Morgunblaðið - 31.10.1998, Page 66
66 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Notið kartöflur
í brauð
Kristin Gestsddttir er ekki enn skilin við
kartöflurnar og setur þær núna í brauðin sín.
Kartöflubrauð má líka baka í brauðvél.
mikil. Hafið tvennt sem gullna
reglu við brauðbakstur og víkið
aldrei frá henni, þ.e. vökvinn í
brauðið má alls ekld vera heitari
en 37°C, þ.e. fingurvolgur, og
deigið þarf að vera frekar lint.
Svo getið þið breytt endalaust til
með mjöltegundir, sett í brauðið
alls konar fræ og hnetur, ýmiss
konar þurrkaða eða ferska ávexti,
söl og fjallagrös og ýmiss konar
rifið grænmeti, að ógleymdum
kartöflum. Sætutegundii- geta
verið margvíslegar t.d. hunang,
molassi, maltextrakt, sýróp og
púðursykur, strásykur eða gervi-
sykur og íbleytið getur líka verið
fjölbreytilegt, t.d. vatn, mjólk,
maltöl, bjór og alls konar safi.
Gefið hugmyndafluginu lausan
tauminn. Gott er að setja brauð-
deigið í hrærivél, þá þarf ekkert
að hnoða, bara móta brauðin.
Notið lítið ger (minna en gefið er
upp í uppskriftum) og látið brauð-
deigið lyfta sér í marga klukku-
tíma t.d. í kæliskáp. Þá brýtur
brauðið sig og verður bæði auð-
meltara og léttara. Gott er að
setja ekki allt mjölið í skálina í
byrjun, það er nær ógemingur að
hnoða meiri vökva í deig sem er
of þurrt, en auðvelt að hnoða
meira mjöl upp í lint deig. Margir
kvarta yfir að fá ekki stökka
skorpu. Best er að baka brauð
neðarlega í ofninum og gjaman
með meiri undirhita. Gott getur
verið að setja álform eða eldfasta
skál með vatni á botn ofnsins svo
að gufa umlyki brauðið í bakstrin-
um. Svo má úða á brauðið köldu
vatni eftir bakstur og leggja
stykki yfir meðan það er að kólna
en alltaf ætti að láta brauð kólna
á rist. Loks er þjóðráð að pensla
brauðið með kartöflumjöls-
blöndu; 1 tsk. kartöflumjöl og 2 dl
vatn, sem er hitað svo að þykkni,
brauðið er penslað með þessu fyr-
ir bakstur og aftur þegar það hef-
ur verið í ofninum í 10 mínútur og
er farið að lyfta sér vel. Ef þið
viljið mjúkt brauð má pensla það
með smjöri eða olíu fyrir bakstur.
Kartöfluflatbrauð
250 g soðnar kartöflur, t.d.
smælki með hýði
3-4 dl rúgmjöl (kannski meira)
iynr pvi).
2. Setjið salt og kúmen út í og
svo mikið rúgmjöl að þetta verði
nokkuð þétt deig. Skiptið í bita á
stærð við lítil egg og fletjið frek-
ar þunnt út með kökukefli. Kant-
urinn á ekki að vera sléttur,
skerið ekki undan diski.
3. Hitið pönnukökupönnu eða
aðra pönnu (notið gamla pönnu ef
hún er til, baksturinn fer illa með
pönnuna). Bakið í 4-5 mínútur á
hvorri hlið. Smyrjið flatbrauðið
volgt með smjöri og vefjið upp
eins og lausvafðar pönnukökur.
Kartöflu/hafrabrauð
200 g soðnar kartöflur
með eða án hýðis
150 g haframjöl
250 g hveiti
___________1 tsk. salt_________
_________1 msk, þurrger_______
_______2 tsk. púðursykur______
'A dl matarolía
2% dl volgt vatn út krananum
2 msk. saxaðar heslihnetur
eða sólbiómafræ
1. Stappið kartöflumar með
kartöflustappara eða hrærið
sundur í hrærivél. Setjið hafra-
mjöl, hveiti, salt, þurrger, hnetur
og púðursykur út í.
