Morgunblaðið - 18.02.1999, Blaðsíða 66
66 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Ilmandi afmæli
FATAHÖNNUÐURINN Gian-
franco Ferre átti 20 ára starfsaf-
mæli á dögnmim og í tilefni þess
hannaði hann nýjan dömuilm,
Ferre 20. Hérlendis hefur heild-
verslunin Forval umboð fyrir
vörur Gianfranco Ferre og var
haldin afmælisveisla á veitinga-
húsinu Vegamótum í til-
efni nýja ilms-
ins og var gestum boðið upp á
veitingar.
Heiðar Jónsson snyrtir kynnti
nýja ilminn, „Ferre 20“, auk þess
sem hann riijaði upp ýmis atriði
úr ferli tiskukóngsins Ferre á
hans tuttugu ára
ferli.
MARGRET
B. Magnúsdóttir og
Bjóla G. Friðriksdóttir, einn eigenda
Forvals, við glæsilegt afmælisborðið.
HEIÐAR Jónsson í góðum félagsskap þeirra Guð-
ríðar, Fjólu, Guðrúnar, Drífu og
Þórunnar.
MÆÐGURNAR
Hrefna M. Gunnarsdóttir og Katrín og
Aslaug Magnúsdætur skáluðu í afmælisveislunni.
Aðeins
snjöll lausn getur skipt sköpum
fyrir framtíð þína.
AGE MANAGEMENT
STIMULUS COMPLEX P.M.
Framsæknir vísindamenn á
rannsóknarstofum La Prairie
senda nú frá sér háþróað efni,
sem hægir á öldrun húðarinnar.
Húð þín bregður á leik.
Aldursblettir hverfa.
Djúpar línur og hrukkur dvína.
Á augabragði hefur þú
endurheimt þitt rétta andlit.
laprairie
I SWIT2ERLAND
Kynning
fimmtudag 18., föstudag 19. og
laugardag 20. febrúar.
1
H Y G E A
jnyrtivðruverjlun
Laugavegi 23,
sími 511 4533.
Kvikmyndahátíðin í Berlín
SHOOTING STARS
NiiiBál
LEIKARARNIR á hátíðinni í Berlín ásamt Ben Kingsley fyrir miðju. Ingvar er í efri röð lengst til vinstri.
Næmi fyrir átök-
um og íróníu
Ingvar Sigurðsson
var um helgina kynntur
á Berlinale-hátíðinni
í verkefninu Stjörnur
á uppleið. Rósa Erl-
ingsdóttir, fréttaritari
í Berlín, átti stutt
spjall við Ingvar sem
og leikarann Ben
Kingsley sem nefndur
hefur verið „guðfaðir“
verkefnisins.
KINGSLEY kynnir leikarana á blaðamannafundi í Berlín.
Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI í
Berlín voni um síðastliðna helgi
kynntir átján ungir og upprennandi
leikarar frá alls fjórtán Evrópulönd-
um. Verkefni þetta, sem nú er staðið
að í annað skipti, kallast Stjörnur á
uppleið eða „Shooting Stars“ og er á
vegum European Film Promotion.
Kvikmyndasjóður íslands sem er að-
ili að verkefninu tilnefndi Ingvar
Sigurðsson, sem nú tók þátt, fyrstur
íslenskra leikara.
Verkefnið felst í því að kynna
unga leikara sem getið hafa sér góðs
orðstírs í heimalandi sínu og koma
þeim á framfæri á alþjóða vettvangi.
Meðlimir hópsins í ár eru flestir
hverjir þekkt nöfn í evrópskum kvik-
myndaheimi og nokkrir þeirra hafa
leikið í kvikmyndum vestanhafs.
Paul Ronan, sem lék í mynd Jims
Sheridan „The Boxer“ og „The
Devil’s Own“ undir leikstjórn Alans
J. Pakula, þarf til að mynda vart að
kynna fyrir kvikmyndaunnendum.
Kelly Mcdonald var aðeins fjórtán
ára gömul þegar hún lék fyrsta hlut-
verk sitt í mynd Dannys Boyle,
„Trainspotting“ (1995), sem hlaut
heimsathygli. í nýjustu mynd Mikes
Figgis „The Loss of Sexual
Innocence" sem frumsýnd verður í
Berlín í þessari viku, fer hún með
eitt af aðalhlutverkunum.
Danska leikkonan Iben Hjelje er
ein af hópnum í ár, en hún leikur í
mynd Soren Kragh-Jacobsen sem
valin var í samkeppnisflokk Berl-
inale-hátíðarinnar. Maria Schrader
er löngu orðin stórstjarna í Þýska-
landi og leikur aðalhlutverk í Ámiée
og Jaguar sem var opnunarmynd
kvikmyndahátíðarinnar í ár.
