Morgunblaðið - 31.12.1998, Side 52

Morgunblaðið - 31.12.1998, Side 52
' *52 C FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ sem byggði á meiri yfirsýn. Þannig hefur verið litið á hagræðingu inn- an stofnana og íyrirtækja sem allra meina bót án tilUts til þess tilkostn- aðar, bæði efnalegs og félagslegs, sem af því hlýst þegar fólki er hag- rætt út úr starfi og inn í atvinnu- leysisbiðraðir. Hagvöxtur en blikur á lofti Þegar á heildina er litið hefur vel árað í íslensku atvinnulífi. Hagvöxt- ur hefur verið meiri en víðast hvar innan OECD eða um fimm prósent og er spáð framhaldi á miklum hag- vexti á komandi ári. Afli hefur verið mik- iU, verðlag gott og uppgangur almennt hjá fyrirtækjum. A lofti eru hins vegar ýmsar blikur. Þannig hefur viðskiptahalli sjaldan verið eins mikill og á yfir- standanadi ári eða um fjörutíu mOljarðar og skuldir heimilanna eru komnar í um fjög- ur hundruð milljarða króna. Því er rétt að spyrja hvort hagvöxt- urinn er sprottinn af þenslu sem ekki mun reynast innistæða fyrir. Það er hins vegar staðreynd að hagur ríkissjóðs er góður og eðlilegt og jákvætt að stjómvöld skuli við slíkar aðstæður leggja kapp á að ná niður skuldum hins opinbera. Samkvæmt yfirlýstri stefnu ríkisstjómarinnar setur hún sér það takmark að ná skuldum rík- isins úr um fimmtíu prósentum af vergri landsframleiðslu niður í um tuttugu prósent fljótlega upp úr aldamótum. Það er vissulega skynsamleg efnahagsstjóm að nýta uppsveifl- una í efnahagslífinu til að greiða niður lán. Bæði er það slæmt að þurfa til langframa að veija miklum hluta af tekjum ríkisins í afborganir af skuldum og hitt er einnig á að líta að þegar illa árar þarf að vera svig- rúm til að ráðast í lántökur svo unnt sé að smyija gangverk efnahagslífs- ins með hressilegri peningainngjöf. Skuldalækkun en röng forgangsröð Það er hins vegar grundvallarat- riði að skuldum ríkisins sé náð niður á réttum forsendum og verða hér tilgreind þrjú atriði til umhugsunar. I fyrsta lagi á ekki að ná niður skuldum ríkisins á kostnað þeirra sem höllum fæti standa í þjóðfélag- inu. Þvert á móti þarf að kappkosta að bæta hag þeirra sérstaklega. Það ^ er óþolandi að þrátt fyrir margum- talað góðæri skuli þeim fjölga í okk- ar samfélagi sem leita á náðir hjála- parstofnana um nauðþurftir. Að sögn talsmanna innlendra hjálpar- stofnana er helmingur þeirra sem til þeirra leita öryrkjar. A undanförn- um árum hafa kjör öryrkja og ann- arra lífeyrisþega sem þurfa að treysta á Almannatryggingar um viðurværi sitt verið skert jafnt og þétt. Þegar bindingin á milli bóta- greiðslna almannatrygginga og kaupgjalds var rofin í árslok 1995 óttuðust menn að kjör lífeyrisþega myndu rýma hlutfallslega og hefur komið á daginn að sá ótti reyndist ekki ástæðulaus. Ríkisstjómin segir . þetta rangt og hefur ítrekað vísað í meðaltöl kaupgjaldsþróunar máli sínu til stuðnings en staðreyndin er sú að þegar lægstu taxtar sem jafn- framt voru viðmiðunartaxtar al- mannatrygginga hækkuðu í síðustu kjarasamningum þá var sú hækkun langt umfram meðaltal. Mismunur- inn þar á milli mælir það sem haft hefur verið af lífeyrisþegum. Ef grunnlífeyrir elli- og örorkulífeyris- þega með tekjutryggingu án upp- bóta hefði tekið sömu breytingum og lágmarkslaun á árunum 1995 til ‘98 hefðu bætur lífeyristrygginga orðið ■ 1.842 milljónum króna hærri á þessu fjögurra ára tímabili en raun varð á. Annað sem vissulega er áhyggju- efni er hve þrengt er að sveitarfé- lögunum. Skuldastaða þeirra hefur stórversnað á undanförnum