Morgunblaðið - 31.10.1998, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 45 .
AÐSENDAR GREINAR
Atvinnumál
farmanna
AÐ UNDANFORNU hefir
nokkuð verið fjallað um málefni ís-
lenskra farmanna í fjölmiðlum. Að
mínu viti hefir sú umfjöllun verið of
takmörkuð við einstaka þætti þess
vandamáls sem farmenn standa
frammi fyi-ir í atvinnulegu tilliti.
I upphafí er nauð-
synlegt að gera sér
grein fyrir þeh-ri
óheillaþróun sem orðið
hefír í atvinnumálum
farmannastéttarinnar
á þessum áratug, t.d.
Árið 1990 voru 40 skip
í rekstri hjá útgerðum
innan Sambands ís-
lenskra kaupskipaút-
gerða (SÍK). Af þeim
sigldu 24 undir ís-
lenskum fána og 16
undir þægindafánum
svokölluðum. Nú eni
24 skip í fóstum
rekstri hjá útgerðum í
SIK og af þeim ein-
ungis þrjú undir ís-
lenskum fána og 21 undir erlend-
um fánum.
Árið 1990 voru 81,5% af far-
mönnunum á skipunum Islending-
ar sem samsvaraði 562 ársstörfum.
Nú eru íslendingarnir einungis
56,6% eða 216 ársstörf. Fækkun ís-
lenskra ársstarfa í farmennskunni
á þessum áratug nemur því 346
störfum eða 61,6%, sem mundi
samsvara mannafla í 1-2 álverum.
Skylt er að taka fram að þær
breytingar sem hér hafa verið
raktar eiga sér að hluta til eðlileg-
ar skýringar sem felast í því að
skipum í áætlunarsiglingunum til
og frá landinu hefir fækkað og þau
hafa jafnframt stækkað samfara
breyttri flutningatækni og öðru
skipulagi.
Má fullyrða að í öðrum starfs-
greinum hafí á sl. einum og hálfum
ártug varla orðið meiri aukning í
framleiðni vinnuafls en í far-
mennsku, enda ekki umdeilt. Hins
vegar eni engin rök fyrir því að
gámaskip í föstum áætlunarsigl-
POTTASETT
KÚNÍGÚND
SKÓI.AVÖRÐUSTÍG 8 S 551 3469
ingum skuli árum saman sigla til
og frá landinu með útlendum
áhöfnum, þar sem farmgjöld í þeim
siglingum ráðast ekki af alþjóðlegri
samkeppni nema að mjög litlum
hluta.
Nú er svo komið að stærstur
hluti þeirrar vöru sem
flutt er í heilum skips-
fönnum og áður var
flutt að stærstum hluta
með íslenskum skip-
um, svo sem mjöl, lýsi
og byggingavörur ým-
iskonar, að ógleymdri
olíunni, er fiuttur með
útlendum leiguskipum
með útlendum áhöfn-
um. Alla daga ársins er
fjöldi útlendra leigu-
skipa á siglingu við
strendur landsins eða í
íslenskum höfnum að
lesta eða losa vörur.
Þessir flutningar eru,
gagnstætt því sem
gerist í áætlunarsigl-
ingunum, sem áður eru nefndar,
háðir alþjóðlegri samkeppni, sem
við höfum bersýnilega ekki ráðið
við en ætti ef rétt væri á haldið að
tilheyra okkar heimamarkaði. Al-
mennt má einnig segja að sjóflutn-
ingar séu einhver mesta alþjóðlega
starfsemi sem um getur og hlýðir í
einu og öllu lögmálum samkeppn-
innar.
í hálfan annan áratug hafa stétt-
arfélög yfirmanna á kaupskipunum
bent stjórnvöldum á að verði ekk-
ert aðhafst sem geri þessa atvinnu-
grein samkeppnisfæra á alþjóðleg-
um flutningamarkaði mundi svo
fara sem áður er rakið. Jafnframt
hafa stéttarfélögin bent á þær leið-
ir sem nágrannalöndin hafa giápið
til, með árangri, í þeirri viðleitni að
stuðla að samkeppnishæfni kaup-
skipaútgerðanna. Þessum ábend-
ingum hefir í engu verið sinnt.
