Morgunblaðið - 18.02.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.02.1999, Blaðsíða 1
40. TBL. 87. ÁRG. FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Þrír Kúrdar skotnir til bana í Berlín er mótmæli gegn handtöku Öcalans halda áfram Ecevit heitir sann- gjörnum réttarhöldum London, Ankara, Berlín, Aþenu. Reuters. Reuters ÞYSK óeirðalögregla hefur hendur í hári kúrdnesks mótmælanda fyrir framan ísraelska sendiráðið í Berlín í gær. Þrír Kúrdar féllu og sextán særðust þegar öryggisverðir sendiráðsins hófu skotríð eftir að hópur Kúrdar hafði brotist þar inn. MOTMÆLAAÐGE RÐIR Kúrda vegna handtöku skæruliðaleiðtogans Abdullahs Öcalans í íyrradag héldu áfram í gær og skutu ísraelskir ör- yggisverðir þrjá menn til bana eftir að hópur Kúrda hafði brotist inn í sendiráð Israels í Berlín í Þýska- landi. Einnig særðust sextán manns. Sagði Benjamin Netanyahu, forsæt- isráðherra Israels, að öryggisverð- imir hefðu skotið mennina í sjálfs- vörn en talið er að Kúrdarnir hafi gert atlögu að sendiráði ísraels í kjölfar frétta um að ísraelska leyni- þjónustan, MOSSAD, hefði veitt TjTkjum aðstoð við að handsama Öcalan. Hét Bulent Ecevit, forsætis- ráðherra Tyrklands, þvl að Öcalan hlyti sanngjörn réttarhöld og að þau myndu ekki dragast á langinn. Ecevit greindi frá því í gær að Öcalan hefði verið fluttur í Imrali- fangelsiseyjuna í Marmarahafi og að aðrir fangar sem þar voru hefðu ver- ið fluttir annað í öryggisskyni. Kvaðst Ecevit vera á móti dauða- refsingu, sem skv. laganna bókstaf er enn við lýði í Tyrklandi, en gat þó ekkert fullyrt um hversu líklegt væri að Öcalan yrði líflátinn, dæmi tyrk- neskh’ dómstólar hann sekan fyiir hryðjuverk. Varði Ecevit jafnframt þá ákvörðun tyrkneskra stjórnvalda að hleypa lögfræðingum Öcalans ekki inn í landið, en þeir höfðu í gær- morgun flogið til Istanbul. Hópur Kúrda gerði ekki aðeins at- lögu að ísraelska sendiráðinu í Berlín. I London hreiðruðu Kúrdar um sig í gríska sendiráðinu sem og í svissnesku borgunum Bern og Zurieh. I Genf tók hópur manna yfir höfuðstöðvar flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna um stund og í Hamborg í Þýskalandi héldu Kúrdar starfsmanni Jafnaðannannaflokks- ins í gíslingu í höfuðstöðvum flokks- ins. Fóru Kúrdarnir fram á fund með leiðtogum flokksins, sem fer með völd_ í Þýskalandi. Mótmæltu Kúrdar í Astralíu og Kanada einnig. Alls kyns samsæriskenningar Tilkynntu ísraelar eftir atburðina í Berlín að þeir hefðu aukið öryggis- vörslu við öll sendiráð sín. For- dæmdu talsmenn Verkamannaflokks Kúrdistans (PKK); sem Öcalan fór fyrir, aðgerðir Israelsmanna og sögðu þær afleiðingar „óhreins stríðs“ sem ísrael og Tyrkland standi saman að gegn Kúrdum. Halda Kúrdar því fram að handtaka Öcalans sé afleiðing samsæris MOSSAD og bandarísku leyniþjón- ustunnar (CIA). Bæði Netanyahu og fulltrúar Bandaríkjastjórnar hafa hins vegar neitað allri aðild. Engu að síður voru uppi getgátur um það í gær að Bandaríkjamenn hefðu gert Tyrkjum viðvart um veru Öcalans í Kenýa. Hélt dagblað í Tyrklandi því fram að Bandaríkja- menn hefðu veitt Tyrkjum aðstoð gegn því að þeir höfnuðu kröfum Iraka um að Tyrkir hættu aðstoð við Bandaríkjamenn, en Bandaríkja- menn hafa gert