Á blaðamannafundi til kynning-
ar á leikurunum varð þeim tíðrætt
um muninn á evrópskum og banda-
rískum kvikmyndaheimi. Vestanhafs
eru það leikarar frekar en leikstjór-
ar sem festast í minni áhorfandans,
enda miðast öll markaðssetning
myndanna við að kynna og selja
kvikmyndii’nar með andlitum aðal-
leikaranna. Evrópskur kvikmynda-
iðnaður hefur á síðastliðnum árum
eða áratugum verið rómaður fyrir að
vera mun fjölbreyttari og kraftmeiri
en hinn bandaríski. En það er samt
sem áður sorgleg staðreynd að að-
sókn á evrópskar myndii- liggur und-
ir einu prósentustigi í Bandaríkjun-
um og í Evrópu rétt um og yfir tíu af
hundraði miðað við áhorf banda-
rískra mynda.
Vilja leika í Evrópu
Margir leikarar Shooting Stars
hópsins eru, eins og áður sagði, eftir-
sóttir af fremstu leikstjórum í heimi
og eru án efa upprennandi stjömur.
Flestir þeirra voru sammála um að
gott kvikmyndahandrit sem hefði að
geyma sögu sem höfðaði til þeirra
myndi ráða vali þeiiTa á hlutverki,
Paul Ronan hitti naglann á höfuðið
að mati viðstaddra þegar hann sagði
að ef handritið lofaði góðu myndi
hann taka hlutverkið sama hvaðan
tilboðið kæmi. Bandarískur markað-
ur væri þannig ekki takmark í sjálfu
sér eingöngu frægðarinnar vegna.
Einnig kom gi-einilega fram að leik-
ui’unum voru þættir eins og menning
og tungumál þjóða þeirra mikilvæg-
ur bakgrunnur til að byggja á fyrir
evrópskan kvikmyndaiðnað.
Þorfinnur Ómarsson, hjá Kvik-
myndasjóði Islands, sagði megintil-
gang verkefnisins vera að brjóta upp
gamlar hefðir í evrópskum kvik-
myndaheimi. Leggja þyrfti miklu
meiri áherslu á hlutverk leikaranna í
að kynna og markaðsetja myndirnar
því stórstjörnur gegna mikilvægu
hlutverki í sölu og útbreiðslu kvik-
mynda. Með því að kynna leikarana
átján með hjálp og við hlið stór-
stjörnunnar Bens Kingsley á alþjóð-
legri kvikmyndahátíð væri fyrsta
áfanganum að því takmarki náð.
Frami leikaranna gæti síðan aukið á
hylli evrópska kvikmynda á alþjóða
vettvangi sem kæmi sér auðvitað vel
fyrir kvikmyndaiðnaðinn í heild
sinni.
„Gaman að taka þátt“
Ingvar Sigurðsson sagði það mik-
inn heiður að hafa verið tilnefndur
og valinn í verkefnið. Gaman væri að
hitta kvikmyndaleikara frá öðrum
Evrópulöndum og fá innsýn í starfs-
feril og framtíðarsýn þeirra. Ingvar
sagðist jafnframt finna fyrir sér-
stöðu sinni vegna smæðar Islands.
Bakgrunnur íslenskra leikara væri
einnig sérstæður fyrir þær sakir að
margir leikarar vinna bæði í leikhúsi
og í kvikmyndum, meira væri um
sérhæfingu á meginlandinu. Hann
sagði að þrátt fyrir að hann hefði
leikið í fjölda mynda sem sýndar hafí
verið á alþjóðlegum kvikmyndahá-
tíðum hefði hann aldrei fengið tæki-
færi til að fylgja myndunum eftir.
Mikilvægt væri að mæta og kynnast
fólki í kvikmyndaheiminum hvort
sem það væru aðrir leikarar, leik-
stjórar eða framleiðendur. Framtíð-
in leiðir síðan í ljós hvort Ingvari
verði boðið hlutverk í kjölfar þátt-
töku hans í verkefninu.
Ingvari líkt við Geysi
Shooting Stars verkefnið fékk
mikla umfjöllun í Berlín sem víðar og
bar blaðamannafundurinn merki um
mikinn áhuga fjölmiðla og á Ben
Kingsley sinn þátt í því. Hann sagði í
viðtali við fréttaritara að hann væri
að leggja góðu málefni lið. Hann hefði
mikla trú á evrópskum kvikmynda-
iðnaði og væri sannfærður um að
hann væri að hefj’a sitt blómaskeið.
Kingsley sagði um Ingvar að
hann bæri bakgrunn sinn utan á sér.
Leikur hans einkenndist allt í senn
af næmu skynbragði fyrir mannleg-
um átökum og íróníu. Ingvar hefði
kraft sem sennilega væri á fáum
stöðum eins sterkur og á Islandi og
ætti uppruna sinn í náttúrunni. I
þýsku dagblaði var Ingvari einnig
líkt við íslenskan Geysi.