Morgunblaðið - 31.10.1998, Side 55

Morgunblaðið - 31.10.1998, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 55 V KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Kirkjudagur Fríkirkjunn- ar í Hafnar- fírði NÆSTKOMANDI sunnudag er hinn árlegi kirkjudagur Fríkirkjusafnað- arins í Hafnarfirði. Vegna endur- byggingar kirkjunnar fer allt helgi- hald safnaðarins fram annars staðar þennan sunnudag. Bamasamkoma verður í húsi KFUM og K við Hverf- isgötu og hefst hún kl. 11. Hátíðar- guðsþjónusta verður i Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði kl. 14. Þar koma fram auk kirkjukórsins bamakór ldrkj- unnar undir stjóm Sigríðar Ásu Sig- urðardóttur og unglingakór kirkj- unnar undir stjóm Amar Amarson- ar. Þar prédikar sr. Einar Eyjólfs- son, prestur safnaðarins. Organisti og kórstjóri Fríkirkjunnar er Þóra Guðmundsdóttir. Að lokinni guðsþjónustu verður hin árlega kaffisala Kvenfélags kirkj- unnar í hinu nýja safnaðarheimili á Linnetstíg 6. Þar verður að venju góðgæti á borðum. Viðgerðum á kirkjunni fer senn að ljúka. Smíðavinnu er að mestu lokið en verið er að leggja nýtt gólf í kirkj- una þessa dagana auk þess sem málningarvinna er hafin. Fjáröflun stendur nú yfir og geta þeir sem vilja leggja kirkjunni lið nálgast gíróseðla í öllum bankaútibúum í Haftiarfirði. Fríkirkjan í Hafnarfirði verður end- urvígð hinn 13. desember nk. Það er von safnaðarstjómar og kvenfélags kirkjunnar að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í kirkjuhá- tíðinni nk. sunnudag. Hjónastarf Neskirkju JÓHANN Thoroddsen sálfræðingur ræðir um ólíkar væntingar karla og kvenna til hjónabandsins á fræðslu- kvöldi hjónastai-fs Neskirkju nk. sunnudagskvöld kl. 20.30. Þar fjallar hann um hvemig viðhorf kynjanna til tilfinningasambands og hjónabands FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði. em mismunandi og hvemig sú stað- reynd getur skapað togstreitu í sam- búðinni. Jóhann Thoroddsen lagði stund á sálfræði við Háskóla Islands og stundaði auk þess framhaldsnám í Gautaborg. Hann hefur verið með fyrirlestra bæði heima og erlendis. Safnaðarfélag Grafarvogskirkju SAFNAÐARFÉLAG Grafarvogs- kirkju er sennilega yngsta og fjöl- mennasta safnaðarfélag landsins og þar að auki er þetta hverfi, Grafar- vogur, með hvað yngstu fjölskyldum- ar. Þess vegna hefur safnaðarfélagið reynt að höfða til þessa aldurshóps og verið með fundarefni sem fjalla um uppeldi, agavandamál, fyrstu ást- ina og að búa saman, ásamt ýmsu öðm sem hugsanlega hefur getað vakið áhuga og þetta hefur komið fram í ágætri fundarsókn. Félagið er með fundi fyrsta mánudag í mánuði frá október og fram í maí. Minning látinna SUNNUDAGINN 1. nóvember er allra heilagra messa samkvæmt hefð kirkjunnar um aldir. Þann dag era messur víða um land helgaðar minn- ingu látinna. I Reykjavík er messað kl. 11 í flestum kirkjum, en sumstað- ar einnig kl. 14 eða 20.30. Þá standa prófastsdæmin í Reykjavík í sam- vinnu við Kirkjugarða prófasts- dæmanna fyrir tónlistardagskrá í Fossvogskirkju og leiðsögn að legstæðum frá kl. 14 til 18. Starfsfólk kirkjugarðanna verður við aðalinn- ganga kirkjugarðanna í Fossvogi, Gufunesi og við Suðurgötu, reiðubúið að veita aðstoð sína. A sömu stöðum verða friðarljós Hjálparstofnunar kirkjunnar á boðstólum. I Fossvogs- kirkju hijóma helgir tónar á hálftíma fresti í flutningi Tónakórsins, Kam- merkórs Langholtskirkju, kirkjukóra Digraneskirkju og Bústaðakirkju, Schola cantomm og Hljómkórsins, sem bjóða fram list sína ásamt fimm organistum. Á milli hða flytja prestar bæn og lesa úr orði Guðs. Fólki er frjálst að koma og fara að vild, en sem fyrr segir er dagskráin samfelld í fjóra klukkutíma. Með ferð í kirkju- garðinn