Morgunblaðið - 31.10.1998, Síða 48
. 48 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Með Geysi á heilanum
ÉG FAGNA þeim áföngum sem
náðst hafa í málefnum geðsjúkra,
og fjölgun úrræða utan stofnana er
líka mikið gleðiefni.
Hin ýmsu búsetuform sem stofn-
uð hafa verið - athvai-fið Vin í
Reykjavík og Dvöl í Kópavoginum
- og fjölþætt starfsemi Geðhjálpar
eru gríðarlega mikilvæg í málefn-
um geðsjúkra. Fjölmargir hafa af
mikilli elju stuðlað að framgangi
mála og eiga þeir þakkir skilið.
Fjölgun úrræða hefur áhrif á
endurhæfingu. Pjálfun sú sem
fram fer á sjúkrahúsunum skilar
sér mun betur þegar góð úrræði
taka við eftir útskrift. Það tekur
mislangan tíma að jafna sig eftir
veikindi og það hefur verið hluti af
vanda geðsjúkra að þeir eiga sam-
leið með fáum; eiga ekki einungis
erfítt uppdráttar í atvinnulífínu
heldur fá þeir ekki notið virðingar í
samfélaginu. Félagsleg einangrun
geðsjúkra er tvíþætt. Annars vegar
er skortur á hæfni, en það má færa
í betra horf með endurhæfingu.
Hins vegar eru viðhorf í samfélagi
okkar mannanna sem varla er
hægt að vinna með inn á stofnun-
um, nema í mjög takmörkuðum
mæli. Ég vil taka það fram að geð-
sjúkdómar eru afar mismunandi og
hafa bæði mismikil og misjafnlega
langvarandi áhrif á daglega iðju
fólks s.s. eigin umsjá og starfs- og
félagsfærni. Þrátt fyrir að fordóm-
ar séu á undanhaldi er staðreyndin
sú að fólk er hrætt við
að segja frá sjúkdóm-
um séu þeir af geðræn-
um toga. Geðsjúkir eru
t.d. sí og æ að reka sig
á þegar þeir eru að
fóta sig á hinum al-
menna vinnumarkaði.
Þeim er illmögulegt að
vera heiðarlegir og
segja frá sjúkdómi sín-
um, það borgar sig
ekki. Margir sem
haldnir eru geðsjúk-
dómi ná fullri vinnu-
hæfni á ný eða eru full-
vinnuhæfir á milli veik-
indakasta en ná aldrei
að festa rætur í at-
vinnulífinu. Ný nálgun til þess að
koma þeim inn á vinnumarkaðinn
er því löngu orðin tímabær. Það er
því ekki að undra að hugmyndinni
um Klúbbinn Geysi hafi verið fagn-
að af sjúklingum, aðstandendum
og velunnurum geðsjúkra.
Klúbburinn Geysir er hluti af
öflugum alþjóðasamtökum. Það var
fyrir 50 árum að nokkrir einstak-
lingar með geðsjúdóma stofnuðu
klúbb í New York til að hjálpa hver
öðrum til að útvega húsnæði og at-
vinnu og gerast þannig virkir þátt-
takendur í samfélaginu. Þetta
tókst svo vel að nú eru starfræktir
yfir 300 klúbbar um allan heim. A
öllum Norðurlöndunum eru reknir
slíkir klúbbar. Innan vébanda
Elín Ebba
Ásmundsdóttir
þeirra er m.a. rekin
vinnumiðlun þar sem
félagar vinna að því að
ná tengslum við vinnu-
veitendur. Gerður er
tímabundinn ráðning-
arsamningur og
starfsmaður frá
klúbbnum kynnir sér
síðan eðli starfsins og
þjálfar viðkomandi fé-
laga, vinnuveitanda að
kostnaðarlausu. Þegar
þjálfun lýkur fer
klúbbfélaginn á launa-
skrá hjá vinnuveitand-
anum. Ef félagi getur
ekki mætt stöku sinn-
um, leysir starfsmað-
ur klúbbsins hann af, en sé um
lengri fjarveru að ræða tekur ann-
ar félagi við. Klúbburinn tryggir
þannig fulla mætingu og að verk-
efninu verði lokið, þótt það sé ekki
endilega alltaf sama manneskjan
sem leysir vinnuna af hendi.
