Morgunblaðið - 31.10.1998, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 31.10.1998, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 59 HALLFRIÐUR STEFANÍA AXELSDÓTTIR + Hallfríður Stef- anía Axelsdótt- ir fæddist 26. júlí 1913 í Bændagerði í Lögmannshlíðar- sókn. Hún lést á hjúkrunarheiinil- inu Sunnuhlíð í Kópavogi 16. októ- ber síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Axel Guðmundsson og Lilja Hallgríms- dóttir sem bjuggu lengst af í Stóra- gerði í Myrkárdal. Hallfríður Stefanía áttj 5 systkini, þau Guðmund, Onnu og Ingvar sem eru látin og Sig- ríði og Lilju sem eru eftirlif- andi. Eiginmaður _ Hallfríðar Stefaníu var Jón Ágúst Jóns- son, fæddur _6. nóvember 1900 að Hrauni í Öxnadal, dáinn 20. desember 1995. Þau hjón eignuðust 3 börn: Ólaf, Matt- hildi og Friðfínn, en fyrir átti hún soninn Reyni Öl- versson. Hallfríður Stefanía og Jón Ágúst hófu búskap í Bási í Hörgárdal árið 1941 en fluttu þaðan árið 1963 í Kópavoginn og bjuggu í Hlað- brekku 1 til ársins 1991. Hallfríður Stefanía flutti þá á hjúkrunarheimilið Sunnuhlið en Jón Ágúst bjó á sambýli aldraðra að Skjólbraut 1 í Kópavogi til dauðadags. Utför Hallfríðar Stefaníu fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. í dag kveðjum við elskulegu ömmu okkar með söknuði. Þegar við horfum til baka rifjast upp margar góðar minningar. Það voru alltaf hlýjar móttökm- sem við feng- um í litla húsinu í Hlaðbrekku 1. Alltaf voru heimatilbúnar kökur á borðum og var séð til þess að allir fengju meira en nóg. Oft vorum við leystir út með nytsömum prjóna- fatnaði svo sem leistum eins og hún kallaði sokka, húfum og treflum. Garðurinn í kringum húsið var þeirra stolt og yndi og yfir sumarið var hann eins og fegursti skrúð- garður. í honum var að finna ógrynni tegunda plantna og græn- metis, til dæmis rabarbara, gras- lauk, kartöflur og ýmsar tegundir blóma. Einnig var hann leikvöllur okkar frændsystkina sumar eftir sumar. En í kringum árið 1990 fór að halla undan fæti hjá henni og nokkru síðar var hún komin í sinn eigin heim og leitaði hugur hennar til æskustöðva sinna. Nú hafa hjónin sameinast á ný og við vitum að þeim líður vel en hún mun samt lifa í minningum okkar um ókomna tíð. Viljum við votta systrum, börn- um, ættingjum og öðrum aðstand- endum okkar dýpstu samúð. Engilbert Ölafur, Hafsteinn Ágúst og Ari. Yndislega ættarjörð, ástarkveðju heyr þú mína, þakkarklökkva kveðjugjöf, kveð ég líf þitt, móðir jörð. Móðir bæði mild og hörð, mig þú tak í arma þína. Yndislega ættaijörð, ástarkveðju heyr þú mína. Faðir lífsins, faðir minn, Fel ég þér minn anda’ í hendur. Foldin geymi fjötur sinn. Faðir lífsins, Drottinn minn, hjálpi mér í himni þinn heilagur máttur, veikum sendur. Faðir lífsins, faðir minn, fel ég þér minn anda’ í hendur. (Sig. Jónsson ffá Amarvatni) Látin er tengdamóðir mín Stefan- ía Axelsdóttir og Iangar mig að minnast hennar með nokkrum orð- um. Um 1925 fluttist Stefanía ásamt foreldrum og systkinum að Stóra- gerði í Hörgárdal. Þar kynntist hún eiginmanni sínum, Jóni Ágústi Jónssyni, í kringum 1936, en hann lést fyrir tæpum þremur árum. Foreldrar Ágústs voru hjónin Jón Stefánsson og Matthildur Jónsdótt- ir. Stefanía og Ágúst hófu ævi sína saman á Bústöðum og fóru þaðan í Búðarnes. Búskap hófu þau síðan að Bási í Hörgárdal en þar bjuggu þau í 22 ár. Þau Stefanía og Ágúst eignuðust þrjú börn. Elst þeirra er Ólafur, þá Matthildur Jóna og Frið- finnur Ánnó Björgvin, en fyrir átti Stefanía Reyni Heiðdal Ölversson. Bamaböm