heiðmm við minningu lát- inna ástvina okkar. Allra heilagra messa í Grafar- vogskirkju ALLRA heilagra messa verður í Grafarvogskirkju nk. sunnudag. Þennan dag verður í kirkjunni flutt vönduð dagskrá. „Þeirra sem á und- an oss era famir“ verður sérstaklega minnst. Prédikun flytur Lárus Guð- mundsson fyrrverandi sendiráðs- prestur og sr. Vigfús Þór Árnason og Anna Sigríður Pálsdóttir þjóna fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju og Ung- lingakór kirkjunnar syngja undii- stjóm Harðar Bragasonar organista og Hrannar Helgadóttur kórstjóra. Elísa Sigríður Vilbergsdóttir syngur einsöng. Eftir messu er boðið í „líknarkaffi“ en framlög renna til Líknarsjóðs Grafarvogskirkju sem eingöngu er notaður fyrir fjölskyldur sem eiga við fjárhagserfiðleika að stríða. Mót>- framlög í þennan sjóð koma úr sjóði er Gísli Sigurbjömsson heitinn, fyrr- verandi forstjóri Elliheimilisins Grandar, stofnaði. Verið velkomin til guðsþjónustu og kaffisamsætis. Allra heilagra messa í Hall- grímskirkju ALLRA heilagra messa verður nk. sunnudag í Hallgrímskfrkju. Fjöl- breytt dagskrá verður. Á fræðslu- morgni kl. 10 mun Björn Þorsteins- son heimspekingur ræða um efnið: Er vísindahyggjan móðir tómhyggj- unnar? Morgunmessan hefst svo kl. 11. Báðir prestar kirkjunnar þjóna fyrir altari en sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson prédikar. Félagar úr Mótettukórnum syngja og Douglas A. Brotchie verður organisti. Þá verður einnig kvöldmessa kl. 20.30 þar sem látinna verður minnst. Sr. Sigurður Pálsson prédikar og Sehola cantoram syngur undir stjórn Harð- ar Áskelssonar, en kórinn er nýkom- inn úr kórakeppni í Frakklandi, þar sem hann hlaut fyrstu verðlaun. Söngurinn mun skipa veglegan sess í kvöldmessunni og á bænastund gefst fólki kostur á að tendra bænaljós fyrir látnum ástvinum eða öðram bænarefnum. Allra heilagra messa 1 Hafnar- fjarðarkirkju NÆSTKOMANDI sunnudag er allra heilagra messa haldin í kirkjum landsins. Að fornum sið var Allra heilagra messa haldin fyrsta laugar- dag í nóvember en allra sálna messa sunnudaginn eftir. Er það svo enn víða um lönd. I Hafnarfjarðarkirkju verður haldin svokölluð Ijósamessa að kvöldi sunnudagsins, alfra sálna messa. Gefst þá kirkjugestum tæki- færi til þess að kveikja á kertum á sérstöku Ijósaaltari í minningu lát- inna ástvina og fela þá Guði í bæn. Tónlistin, bænin og íhugunin setja sterkan svip á ljósamessuna. Þórunn Sigurðardóttir sópran og Aðalheiður M. Gunnarsdóttir messósópran syngja einsöng, en prestur er sr. Þórhallur Heimisson. Eftir ljósamessuna er boðið upp á kaffi- sopa í safnaðarheimilinu. Kl. 11 fer fram hefðbundin messa á Allra heilagra messu. Þar verður líka látinna minnst. Prestur þá er sr. Gunnþór Ingason. Kirkjukórinn leið- ir safnaðarsöng undir stjóm Natalíu Chow í báðum athöfnum dagsins. Tónlistarmessa 1 Hjallakirkju NÆSTKOMANDI sunnudag kl. 11 sem er allra heilagra messa, verður fyrsta tónlistarmessa vetrarins. Þetta er sá sunnudagur sem tengist minningu látinna ástvina og er tón- listin valin út frá því. Kór Hjalla- kirkju flytur „Þýska messu“ D872 eftir Franz Shubert við texta Jo- hanns Philipp Neumann í íslenskri þýðingu Sverris Pálssonar. Undir- leikari á orgel er Sigrún Steingríms- dóttir. Þessi messa er ein af svoköll- uðum „vísumessum" þar sem allir fastir liðir messunnar era fluttir í formi vísu eða sálms í stað hefðbund- ins messutexta. Þetta form var al- gengt á áram áður og setti Marteinn Lúther t.d. saman slíka messu. í messu Schuberts er meðal annars að finna lagið við hinn vinsæla sálm „Leið oss ljúfi faðir“ sem víða er sunginn við fermingar. Einnig flytur ^ kórinn kórlagið „í himininn" sem er norskt-sænskt þjóðlag í