Morgunblaðið - 31.12.1998, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 31.12.1998, Qupperneq 24
24 C FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Verðlaun: 1. Vöruúttekt að eigin vali frá INTERSPORT að andvirði 20.000 kr. 2. Vöruúttekt að eigin vali frá Skífunni að andvirði 10.000 kr. 3. Bækur að eigin vali frá Máli og menningu að andvirði 5.000 kr. Auk þess fá allir vinningshafar tösku merkta Morgunblaðinu. Svarið hverri spurningu með því að merkja við einn möguleika af fjórum. Merkið lausnina, klippið síðuna út, setjið í umslag og skrifið utan á: Morgunblaðið - barnagetraun, Kringlunni 1,103 Reykjavík. Úrlausnir þurfa að berast Morgunblaðinu fyrir kl. 16 mánudaginn 18. janúar. IHver skoraði mark íslendinga í jafnteflisleiknum á Laugardals- vellinum við heimsmeistarana frá Frakklandi? □ a. Rúnar Kristinsson. □ b. Ríkharður Daðason. □ c. Eyjólfur Sveinsson. □ d. Amar Gunnlaugsson. 2Kryddstelpa hætti í hljóm- sveitinni Spice Girls. Hvað heitir hún? □ a. Mel C. □ b. Geri. □ c. Mel B. □ d. Victoria. 3Tuttugu ár eru frá því að kvik- myndin GREASE var fram- sýnd í Bandaríkjunum. Myndin var endursýnd víða um veröld og leikrit sett upp í Borgarleikhúsinu. Hvað nefnast aðalsöguhetjurnar? □ a. Jan og Roger. □ b. Rizzo og Keniekie. □ c. Marty og Sonny. □ d. Sandy og Danny. 4Nokkrar bamaplötur komu út á árinu. Ein þeirra heitir Flikk Flakk - en með hverjum er hún? □ a. Siggu Beinteins. □ b. Björk Guðmundsdóttur. □ c. Heiðu. □ d. Eddu Heiðrúnu. 5Norðurpóllinn er á 90. gráðu norður. En hann er ekki bara þar. Jólasveinar funduðu á íslandi stað sem kallaður er Norðurpóllinn. Hvar er það? □ a. ísafírði. □ b. Húsavík. □ c. Hafnarfirði. □ d. Akureyri. 6Feikilega vinsæl bandarísk teiknimynd var sýnd í haust á Islandi. Þekktai' kvikmyndastjörn- ur tala fyrir söguhetjurnar sem eru nokkuð óvenjulegar. Aðalsöguhetj- an er óánægt vinnudýr sem verður ástafangið af prinsessunni. Hvað heitir myndin? □ a. Mulan. □ b. A Bug’s life (skordýralíf). □ c. The Prince of Egypt (egypski prinsinn). □ d. Antz (maurar). 7Hvað var það sem átti að vernda söguhetjurnar gegn tröllunum í leikritinu, bókinni og kvikmyndinni Síðasti bærinn í daln- um? □ a. Hringur álfkonunnar. □ b. Hjálmur dvergsins. □ c. Ruggustóll ömmunnar. □ d. Kistan fljúgandi. 8Hvað heitir litla barnið í kvik- myndinni Stikkfrí? □ a. Systa. □ b. Binna. □ c. Didda. □ d. Dúlla. 9Söguhetja í íslenskri bamabók sem kom út núna fyrir jólin er kallaður Bóbó. En hvað heitir hann í raun og veru? □ a. Blíðfinnur. □ b. Guðfinnur. □ c. Bjartur. □ d. Guðbjartur. Bill Clinton forseti Banda- ríkjanna heimsótti Kína í byrjun júlí og ræddi við kínverska ráðamenn. Hvað heitir höfuðborg Kína? □ a. Tókýó. □ b. Timbúktú. □ c. Shanghæ. □ d. Peking. Knattspyrnulið í 1. deild í Englandi hefur nú fímm ís- lenska knattspyrnumenn innan sinna vébanda. Hvert er liðið? □ a. Wolverhampton Wanderers. □ b. Liverpool. □ c. Bolton Wanderers. □ d. Juventus. Vala Flosadóttir stangar- stökkvari er einn fremsti íþróttamaður þjóðarinnar. Hvar býr hún? □ a. Reykjavík. □ b. Sauðárkróki. □ c. Svíþjóð. □ d. Danmörku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.