og langömmubörn Stef- aníu er alls 46 og má með sanni segja að Stefanía hafi hlotið mikla gæfu og barnalán á sinni ævi. Eg kynntist Stefníu fyrst fyrir 35 áram, er ég hóf búskap með Ólafi syni þeirra hjóna inná þeirra heimili. Heimili þeirra bar þess merki alla tið á meðan heilsa leyfði að þar var dugleg og drífandi kona sem sá um að hlutirnir væra í lægi bæði innan- dyra og utan. Hún hafði mikla ánægju af blómarækt og trjárækt enda bar garður þeirra hjóna og heimili að Hlaðbrekki 1 þess merki. Með þessum orðum sendi ég tengdamóður minni blessunaróskir yfir móðuna miklu, með þakklæti fyrir það sem hún gerði fyrir mig. Einnig votta ég börnum hennar, tengdabörnum og bamabörnum innilega samúð. Blessuð sértu, sveitin mín, Sumar, vetur, ár og daga. Engið, fjöllin, árin þín, yndislega sveitin mín, heilla mig og heim til sín huga minn úr fjarlægð draga. Blessuð sértu, sveitin mín, sumar, vetur, ár og daga. (Sig. Jónsson frá Amarvatni) Guðbjörg Benjamínsdóttir. Við viljum minnast ömmu okkar, Stefaníu Axelsdóttur, er lést 16. október síðastliðinn. Amma fædd- ist að Melgerði 26. júlí 1913. Hún var elst sex barna Lilju Hallgríms- dóttur og Axels Guðmundssonar. Stefanía amma var mikið fyrir garðrækt og gat tímunum saman dundað í garðinum hvort sem það var við gróðursetningu blóma og trjám eða við ræktun matjurta. Alltaf þegar við komum í heimsókn til þeirra í Hlaðbrekku 1 í Kópa- vogi var hún búin að breyta ein- hverju í garðinum, annaðhvort að setja niður plöntur eða jafnvel að færa til plöntur sem fyrir voru í garðinum. Nú ertu leidd, mín ljúfa, Lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga’ og rauna tó, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. Dótth-, í dýrðar hendi Drottins, mín sofðu vært, hann, sem þér huggun sendi, hann elskar þig svo kært. Þú lifðir góðum Guði. í Guði soínaðir þú. í eilífutn andartóði ætið sæl lifðu nú. (H. Pétursson.) Með þessum orðum sendum við ömmu blessunaróskir yfir móðuna miklu með þakklæti fyrir allt. Blessuð sé minning ömmu okkar. Stefán, Matthildur og Jakobína Ólafsbörn. Elsku amma, nú er kallið komið og þið afi hittist loks á ný. Þú skilur eftir söknuð í hjörtum okkar en góðai- minningar sitja eftir. Það eru ekki margir sem hafa afa og ömmu í næsta húsi hinum megin við götuna en þess urðum við systkinin aðnjótandi. Skrefin urðu ófá á milli húsa, enda alltaf gott að koma yfir til ykkar afa sem höfðu nægan tíma til að spjalla og spila. Amma hafði gaman af því að spila og oftar en ekki spiluðum við lönguvitleysu saman og hlógum mikið, á meðan afi fylgdist bros- andi með. Þér þótti ætíð mjög vænt um garðinn ykkar afa og eyddir ófáum stundum þar. Þú naust þess að sýna gestum blómin þín og að vera úti við umlukin blómum og trjám. Við eig- um dýrmætar minningar saman sem brjótast fram í hugann því margs er að minnast, elsku amma. Við kveðjum þig með innilegu þakk- læti fyrir allt það sem þú gerðir fyr- ir okkur. Það var dýrmætt að alast upp með ykkur afa. Við þökkum samfylgd á lífsins leið, þar lýsandi stjömur skína. Og birtan himneska björt og heið, hún boðar náðina sína. En alfaðir blessar hvert ævinnar skeið og að eilífu minningu þína. Megi Guð blessa og geyma þig amma um alla eilífð. Hafdís, Hafþór, Sonja og Brynhildur Jakobsbörn. SÓLEY S VEINSDÓTTIR + Sóley Sveins- dóttir fæddist á bænum Deplum í Stíflu 12. júní 1904. Hún lést á dvalar- heimilinu Hlíð á Akureyri 21. októ- ber síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akureyr- arkirkju 