Morgunblaðið - 31.10.1998, Síða 26

Morgunblaðið - 31.10.1998, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ BRUNINN I GAUTABORG Svíar harmi slegnir eftir að tugir ungmenna létust í bruna í Gautaborg „Salurinn eins og sprengia hafí sprungið“ Fréttin um brunann barst hratt um hverfíð og fólk streymdi að þar sem björgunarmenn voru að störfum og ungmenni hlupu örvilnuð um. Sigrún Davíðsdóttir lýsir atburðum gærdagsins í Gautaborg og aðstæðum á slysstað. „HVAÐ gerir maður? Pað eru engar reglur til að fara eftir við svona að- stæður“, segir Sten Schááf björgun- armaður í samtali við fréttamenn, en hann var einn þeirra fyrstu sem komu að brennandi samkomustaðn- um í Hisinge í Gautaborg. Það fer tvennum sögum af aðkomunni á staðnum. Frásagnir eru um óreiðu og átök, þegar örvilnaðir unglingar reyndu að ryðjast inn í brennandi bygginguna en voru stöðvaðir af lög- reglu, sem óttaðist um öryggi krakk- anna. Fréttin flaug strax um hverfið og að streymdu óttaslegnir aðstand- endur, sem lögreglan þurfti einnig að takast á við. „Aðstæður voru eng- ar líkur,“ segir Scháaf. Aðrir segja að allt hafi farið eins vel fram og bú- ast mátti við undir þessum kringum- stæðum. Orðrómur um að um íkveikju hefði verið að ræða dofnaði er leið á daginn og talið var líklegra að eldurinn hefði kviknað út frá diskóljósi er sprakk. Talað er um að 300-400 ungmenni hafi verið að skemmta sér í húsnæði, sem aðeins var ætlað 150 manns. Ofurþrengsl áttu sinn þátt í að svo hörmulega fór. Bruninn varð í innflytjendahverfi og innan dyra voru ki’akkar af nítján þjóðernum, flesth’ frá þjóðunum í Júgóslavíu fyrrverandi og frá Sómal- íu, böm flóttamanna, sem hafa leitað til Svíþjóðar eftir friðsælu lífi. Þó að slökkvi- og björgunarlið ásamt lögregla hafi komið á staðinn nánast umsvifalaust máttu menn lít- ið við eldinum, sem breiddist út með leifturhraða. „Þetta var ekki líkt neinum venjulegum eldsvoða," segir unglingurinn Muamer Jukapovic, sem kom of seint að skemmtuninni, en varð í staðinn sjónarvottur að hörmungunum. „Eldurinn magnaðist svo óskaplega ört.“ Lögreglan segir að það muni taka tíma að staðfesta eldsupptök, en allan daginn í gær var ýmist slegið úr eða í um það að orsökin kynni að hafa verið íkveikja. „Atburðir næturinnar eru jafn- óraunverulegir og Estóníuslysið var á sínum tíma,“ sagði Lars Leijonborg formaður Þjóðarflokksins og einmitt það slys kom upp í huga margra. Við- brögðin í Svíþjóð voru þau sömu. Fánar voru dregnir í hálfa stöng, kirkjur opnar um allt land, svo fólk gæti leitað þangað með hugsanir sín- ar, og í gær kl. 18 var haldin minn- ingarguðsþjónusta um hin látnu ung- menni í dómkirkjunni í Gautaborg. Göran Persson forsætisráðhen’a kom strax í gærmorgun á brunastaðinn, fór um hverfið og var í borginni í gær. I dag verður lögð fram minn- ingarbók í sænska þinghúsinu. Lífið í innflytjendahverfinu Samkomuhúsið, sem brann er í Hammarkullen, hverfi í Gautaborg þar sem mikið er af útlendingum, bæði innflytjendum og flóttamönn- um. Samkomuhúsið er í eigu félags Makedóníumanna, en þetta kvöld hafði hópur kúrdískra ungmenna leigt það til að halda samkvæmi í til- efni af Hrekkjavöku. Staðurinn hef- ur leyfi yfirvalda til að taka á móti 150 manns, en mun fleiri voru þama brunanóttina. Samkoman var í miðri viku vegna þess að krakkarnir voru í