Morgunblaðið - 31.10.1998, Síða 49

Morgunblaðið - 31.10.1998, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 49, www.gagnagrunnur.is Framfarir og árangur SÍÐUSTU tvö kjör- tímabil hefur Sjálf- stæðisflokkurinn haft ríkisstjómarforystu. Þetta hefur verið eitt mesta framfaraskeið sem íslensk þjóð hefur lifað. Ekkert bendir til annars en að svo megi verða áfram ef þess er gætt að haldið sé á málum af sömu festu og ábyrgð og verið hef- ur í stjórnartíð flokks- ins. Það þarf ekki að fara langt aftur í tím- ann til að allt önnur mynd blasi við. Eng- inn, sem reynt hefur, getur hugsað sér að lifa aftur þá tíma, þegar verðbólgudraugurinn reið hér húsum og eyddi og spillti. Hvorki fyrirtæki né einstaklingar gátu þá gert raunhæfar áætlanir eða skipulagt rekstur sinn. Ein- göngu var horft til skyndilausna en ekki ráðist að rótum vandans. Slík óáran má aldrei aftur ganga yfir ís- lenska þjóð. Enginn dans á rósum Auðvitað hefur þetta uppbygg- ingartímabil ekki eingöngu verið dans á rósum. Við höfum oft þurft að taka vandasamar og sársauka- fullar ákvarðanir, til dæmis þegar kvótaniðurskurður var í hámarki og leiddi af sér minnkandi tekjur ríkisins og meira atvinnuleysi en hér hafði þekkst lengi ásamt erfið- um niðurskurði í ríkisrekstri. Þá tókst að snúa vörn í sókn. Nú njót- um við árangurs af því erfiði og hér ríkir sannkallað góðæri sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefur átt ríkan þátt í að skapa með markvissum aðgerðum. Höldum vöku okkar Það er ætíð hollt í góðærinu að minnast þess að það þarf sterk bein til að þola góða daga og upp- sveifla í efnahagslífinu má ekki leiða til andvaraleysis og eyðslu. Það er keppikefli að halda þeirri festu og stöðugleika í efnahagsmálum sem náðst hefur og það er líka ljóst að þjóðin kann að meta það sem gert hefur verið þar sem hver skoðana- könnunin á fætur annarri sýnir að al- menningur treystir Sjálfstæðisflokknum best til að halda skyn- samlega á stjórn ríkis- ins og gæta þess að ríkisbáknið þenjist ekki of mikið út. Hér ríkir efnahagslegur stöðugleiki, lítil verð- bólga, aukinn kaup- máttur og næg atvinna. Fjárlaga- frumvarp næsta árs sýnir glögg- lega ábyrga efnahagsstjóm. Þar er í fyrsta sinn um langt skeið skilað Stefna Sjálfstæðis- flokksins er grunnur framfara og velferðar, segir Sigríður Anna Þórðarddttir, og hvet- ur fólk til að standa saman um farsæld til framtíðar. afgangi og stóraukin áhersla er á að borga niður erlendar skuldir ríkisins. Það er óhætt að fullyrða að fátt skilar sér betur til hagsbóta fyrir komandi kynslóðir. Enn er verk að vinna Þrátt fýrir farsæld góðra daga er tilveran ekki skuggalaus. Nú- tíminn á líka sína slæmu fylgifiska. Vímuefnavandinn er skelfilegt böl sem ekki síst herjar á hina ungu, og of margir eru þeir sem enn búa við skarðan hlut í efnalegu tilliti. Hér þarf að grípa til þeirra ráða sem duga, og ef til vill er þá hollt að hverfa aftur til þeirra gömlu og Sigrfður Anna Þórðardóttir góðu gilda sem varðað hafa leið þjóðarinnar til farsældar og gagns í tímans rás. Þjóðfélag okkar á að byggjast á frelsi, mannúð og jafn- rétti þegnanna. ísland er gott land og gjöfult. Hér eiga allir að geta unað sáttir við sinn hag. Stefna Sjálfstæðisflokksins hefur verið grunnur velferðar og framfara. Stöndum vörð um þann árangur sem náðst hefur. Trúum þeim til starfa sem best hafa dugað og horfum til nýrrar aldar með stefnumál Sjálfstæðisflokksins að leiðarljósi. Höfundur er formaður þingflokks sjálfstæðismanna og tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi. €amelot HeímFIutt þskkÍNq Laugardaginn 31. október kl. 14 - 16 Kynningarfundaröð íslenskrar erfðagreiningar Stefán Þór Pálsson B. Sc.: Sameindalíffræðilegar hliðar á samspili plantna og plöntusjúkdómavalda Stefán Þór starfar sem sérfræöingur á rannsóknarstofu íslenskrar erfða- greiningar. Hann lauk B.Sc. gráðu í búvísindum við Konunglega dýralækna- og landbúnaðarháskólann í Kaupmannahöfn 1996. í erindi sínu ræðir Stefán Þór um þá sérstöku eiginleika sem plöntur hafa til að verja sig gegn ýmsum skakkaföllum og árás- um örvera sem valda plöntusjúkdómum. Gestum fundarins gefst kostur á að skoða rannsóknarstofur íslenskrar erfðagreiningar undir leiðsögn vísindamanna og þiggja kaffiveitingar að því loknu. S L E N S K MikitS úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðugtíg 21, Rcykjavík, sími 551 4050 erfð agreining Lyngháls 1,110 Reykjavík Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur Vettvangur fólks f fasteígnaleit /», vm .mbl.is/fasteignlr laugardag 31. okt. kl. 10-17 sunnudag 1. nóv. kl. 13-17 V Skútuvogi 12a ’Sími 568 1044 r jón örn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.