29. októ- ber. Ég vil með nokkrum orðum minnast Sóleyj- ar Sveinsdóttur, sem nú er látin í hárri elli. Það var ætíð gott að heimsækja hana á heimili hennar við Gránufé- lagsgötu á Akureyri og sú hlýja sem sem ég ávallt mætti þar var einstök. Það var aðdáunarvert hversu snyrtilegu og fallegu hún hélt heim- ili sínu þrátt fyrir það að vera nán- ast blind. Ævi Sóleyjar spannar nánast öldina alla og hafði hún ávallt frá miklu að segja. Ætíð var stutt í kímnina, hún var dugleg að sjá spaugilegu hliðina á hlutunum og smitandi hlátur hennar kom öll- um í gott skap. Sóley var vel að sér í ætt- fræði og var oftar en ekki fljót að finna út hverra manna þeir voru sem hún komst í kynni við. Við sem erfum þetta land eigum fólki eins og Sóleyju mikið að þakka, því með dugnaði þess og eljusemi byggðist sá grunnur sem við nú byggjum á. Minning mín um þig, Sóley, er fal- leg og ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Vertu sæl. Guðjón Ingi. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EYJÓLFUR PÁLSSON fyrrv. framkvæmdastjóri, Miðleiti 4, Reykjavík. andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 29. október. Ásta Ólafsdóttir, börn tengdabörn og barnabörn. Ástkær sambýliskona mín, móðir, dóttir og systir, HRAFNHILDUR ÁSKELSDÓTTIR, Túngötu 17, Grenivík, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar mánudaginn 26. október, verður jarðsungin frá Grenivíkurkirkju þriðjudaginn 3. nóvember kl. 14.00. Sæmundur Guðmundsson, Guðmundur Þór Sæmundsson. Áskell V. Bjarnason, Þórhitdur Margrét Ingólfsdóttir, Jakobína Elín Áskelsdóttir, Bjarni Áskelsson, Ingólfur Áskeisson. + Móðursystir okkar, ÞÓRDÍS BRIEM fyrrv. bókavörður, Bogahiíð 20, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 3. nóvember kl. 15.00 Fyrir hönd vandamanna, Eggert Ásgeirsson, + Ástkær bróðir okkar, REGINN JÓHANNESSON, Einilundi 2B, Akureyri, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 21. október, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 2. nóvember kl. 13.30. Systkini hins látna. + Hjartans þakkirtil allra sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs sonar, bróður, mágs, frænda og barnabarns, GUÐMUNDAR TÓMASAR GUÐMUNDSSONAR. Kristín Þórarinsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Birna Vilhjálmsdóttir, Guðleif Þórunn Stefánsdóttir, Kristján Ingi Kristjánsson, Ólafur Guðmundsson, Lára Magnea Jónsdóttir, Þórarinn Gísli Guðmundsson, Svanhvít Gunnarsdóttir, Guðleif Árnadóttir, Þóra Guðmundsdóttir. MORGUNB LAÐIÐ tekur afmæl- is- og minningargreinar til birt- ingar endurgjaldslaust. Greinun- um er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kiúnglunni 1, Reykja- vík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfi- legri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksenti- metra í blaðinu). Tilvitnanh- í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnh- að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinun- um. Við birtingu afmælisgi-eina gildh- sú regla, að aðeins eru bh-tar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar era birtar af- mælisfréttir ásamt mynd í Dag- bók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að hand- rit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út- prentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er mót- taka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru rit- vinnslukerfin Word og Wordper- fect einnig auðveld í úrvinnslu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.