Alþjóðadagur geðsjúkra - 10.
október - var nú haldinn í fjórða
sinn. I tilefni dagsins stóð Geðhjálp
fyrir málþingi sem haldið var í
Ódda. Heilbrigðisráðherra var af-
hent skýrsla um stefnumótun í
geðheilbrigðismáium og góð og
þörf erindi voru flutt. Það framtak
að tileinka þessum málaflokki
ákveðinn dag skilar sér, því inn-
legg neytenda geðheilbrigðisþjón-
ustunnar verður sýnilegra með
*
1
Samgöngubætur
Rey kj aneskj ör dæmi
MALEFNALEG
barátta íyrir bættum
samgöngum er mikil-
væg því gott vegasam-
band er undirstaða at-
vinnulífs og byggðar-
laga. Greiðir flutningar
hráefnis, aðfanga og
afurða, og aðgangur
fólks og íyrirtækja að
þjónustu, vörum og
markaði er grundvöll-
ur þróttmikillar at-
vinnustarfsemi, góðra
lífskjara og blómlegs
mannlífs. Því fagna ég
þeim áhuga og bar- Árni Ragnar
áttuvilja sem fram- Árnason
bjóðendur í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins sýna vegagerð
í kjördæminu.
Bætt öryggi
vegfarenda
A þessum áratug hafa komið til
framkvæmda nokkur af stærstu og
kostnaðarsömustu samgöngumann-
virkjum landsins. Dugir þar að
nefna jarðgöng og tengingu
Reykjavíkur við Vesturlandsveg og
Suðurlandsveg. Flýtt var fjármagni
til vegagerðar til að auka verkefni í
framkvæmdum og sporna þannig
gegn samdrætti í atvinnulífi. Þær
aðgerðir eru nú um garð gengnar
og byrjað að endurgreiða fjár-
magnið. A undanfömum árum hef-
ur þannig vel þokast í vegagerð t.d.
á höfuðborgarsvæðinu, þar sem
þurfti að bregðast við mjög miklum
og vaxandi þörfum. Énn er þó
miklu ólokið bæði til suðurs og
norðurs, þ.e. á Reykjanesbraut og
Vesturlandsvegi.
Unnið hefur verið að því að bæta
öryggi umferðar á Reykjanesbraut.
Vorið 1994 flutti undirritaður
ásamt Salome Þorkelsdóttur og
Guðmundi Hallvarðssyni tillögu á
Alþingi um lýsingu brautarinnar. í
ársbyrjun 1995, þ.e. á síðasta kjör-
tímabili var svo lýsing ákveðin af
öllum þáverandi þingmönnum kjör-
dæmisins og lauk framkvæmdum á
rfyrri hluta þess kjörtímabils sem
nú er að ljúka. Lýsing-
in hefur nú sannað
kosti sína, enda er nú
rætt um lýsingu ann-
arra sambærilegra
fjölfarinna þjóðvega.
Éinnig hefur verið
unnið að öðrum að-
gerðum til að bæta ör-
yggi umferðar á braut-
inni, m.a. með gerð
stefnugreindra vega-
móta og nú síðast yfir-
standandi fram-
kvæmdum á Voga-
stapa.
Næsta stór-
framkvæmd
Lengi hefur verið rætt og skrifað
um tvöföldun Reykjanesbrautar.
Mestu skiptir fyrir Suðumesja-
menn hvenær af því verður enda
Tvöföldun Reykjanes-
brautar, segir Árni R.
Árnason, verður næsta
stórframkvæmd
í vegagerð.
hafa þeir mest látið sig varða þetta
baráttumál. Á kjörtímabilinu
1987-1991 voru fluttar tillögur á
Alþingi um tvöföldun brautarinnar,
síðast af þeim Hreggvið Jónssyni,
Inga Birni Albertssyni og Ellert
Eiríkssyni. Á síðasta kjörtímabili,
þ.e. 1991-1995 fluttum við Salome
Þorkelsdóttir, Árni M. Mathiesen,
Sigríður Anna Þórðardóttir og Ingi
Björn Albertsson tvisvar sinnum
tillögur um þessa þörfu fram-
kvæmd, en þá varð önnur forgangs-
röðun ofan á. Á yfírstandandi kjör-
tímabili fluttum við allir þingmenn
Reykjaneskjördæmis sameiginlega
tillögu um tvöföldun brautarinnar.
Nú fékk málið loks meðbyr þeirra
sem til þurfti og samgönguráðherra
tók það upp við gerð vegaáætlunar.
Baráttunni um tvöföldun Reykja-
nesbrautar er lokið með sigi'i, hún
verður næsta stórframkvæmd í
vegagerð. Verið er að undirbúa
fyrsta áfangann sem verður boðinn
út á næstunni og síðan verður
áfram unnið að framkvæmdum í
samræmi við vegaáætlun og fjár-
magn af vegafé.
