Morgunblaðið - 31.10.1998, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 5 K
um auðjöfri fyrir 2,3 milljarða fjallið
Herðubreið. Japanir buðu í Færeyj-
ar þegar þær voru á hausnum.
„Hann fer nú ekki langt með fjal]ið,“
sögðu menn. „Fjallið fer ekki til Mú-
hameðs". Öðrum var Hekla seld, fyr-
ir tæpa 12 milljarða. ísland er fljót-
selt, sögðu menn hreyknir. Hafnað
var hins vegar því boði að setja aug-
lýsingaskilti framan á Esjuna. Það
var farið að skrifa um þetta í útlönd-
um. En kaupandi Herðubreiðar
óskaði eftir að mega flóðlýsa fjallið
og var það góðfúslega veitt. En hann
krafðist að fjarlægðar yrðu raflínur í
rótum Herðubreiðar - og var góð-
fúslcga orðið við því.
Annai’s víkur sfr. í löngu máli að
Austfírðingum, þeir hafí sýnt lofs-
verða framsýni. Bændur þar hófu
nýja þjónustu-búgrein. Þeir tóku til
sín á bændabýlin evrópsk ungmenni
í því skyni að rækta með þeim þá
kennd að eitthvað væri einhvers
virði. Þarna höfðu unglingamir
kynni af dýrum og náttúrunni, af
sögu, höfðu samneyti við samfélag í
jafnvægi. Jafnframt gátu ungmennin
skemmt sér sem þeirra náttúra
kaus. (Þetta voru unglingar úr hópi
þeirra milljóna sem foreldrar í borg-
um Evrópu höfðu getið af sér, en
unglingamir ekki vitað til hvers þeir
voru fæddir í heiminn. Var þá ekkert
verðmætt fyrir þeim lengur, en nú
fundu þeir hvað það var að hlakka
til. Ekki varð farið með þá að Eyja-
bökkum).
Þessi búgrein var hluti af víðtæk-
ari ferðaþjónustu Austfírðinga, enda
nóg við að vera, víðemi ósnortin,
jöklasvæði (þó ekki farið á Dyngju-
jökul, þar hafði kaupandinn einka-
leyfi á ferðaþjónustu), sjóstangaveiði
í 12 fjörðum, m.a. veiði á rjúpum,
gæsum og hreindýrum. Ferðaþjón-
usta þessi var rekin frá hinum mikla
Miðgarði ferðaþjónustu á Héraði.
Austfii'ðingar vora meiri heimsmenn
en aðrir íslendingar.
Mesta framsýni höfðu Austfirð-
ingar sýnt með byggingu leikhúss-
ins, þá fyrst stöðvaðist brottfluttn-
ingur fólks þaðan. Listamenn og
skáld löðuðust að því fagra héraði.
Til stóð að stoppa upp frömuði svo
sem Keith Reed, Hákon Aðalsteins-
son og Alla ríka, eins og gert var við
Jeremy Bentham í University Col-
lege í London, vin Darwins. - Best
þótti ferðamönnum að kynnast
venjulegu fólki þar eystra, daglegri
lífsbaráttu þess. Það var löngu liðið
að hin gulu monster eigraðu um ör-
æfin og rótuðust í hvemi gróðurvin,
vinjamar virtust kitla stáltaugar
þeirra, fossar virkuðu eins og sterar
á aflvöðva: Engu skyldi eirt, hvorki
brúnum né bergi, vinjum né víðem-
um svo sem valur flýgur vorlangan
dag. Ekki kafnaði meira af landinu.
Þessu var löngu lokið.
Sfr. fer lofsamlegum orðum um
stjómmálamenn landsfjórðungsins.
Þeir hafi verið lífseigir og ekki kafn-
að úr manviti eins og Kvasir forðum.
Og ekki urruðu þeir á fólk.
En maðurinn breytist varla neitt
erfðafræðilega á 1000 áram, það sem
einu sinni hefur gerst, það gerist
kannski aftur. Austfirðingar höfnuðu
ýmsum hugmyndum sem fram komu
á 21. öldinni. Þeim stóð til boða gríð-
arlegt fé fyrir Loðmundarfjörð, þar
skildi sorpúrgangur Norður-Evrópu
urðaður. Þó hafði ríkisstjómin hvatt
til að samningurinn yrði gerður enda
við vini að eiga. - Framlegri hug-
myndir komu þó fram: líkt og að
kringum 2000 tíðkaðist erlendis líf-
færasala - og ríkir ferðamenn fyrr á
tímum söfnuðu höfuðleðri meðal
ótaminna þjóða - þeir fengu það
reyndar fyrir slikk - þá var stöðvuð
sú hugmynd að selja mannabein úr
kirkjugörðum. Þó var góður samn-
ingur í boði. Líkt og að fyrr á öldum
vora böm seld héðan úr landi - og
böm era enn á markaði erlendis - þá
var þessari hugmynd einnig „alfarið
hafnað". (Enda hafði Páfinn skorist í
leikinn líkt og 1537 þegar hann lýsti
yfir að Indiánar í Ameríku væra líka
menn).
Auðjöfrar gátu þó státað af að eiga
eldfjall, enda samningurinn mikils
virði þjóðinni.
En úrtölur munu skapsmuna-
menn ekki þola.
Dönsk barnamynd
í Norræna húsinu
KVIKMYNDASÝNINGAR fyrir
börn eru í Norræna húsinu alla
sunnudaga. 1. nóvember verður
danska stuttmyndin Hvernig við
eignuðumst nágranna eða „Hvor-
dan vi fik vores naboer“ sýnd kl.
14.
í fréttatilkynningu segir að
myndin sé eldfjörug leikin dönsk
mynd um venjulega fjölskyldu
sem bregður sér í sjóræningja-
gervi og tekur fátæka ferðamenn
höndum. Þau lenda síðan í vand-
ræðum með fangana sem verða
nágrannar þeirra. Þetta er nú-
tíma ævintýramynd sem gerist í
hugarheimi ungs drengs.
Lasse Spang Olsen hefur gert
kvikmyndina eftir myndasögu
föður síns, Ib Spang Olsens.
Myndin hæfir öllum aldri. Talið er
danskt og sýningartími er 38 mín.
Steþán Þ. TcmaMcn
VELJUM
STEFÁN I
3
sœti!
mmim
DALSHRAUN 17 HAFNARFIRÐi,
Gengt Hróa Hetti, sími: 555 0487.
HAFNARGÖTU 6 GRINDAVlK,
í húsi Bárunnar, sími: 426 9600.
OPIÐ: 18 - 22 virka daga og
14 -18 laugardaga og sunnudaga.
Akureyri
ídag frá kl. 13 til 17.
Tveir togarar verða til sýnis,
Baldvin Þorsteinsson EA 10 í
eigu Samherja hf. og
Sléttbakur EA 304 sem er í
eigu Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf. Skipverjar verða
um borð og munu leiðbeina
gestum og fræða þá um
skipin.
í skemmu Flutningamiðstöðvar
Norðurlands (FMN) munu
fyrirtæki sem tengjast
sjávarútveginum kynna
vörur sínar.
Velkomin
um borð!
I októbermánuði standa útvegsmenn víðs vegar um land að heimboði
í íslensk skip og vinnslustöðvar þar sem boðið verður upp á veitingar,
skemmtiatriði og fræðslu um stolt okkar íslendinga, fiskiskipin.
Heimboðið er liður í fræðsluátaki útvegsmanna sem miðar að því að
kynna landsmönnum íjölþætta starfsemi íslenskrar útgerðar.
Höfundur er læknir.
?