Veljum kraftmikinn
forystumann í 1. sæti