áium og er hún hjá mörgum þeirra kom- in á alvarlegt stig. Ymislegt bendir ♦ til að hagur ríkissjóðs fari batnandi á kostnað sveitarfélaganna. Skipulagsbreytingar hjá hinu op- inbera er þriðja atriðið sem ber að líta til þegar markmið ríkisstjórn- arinnar um að færa niður skuldir á komandi árum eru metin. Ríkis- stjómin hefur nú boðað að hún ætli að ráðast í svokallaða einkafram- kvæmd í opinberum rekstri á kom- andi árum. Þetta er nýtt heiti yfir einkavæðingu sem reynd hefur ver- ið í Bretlandi á liðnum árum og býður upp á ýmsar brellur í bók- haldi. Hugmyndin byggist á því að einkafyrirtæki er fengið til að reisa og reka opinberar stofnanir á borð við sjúkrahús, skóla og fangelsi. Fyrirtækið ræðst í lántökur eða afl- ar sjálft stofnfjár en hið opinbera sleppur við slíkt fyrst í stað og getur fyrir vikið sýnt fram á góða skuldastöðu. Hins vegar skuldbindur hið opinbera sig til að sjá fyrirtækinu fyrir við- skiptavinum sem þá eru sjúklingar, skólanemar og fangar eftir atvikum og að sjálfsögðu kemur að því að greiða þarf reikninginn. En það er seinni tíma vandamál auk þess sem það hangir yfirleitt á spýtunni að til sögunnar koma skólagjöld og sjúklingaskatt- ar þegar fram líða stundir. Það er umhugsunarvert að í bæklingi ís- lensku ríkisstjórnarinnar þar sem einkaframkvæmdin er kynnt er einmitt vildð að notendagjöldum. Dýr einkaframkvæmd Veikleikar þessa kerfis eru marg- ir. í fyrsta lagi er mjög óhyggilegt að hið opinbera bindi sig í viðskipt- um til langs tíma. Þetta á ekki síst við í heilbrigðismálum og skólamál- um þar sem breytingar eru mjög örar. I annan stað leiða notenda- gjöld, fylgifiskar þessa kerfis, til ójafnaðar innan velferðarþjónust- unnar. I þriðja lagi er þetta miklu dýrara fyrirkomulag fyrir skatt- borgarann og notandann en þegar ríkissjóður eða sveitarsjóður annast framkvæmdina og reksturinn sjálf. I því tilviki er ekki til að dreifa að hagnaður sé tekinn út úr rekstrin- um og lántaka er ódýrari. Síðast en ekki síst verður allt bókhald gagn- særra hjá hinu opinbera þegar upp- bygging og rekstur er á þess eigin vegum. En einkaframkvæmdin býð- ur stjórnmálamönnum upp á freist- ingar. Þar sem hún er við lýði eru skuldbindingar hins opinbera ekki færðar skuldamegin í bókhaldsdálk- ana og eru stjórnmálamenn því í þeirri stórkostlegu stöðu að opna viðstöðulaust nýja skóla og sjúkra- hús án þess að sýna versnandi fjár- hag og skuldir. Að sjálfsögðu kemur að lokum að skuldadögunum þótt bókhaldið gefi aðra mynd. Þegar hefur verið boðuð einka- framkvæmd á Iðnskólanum í Hafn- arfirði og byrjað er að bjóða út byggingu og rekstur elliheimils á vegum heilbrigðisráðuneytisins. Mikilvægt er að um þessa stefnu- breytingu fari fram víðtæk umræða í þjóðfélaginu því þegar upp er staðið mun þetta hafa áhrif á fjár- hag hins opinbera, veikja samneysl- una og torvelda jafnan aðgang að henni: Hættan er sú að það verði ekki samneyslan sem fjármagnar reikninginn þegar þar að kemur heldur notandinn beint. Launakerfi samkvæmt OECD-forskrift Umfangsmiklar kerfisbreytingar hafa átt sér stað í þjóðfélaginu á undanfórnum árum. Að þeim hefur verið unnið samkvæmt forskrift OECD um markaðsvæðingu á opin- berum rekstri. Angi af þessari þróun er markaðsvæðing launakerfanna. Nýir aðlögunarsamningar hjá ríki og Reykjavíkurborg eru í þessum anda. Eins og vitað var fyrirfram hefur reynst erfitt að koma nýjum launa- kerfum á hjá fjárvana stofnunum, skólum og sjúkrahúsum en auðveld- ara hjá þeim sem hafa úr fjármagni að spila. Þegar á