útsetningu Jan Hákan Ábergs. Textinn er eftir Laurinus frá 1622 í þýðingu Kristins Jóhannessonar, einnig syngur kórinn sálminn „Mitt hjarta er þitt“ eftir hr. Sigurbjöm Einarsson biskup, við lag Mons Leidvin. Þá flytja þau María Guðmundsdóttir, Gréta Jónsdóttir og Gunnar Jónsson mótettuna „Þér eruð ljós heimsins“ eftir norska tón- skáldið Kjell Mork Karlsen. Ritning- arlestur annast Þóra I. Sigurjóns- dóttir. Organisti og kórstjóri er Jón Ólafur Sigurðsson. Ailir era hjartan- lega velkomnir til þessarar tónlistar- messu. Sr. fris Kristjánsdóttir. Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir unglinga kl. 21. Neskirlqa. Biblíulestur kl. 10.30. Lesið úr Matteusarguðspjalli. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórs- son. KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi. Al- menn samkoma kl. 14. Allir hjartan- lega velkomnir. Krossinn. Unglingasamkoma kl. 20.30 að Hlíðasmára 5. Allir vel- komnir. Akraneskirkja. Kirkjuskóli yngri barna (6 ára og yngri) kl. 11. TTT- starf í safnaðarheimilinu Vinaminni kl. 13. Safnaðarfélag Grafarvogskirkju. Fundur í safnaðarfélaginu verður haldinn í kirkjunni mánudaginn 2. nóvember 1998 kl. 20.30. Fyrirlestur um fjármál heimilanna. Kaffiveiting- ar. Persónuupplýsingar söluvara Heilbrigðisupplýsingum hefur verið deilt með fyrirtækjum sem engin ástæða er til að fái slíkar upplýsingar. Á vinnustöðum eru settar upp myndbandsupptökuvél- ar til að fylgjast með starfsmönn- um, tölvupóstur er lesinn og símtöl hlerað. Fyrirtæki draga saman upplýsingar um fjárhagsstöðu og persónuupplýsingar og selja óvið- komandi aðilum, oft án vitundar eða leyfis viðkomandi einstaklinga. Bankar rannsaka gaumgæfilega greiðslukortaviðskipti til að leita vísbendinga um fjárhagserfiðleika, jafnvel hjá skilvísum einstakling- um, og lánastofnanir hafa deilt upplýsingum um greiðsluviðskipti við sambærilegar stofnanir. Verðgildi víðtækra persónuupplýsinga í ágústblaði bandaríska tímarits- ins Chemical News kemur fram að fyrirtæki geta keypt frá CDB Info- tek í Santa Ana í Kaliforníu víðtæk- ar persónuupplýsingar sem inni- halda fullt nafn, fæðingardag, kennitölu, símanúmer, númer á ökuskírteini, nöfn ættingja, eignir, skattagreiðslur og gjaldþrot fyrir aðeins sjö dollara (þ.e. 500 ísl. krón- ur), og ennfremur að CDB Infotek auglýsi á Netinu að fyrirtækið hafi yfir að ráða 1.600 gagnagrunnum með 3,5 milljörðum af opinberum skrám. Það þykir kaldhæði að á sama tíma og fyrirtæki geta hindrunarlít- ið nálgast persónuupplýsingar hafa vísindamenn vaxandi áhyggjur af því hve erfiðlega gengur að fá upp- Á síðustu árum hefur verið mikil ásókn fyrirtækja í persónuupplýsingar erlendis og hafa einstaklingar átt mjög erfítt með ________að koma vörnum við. Margrét____________________ Þorvaldsdóttir segir að á sama tíma haldi iðnfyrirtæki leyndum mikilsverðum upplýsingum um varhugaverð efni sem geti haft afdrifarík áhrif á heilsu fólks. lýsingar frá fyrirtækjum um rann- undir innihéldu Tetrabromobis- sóknamiðurstöður sem snerta al- phenol A, sem einnig er „hormóna- mannaheill. hermir", neituðu framleiðendur að Upplýsingum um varhugaverð efni í plast- umbúðum haldið leyndum Nefnd eru dæmi um rannsóknir Fredericks S. vom Saal, prófessors 1 líffræði við Missouri-háskóla, á hormónahermum (það eru efni sem trufla hormónakerfi líkamans). Rannsóknir hans leiddu í ljós að þegar þunguðum músum var gefið mjög lítið magn af efninu bisphenol A dró úr myndun á sæðisfrumum hjá karlkyns afkvæmum og olli stækkun á blöðruhálskirtli og jók á árásargirni þeirra. Þegar vom Saal reyndi síðan að fá upplýsingar um hvaða framleiðsla innihéldi bisphenol A og í hvað miklum mæli efnið bærist úr plastumbúðum