haustfríi. Engar staðfestar tölur hafa verið gefnar upp, en talað var um að þarna hefðu verið allt að 400 ungmenni á um 500 fermetrum. Hver ábyrgðina bar á samkomunni hefur enn ekki komið fram. Húsið var tvílyft, rauð- leit múrsteinsbygging og stóð við malbikað bílastæði, ótengt öðrum húsum. Nú eru aðeins vírbentar húsatóftimar eftir og salurinn þar sem krakkarnir dönsuðu er þakinn brunnum fótum, skóm, töskum og öðrum persónulegum munum í svörtum öskuþykkum vatnspollum. En á fimmtudagskvöldið streymdu að hópar ungmenna, sem halda mjög hópinn, bæði af því þau búa í sama hverfi og af því þau eiga það sameiginlegt að þau og fjöl- skyldur þeirra eru útlendingar. Tísk- an meðal þeirra em föt með íþrótta- sniði, úlpumar stuttar og þykkar, líkt og íslenskar verkamannaúlpur, og líkt og önnur ungmenni koma þau gjarnan saman til að skemmta sér. Stukku út um glugga Klukkuna vantaði stundaifijórð- ung í miðnætti, þegar boð bárust um Heimsókn Jacques Santer til Kína Rongji bindur vonir við Evrópumyntina Peking, Amstcrdam. Reuters. ZHU Rongji, forsætisráðhema Kína, tjáði Jacques Santer, forseta fram- kvæmdastjórnai’ Evrópusambands- ins (ESB), í gær að kínversk stjórn- völd byndu „miklar vonir við stöðug- leika“ hinnar sameiginlegu Evrópu- myntar, evrósins. Santer er nú í sex daga opinberri heimsókn í Kína, en það er í fyrsta sinn sem forseti fram- kvæmdastjómar ESB fer í slíka heimsókn frá því árið 1985. „Kína styður stofnun myntbanda- lagsins og bindur miklar vonir við stöðugleika hins nýja gjaldmiðils,“ segir kínverska Xinhua-fréttastofan Zhu hafa sagt Santer á fundi þeirra í Peking. Zhu sagði ennfremur að Kínverjar vonuðust til að evróið myndi „leika jákvætt hlutverk í því að stuðla að stöðugleika í hinu alþjóðlega fjár- málakerfi, og að aðildarríki ESB myndu leika jafnvel enn stærra hlut- verk í að ýta undir stöðugleika efna- hagsmála í heiminum." Ekki kom fram í frétt Xinhua hvort kínverska stjómin myndi skipta einhverju af 141 milljarða doll- ara gjaldeyrisforða sínum í evró eftir að það verður að veruleika eftir ára- mótin. Af fréttum í kínverskum ríkis- fjölmiðlum undanfarið hefur mátt ráða, að líklegt væri að hluta gjald- eyrisforða kínverska ríkisins yrði Á sjöunda tug ungmenna létust og um 180 slösuðust er eldur braust út í menningarmiðstöð í Gautaborg í Svíþjóð Þrjú til fjögur hundruð ungmenni á aldrinum 14 til 20 ára, innflytjendur og einnig Svíar, voru í makedónsku menningarmiðstöðinni er eldur kom upp um miðnætti Lokaður neyðarútgangur Reuters. ÖNGÞVEITI ríkti á brunastaðnum. Særð ungmenni og látin lágu á malbikuðu planinu en slökkviliðs- og björgunarmenn reyndu að hlúa að hinum særðu og krökkum og aðstandendum fórnarlamba í losti. SALURINN þar sem eldurinn kom upp var gjörónýtur og þeir sem þangað komu inn sögðu aðstæður vera líkt og sprengja hefði sprungið. persónulegir munir út um allt. Þakið hangir í tætlum ... En það er verst að horfa á dót krakkanna, allt kol- brunnið.