Morgunblaðið - 18.02.1999, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.02.1999, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kevin Keegan landsiiðs- þjálfari Englands til vors/C1 Stórmeistarajafntefli á Old Trafford/C4 Lengst forsætis- ráðherra sam- fellt í embætti Eftirlitsstofnun EFTA um skattaafslátt vegna innlendra hlutabréfa Formleg tilkynn- ing um brot gegn EES-samningi EFTIRLITSSTOFNUN EFTA, ESA, hefur sent íslenskum stjóm- völdum formlega tilkynningu um að stofnunin telji að ákvæði laga, sem veita Islendingum skattaafslátt vegna kaupa á innlendum hlutabréf- um, stangist á við 40. grein samn- ingsins um Evi’ópska efnahagssvæð- ið og tilskipun ESB um frjálsa fjár- magnsflutninga. ESA telur að íslensk löggjöf tak- marki frjálsa fjármagnsflutninga með því að meðhöndla fjárfestingu á mis- munandi hátt eftir því í hvaða landi fé- lag er skráð og þar með í hvaða landi fjárfesting á sér stað. „Löggjöfín vinn- ur því gegn fjárfestingu í félögum frá öðrum EES-löndum og skekkir sam- keppnisstöðu slíki’ar ijárfestingar gagnvart innlendri fjárfestingu, sem getur leitt til skattafrádráttar," segir í fréttatilkynningu ESA Geir H. Haarde fjármálai’áðheira kvaðst í samtali við Morgunblaðið í gær ekki hafa séð tilkynningu ESA Hann sagði að stofnunin hefði upphafiega gert athugasemd vegna þessa í desember sl. Ríkisstjórnin hefði þá strax ákveðið að taka til varna í málinu og byggja á þeim mál- efnalegu rökum að skattamál heyrðu ekki undir EES-samninginn; ekki væri hægt að sýna fram á að um raunverulega hindrun fjármagns- flutninga og brenglun samkeppnis- stöðu væri að ræða vegna þess um hve litla skattaívilnun væri að ræða; nauðsynlegt væri að takmarka íviln- un við innlend félög því erlend væru ekki upplýsingaskyld gagnvart inn- lendum skattayfirvöldum. Einnig sé til þess að 'líta að um er að ræða tímabundnar ívilnanir, samkvæmt skattalögum. I frétt ESA kemur fram að í kjöl- fai- þessarar tilkynningar veitist ís- lenskum stjórnvöldum tveggja mán- aða frestur til að koma sínum sjónar- miðum á framfæri. „I ljósi þeirra at- hugasemda mun ESA ákveða hvort framhald verður á málinu,“ segir í fréttatilkynningunni. DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, hafði í gær setið lengst allra samfellt í embætti forsætisráð- herra eða í 2.850 daga óslitið. Áðm’ hafði Hermann Jón- asson, Framsóknar- flokki, setið lengst samfellt í embætti forsætisráðherra eða í 2.849 daga á fjórða og fimmta áratug þessarar aldar. Davíð varð forsæt- isráðherra þegar samstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks tók við völdum 30. apríl 1991. Síðara ráðuneyti hans, samstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, var skipað 23. apríl 1995 að því er fram kemur í Handbók Alþingis. Hermann Jónasson varð fyrst forsætis- ráðherra 28. júlí 1934 og var forsætisráð- herra samfellt í fjór- um ráðuneytum til 16. maí 1942. Hann var einnig forsætis- ráðherra í vinstri stjórninni sem sat að völdum frá 24. júlí 1956 til 23. desember 1958 og hefur því set- ið lengst allra saman- lagt f stóli forsætis- ráðherra eða í 3.731 dag samtals. Ólafur Thors, Sjálf- stæðisflokki, var forsætisráðherra í litlu styttri tíma samanlagt eða 3.650 daga í fimm ráðuneytum. ■ Farsæll ferill/36 Félag heyrnarlausra stefnir RIJY Krefst text- unar og túlkunar stjórnmála- umræðna FÉLAG heyrnarlausra hefur lagt fram stefnu á hendur Ríkisútvarpinu vegna þess að það telur að hags- muna heyrnarlausra sé ekki gætt við útsendingar í tengslum við alþingis- kosningai’nar í vor. Félagið vill að umræðufundur frambjóðenda fyrir kjördag verði túlkaður og textaður beint fyrir heymarlausa og heyrnarskerta og vísar í því sambandi í mannréttinda- sáttmála Sameinuðu þjóðanna, stjórnarskrána, útvarpslög og kosn- ingalög. Málið kom til umræðu í fyrirspurn- artíma á Alþingi í gær og kom þar fram að Sjónvarpið hefur lagt fram málamiðlunartillögu þar sem lagt er til að umræðuþátturinn verði sendur út á ný í lok dagski’ár um kvöldið og aftur á kjördag, morguninn eftir, táknmálstúlkaður og textaður. Ásta R. Jóhannesdóttir spurði Björn Bjamason menntamálaráð- herra hvort honum fyndist það boð- legt að