Morgunblaðið - 31.10.1998, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 31
Þessi auglýsing er birt í upplýsingaskyni og felur ekki í sér tilboð um sölu hlutabréfa.
Hvað er FBA?
ÚTDRÁTTUR ÚR SKRÁNINGARLÝSINGU
FJÁRFESTINGARBANKA ATVINNULÍFSINS HF.
Seljandi
Skráning á Verðbréfaþingi íslands
Útlánastefna
Ríkissjóður Islands, kt. 540269-6459, Arnarhváli, Reykjavík.
Útgefandi
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf. (FBA), kt. 501097-2179, Ármúla
13a, Reykjavík.
Sölufyrirkomulag
Boðin eru til sölu hlutabréf í eigu rikissjóðs að fjárhæð allt að 3.332
milljónir króna að nafnverði. Hlutabréfin verða seld i tveimur
áföngum. Annars vegar er um að ræða sölu til einstaklinga og
lögaðila með áskriftarfyrirkomulagi þar sem heimilt er að skrifa sig
fyrir hlutum fyrir allt að 3 milljónum króna að nafnverði, samtals
4,2 milljónir króna að söluverði og sölu til starfsmanna samkvæmt
sérstökum skilmálum fyrir allt að 1 milljón króna að nafnverði. Hins
vegar er um að ræða tilboðssölu þar sem það hlutafé sem ekki
selst í almennri sölu verður selt með tilboðsfyrirkomulagi og er
hverjum og einum heimilt að gera tilboð í allt að 3% af heildar-
nafnverði hlutafjár bankans.
Verði um umframáskrift að ræða, skerðist hámarksnafnverð, sem
hverjum áskrifanda er heimilt að kaupa fyrir þar til heildarnafnverð
seldra bréfa er komið niður í 3.332 milljónir króna. Skerðing verður
því ekki hlutfallsleg. Áskriftum í almennri sölu skal skilað á
áskriftareyðublöðum, sem er að finna í skráningarlýsingunni, fyrir
lok sölutímabilsins.
Sala hlutafjár
Fyrir liggur ákvörðun iðnaðar- og viðskiptaráðherra og sjávar-
útvegsráðherra, dagsett 5. október 1998, um að selja nú allt að
49% af heildarhlutafé í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf., þ.e.
hlutabréf að nafnverði allt að 3.332 milljónir króna af 6.800
milljóna króna hlutafé FBA. Jafnframt liggur fyrir sú ákvörðun, að
leitað verði lagaheimildar til að selja allan hlut ríkissjóðs í FBA fyrir
mitt ár 1999 ef aðstæður leyfa. Við þá sölu verður áfram stefnt að
dreifðri eignaraðild og sjálfstæði FBA sem samkeppnisaðila á
íslenskum samkeppnismarkaði. í því efni er miðað við að hlutdeild
hvers aðila í frumsölu verði ekki hærri en sem nemur 5-10%
hlutafjár í bankanum. Jafnframt verður hugað að skráningu
félagsins á hlutabréfamarkaði erlendis, til viðbótar skráningu á
Verðbréfaþingi íslands. Nánari útfærsla sölunnar mun þó ráðast af
þeirri reynslu sem fæst af þeirri sölu sem nú fer fram og því sem
hagkvæmast þykir á þeim tíma.
Söluaðilar
Tekið verður á móti áskriftum hjá FBA, Ármúla 13a, ásamt
eftirtöldum bönkum, útibúum þeirra og dótturfélögum í
verðbréfaþjónustu, sparisjóðum og öðrum fyrirtækjum í
verðbréfaþjónustu:
Búnaðarbanki Islands hf. Fjárvangur hf.
Handsal hf. Islandsbanki hf.
Kaupþing hf. Kaupþing Norðurlands hf.
Landsbanki Islands hf. Landsbréf hf.
Sparisjóðirnir Verðbréfastofan hf.
VlB hf.
Gengi
Hlutabréfin verða seld í almennri sölu og til starfsmanna á
genginu 1,4. Ekki er fastákveðið gengi í tilboðssölunni en
lágmarksgengi er 1,4.
Áskriftar- og tilboðstímabil
Tekið verður á móti áskriftum í almennri sölu á tímabilinu 30.
október 1998 til 12. nóvember 1998. Áskriftum ber að skila til FBA
eða söluaðila fyrir kl. 16.00 þann 12. nóvember 1998. Tilboðssala
fer fram á tímabilinu 23. til 27. nóvember 1998.