Önnur stór verkefni
Þegar lokið er nýjum tengingum
Mosfellsbæjar við Vesturlandsveg
verður að halda áfram uppbygg-
ingu hans til að mæta þörfum íbúa
og fyrirtækja sem hann nota. Jafn-
framt verður að undirbúa framtíð-
arlausnir fyrir umferð og flutninga
norður-suður um höfuðborgar-
svæðið, m.a. með tilliti til hinnar
miklu uppbyggingar sem orðið hef-
ur og er að gerast í Kópavogi þar
sem er að rísa eitthvert stærsta
þjónustu- og verslunarsvæði lands-
ins. Það svæði verður innan
skamms mesta viðskiptamiðstöð
landsins og þarf afkastamiklar
flutningsleiðir, greiðar samgöngur
og gott aðgengi. Fyrstu áfangar
tvöfaldaðrar Reykjanesbrautar
munu taka á þessu viðfangsefni en
einungis að hluta.
Á siðustu árum hefur orðið mikil
aukning á flutningi sjávarfangs
milli byggðarlaga og landshluta.
Hana má rekja til aukinna við-
skipta óskyldra fyrirtækja með
afla, aukinnar sérhæfingar í fisk-
iðnaði og vaxandi útflutnings á
ferskum unnum sjávarafurðum.
Þessi þróun kallar á bættar sam-
göngur og flutningaleiðir, sem
mundi skapa fleiri fyrirtækjum og
byggðarlögum möguleika á þátt-
töku í þessum ábatasömu viðskipt-
um. Þetta er nú mikilvægasta for-
senda fyrir nýjum suðurstrandar-
vegi milli Grindavíkur og Þorláks-
hafnar auk vaxandi umferðar ferða-
manna og annarra flutninga með
afurðir, afla og aðföng sjávarút-
vegsfyrirtækja. Þess utan er sá
kosturinn að létta umferð um fjall-
veg í viðsjárverðum vetrarveðrum.
Höfundur er alþingismaður.
hverju árinu. Þannig á fólk sem
sýnt hefur þann kjark að koma
fram í fjölmiðlum - og þeir sem
eiga það eftir - stóran þátt í að
minnka fordóma. Þeir hafa einnig,
og munu hafa, áhrif til bættrar
geðheilbrigðisþjónustu með því að
greina frá því sem hefur gagnast
þeim og hvað ekki.
Að öllu öðru ólöstuðu, sem fram
kom á málþingi Geðhjálpar, hafði
innlegg Styrmis Gunnarssonar, rit-
Ef fólk er ekki tilbúið
að taka á móti með-
bræðrum sínum í leik
og starfi, segir Elín
--------*-----------------
Ebba Asmundsdóttir,
þá komumst við lítið
áfram, sama hversu
sprenglærð og klár
við verðum inni
á stofnunum.
stjóra, mest áhrif á mig. Hann
nálgaðist einkenni geðsjúkdóma
frá öðrum sjónarhóli en menn eru
vanir - hann setti styrkleika í for-
grunn. Hann hrósaði forsætisráð-
herra Noregs fyrir spor hans í
mannkynssöguna, til atlögu við for-
dóma og dáðist að því hve þjóðar-
sál landa hans væri þroskuð. Mað-
ur í hans stöðu þorði og gat sagt að
hann hefði þurft að hverfa frá
störfum um tíma vegna þunglyndis
og þjóðin hafnaði honum ekki.
Styrmir tengdi þunglyndi ráðherr-
ans við styrkleika hans, að hann
bæri hag þjóðar sinnar svo sterkt
fyrir brjósti að það legðist á hug
hans. Styrmir nefndi einnig dæmi
um hvemig hægt sé að virkja nei-
kvæð einkenni geðsjúkdóma á já-
kvæðan hátt t.d. á vinnustöðum.
Það sem er galli í fari manns er
nefnilega oft jafnframt kostur
hans.
Við fæðingu erum við misvel bú-
in til að geta tekist á við lífið og
sum okkar þola meira en aðrir, áð-
ur en líkami og sál gefur eftir eða
brestur. Ef það er heilinn sem
klikkar, þá erum við í vondum mál-
um. Þekking okkar á starfsemi
heilans hefur aukist það mikið, að
það er kominn tími til að fólk með
sjúkdóma tengda honum - m.a.
geðsjúkdóma - njóti sömu virðing-
ar og fólk sem haldið er sjúkleika í
öðrum líkamshlutum. Aukin þekk-
ing fagfólks skilar sér ekki ef fólk
sem haldið er geðtruflunum getur
ekki haldið reisn sinni í samfélagi
mannanna.