láta þennan stóra hóp manna fylgjast með umræðunum seint um kvöldið eða á kjördag. Hún sagði heymarlausa ekki hafa átt greiðan aðgang að þjóðfélagsumræðu í fjöl- miðlum fyrir kosningar. Einnig sagð- ist hún telja að sú leið væri dýrari heldur en að gera þetta meðan á út- sendingunni stendur. Björn sagðist hafa rætt málið við fulltrúa Sjónvarpsins, Félags heyrn- arlausra og fengið niðurstöðu Út- varpsráðs um málið, sem samþykkt hefði verið samhijóða. Bjöm sagðist telja að ekki væri hægt að texta þáttinn beint. „Ég held að það sé ekki hægt að saka Ríkisút- vai-pið um að gera ekki allt sem í þess valdi stendur til að gera þetta sem best.“ Hann vildi ekki tjá sig um það hvort hann myndi beita sér frekar í málinu. Ásta sagði að hægt væri að texta slíkar umræður jafnóðum, meðal ann- ars hefði það verið gert á ráðstefnum. Af 50 jökul- sporðum hafa 38 hopað AF ÞEIM 50 jökulsporðum sem mælingamenn hafa skilað umsögn um hopuðu 38 í fyrra, sex gengu fram en tveir stóðu í stað. Að sögn Odds Sigurðssonar, jarðfræðings á Orkustofnun, er gert ráð fyrir að jöklarnir haldi áfram að minnka á næstu árum. „Þetta er að vísu mjög ótrygg spá og er háð úrkomu og hita á komandi tímum,“ sagði Oddur. „Nú standa allflestar spár til þess að það muni hlýna hér á landi á næstu árum vegna gróðurhúsa- áhrifa. Hlýnað hefur víðast hvar á norðurhveli alla þessa öld með ör- fáum undantekningum eins og t.d. á Islandi, þar sem kólnaði á árun- um 1960-1990 á meðan önnur svæði í kring voru að hlýna. Nú finnst mér ótrúlegt að það haldi áfram að hlýna í kringum okkur án þess að Island fái sinn skammt af hlýindunum.“ Oddur sagði að sl. þrjú ár hefðu verið mjög úrkomurýr. „Ég held að jöklar hopi á allra næstu árum og sennilega langt fram á næstu öld,“ sagði hann. „Þar er maður að spá mjög gróft því þessi svoköll- uðu gróðurhúsaáhrif eru einungis lítill hluti af því sem hefur verið að gerast í hitastigi í heiminum. Þannig að ef einhver önnur stór stökk verða af náttúrulegum völd- um þá geta þessi áhrif orðið minni liáttar. Jöklarnir geta þá horfið tiltölu- lega hratt eins og spáð hefur verið af Tómasi Jóhannessyni en þar er gert ráð fyrir að jöklar á íslandi hverfi í stórum dráttum á tveimur öldum.“ Rán framið í söluturni við Garðastræti viDSiapn mviNNULíF HLUTABREF Pizzur Morgunblaðið/Golli LOGREGLUMENN yfirheyra afgreiðslustúlkuna eftir ránið í gærkvöldi. Hún var ein við afgreiðslu. Grímuklæddur maður ógnaði stúlku með hnífí MAÐUR vopnaður hnífí ógnaði af- greiðslustúlku á sautjánda ári í sölu- turni á horni Garðastrætis og Vest- urgötu um klukkan hálfníu í gær- kvöldi og komst á brott með 10-15 þúsund krónur. Ræninginn var fremur þéttvax- inn, klæddur blárri úlpu og með sokk fyrir andliti. Samkvæmt frá- sögn vitna varð einnig vart annars manns fyrir utan verslunina þegar ránið var framið og er talið að sá hafí getað verið í vitorði með ræn- ingjanum en ekki liggur fyrir lýsing á honum. Um mínútu eftir að tilkynnt var um ránið var fyrsti lögreglubíllinn kominn á vettvang. Fáeinum mínút- um síðar voru tveir ungir menn handteknir á Holtsgötu og fór lýs- ingin á ræningjanum saman við útlit annars þeirra. Fljótlega kom þó í ljós að þeir höfðu hvergi komið nærri og var þeim sleppt úr haldi. Að sögn lögreglu liggja þó ákveðnir menn undir grun. Upptökuvél er í versluninni en ekki var kveikt á henni þegai’ ránið var framið. Tveir viðskiptavinir fylgdust með Kjai’tan Bragason, eigandi sölu- turnsins, segir að tveir viðskiptavinir hafí verið inni í söluturninum þegar ránið fór fram. Hann segir að annar þeirra hafi sagt við sig að ræninginn hafí þakkað honum fyrir að skipta sér ekki af. Kjartan segir að afgi’eiðslustúlkur séu að jafnaði ekki látnar vera einar að afgreiða á kvöldin og að unnusti stúlkunnar, en hún er á 17. ári, hafí komið aðeins um tveimur mínútum eftir að ránið var framið. Hann segir að líklega muni allt afgreiðslufólk sitt fara á námskeið nk. laugardag hjá Kaupmannasamtökunum í við- brögðum við aðstæðum sem þessum. 33 milQ- arðar Little Caesar’s Mistök vegna tæknigalla/B2 Fyrsti staðurinn í Evrópu/B6 Sér bl löð í dag n sftitJifi Fyigstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.