Stjórn Verðbréfaþings Islands hefur samþykkt að taka á skrá öll
hlutabréf FBA, samtals að nafnverði 6.800 milljónir króna, á
Aðallista VÞÍ að loknu útboði enda uppfylli FBA öll skilyrði
skráningar.
Hvað er fjárfestingarbanki?
Fjárfestingarbanki er fjármálafyrirtæki sem aðstoðar fyrirtæki og
stofnanir við að útvega fjármagn á heildsölumarkaði, auk þess að
þjónusta fjárfesta og lántakendur á ýmsum öðrum sviðum. Þannig
tryggir fjárfestingarbanki aðgang að fjármagni ýmist með beinni
fjármögnun eða með milligöngu um að útvega fjármagn á
markaði.
Fjárfestingarbanki útvegar fyrirtækjum og stofnunum fjármagn til
fjárfestinga með það að markmiði að fjármögnunin hæfi þörfum
viðskiptavinarins sem best, hvort sem það er með tilliti til
sjóðstreymis af fjárfestingu, skatta, áhættusveiflna eða annarra
þátta sem hafa þarf í huga. Þá sinnir fjárfestingarbanki jafnframt
ráðgjöf og veitir viðskiptavinum aðstoð sem lýtur að ýmsum
stefnumótandi þáttum, svo sem samruna, yfirtöku eða sölu
einstakra rekstrareininga og annarra eigna.
Á Norðurlöndunum hafa fjárfestingarbankar einnig gegnt hlutverki
langtímalánastofnana. Veiting langtímalána var aðal- starfssvið
fjárfestingarlánasjóðanna sem sameinuðust í FBA og svo verður
áfram í starfsemi FBA.
Starfsemi FBA
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf. (FBA) var stofnaður 30. júní
1997. Starfsemi FBA hófst 1. janúar 1998 þegar bankinn tók við
sem greiðslu á hlutafé, eignum, skuldum og skuldbindingum
fjögurra fjárfestingarlánasjóða, Fiskveiðasjóðs (slands,
Iðnlánasjóðs, Iðnþróunarsjóðs og Útflutningslánasjóðs, öðrum en
þeim sem ráðstafað var sérstaklega til Nýsköpunarsjóðs
atvinnulífsins. Var hlutafé bankans ákveðið 6.800 milljónir króna
að nafnverði en eigið fé var 8.043 milljónir og heildareignir námu
54.432 milljónum króna.
Stjórn FBA hefur skilgreint hlutverk bankans með eftirfarandi
hætti: „FBA veitir íslensku atvinnulífi víðtæka þjónustu við öflun,
stýringu og hreyfingu á fjármagni".
Starfsemi bankans er mjög sérhæfð og felst m.a. í því að aðstoða
viðskiptavini við að stýra skulda- og eiginfjárhlið efna-
hagsreikningsins. Bankinn hefur á að skipa starfsfólki sem hefur
þekkingu og hæfni til að tengja saman þarfir viðskiptavina og
afurðir fjármálamarkaðarins og vinnur m.a. að því að laga vörur
og þjónustu sem þróast hafa á erlendum fjármálamörkuðum að
þörfum íslenskra fyrirtækja. Áhersla er lögð á að sérsníða lausnir
að þörfum hvers viðskiptavinar og vinna starfsmenn mismunandi
sviða bankans saman að því hverju sinni.
Starfsemi fjárfestingarbanka á borð við FBA er í eðli sínu frá-
brugðin starfsemi viðskiptabankanna. Viðskiptabankarnir þjóna
bæði heimilum og fyrirtækjum, og er greiðslumiðlun mjög
umfangsmikill þáttur í þeirri starfsemi en FBA einbeitir sér að því
að veita atvinnulífinu þjónustu og miðar allt skipulag og öll ferli
að því. FBA sinnir ekki greiðslumiðlun.