heildina er litið hef- ur enginn orðið fyrir tekjumissi vegna breytinganna enda alltaf gengið út frá því að svo yrði ekki. Hins vegar verður ekki hægt að gera dæmið upp fyrr en að mörgum árum liðnum því í flestum samningum hef- ur verið aflögð margvísleg sjálfvirkni vegna starfsaldurs og lífaldurs sem í sumum tilvikum gaf á milli fimmtán og tuttugu og fimm prósenta launa- hækkun á starfsævinni. Samkvæmt kokkabókum OECD gengur hug- myndin út á að færa allar launaá- kvarðanir inn í stofnanir, gera þær sjálfráðari um ráðstöfun fjármuna og þegar síðan að því kemur að þær verða knúðar til niðurskurðar og spamaðar munu þær eiga þann kost að afla íjár með notendagjöldum eða með því að fækka starfsfólki. Launa- fólk þarf að vera meðvitað til hvers refimir era skornir. Hugmynda- fræðin gengur út á að beintengja kröfuna um niðurskurð og notenda- gjöld pyngju starfsmanna sjálfra. Sá böggull fylgir að sjálfsöðgu skammrifi að þessu kerfi markaðs- launa fylgir mismunun sem til dæmis birtist í auknu launamisrétti kynjanna. Þetta er reynslan frá Svíþjóð og þeim löndum öðrum sem farið hafa inn á þessa braut. Og vís- bendingu um þetta höfum við þegar úr launakerfum ríkis og Reykjvík- urborgar hvað sem öllum jafnrétt- isverðlaunum líður. Það sem sam- tök launafólks gera best varðandi þessa þróun er að vera vakandi fyr- ir þeim hættum sem þetta kerfi býður upp á og reyna eftir megni að tryggja að samningar séu reistir á félagslegum granni. Sigur í lífeyrismálum, verk að vinna í húsnæðismálum Enn einn áfangasigui- vannst á þessu ári í lífeyrismálum með stofn- un Lífeyrissjóðs starfsmanna sveit- arfélaga. Sjóðurinn er áþekkur LSR og býður upp á jafnverðmæt rétt- indi en með fleiri valmöguleikum. Þessi áfangasigur tengist öðram framfarasporum sem stigin hafa verið á þessu sviði á liðnum áram og eiga rót að rekja til þeirrar miklu samstöðu sem myndaðist fyrir fáein- um misserum um að gera stórátak til að bæta lífeyriskerfi launafólks. Verkalýðshreyfingarinnar bíða mörg mikilvæg verkefni á komandi ári. Eitt brýnasta verkefni hreyfing- arinnar er að þrýsta á um úrbætur í húsnæðismálum. Eitt versta slys seinni tíma er hvemig farið var fram með ný húsnæðislög í trássi við vilja hreyfingarinnar og allra þeirra fé- lagasamtaka í landinu sem hafa með félagslegt húsnæði að sýsla. Félags- lega kerfið byggðist á lágum vöxt- um. Nú hafa þeir verið færðir upp í það sem gerist á markaði. Stórir hópar áttu ekki möguleika á því að nýta sér félagslega kerfið vegna þess að það var of dýrt. Það segir sína sögu að þegar kjörin era þyngd eins og markaðsvæðingin hefur í fór með sér mun þeim fjölga verulega sem þurfa að leita á leigu- markað. Sá markaður er ekki fyrir hendi enda era á annað þúsund ein- staklinga og fjölskyldna á biðlistum eftir húsnæði og drjúgur hluti í brýnni neyð. Það verkefni bíður allra félagslegra afla í landinu að fá úr þessu ástandi bætt og þolir það enga bið. Landmælingar, víti til varnaðar Undir lok ársins féll dómur í máli starfsmanna Landmælinga ríkisins gegn ólögmætum flutningi stofnun- arinnar frá Reykjavík til Akraness. Málið ráku stéttarfélög starfsfólks Landmælinga og kom niðurstaðan fáum á óvart sem kynnt höfðu sér málin náið. Við þennan dóm voru allir þeir samningar sem gerðir hafa verið í tengslum við flutning- ana settir i uppnám. Auk þess rifja menn upp aðdraganda þessa máls og þær deilur sem staðið hafa und- anfarin tvö ár um flutninginn sem fáir deila núorðið um að hafí verið vanhugsaður. Þeir sem era fylgj- andi byggðastefnu