aðgerðir sínar gegn Irökum að undanförnu út frá bæki- stöðvum i Incirluk í Tyrklandi. Tildrög handtökunnar skýrast Þótt ekki séu enn öll kurl komin tii grafar um hvemig handtöku Öcalans bar að virtist í gær Ijóst að Kenýa- menn hefðu veitt Tyrkjum aðstoð. Fyrirskipuðu stjómvöld í Kenýa lok- un allra sendiráða iandsins erlendis í gær af ótta við hermdaraðgerðir Kúrda. Sném Kenýamenn við blað- inu í gær og sögðust sjálfir hafa sett Öcalan um borð í flugvél á mánudag. „Við vomm fegnir að vera lausir við hann,“ sagði Frank Kwinga, yfir- maður útlendingaeftirlitsins, en gaf hins vegar ekki upp hvort Kenýa- menn hefðu vitað að för vélarinnar var heitið til Tyrklands, eða hvort þeir héldu að hún færi til Hollands. Mun Öcalan sjálfur hafa staðið í þeirri trú líkt og Grikkir. Svo virðist sem grísk stjórnvöld hafi einfaldlega látið gabba sig til að láta Öcalan af hendi, en þau höfðu leynilega haldið hlífiskildi yfir Kúrdaleiðtoganum um tveggja vikna skeið. Voru grísk dagblöð í gær enda harðorð í garð stjórnvalda fyrir að missa Öcalan í hendur Tyrkjunum, höfuðandstæðingi Grikkja. Fordæmdu þau Costas Simitis, forsætisráðherra landsins, fyrir „klúður" og „niðurlægingu" og sum gengu svo langt að kalla forsætisráðherrann „svikara“. ■ Frelsishetja eða/26 Motzfeldt telur stöð- una óljósa Kaupinannahöfn. Morpunblaðið. „NÚ ætla ég rétt að klára morgunkaffið og svo sjáum við til,“ sagði glaðbeittur Jonathan Motzfeldt, formaður grænlensku landstjórnar- innar, er Morgunblað- ið ræddi við hann í gær- morgun um úrslit heima- stjórnarkosn- inganna á Grænlandi. Hann viðurkenndi þó að niðurstaðan væri ekki sem best fyrir flokk sinn, Siumut. Missti flokkurinn einn þingmann. Hinn stjórnar- flokkurinn, Atassut, missti tvo menn. Frambjóðendasam- bandið (IA) bætti hins vegar við sig manni. „Horfurnar nú era nokkuð óljósar eftir niðurstöðu kosn- inganna. Sem stærsti flokkur- inn mun Siumut leiða stjórnar- myndunina, en hvort mynduð verður stjórn með Atassut eða með IA verður að koma í Ijós. Nú athugum við fyrst hvernig landið liggur.“ Kosningarnar hafa almennt verið taldar sýna útbreidda óánægju á Grænlandi með störf heimastjórnarinnar, en Motzfeldt minnir á að Siumut hafi setið í stjórn í tuttugu ár, alveg síðan heimastjórn var komið á 1979. „í ljósi langrar stjórnarsetu er niðurstaðan góð,“ segir Motzfeldt, en dreg- ur þó ekki úr vonbrigðum sín- um með úrslitin. ■ Niðurstöðurnar/26 Motzfeldt Reuters ÞORPSBÚAR virða fyrir sér skemmdir á rútum námumanna eftir átök þeirra við lögreglu í kjölfar mótmæla til stuðnings Miron Cozma. Leiðtogi námumanna í Rúmeníu handtekinn Búkarest, Bumbcsti, Stoenesti. Reuters. Kosovo-friðarviðræðum fram haldið Samkomulag enn ekki í sjonmáli Rambouillet. Reuters. Staðið skuli við afnám fríhafn- arverzlunar Brussel. Reuters. ENGIN ástæða er til að fresta frek- ar afnámi tollfrjálsrar verzlunar inn- an Evrópusambandsins (ESB), sem til stendur að gerist um mitt þetta ár. Að þessari niðurstöðu komst framkvæmdastjórn ESB í gær, eftir að hafa kannað betur hvaða áhrif bann við fríhafnarverzlun á ferjum og í flughöfnum innan sambandsins hefði á vinnumarkaðinn og hvort fýsilegt væri að heimila slíka starf- semi enn um sinn. Mario