fyrir matvæli sem framleidd eru úr þessu efni í matvælin neituðu fram- leiðendur að veita upplýsingar. Þegar spurt var hvaða plastteg- veita upplysmgar og galu þa skyr- ingu að þar væri einnig um iðnaðar- leyndarmál að ræða. Vísindamenn segja að á meðan plastiðnaðurinn neitar að láta af hendi upplýsingar sé ekki hægt að rannsaka áhrif efn- anna á fólk. Þar sem ekki er vitað hveijir hafa komist í snertingu við þessi efni verði ekki hægt að rann- saka hvemig bisphenol A verkar. Óvarlegt er talið að treysta þeim upplýsingum sem plastiðnaðurinn hefur látið opinberum eftirlitsstofn- unum í té um áhrif efnanna á fólk, þar sem ekki er vitað hvort eða hvaða rannsóknir liggja þar að baki og þær ekki fengið visindalega gagnrýni. Efnasamsetning skordýra- eiturs og vamarefna iðnaðarleyndarmál Framleiðendur skordýraeiturs og varnarefna sem notuð eru í ræktun era einnig harðlega gagn- rýndir vegna þeirrar leyndar sem hvílir yfir rannsóknum þeirra á þessum efnum, niðurbroti, eitran- aráhrifum og langtímaáhrifum. Framleiðendur þessara kemísku efna eru sagðir þekkja betur en aðrir áhrif efnanna. En þegar þeir sækja um leyfi fyrir skráningu þeirra dragi þeir úr áhættuþáttun- um og geri lítið úr áhrifum ákveð- inna efna í framleiðslunni, jafnvel þó að margar rannsóknir hafi leitt hið gagnstæða í ljós. Annað vandamál er líka, segir blaðið, þegar efnafyrirtæki um síð- ir ákveða að gera rannsóknamiður- stöður opinberar, að þá sé það ekki gert fyrr en leyfi fyrir skráningu hefur verið veitt. Eðlilegra væri að rannsóknarniðurstöður kæmu fram áður en leyfi er veitt svo hægt sé að leggja mat á niðurstöðurnar. Eftir að þessi kemísku efni hafa verið skráð hjá umhverfisráðuneytinu (EPA) séu þau orðin rétthærri manninum. Rannsóknarniðurstöðum haldið leyndum Lögum samkvæmt eiga rann- sóknarniðurstöður að liggja fyrir þegar sótt er um skráningu efna til umhverfisráðuneytisins (EPA), en í mörgum tilfellum hafa þær aldrei verið lagðar fram. Árið 1991-1992 bauð umhverfisráðuneytið banda- rískum framleiðendum að falla frá öllum sektum ef þeir sendu inn rannsóknarniðurstöður sem hefðu átt að fylgja með umsóknum um skráningu efnanna, jafnvel þó að í þeim væru vísbendingar um áhættuþætti. í framhaldi af því sendu framleiðendur ráðuneytinu niðurstöður úr meira en 10 þúsund rannsóknum sem sýndu fram á ' mögulega hættu af kemískum efn- um sem þegar voru komin á mark- að. Plastumbúðir ofnotaðar Rétt er að benda á að á undan- förnum tveimur áratugum hefur farið fram mikil umræða um ör- yggi plastumbúða fyrir mat og þá sérstaklega umbúða fyrir fituríkar fæðutegundir, þar sem þekkt er að fita getur leyst upp efni úr plastinu sem geta verið krabbameinsvaldar. Nú virðast rannsóknir geta gefið skýringu á því hvaða efni þetta eru og hvaða afleiðingar þau geta haft á mannslíkamann. Nauðsynlegt verður því að fylgjast vel með um- ræðunni, þar sem notkun plastum- búða fyrir mat er óvíða jafnmikil og hér á landi. Hér er viðbit allt og flestar landbúnaðarafurðir seldar í plastumbúðum eða í plasthúðuðum umbúðum svo og innlend matarol- ía, majones og álegg. Ólífuolía er eina matarolían á markaðnum sem hægt er að fá í glerumbúðum. Einnig hafa lengi verið efasemd- ir um öryggi og meðferð skordýra- eiturs og varnarefna í ræktun. Margir hafa treyst því að á mark- aði séu aðeins varnarefni sem eftir bestu vitund framleiðenda valda ekki heilsuskaða. Nú er komið í ljós að öryggið hefur verið ofmetið. Þessir þættir eru eftirtektarverðir í ljósi þess að hjá fyrirtækjum virðist hvíla mun meiri leynd yfir rannsóknum á framleiðslunni en yfir persónuupplýsingum starfs- manna. Höfundur er blaðamaður. r

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.