Nú eru 5 einstaklingar í þjálfun í
London til þess að undirbúa rekst-
ur Klúbbsins Geysis samkvæmt
þeim alþjóðastöðlum sem gilda.
Húsnæði vantar hins vegar og enn
er óljóst hvernig reksturinn verður
tryggður, en kraftmikið fólk stend-
ur að baki þessari hugmynd svo frá
því verður vonandi gengið fljót-
lega. Það eru spennandi tímar
framundan því nú geta fleiri lagt
hönd á plóginn við þróun geðheil-
brigðismála með tilkomu Klúbbs-
ins Geysis; atvinnurekendur með
því að sækjast eftir vinnuframlagi
Geysisfélaga og væntanlegir sam-
starfmenn þeirra með uppbyggi-
legu viðmóti sínu.
Það þarf, í þessu tilviki eins og
ætíð, að skoða myntina báðum
megin: Betri meðferð og aukin
gæði þjónustunnar á stofnunum -
og - fólkið í landinu. Ef fólk er ekki
tilbúið að taka á móti meðbræðrum
sínum í leik og starfi þá komumst
við lítið áfram, sama hversu
sprenglærð og klár við verðum inni
á stofnunum.
Höfundur er forstöðumaður iðju-
þjálfunar geðdeilda Landspítalans.
Sterkan leiðtoga
í fyrsta sætið
PROFKJÖR sjálf-
stæðismanna í Reykja-
neskjördæmi verður
haldið 14. nóvember
nk. þar sem kjósendum
gefst tækifæri til að
velja framboðslista
Sjálfstæðisflokksins
fyrir næstu alþingis-
kosningar. Leiðtogi
flokksins í Reykjanesi,
Olafur G. Einarsson,
hefur ákveðið að gefa
ekki kost á sér áfram
og því verður að velja
flokknum nýjan for-
ingja. Gunnar I. Birgis-
son, oddviti sjálfstæðis-
manna í Kópavogi,
sækist eftir að fá brautargengi til
að leiða Sjálfstæðisflokkinn í
Reykjanesi.
A þeim rúmu átta árum
sem Gunnar Birgisson
hefur verið í forsvari
Sjálfstæðisflokksins
í Kópavogi, segir
Arnór L. Pálsson,
hefur bærinn tekið
stakkaskiptum.
Öflugur leiðtogi
Gunnar hefur sýnt og sannað að
hann er öflugur og sterkur leiðtogi.
Hann leiddi Sjálfstæðisflokkinn í
Kópavogi til sigurs árið 1990 eftir
að flokkurinn hafið setið í minni-
hluta í áratugi. Á þeim rúmu átta
árum sem hann hefur
verið í forsvari Sjálf-
stæðisflokksins í
Kópavogi hefur bær-
inn tekið stakkaskipt-
um. Kópavogur er í
dag eitt framsæknasta
sveitarfélag á landinu
á sviði menningar,
menntunar og um-
hverfismála. Miklir
uppgangstímar hafa
verið í bænum og und-
anfarin ár hefur þar
verið ein mesta fólks-
fjölgun á landinu.
Arnór L. Þessi mikla bylting í
Pálsson bæjarfélaginu er ekki
hvað síst að þakka
dugnaði og framtakssemi Gunnars
I. Birgissonar.
Kjósum Gunnar
í fyrsta sæti
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykja-
nesi þarf öflugan málsvara á AI-
þingi. Leiðtoga sem ber hagsmuni
kjördæmisins íyrir brjósti. For-
ingja sem hefur styrk og þrek til að
koma málefnum kjördæmisins í
framkvæmd. Á þeim átta árum sem
við Gunnar höfum unnið saman að
bæjarmálum í Kópavogi hef ég
kynnst vinnubrögðum hans og
dugnaði. Hann er stefnufastur,
skjótur að taka ákvarðanir og lætur
verkin tala. Gunnar hefur sýnt að
hann er sterkur og öflugur leiðtogi.
Við þurfum slíkan mann í forystu í
Reykjanesi. Kjósum því Gunnar I.
Birgisson í fyrsta sæti í komandi
prófkjöri.
Höfundur er forstjóri og fyrrver-
andi bæjarfuiltrúi í Kópavogi.