“ Harmur um allt land Fréttin um brunann kom strax í fyrstu morgunfréttunum. Göran Persson forsætisráðherra ákvað strax að fara til Gautaborgar um morguninn í fylgd Björns von Sydow varnarmálaráðherra, sem er yfir björgunaraðgerðum. Borgaryfirvöld einbeittu sér að því að opna áfalla- miðstöðvar á tuttugu stöðum, bæði í kirkjum og samkomuhúsum. Um alla Svíþjóð voru kirkjur opnai’ og í hverfiskirkjunni í Hammarkullen streymdi fólk að allan daginn, kveikti á kertum og talaði saman. Á slysstaðnum var sama sagan, fólk streymdi að, lagði blómvendi og miða með hinstu kveðjum til hinna látnu ungmenna. Um 190 ungmenni voru á sjúkra- húsum víða um Gautaborgarsvæðið, auk þess sem tvö ungmenni voru flutt á sjúkrahús í Bergen og tólf önnur voru á sérdeildum sjúkrahúsa vegna bruna. Tíu voru í öndunarvélum. Slysanóttina létust sextíu, en í gær- kvöldi var tala látinna komin upp í 67. í dómkirkjunni í Gautaborg talaði Lars Eckerdal biskup og einnig Persson forsætisráðherra, sem minntist ungmennanna, sem hefðu átt lífið framundan, en væru nú svo hörmulega á brott hrifin. „Orð skipta ekki öllu máli, heldur að vera nálæg- ur,“ sagði hann um þennan versta bruna í Svíþjóð á okkar tímum. krakkar um innan um aðra er lágu þar. Innan dyra magnaðist eldui’inn með ómældum krafti. Fyrsta skref slökkviliðsmanna var að fara inn og bjarga krökkum úr brennandi bygg- ingunni. Reykköfurum tókst að bjarga um fjörutíu ungmennum úr logunum. Við innganginn stóð lög- reglan og varnaði krökkum að fara inn. Sögur herma að sumum hafi þó tekist að komast inn og bjarga félög- um sínum. En jafnframt því sem unnið var að því að bjarga krökkum úr brennandi byggingunni varð lögreglan að takast á við ættingja, sem streymdu að í leit að börnum sínum og krakka, sem í örvilnan leituðu vina, sem þeir vissu að hefðu verið í hinu brennandi húsi. „Þetta var ólýsanlegt verkefni," segir björgunarmaðurinn Scháaf. „Um leið og lögreglan bar út lík varð einnig að halda skyldmennum í skefjum og vin- um, sem héngu í hinum látnu.“ Það tók um þrjár klukkustundir að ráða niðurlögum eldsins og þá var hægt að taka til við að bera út líkin. Sextíu voru þá látnir. Björgunar- menn hafa látið í það skína að flest líkin hafi verið í litlum gangi þaðan sem enginn útgangur var. Þar höfðu þau hlaðist upp. Við svona aðstæður er það reykurinn sem banar. En hit- inn verður einnig gífurlegur, fer jafnvel upp í 600 gráður. Undir morgun var byggingin tæmd og þá fengu fyrstu fréttamennirnir að fara inn. „Salurinn er eins og sprengja hafi sprungið," sagði fréttakona sænska útvarpsins, er hún gekk um inni. „Hér liggja föt, skór og aðrir bruna í samkomuhúsinu. Fyrstu björgunar- og slökkviliðsmenn voru komnir á vettvang eftir aðeins nokkrar mínútur og nokkrum mínút- um síðar höfðu fimmtíu björgunar- menn bæst í hópinn. „Við sáum krakka uppi á húsinu, sem stukku niður og þeir stukku út um gluggana," sagði einn björgunar- mannanna. „Þeir stukku á okkur og á bílana.“ Á malbikuðu planinu hlupu breytt í evró í því skyni að minnka vægi Bandaríkjadollarans í honum. Neikvæð áhrif stjórnarskipta í Þýzkalandi? Hans Dijkstal, formaður frjáls- lynda flokksins í Hollandi, sem aðild á að stjórninni þar, sagðist í blaða- viðtali í gær óttast að hin nýja ríkis- stjóm jafnaðarmanna og Græningja í Þýzkalandi kynni að grafa undan stöðugleika og trúverðugleika Evr- ópumyntarinnar. „Ég er mjög áhyggjufullur yfir hættunni á fjárhagslegum óstöðug- leika sem stefna nýrrar ríkisstjómar í Þýzkalandi undir forystu jafnaðar- manna kann að orsaka,“ sagði Dijks- tal í De Telegraaf. 11 Hlj< flut Hugsanlegt er, að rafneisti hafi kveikt eldinn I | i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.