2. Setjið matarolíu og fingur-
volgt vatn út í og hrærið vel sam-
an. Deigið á að vera frekar lint, en
kartöflur eru misvatnsmiklar og
gæti þurft að setja meira hveiti út
í. Leggið stykki yfir skálina og
látið lyfta sér á eldhúsborðinu í 2-
3 klst. en í kæliskáp í um 12 tíma.
3. Takið deigið úr skálinni,
skiptið í tvo hluta. Fletjið hvorn
hlut þykkt út og vefjið saman.
Leggið brauðin á bökunarpapp-
ír, samskeyti snúi niður. Leggið
stykki yfir. Skerið rifur í brauðin
með flugbeittum hnífi eða rak-
blaði. Fallegt er að það myndi
tígla, sjá meðf. teikningu.
Penslið brauðið með kartöflu-
mjölsblöndu, sjá að framan.
4. Hitið bakarofn í 200°C, haf-
ið meiri undirhita eða hafið und-
irhita í byrjun en bætið við yfir-
hita eftir 15 mínútur.
Bakið brauðið alls í 30-40 mín-
útur.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Veðsetning•
aflaheimilda
ÞAÐ mun ekki hafa komið
neinum á óvart þegar
Kristján Pálsson, alþingis-
maður Reyknesinga, upp-
lýsti við eldhúsdagsum-
ræður að það hefðu verið
bankar og lánasjóðir sem
þröngvuðu Alþingi til að
samþykkja lög, sem heim-
iluðu veðsetningu á afla-
heimildum, þótt að því
væri látið liggja að óskin
væri útvegsmanna. Nú er
það svo að með því að veð-
setja aflaheimildirnar, þá
standa þær sem veð fyrir
skuldum útgerðarinnar
ásamt þá eignum sem út-
gerðin hefur heimild til að
veðsetja. Það mætti ætla
að þessi veðsetningar-
heimild sé gefin í þeirri of-
urtrú á kvótakerfið að til
aflabrests komi ekki meir
hér á landi og ef svo er þá
má ætla að þeir þingmenn,
sem stóðu að þessari laga-
setningu, hafi verið í ann-
arlegu ástandi að láta hafa
sig til slíkra ódáða. Hvað
ætli þurfi mörg aflaleysis-
ár til þess að allar afla-
heimildir verði komnar á
hendur lánastofnana, þrjú,
fimm, átta eða tíu og þá
verður það ekki sjávarút-
vegsráðuneytið, sem út-
hlutar veiðileyfunum held-
ur bankastjórar, innlendir
eða erlendir og þeir munu
ekki úthluta ókeypis veiði-
heimildum eins og ráð-
herra, heldur leigja þau til
hæstbjóðanda og þau
munu ekki verða til sölu,
aðeins leigu. Þá mun renna
upp ljós fyrir þjóðinni
hvaða óhappaverk var
unnið þegar veðsetningar-
heimildin var lögfest. Þar
með var tryggð eignar
heimild á veiðiheimildum
samkvæmt stjórnar-
skránni. Ef þetta er ekki
réttur skilningur á þessum
gjörningi þá væri gaman
að fá að vita hvaða ákvæði
í nefndum lögum tryggja
hina svokölluðu sameigin
þjóðarinnar þegar um fisk-
inn í sjónum er að ræða og
rétt almennings eða
stjórnvalda til að nýta
hann, þann rétt sem fjár-
magnsfyrirtæki eignast frá
gjaldþrota útgerðum, sem
búin eru að veðsetja hann
bönkum og öðmm fjár-
magnsfyrirtækum.
Jón Hannesson,
kt: 190921-3609.
Hver er konan?
EG er að leita að konu sem
aðstoðaði mig þegar ég
lenti í bílslysi á Samskips-
bíl á homi Fellsmúla og
Grensásvegar 1. október.