Einn af þröskuldunum fyrir því
að kaupskip hafi verið skráð á ís-
lenska skipaskrá er að íslenska rík-
ið innheimtir svonefnd stimpilgjöld
af afsölum og skuldaviðurkenning-
um vegna skipakaupanna. Stimpil-
gjöldin geta numið tugum milljóna
fyi-ir t.d. gámaskip sambærileg
þeim sem eru í áætlunarferðum til
og frá landinu. Hliðstæð skattlagn-
ing þekkist ekki í nálægum lönd-
um, sem frekar ýta undir skrán-
ingu skipa á sína skipaskrá en
setja þröskulda sem hindra slíkt. Á
þetta hafa stéttarfélög og SIK
margsinnis bent fjármálaráðherra,
en hingað til talað fyrir daufum
Störfum í farmennsku
hefur fækkað um 346 á
þessum áratug, segir
Guðlaugnr Gfslason,
eða sem svarar til
starfsmannafjölda eins
til tveggja álvera.
eyrum. Ennfremur hafa Guðmund-
ur Hallvarðsson alþingismaður og
fleiri flutt fi-umvai'p á Aiþingi um
afnám stimpilgjalda af kaupsamn-
ingum, veðböndum og afsölum
kaupskipa. Frumvarpið hlaut ekki
afgi’eiðslu þingsins, hvað þá meira.
Þetta er því undarlegra að íslenska
ríkið hefir á síðari tímum ekki haft
neinar tekjur af stimpilgjöldum
(sem af sjálfu leiðir) vegna ný-
skráninga kaupskipa og mun ekki
fá að óbreyttu.
Á öllum Norðurlöndunum, að Is-
landi undanskildu, og í löndum
Vestur-Evrópu sem gera út kaup-
skip hafa verið gerðar ráðstafanir
til styrktar kaupskipaútgerðum
viðkomandi landa. I þessum lönd-
um er ekki litið svo á að verið sé að
styrkja einstakar útgerðir eða far-
mennina sem á skipunum starfa,
enda eru slík sjónarmið hreinn
smáborgaraháttur _ sem hvergi
tíðkast nema hér á Islandi. Á þess-
ar aðgerðir er miklu fremur litið
MÁLÞING UM ÁHRIF VIRKJANA NORÐAN
VATNAJÖKULS Á NÁTTÚRU OG EFNAHAG
í dag kl. 13.00,
í hátíðarsal Háskóla íslands, aðalbyggingu
Kl. 13.00 Setnim>: Þorvarður Árnason. Siðfræðistofnun Háskóla íslands.
Kl. 13.10 Umfjöllun um mat á umhverfisáhrifum, F.lín Smáradóttir. löefræðineur. Skipulaesstofnun.
Kl. 13.40 Kynning á virkjanasvæðinu og virkjanaáætlunum - hver verða umhverfisáhrifin? Skarnhéðinn Þori.tsnn. líffræðinnur.
Kl. 14.10 Eyjabakkar, fuglalíf, Kristinn Haukur Skarnhéðinsson. fuclafræðineur.
Kl. 14.25 Rannsóknir Landsvirkjunar á umhverfisþáttum fyrirhugaðra virkjana norðan Vatnajökuls, Helei Biarnason. deildarstióri umhverfisdeildar Landsvirkiunar.
Kl. 14.55 Kaffíhlé
Guðlaugur
Gíslason
Wimir
Attalus
Plasthúðun
- Allur véla- og tæhjabúnaður
- Vönduð vara - góð verð
J. fiSTVfllDSSON HF.
Skipholti 33, 103 Hevkjovík, lími 533
Kl. 15.15 Stóriðja og Rammasamningur Sameinuðu þjóðanna um
loftslagsbreytingar,
Trteevi Felixson. hagfræðingur.
Kl. 15.45 Efnahagslegir þættir stóriðjustefnu,
Stefán Gíslason. umhverfisstjórnun MSc.
Kl, 16,15. Pal'horðsumræður. Þátttakendur:
Þon’aldur .1nhannsson. framkvæmdastjóri Samtaka
sveitarfélaga í Austurlandskjördmi (SSA),
dr. Þóra F.ilen Þórhallsdóttir. prófessor við HÍ,
Rinmhe.iður Hallsdóttir. ferðamálafræðingur og
Þorsteinn Hilmarsson. uDPlvsingafulltnii Landsvirkjunar.
Kl. 17.00 Lok
Fundarstióri: Árni Gunnarsson. framkvæmdastióri Heilsuhælis NLFÍ.
Stiórn nallborðs og umræðna: Stefán Jón Hafstein. ritstjóri og
Guflríður Heleadóttir. fagdeildarstjóri Garðyrkjuskóla íslands.
Að málþinpinu standa: Náttúruvemdarsamtök fslands, Félag um verndun hálendis
Austurlands, Náttúruvemdarsamtök Austurlands og Fuglavemdarfélag íslands.
Styrktaraðilan Félagi i Náttúruvemdarsamtökum íslands, Öm Þorvaldsson.
Umhverfisráðuneytið, l'slenskir fjallaleiðsögumenn og Ultima Thule.
sem nauðsynlegan þátt hins opin-
bera til vemdar innlendri atvinnu-
starfsemi í harðri samkeppni við
ódýrt vinnuafi. Órækasta vitnið
hvað þetta varðar er svonefnd
Kinnock-skýrsla Efnahagsbanda-
lagsins, sem var gerð opinber 1996,
og fjallar um stuðningsaðgerðir
bandalagsins við útgerðir innan
þess. Niðurstaða skýrslunnar er sú
að eigi evrópsk kaupskipaútgerð að
halda velli í alþjóðlegri samkeppni
verði að beita öllum tiltækum ráð-
um, að ríkisstyrkjum ekki undan-
skildum.