og þeir sem vilja efla opinbera þjónustu á lands- byggðinni geta lært af þessu máli að hér var vitlaust farið í sakirnar og ólöglega í ofanálag. Enn vantar það í okkar stjórnsýslu og pólítík að menn leiðrétti mistök. Hér á landi era mistökin einfaldlega staðfest með nýjum lögum. Það var gert á síðasta starfsdegi Alþingis fyrir há- tíðar. Steinn Logi Björnsson, formað- ur Samtaka ferða- þjónustunnar Merkir áfangar í ferða- þjónustu Á ÞVÍ ári sem nú er á enda runnið hafa náðst ýmsir merkir áfangar í ferðaþjónustunni. Tekist hefur að bæta afkomuna í greininni verulega frá árinu 1997 sem var eitt það versta hvað þetta varðar, í langan tíma. Einnig er metaukning í komu erlendra ferðamanna til landsins. Loks stefnir í að gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönn- um aukist veralega frá fyrra ári, en aukningin fyrstu níu mánuðina var 3,3 milljarðar eða 18%. Þar með festist ferða- þjónustan enn frekar í sessi sem næststærsti útflutningsatvinnuveg- ur þjóðarinnar. En, þrátt fyrir þessa já- kvæðu þróun er arð- semi í ferðaþjónustu enn of lítil og óstöðug. Hlýtur það að vera áfram eitt helsta verk- efni greinarinnar í samvinnu við stjómvöld, að bæta þar um betur. Einn aðal orsakavaldur að lágri arð- semi er hin stutta vertíð og þarmeð léleg nýting fjárfcstinga. Því er það einkar ánægjulegt að nú í fyrsta sinn, kemur meira en helmingur er- lendra ferðamanna til landsins utan háannatímans júní, júh' og ágúst. Af einstökum atburðum ársins 1998, hlýt ég að staldra fyrst við stofnun Samtaka Ferðaþjónustunn- ar, SAF, hinn 11. nóvember sl. Það hefur lengi háð ferðaþjónustunni sem atvinnugrein að vera ekki skipu- lögð í hagsmunasamtök með sam- bærilegum hætti og aðrar atvinnu- greinar. Þar af leiðandi hefur at- vinnugreinin ekki getað beitt sér sem skyldi í sameiginlegum málum og hafa hagsmunir hennar því oft setið á hakanum þegar teknar era mikilvægar ákvarðanir af löggjafan- um eða framkvæmdavaldinu. Undir- tektir ferðaþjónustufyrirtækja við stofnun SAF hafa verið mjög góðar. Þótt ekki séu liðnir tveir mánuðir frá stofnun SAF, hefur á fjórða hundrað fyrirtækja þegar gengið til hðs við samtökin með samanlagða veltu yfir 60 milljarða króna. Á meðal þessara stofnfélaga era flest af stærstu og öflugustu ferðaþjónustufyrirtækjum landsins, sem mörg hver eiga í hörkusamkeppni innbyrðis. Einnig er þar á meðal fjöldi lítiha fyrirtækja í ferðaþjónustu s.s. ferðaþjónustu- bændur, litlir veitingastaðir, útgáfu- fyrirtæki og minjagripafyrirtæki. Þetta sýnir betur en annað hve þörfm var orðin brýn á að sinna sameiginlegum hagsmunamálum. En hver eru helstu hagsmunamálin sem era sameiginleg og sem SAF mun einna helst beita sér fyrir? Þar ber fyrst að nefna að almenn rekstrarskilyrði ferðaþjónustufyr- irtækja séu sambærileg við það sem aðrar atvinnugreinar hér á landi búa við og sambærileg við það sem ferðaþjónusta annarra landa býr við. Hér skiptir miklu máli hvernig ákvarðanir um gengisvið- miðun krónunnar er háttað, hvern- ig þátttöku ríkisins í sameiginleg- um verkefnum s.s. landkynningu er háttað og hvernig skattamálum er hagað t.d. varðandi virðisaukaskatt af gistingu og skattheimtu af bíla- leigubílum og hópferðabifreiðum. Loks ber að geta mála s.s. tíma- lengdar skólaárs og vinnutíma- reglna, en íslensk ferðaþjónusta býr við eina allra stystu vertíð sem um getur og er það ein af höfuðor- sökum fyrir almennt lágri arðsemi í greininni. Af öðram hagsmunamálum sem era mikilvæg fyrir ferðaþjónustuna og varða þjóðfélagið allt