Vil ég endilega að hún hafi
samband við mig svo ég
geti fært henni þakkir
mínar. Er hún beðin um að
hringja í Ragnheiði Sig-
urðardóttur í síma
896 8340.
Tapað/fundið
Flíspeysa týndist í
Borgarkringlunni
KÓNGABLÁ flispeysa
týndist í Borgarkringlunni
föstudaginn 23. október.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 555 3494 eða
skili til Securitas í Kringl-
unni.
Ökuskírteini í
óskilum
ÖKUSKÍRTEINI fannst
við kirkjugarðinn við Suð-
urgötu sl. fimmtudag.
Skírteinið er á nafni
Agnesar Irar Hauksdótt-
ur. Getur hún fengið upp-
lýsingar í síma 551 0326.
Gullhringur týndist í
Elliðaárdalnum
GULLHRINGUR með
bláum steini týndist í El-
liðaárdalnum sl. þriðjudag,
á leiðinni frá stíflunni upp
að Árbæjarsundlaug. Skil-
vís finnandi hafi samband í
síma 557 8306.
Göngustafur í
óskilum
GÖNGUSTAFUR er í
óskilum í Björnsbakaríi við
Fálkagötu. Upplýsingar í
síma 551 5430.
Skiptitaska í óskilum
í Hafnarfírði
BLÁ og rauð skiptitaska
með ungbarnafötum
fannst í Læknum í Hafnar-
firði fimmtudaginn 22. okt.
Upplýsingar í síma
555 1619.
Úlpa týndist við
Dómkirkjuna
GUL og rauð úlpa týndist
við Dómkirkjuna miðviku-
daginn 28. október. Þeir
sem hafa orðið úlpunnar
varir hafi samband í síma
561 2671, 561-9675 og 698-
4885.
Dýrahald
Hvít og grá læða í
óskilum
HVIT og grá læða, um 5-6
mánaða gömul, fannst við
Snorrabraut/Miklubraut
sl. mánudag. Hún er ólar-
laus og ómerkt. Þeir sem
kannast við kisu hafi sam-
band i síma 552 2271.
Svartur köttur í
óskilum á
Laugarvatni
SVARTUR köttur með
rauðköflótta ól, ómerktur,
er á flækingi á Laugar-
vatni. Upplýsingar í síma
486 1126.
Svört læða í
óskilum í
Kópavogi
LÆÐA, svört með hvítar
hosur, með hvitan flekk
framan á hálsinum og ann-
an aftarlega undh' kviðn-
um er í óskilum í Kópa-
vogi. Þetta er gæfur og
blíður köttur, ungur að ár-
um. Upplýsingar í síma
5641348 efth' kl. 18 á
kvöldin.
Hver á mig?
EG er um 2 ára gömul
læða, svört með hvíta
bringu, hvítar loppur og
löng hvít veiðihár. Ég er
eyrnamerkt í hægra eyra
sem er ólesanlegt. Ég er
vön börnum og mjög gæf.
Eigendur hafið samband í
síma 557 4551.
SKÁK
Uni.sjón Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp á
Fontys stórmótinu í Til-
burg í Hollandi sem hófst
um síðustu helgi. Rússinn
Vladímir Kramnik (2.780)
hafði hvítt og átti leik
gegn Frakkanum Joel
Lautier (2.625).
19. Bxg6! - fxg6 20. Rg5 -
Bxg5 21. Dxg6+ - Kh8 22.
Dh5+ - Kg7 23. Dxg5+ -
Kf7 24. He3 og svartur
gafst upp því hann verður
mát eftir 24. - Rxdl 25.
Df4+ o.s.frv.
Indverjinn Anand byrj-
aði vel með sigri á
Kramnik, sem tefldi alltof
djarft. Eftir 4 umferðir er
Ánand efstur með þrjá
vinninga. 2.-4. Topalov,
Sadler og Van
Wely 2!/z v., 5.-9.
Kramnik,
Zvjagíntsev, Leko,
Sadler og Adams 2
v., 10. Piket 1'á v.