Arðgreiðslustefna
Ný útlán bankans fyrstu sex mánuði ársins 1998 námu 7.724
milljónum króna, en þar af eru um 60% til bæjar- og sveitarfélaga,
fjármálafyrirtækja og til erlendra fjárfestinga. Bankinn lánar til
allra atvinnugreina, þrátt fyrir að það sé stefna hans að breyta
hlutföllum einstakra atvinnugreina innan útlánasafnsins til þess
að ná fram æskilegri áhættudreifingu. Við val á erlendum
fjárfestingum er meginstefnan að þær hafi alþjóðlegt
lánshæfismat og mæti markmiðum bankans um dreifingu,
greiðsluhæfi og arðsemi. Hefur bankinn sett sér ákveðna
lágmarkseinkunn sem fjárfestingin þarf að hafa fengið til þess að
koma til greina sem fjáifestingarkostur.
Bankinn hefur sett sér ákveðin markmið varðandi útlán eftir
áhættuflokkum og er meginstefnan að auka vægi áhættuminnstu
flokkanna og styrkja þar með útlánasafnið enn. Á fyrstu sex
mánuðum ársins hafa útlán bankans verið í samræmi við þessa
stefnu og hafa yfir 80% útlána bankans verið í þeim flokkum sem
ætlað er að styrkja.
Rekstraráætlun fyrir árin 1998-1999
(ímilljónum króna) 1998 1999
Vaxtatekur 3.032 4.506
Vaxtagjöld (1.864) (3.229)
Hreinar vaxtatekjur 1.168 1.277
Aðrar tekjur 340 505
Hreinar rekstrartekjur 1.508 1.782
Önnur rekstrargjöld (524) (636)
Framlag f afskriftareikning útlána (249) (256)
Hagnaður fyrir skatta 735 890
Skattar (30) (163)
Hagnaður 705 727
Forsendur:
Hækkun heildareigna (%) 20 17
Hækkun heildarútlána (%) 13 13
Heildareignir (byrjun tímabils) 54.021 70.063
Heildareignir (lok tfmabils) 64.825 82.066
Meðalstaða heildareigna 59.423 76.065
Meðalstaða eiginfjár 8.200 8.665
Aðrar tekjur, hlutfall af meðalstöðu heildareigna 0,57 0,66
Vfirfært skattalegt tap 800 400
Áætlaður starfsmannafjöldi 64 75
Skipting útlána eftir atvinnugreinum
30. júní 1998
Sjávarútvegur
48,2%
Landbúnaður 0,2%.
Heildverslun og dreifing 2,8%
Flutningar 0,9%^
Bæjar- og sveitarfélög
Ríkissjóður og ríkisstofnanir 0,3%
Skammtímaútlán 5,2%
Verslun
3 3% Iðnaður
16,4%
Þjónustu-
starfsemi
2,3% 2'6%
Fasteignarekstur
3,6%
lyggingarverktakar
0,8%
Fjármálaþjónusta
Erlendar
Síðasti greiðsludagur
Síðasti greiðsludagur í almennri sölu og tilboðssölu er 4. desember
1998.
Skattamál
FBA hefur fengið staðfestingu ríkisskattstjóra á því að félagið
muni fullnægja skilyrðum 1. mgr. 11. gr. laga nr. 9/1984 um
frádráttarbærni kaupverðs hlutabréfa fyrir árið 1998 þegar
tilskildum fjölda hluthafa hefur.verið náð, en til þess þarf a.m.k.
25 hluthafa.
Það er stefna stjórnar FBA að hluthöfum sé greiddur arður. Slíkt er
þó hluthafafundar að ákvarða hverju sinni. Stjórn félagsins hefur
sett bankanum það markmið að eiginfjárhlutfall félagsins til lengri
tíma verði um 10%, mælt á CAD-grunni. Eiginfjárhlutfall mælt
með þessum hætti er 14,9% um mitt ár 1998. Þessu markmiði um
fjárhagsskipan hyggst FBA ná að mestu með stækkun efnahags-
reiknings bankans. Þegar þessari fjárhagsskipan verður náð er það
stefna stjórnar bankans að sem mestur stöðugleiki sé í
arðgreiðslum til hluthafa. Miðað við framtíðarvaxtarmarkmið má
því ætla að þegar til lengri tíma er litið geti bankinn greitt út um
helming hagnaðar félagsins.
Þú getur nálgast skráningarlýsingu
og skráð þig fyrir hlut í útboðinu:
hjá öllum bönkum og verðbréfafyrirtækjum
á internetinu: www.fba.is
hjá FBA, Ármúla 13a, Reykjavík