Monti, sem fer með málefni innri markaðarins í framkvæmda- stjórninni, tjáði blaðamönnum í Brussel að komizt hefði verið að þeirri niðurstöðu að afnám fríhafnar- verzlunar myndi hafa mjög takmörk- uð áhrif á vinnumarkaðinn til lengri tíma litið og við það að afnema þessi skattfríðindi á áfengi og tóbak mætti gera ráð fyrir að um tveir milljarðar evra - um 160 milljarðar króna - bættust við skatttekjur aðildarríkj- anna. Sagði Monti framkvæmda- stjórnina hafa bent stjórnvöldum að- ildarríkjanna á að þetta fé mætti nota til að skapa störf í staðinn fyrir þau sem töpuðust við breytinguna. ■ Frekari frestun/27 MIRON Cozma, leiðtogi rúmenski’a námumanna, var handtekinn í gær eftir að til harðra átaka kom milli námumanna og lögreglu en fyrr í vikunni var gefin út handtökuskip- un á hendur honum. Höfðu náma- menn, vopnaðir kylfum, keðjum og eggvopnum efnt til fjölmennrar mótmælagöngu skammt frá Búkarest til að mótmæla nýupp- kveðnum fangelsisdómi gegn Cozma. Lögreglu tókst hins vegar að stöðva göngumenn áður en þeir komust að höfuðborginni. Hæstiréttur Rúmem'u dæmdi Cozma í 18 ára fangelsi á mánudag vegna aðildai’ hans að óeirðum sem urðu nldsstjóm Rúmeníu að falli árið 1991. Rúmt ár er liðið frá því að Cozma lauk við að afplána 18 mánaða dóm undirréttar sem hæstiréttur hefur nú þyngt um sextán og hálft ár. SERBAR ítrekuðu í gær fyrri yfir- lýsingar um að friðargæslusveitir á vegum Atlantshafsbandalagsins (NATO) fengju ekki að koma til Kosovo, náist samkomulag í viðræð- um um frið í Kosovo, sem nú standa yfir í Rambouillet í Frakklandi. ítrekuðu talsmenn Frelsishers Kosovo (UCK) einnig að afvopnun hersins kæmi ekki til greina. Engu að síður mátti dæma af ummælum þeirra Robins Cooks, utanríkisráð- herra Bretlands, og frönskum starfs- bróður hans, Hubert Vedrine, að eitthvað mjakaðist í samkomulags- átt, en þeir Cook og Vedrine áttu fund með samninganefndum deilenda í gær. Sagði Cook á frétta- mannafundi að hreyfing væri á mál- inu, „en sú hreyfing verðui’ að aukast ef samningar eiga að nást fyrir laug- ardag“. A laugardag rennur út sá frestur sem stríðandi fylkingar hafa til að ná samkomulagi. Chris Hill, aðalsamningamaður Tengslahópsins svonefnda, sneri tíl Rambouillet í gær eftir langan fund með Slobodan Milosevic, forseta Jú- góslavíu, sambandsríkis Serbíu og Svai-tfjallalands á þriðjudag. Á fund- inum er talið að Hill hafi tjáð Milos- evic afstöðu ríkjanna sex í Tengsla- hópnum og áréttað að ef samningar næðust ekki yrði sá aðili kallaður til ábyrgðar sem sliti þeim. í frétt TaTyug-fréttastofunnar júgóslav- nesku í gær sagði að á fundi sínum með Hill hefði Milosevic staðið fast við fyrri yfirlýsingar um friðar- gæslulið NATO en þó sögðu serbneskir heimildamenn að ekki þyrfti endilega að túlka ummæli Milosevics sem algera höfnun á því að leyfa komu friðargæsluliðsins til Kosovo. Itrekuðu fulltrúar UCK enn í gær andstöðu sína við þá hugmynd að þeir afhendi vopn sín hersveitum NATO innan þriggja mánaða. Sagði talsmaður þeirra, Sabri Kicmari, í gær að frelsisherinn væri enn stað- ráðinn í að knýja fram sjálfstæði Kosovos og að einskis yrði látið ófreistað í þeirri viðleitni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.