11.-12. Lautier og
Kortsnoj 1 v.
Skákþing íslands:
Fimmta umferðin í
dag frá kl. 14, Stað,
Eyrarbakka.
HVÍTUR leikur og vinnur
Víkverji skrifar...
EITT er það sem virðist ekki
lúta neinum markaðslögmálum
hér á landi og það er verðlagning
veitingahúsa á áfengi. Verð á víni í
smásölu er líklega hið hæsta í Evr-
ópu. Það þarf ekki að fara til hefð-
bundinna vínneysluríkja á borð við
Frakkland og Italíu til að fínna vín
sem er ódýrt samanborið við það
sem íslenskir neytendur þurfa að
greiða. Það nægir að halda til ná-
grannaríkja okkar á Norðurlönd-
unum, þar sem vínverð er þó tölu-
vert hærra en annars staðar í Evr-
ópu, til að fínna rauðvín og hvítvín
sem er verulega ódýrara en hér á
landi.
Skýringin á þessu háa verði er
auðvitað þær gífurlegu opinberu
álögur, sem lagðar eru á áfenga
drykki í „forvarnaskyni“ og ef-
laust til að reka ríkissjóð í leið-
inni.
Það er hins vegar ekki hægt að
skýra hið háa vínverð á veitinga-
stöðum með tilvísun í opinber
gjöld einvörðungu. Oftar en ekki
hefur smásöluverðið verið tvöfald-
að í það minnsta þegar vínin eru
boðin á vínseðlum veitingahúsa og
skiptir þá oft litlu hvert grunn-
verðið er.
Á meðan hörð samkeppni virðist
oft ríkja í matarverði er oft eins og
ætlunin sé að hala inn tekjumar á
vínsölunni. Það er reynsla Víkverji
að ef t.d. hjón vilja gera vel við sig í
mat og drykk þá verði niðurstaðan
oft sú að þau eldi frekar heima og
kaupi rauðvínsflösku úti í búð þar
sem fólki blöskrar hið háa verð,
sem sett er upp á vínseðlum veit-
ingahúsa.
Það má þó segja nokkrum veit-
ingamönnum til hróss að þeir hafa
tekið upp þá vinnureglu að hafa
fasta álagningu á vin sín en ekki
styðjast við einhverja blinda marg-
fóldunarformúlu. Þeir láta sér
nægja að reikna út hvaða tekjur
þeir þurfi að hafa af vínsölunni og
deila þeirri upphæð niður á þann
fjölda eininga, sem þeir búast við
að selja. Oftar en ekki fjölgar þeim
einingum nokkuð frá áætlunum,
þar sem neytendur taka þessari
viðleitni vel enda gefst neytendum
með þessum hætti kostur á að fá
sér betri vöru án þess að vera refs-
að fyrir það.
xxx
N þótt Víkverja þyki verðlagið
hátt í Reykjavík blöskraði hon-
um þó er vinkona hans, er starfar
hjá stóru fjármálafyrirtæki, rakti
raunar sínar fyrir honum. Starfs
síns vegna þurfti hún að bjóða hóp-
um viðskiptavina utan Reykjavíkur
í kvöldverðarboð og hafði samband
við nokkur veitingahús til að fá til-
boð í mat og drykk. Yfirleitt gekk
ágætlega að ná sátt um matseðil og
matarverð en þegar kom að víninu
var eins og venjuleg lögmál hættu
að gilda. Voru dæmi um að veit-
ingahús létu sér ekki nægja að tvö-
falda verðið heldur þrefölduðu það!
Flaska sem kostaði um þúsund
krónur í smásölu átti að kosta um
þrjú þúsund krónur, svo eitt af
„ódýrustu" vínunum sé nefnt sem
dæmi en í fyrstu voru einungis
boðin vín sem áttu að kosta fimm
til átta þúsund krónur flaskan. Átti
viðkomandi erfitt með að átta sig á
því hvernig þetta ætti að stuðla að
aukinni viðskiptavild.