ber að nefna landkynningarmál og umhverfismál. Það hefur lengi verið vandamál hve litlu fé hefur verið varið til landkynn- ingar einkum af hálfu opinberra að- ila, en a.m.k. þriðja hver króna sem erlendir ferðamenn eyða, fer beint í ríkissjóð. Nú er lag að bæta úr þessu. I fjárlögum fyrir 1999 er gert ráð fyrir auknum framlögum ríkisins til beinnar landkynningar sem nemur 30 milljónum króna og ber að fagna því. En betur má ef duga skal. Fyrirhugað er að stofna sam- eiginlegt markaðsráð sem Samtök Ferðaþjónustunnar, Ríkið og e.t.v. Reykjavíkurborg eiga aðild að en sem stæði öðrum opið sem sæju sér hag í að taka þátt í að móta og auka kynningu á Islandi erlendis. Þetta verður eitt af verkefnum ferðaþjónustunnar á nýju ári. Annar málaflokkur sem brennur á ferðaþjónustunni era umhverfismálin. Á því ári sem er að ljúka hefur farið fram mikil umræða um málefni hálendisins, m.a. vegna nýrra laga um þjóðlendur og skipulag hálendisins auk um- ræðna um hugsanleg- ar virkjanir á hálend- inu. Það hlýtur að vera skoðun ferðaþjónust- unnar að allar ákvarð- anir um nýtingu þess- arar auðlindar séu í samræmi við lang- tímahagsmuni þjóðar- innar. Við mat á slíku þarf einnig að taka tillit til áhrifa á ímynd lands og þjóðar og þeirra verðmæta sem felast í slíku við markaðssetningu, ekki bara ferða- þjónustu heldur einnig annarra út- flutningsvara okkar. Nákvæmlega það sama gildir um hvalveiðar. Þar verður að fara varlega og ekki rasa um ráð fram. Hér er ekki verið að segja að alls ekki eigi að virkja á hálendinu eða að alls ekki eigi að hefja hvalveiðar. Hér er hins vegar lagt til að þessi mál séu vandlega metin frá öllum hliðum áður en ákvarðanir eru teknar og að mat sé lagt á alla langtímahagsmuni þjóð- arinnar, þar með talið ferðaþjón- ustu og annarra útflutningsgreina. Ferðaþjónustan er reiðubúin að taka þátt í slíkum umræðum og mati án öfga eða fyrirfram gefinn- ar niðurstöðu. Hér hef ég tíundað mikilvægi ferðaþjónustu sem atvinnugreinar mælt í útflutningstekjum og fjölda erlendra ferðamanna og ritað um arðsemi og hagsmuni. En það er önnur hlið á ferðaþjónustunni sem ekki er eins mælanleg eða augljós og það er þýðing hennar fyrir lífið í landinu og mat okkar sjálfra á Is- landi og því að búa hér. Það er öfl- ug ferðaþjónusta í víðum skilningi sem gerir það kleift að hafa eins góðar samgöngur við önnur lönd og raun ber vitni. Okkar eigin fólks- fjöldi ber engan veginn uppi þá ferðatíðni sem við búum við. Oflug ferðaþjónusta gerir það einnig mögulegt að hér er fjölskrúðugri flóra veitinga og skemmtistaða en ella væri. Margir hafa meira að segja lært að meta íslenskan fisk upp á nýtt og á annan hátt af því að snæða hann eins og hann er mat- reiddur fyrir ferðamenn en ekki á þann hátt sem tíðkast á heimilum landsins. Það sama má segja um nátturuna sjálfa, að við lærum oft að meta hana á annan hátt, í gegn- um augu annaira. Þannig hef ég kynnst mörgum gersemum ís- lenskrar náttúru á því að fara með erlendum ferðamönnum um til að sýna þeim landið. Þeir hafa oftar en ekki bent mér á hluti sem ég hafði ekki tekið eftir eða velt fyrir mér, en hef lært að meta. Þannig má segja að öflug ferðaþjónusta hafi áhrif til eflingar almennra lífsgæða okkar Islendinga, langt umfram það sem beint verði metið í krónum og aurum. Að lokum óska ég öllum sem þetta lesa gleðilegs nýs árs og megi ferðalög ykkar á nýju ári vera til ánægju, gleði og nýrrar uppgötvun- ar. Ögmundur Jónasson Steinn Logi Björnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.