Þessi óheillaþróun í farmennsk-
unni hefir gert það að verkum að
ungir menn hafa ekki komið til
starfa í greininni og aðsókn að
námi sem t.d. skipstjórnarmenn
þurfa að leggja fyrir sig hefir verið
algjörlega ófullnægjandi og þeir
fáu sem lokið hafa námi hafa ekki
skilað sér nema í mjög litlum mæli
til starfa á kaupskipunum. Það er
því mikil hætta á, ef fram heldur
sem horfir, að vöntun verði á sér-
menntuðum mönnum að tiltölulega
stuttum tíma liðnum til starfa á
kaupskipunum og jafnvel að ís-
lensk farmennska heyri sögunni til.
Með því mundi glatast sú verk-
kunnátta sem farmannastarfinu
fylgir og þróast hefir í áranna rás
og þjóðin stæði fátækari eftir.
Um það hefir lengi verið deilt
hvort lögleiða eigi svokallaða al-
þjóðlega skipaskrá hér á landi eða
ekki, eins og gert hefir verið í Nor-
egi og Danmörku t.d. Sannleikur-
inn er sá að alþjóðleg skipaskrá,
ein og sér, tryggir ekki íslenskum
farmönnum störf. Það er borin von
að íslensk farmannastétt geti sam-
þykkt lögleiðingu slíkra aðgerða
nema stjórnvöld geri jafnframt
ráðstafanir sem að mati samtaka
þeirra hvetja útgerðir til að ráða
fremur íslenska farmenn en út-
lenda til starfa á skipum sem skráð
væru í hinni alþjóðlegu skipaskrá.
Þótt hér að framan hafi verið
rætt um tómlæti íslenskra stjórn-
valda hvað varðar rekstrargrund-
völl kaupskipaútgerðar á Islandi
þá eru fleiri þættir sem þar koma *•
við sögu. Það verður að segjast
eins og er að útgerðirnar hafa í
seinni tíð ekki sýnt neinn áhuga á
að grundvöllur rekstrarins sé
styi’ktur með tilliti til þess að gera
út íslensk kaupskip með íslenskum
áhöfnum, síður en svo. Þeim virðist
líða nokkuð vel við ríkjandi aðstæð-
ur og hafa ekki áhuga á breyting-
um. Það er ljóst að hafi enginn
áhuga á útgerð kaupskipa, undir
íslenskum fána, og sjái í henni
framtíðarmöguleika og hagnaðar-
von verður ekkert skip gert út.
Stéttarfélögin þurfa líka að taka
til í sínum ranni og koma ýmsum
málum þannig fyrir að þau sam-
svari sem mest því sem gerist í ná-
lægum löndum. Farmennirnir ís-
lensku munu þó ekki vera tilbúnir
til að láta af sínum kjörum eða fé-
lagslegum réttindum. Á hlut þeiira
verður ekki gengið frekar en orðið
er.
Hér að framan hefir verið reynt
að rekja, í stórum dráttum, hver
staða þessara mála er á Islandi og
jafnframt benda á hvað aðrar þjóð-
ir hafa gert, og eru að gera, í þeirri
viðleitni sinni að viðhalda sam-
keppnisstöðu sinni í flutningum á
sjó. Niðurstaða þessarar greinar
gæti verið sú að alhr aðilar sem
hagsmuna eiga að gæta, þar með
talið ríkisvaldið, verði að leggjast á
eitt og vinna að þessu málefni svo
íslensk þjóð verði ekki einni starfs-
stétt fátækari eftir tiltölulega
stuttan tíma. Til þess má ekki
koma.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Skipstjóra- og stýrimannafélags
Islands.
Stökktu til
25. nóv.
frá kr. 39.932
í 19 daga
Heimsferðir bjóða þér nú einstakt tækifæri til að komast í
sólina á Kanaríeyjum og njóta þess að dvelja á þessum
yndislega áfangastað í 19 daga á hreint ótrúlegum kjör-
um. Þú bókar núna og 4 dögum fyrir brottför, hringjum
við í þig og segjum þér hvar þú gistir á meðan á dvöl
þinni stendur. A Kanarí er 25-28 stiga hiti á þessum árs-
tíma og þú nýtur traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann.
Verð kr. 39.932 Verð kr. 49.960
Verð á mann m.v. hjón með 2 M.v. 2 í íbúð, 19 daga, 25. nóv.
böm, 2-14 ára, 19 dagar, 25. nóv. -----
Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600. www.heimsferdir.is